Morgunblaðið - 02.10.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1973.
24 stig í
hnúkaþey
TJL ÞESS að finna sambæri-
legan hita og var í fyrrinótt á
Austurlandi, verður að leita allt
til sunnanverðra Bandarikj-
anna, þar sem í Evrópu mældist
hvergi svo mikill hiti. Eitthvað
á þessa leið sagði Knútur Knud-
sen, veðurfræðingur, er við
leituðum frétta af óvenjulegum
hita hér á landi á þessum tima
árs. Á Dalatanga mældist hit-
inn 24 stig, en fór niður í 23 stig
með morgninum.
Ástæðan fyrir þessum hita er
suðvestlæg átt. Þegar vindur-
inn kemur upp að landinu, er
hann 10 til 11° heitur, en þegar
upp á Iandið kemur, hitnar loft-
ið og myndast hnúkaþeyr. Get-
ur loftið þá náð allmiklum hita.
Um allt ísland var hlýtt veður í
gær, votviðrasamt á Suðvestur-
landi, en þurrt á Norðaustur-
landi. Á landinu sjálfu var ekki
óvenjulegur hiti — aðeins á
austurströndinni var unnt að
tala um óvenjulegan hita.
Slit stjórn-
jj málasambands
1 rædd í Verði
Landsmálafélagið Vörður
efnir til fundar í Súlnasal Hótel
Sögu á morgun, miðvikudag, kl.
20.30. Umræðuefni fundarins
verður landhelgismálið og slit
stjórnmálasambands við Breta.
Frummælendur á fundinum
verða Gunnar Thoroddsen, for-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins og Matthías Á.
Mathiesen, annar af fulltrúum
flokksins í utanríkisnefnd.
Fundarstjóri verður Valgarð
Briem, formaður Varðar.
„Lánsbíir’
í árekstri
Árekstur varð á Laugavegin-
um á sunnudagsmorgun, er
jeppa var ekið aftan á vörubil. I
jeppanum voru þrír piltar og
aðeins ökumaðurinn ódrukk-
inn. Einn piltanna hafði ráðið
sig í vinnu á bú suður með sjó
og tekið bílinn • „að láni“ á
laugardagskvöldið og bíllinn
verið í akstri alla nóttina. Allir
þrir hafa áður komið víð sögu
hjá lögreglunni fyrir af brot.
I Skildi hæl-
í inn eftir
I
SNEMMA á sunnudags-
morgun var brotizt inn í Aug-
lýsingaþjónustuna á Laugavegi.
Öllu var rótað til og skemmdir
unnar og stolið var sjónvarps-
tæki, segulbandstæki og spól-
um, útvarpstæki, ljósmyndavél
og fylgihlutum og tómum
ávísanaheftum. Lögreglan var
kvödd á staðinn og fann
skammt frá tvo menn með allt
þýfið. Annar játaði strax verkn-
aðinn og var síðan látinn laus,
en hinn harðneitaði. Fannst þó
hæll undan skó hans á innbrots-
staðnum. Var maðruinn úr-
skurðaður í gæzluvarðhald, á
meðan málið er í rannsókn.
Hann hafði fyrir nokkrum vik-
um verið látinn laus úr fangelsi
til reynslu, áður en hann hafði
afplánað dóm sinn.
m)
INNLENT
Björgunaræf-
ing í Saltvík
Björgunaræfingar fóru fram í
Saltvík um helgina á vegum
björgunarsveita f nágrenni
Reykjavíkur. Myndin er tekin
við það tækifæri.
*
Ekið á hest
Á laugardagskvöldið var ekið
á hest á Suðurlandsvegi,
skammt frá Kögunarhóli í
Ölfusi, og drapst hesturinn
samstundis. Rétt á eftir lenti
annar bíll aftan á bílnum, sem
lent hafði á hestinum. Ekki
urðu slys á mönnum, en tals-
vert tjón á bílunum.
*
Dágóðar
Þýzkalands-
sölur
Vélbáturinn Glettingur seldi
í Cuxhaven sl. fimmtudag —
samtals um 33 lestir fyrir 45.-
250 mörk eða um 1570 þús.
krónur. Meðalverð er í kring-
um 40 kr. á kiló.
I gær seldi Halkion einnig í
Þýzkalandi, samtals um 58tonn
fyrir um 80 þús mörk eða rétt
innan við 3 milljónir króna. Þá
átti Hafnarnesið einnig að selja
í gær í Þýzkalandi, en Morgun-
blaðið hafði ekki fengið
nákvæmar fréttir af þeirri sölu.
