Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.04.1973, Blaðsíða 8
40 MORGUNBLAÐDÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973 IR varð Islandsmeistari ÍR-ing-ar urðu fslandsmeistar- ar i körfuknattleik 1973, fimmta árið í röð, eftir aukaúrslitaleik við KR-inga. — tírslitaleikur- bin var leikinn s.l. miðvikudag, og var hann frábærlega vel leik inn af beggja hálfu, sérstaklega fR-inga sem sigruðu stórt, eða með 91 stigi gegn 73 stigum KR. Það benti þó ekkert til þess lengi vel að um yfirburðasigur yrði að ræða. Leikurinn var af- ar jafn, og staðan í hálfleik var t.d. jöfn 38:38. KR-ingarnir byrj uðn betur, og höfðu frumkvæðið i byrjun og komust t.d. í 14:8. lR jafnaði 18:18 og komsit yfir 21:20, og var þá hálfleikurinn urn það bil háifnaður. KR komst I 26:21, og aftur jöfnuðu IR- ingar. Eftir það skiptust liðin á um forustu, og í hálfleik var stað an jöfn. í fyrri hálfleikn- um tókst KR oft að opna maður á mann vöm IR með hröðum leik inn á miðjuna, og skoruðu þeir mikið þannig. KR-ing- um gekk hins vegar afar illa að verjast góðri hittni iR-inga sérstaklega þeim Birgi Jakobs- syni og Kristni Jörundssyni. Það var hins vegar ljóst i upp- haíi síðari hálfleiksins að ÍR- Ingum hafði tekizt að þétta vöm sdna aUverulega, og var vörnin firábærlega góð í síðari hálfleikn um. Hraðaupphlaupin fengu l'íka á sig betri svip, og við þetta réðu KR-ingar ekki. Þegar hálf- leikurinn var hálfnaður var stað an 53:49, en á næstu min. skor- aði iR 7:0, og var þá endaniega útséð um hvorum megin sigurinn lenti. Lokatölur urðu sem fyrr sagði 91:73. Birgir Jakobsson átti stórgóð- an ieik, og var langbezti mað- ur vallarins. Bæði skoraði hann mikið, og einnig var hann frá- Islandsmeistarar ÍR í körfuknattleik 1973. Efri röð frá vinstri: Hólmsteinn Sigurðsson, Þorsteinn Guðnason, Anton Bjarnason, Sigurður Gíslason, Agnar Friðriksson, Birgir Jakobsson, Einar Sigfússon, Sigurður Halldórsson, Pétur Böðvarsson og Einar Ól- afsson, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jón Jörundsson, Sigurjón Ólafsson, Kolbeinn Kristinsson, Kristinn Jörundsson, fyrirliðl, Finnur Geirsson og Þórarinn Gunnarsson. Á myndina vantar Gylfa Kristjánsson. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson). bær í vörninni, og í fráköstunum var hann nær einráður tímunum saman. Þá átti Anton Bjarnason mjög góðan leik, sennilega sinn bezta með IR. Kristinn átti að mörgu leyti góðan dag, og sömu sögu er að segja um Agnar, en Einar Sigfússon var óheppinn undir körfunni. Þeir Hjörtur Hansson og Kol beinn Pálsson voru beztu menn KR, aðrir voru lakari, en sýndu ágæta kafla, sérstakiega framan af. Birgir skoraði mest fyrir iR, 28 stig, og Kolbeinn Páisson fyr ir KR 23. srk. / I M / f 1. ’ ? Jjr i * ’ 1 Kristinn Jörundsson hampar fslandsbikarnum, en KR-ingar í baksýn, klappa honum og félögum hans í ÍR lof í lófa. ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD Loka- staðan ÍR 15 14 1 STIG 1346:1010 28 KR 15 13 2 1257:1059 26 Ármann 14 9 5 1054:961 18 Valur 14 6 8 1209:1116 12 is 14 5 9 1114:1159 10 UMFN 14 5 9 1014:1221 10 HSK 13 3 10 894:1017 6 Þór 13 1 12 687:1032 2 Þórir Magnússon varð stiga- hæstur leikmanna ísiandsmóts- ins, hann skoraði 306 stig í 12 leikjum. Bjarni Gunnar, IS varð í öðru sæti með 285 stig eftir 14 leiki, og í þriðja sæti varð David DeVany með 280 stig eftir aðeins 9 leiki, og er þvi með ianghæst „meðalskor" í leik. Eins og sést á