*
Stórávísun
týndist
Garðyrkjubóndi að austan
kom á laugardag með vöru sína
f blómabúð f borginni og fékk
greitt í 100 þús. kr. handhafa-
ávísun. Hugðist hann gista í
borginni um nóttina og fór um
kvöldið á skemmtistað. Sat
hann þar að drykkju um stund,
en fór svo út. Varð hann þess
þá var, að ávísunin var horfin
úr vasa hans. Var hafin rann-
sókn á hvarfinu, en hún stóð
ekki lengi, þvf að maður einn
kom og skilaði henni til lögregl-
unnar. Hafði hann gengið
Skólavörðustfginn og séð
ávísunina standa út úr stöðu-
mælisrauf.
Selfyssingar munu sjálfir
ákveða Votmúlakaupin
IBÖAR Selfoss munu sjálfir
ákveða hvort Votmúlakaupin um-
deildu hljóta staðfestingu sýslu-
nefndar eður ei. Akvað sýslu-
nefndin á fundi sínum á Flúðum
sl. laugardag, að atkvæðagreiðsla
meðal fbúa Selfoss skyldi skera úr
um Votmúlakaupin, og lagði
nefndin svo fyrir, að atkvæða-
greiðslunni skyldi lokið fyrir lok
þessa mánaðar. A sýslunefndar-
fundinn á Flúðum mættu full-
trúar allra hreppa nema eins.
Talsmenn beggja aðila — hrepps-
nefndar-meirihlutans og minni-
hlutans, — segja sig geta unað
þessum úrskurði.
Samþykkt sýslunefndarinnar
um Votmúlamálið var svo-
hljóðandi:
„Vegna hins almenna áhuga
Selfossbúa, ýmist með eða á móti
fyrirhuguðum kaupum á jörðinni
Votmúla í Sandvíkurhreppi, telur
sýslunefndin rétt, að vilji hrepps-
búa sjálfra ráði úrslitum um af-
drif málsins, og ákveður að af-
greiða það í samræmi við þá af-
stöðu. Sýslunefndin ákveður því
að fela oddvita sínum fyrir
hennar hönd að samþykkja fyrir-
liggjandi kaupsamning hrepps-
nefndar Selfosshrepps um Vot-
múlajarðirnar að þvi tilskildu; I
fyrsta lagi að hreppsnefnd beri
samninginn fyrir lok október-
mánaðar nk. undir atkvæði
þeirra, sem eru eða eiga sam-
kvæmt ákvörðun Hagstofu
Islands að vera á ibúaskrá Sel-
fosshrepps 1, des. 1972, hafi náð
20 ára aldri á kjördegi og ekki
flutt lögheimili sitt úr hreppnum.
I öðru lagi að samningurinn hljóti
jákvæði meirihluta þeirra, sem
neyta atkvæðis réttar síns um
málið. Að öðrum kosti er oddvita
falið að synja um samþykki sýslu-
nefndar til þess að umræddur
kaupsamningur um Votmúla-
jarðirnar hljóti gildi.“
I tilefni af þessum úrslitum
sneri Morgunblaðið sér til Óla Þ.
Guðbjartssonar, sveitastjóra, og
leitaði álits hans á ákvörðun
sýslunefndar um atkvæðagreiðslu
um málið. Kvaðst Óli sem minnst
vilja segja um samþykkt sýslu-
nefndar á þessu stigi, þar eð hann
hefði enn ekki fengið hana í
hendur, Þó kvaðst í sjálfu sér
ekkert hafa við atkvæða-
greiðsluna að athuga, það væri
lýðræðisleg málsmeðferð og því
eðlileg.
Einnig sneri Morgunblaðið sér
til Sigurðar Inga Sigurðssonar,
talsmanns minnihlutans og spurði
hann álits á samþykkt sýslu-
nefndar. Sigurður kvaðst eftir at-
vikum geta fellt sig við hana, því
með þessu móti gæfist fólkinu
sjálfu tækifæri til að ákveða í
þessu máli. Hann sagðist þó
mundi hafa talið eðlilegast, að
sýslunefndin hefðu synjað um
þessi kaup á fundi sínum, því að
ástæðulaust væri að kynda áfram
undir ólguna í hreppnum vegna
þessa máls.
Tvö útgerðarfélög samein-
ast um nýjan skuttogara
SlÐASTLIÐINN sunnudag
lagðist að bryggju á Hofsósi nýr
skuttogari, sem Nöf h.f., Hofsósi
og Utgerðarfélag Skagfirðinga
h.f. á Sauðárkróki hafa keypt frá
Harstad í Noregi. Skuttogaranum
hefur verið gefið nafnið Skafti
SK 3 og verður sameign
félaganna tveggja, jafnframt er
samkomulag milli félaganna um
að þau sameinist í eitt útgerðar-
félag, sem þá mun reka þrjá skut-
togara, þ.e. Drangey sk 1, Hegra-
nes SK 2 og hið nýkeypta skip,
Skafta SK3.