st'gatöflunni hér að ofan, þá hafa öll liðin í 1. deild skorað yfir 1000 stig í mótinu, nema HSK og Þór, en þau lið hafa aðeins leikið 13 leiki, og er ekki útlit fyrir að þeim fari fram héðan af. Ails voru skoruð 8575 stig í leikjum mótsins, en það mun vera algjört met hérlendis. Ég hef ekki tölu á þeim leikjum þar sem annað liðið hefur skor- að yfir 100 stig, sennilega eru þeir um það bil 15 talsins, á móti þremur í síðasta móti. VÍTAHITTNI Af þeim einstaklingum sem náðu tilskildum skotafjölda til þess að eiga möguleika á verð- launum (40 skot) skáru tveir teikmenn sig aigjörlega úr. Þetta voru þeir David Devany og Kristinn Jörundsson. Milli þeirra stóð mjög hörð keppni í margar vikur, og lauk þannig að David var með 81,8% hittni úr 66 skotum, á móti 80,9% hjá Kristni úr 42 skotum. 1 leik ÍR gegn KR tók Kristinn fjögur skot og hitti úr þremur, en hefði hann einnig hitt hinu fjórða, þá hefði hann farið upp fyrir David, svo hörð var keppni þeirra. En David er vel að þessu kominin, harm er geysileg vitaskytta. KR-ingar eru með bezta heild arútkomu í vítaskotum, þeir eru með 57,6% úr 269 skotum. Síð- an koma þrjú lið i hnapp, IR með 56,6% — UMFN með 56,3% og Ármann með 56,1.% VILLUR Ármenningar hafa löngum verið orðaðir við það að leika fast i vörninni, og á daginn kom að þeir eru mieð flestar villur dæmdar á lið. Liðið fékk á sig 369 viliur. Næst kemur ÍS með 333, og í þriðja sæti UMFN með 321. AF VELLI Njarðvíkingar voru oftast allra reknir af velii með 5 vill- ur, alls 19 sinnum. Síðan komu KR-ingar og ÍS með 17 skipti hvort lið, og nokkru munaði á næstu liðum. gk. Tapleikurinn erfiðastur — sagði Kristinn Jorundsson, fyrirliði íslandsmeistaranna Fyrirliði hinna nýhökuðu Islandsmeistara í körfuknatt lelk, er hinn kunni íþrótta- maður Kristinn Jörundsson. Hann er einnig mjög þekkt- nr leikmaður úr knattspyrn- unni, var t.il. íslandsmeistari með Fram í fyrra. Kristinn mtin leika knattspyrnii með II. deildar liði Völsunga í sumar, en næsta haust tekur hann til við nám í viðskipta- fræði að nýju, og þá einnig körfuknattleildnn. Kiristiinn var að vonum kampakátur þegar við hittuim hann að máli eftir úrslitateik- inn gegn KR. Það var mik- il gleði í herbúðum iR. Við spurðiim Kristin hverju hann vildi þakka það fyrst og fremst, að þessi sig- nr vannst, en hann er fimmti sigur ÍR á íslandsmóti í röð. — Það eru nú margar ástæður fyrir þvi, en þó vil ég einkum nefna tvaar. 1 fyrsta lagi eigum við góð- an hóp frambæriiegra leikmanna sem hafa æft vel í ailan vetur. í öðru lagi höf um við yfir að ráða bezta þjálfara hérlendum, Ein- ari Ólafssyni, sem hefur unn ið mikið og óeigingjarnt starf. Hvaða leikur var erfiðast- ur í mótinu? Það var án alls efa eini leikurinn sem við töpuðum, tapleikuriinn gegn KR í síð- ari umferðinni. Við vor- um undir miklu taugaálagi, og náðum okkur aldrei vel á strik i þeim leik, auk þes.s sem KR var í sínum bezta ham. En þessi ósigur varð til að stappa í okkur stálinu, og við vorum staðráðnir að láta ekki íara jafn illa í sjálfum úrslitaleiknum. Andinn innan liðsins var mjög góður, og þetta tókst allt að lokum. Er þátttaka í Evrópu- keppni framundan? — Um það get ég ekkert sagt á þessu stigi málsins. Það stendur til að landslið- ið fari til Bandarikjanna í haust, og ef af þvi yrði og einhverjir úr ÍR færu þá ferð, þá verður það senni- iega arið nóg yerkefni í (haiust..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.