I fréttatilkynningu frá Nöf h.f.
og útgerðarfélagi Skagfirðinga
h.f., sem Mbl. hefur borizt segir
að hið sameiginlega félag muni
taka að sér hráefnisöflun fyrir
frystihús við Skagafjörð, tvö á
Sauðárkróki og eitt á Hofsósi.
Hafi að lokum umræður milli
félaganna, sem fram foru í sumar,
komið fram samdóma álit for-
svarsmanna þeirra beggja, að
skynsamlegasta leiðin til þess að
leysa hráefnisöflunarvandamál
allra frystihúsanna við Skagfjörð,
væri að myndað væri eitt
rekstrarfélag með aðal aðsetur á
Sauðárkróki.
Skafti SK 3 er næstum nýtt
skip, þar eð hann var afhentur
fyrri eigendum í desember 1972
og hefur hann verið gerður út frá
Harstad i Noregi, þar til að kaup-
samningur var gerður í ágúst
síðastliðnum. I Noregi var skipið
gert út undir nafninu Leisund.
Skipið er 299 rúmlestir að stærð
og er aðalvél 1.500 hestöfl. Skipið
er búið öllum nýjustu tækjum til
fiskveiða. 1 fréttatilkynningunni
frá eigendum skipsins segir m.a.,
að góð fyrirgreiðsla hafi fengizt
hjá viðskiptabanka, svo og opin-
berum sjóðum vegna þessara
skipakaupa og segir að eflaust
hafi- það verið hvetjandi, að um
samruna tveggja útgerðarfélaga
var að ræða í þessu tilviki.
Heimilar vegafram-
kvæmdir við Akureyri
MATSNEFND eignarnámsbóta,
sem starfar samkvæmt lögum frá
síðasta Alþingi, var að störfum í
nágrenni Akureyrar á laugardag-
inn. Stjórnskipaður formaður
nefndarinnar er Egill Sigurgeirs-
son, hrl., en hann kvaddi síðan tvo
menn I nefndina með sér, þá
Ögmund Jónsson, verkfræðing og
Björn Bjarnarson, búnaðarráðu-
naut.
Nefndin tók til meðferðar mál
Vegagerðar ríkisins annars vegar
og éigenda 12 jarða og einnar
jarðarspildu hins vegar og
úrskurðaði vegagerðinni heimild-
ir til ýmiss konar framkvæmda á
þessum 13 stöðum. Urskurður
leyfanna er endanlegur, en mats-.
gerðirnar sjálfar bíða eftir frek-
ari málflutningi.
Vegagerð ríkisins getur nú
hafizt handa um ýmsar bráðnauð-
synlegar vegabætur svo sem gerð
nýs végarkafla hjá Dvergasteini í
Glæsibæjarhreppi og nýrrar brú-
ar yfir Lónslæk, þar sem Norður-
landsvegur liggur inn til
Akureyrar úr norðri. Á þessum
slóðum hafa orðið mörg alvarleg
umferðarslys á undanförnum ár-
um, en nú á vegurinn þar að
verða hættuminni.
Hvergi hefur enn komið til lög-
banns vegna ágreinings um bætur
íyrir landsspjöll, en þessir úr-
skurðir nefndarinnar munu þó
ryðja ýmsum hindrunum úr vegi.
Gerð hins nýja vegar hjá Lónsbrú
mun hefjast strax og Vegagerð
ríkisins hefur til þess tiltækan
mannafla, sennilega um næstu
helgi. —Sv.P.
Seldu fyrir 64,7 millj.
LANDSSAMBAND íslenzkra
útvegsmanna skýrir frá því I
fréttabréfi yfir vikuna, að frá
24. til 29. september hafi
íslenzk síldveiðiskip selt í
Danmörku 1.929 lestir fyrir
64,7 milljónir króna. Meðalverð
á hvert kg var 33,57 krónur.
Hæsta meðalverð hlaut Heimir
SU 39,23 krónur.
Aflahæstu skipin nú eru
Loftur Baldvinsson, sem selt
hefur fyrir 48,5 milljónir
króna, Súlan EA, sem selt hef-
ur fyrir 35,9 milljónir og
Guðmundur RE, sem selt hefur
fyrir 34,3 milljónir króna.
Bankamálaráðherra fírrir sig
ábyrgð af Seðlabankabyggingunni
A borgarráðsfundi á þriðjudag í
sl. viku var lagt fram í borgarráði1
bréf bankamálaráðherra, Lúðvíks
Jósepssonar, sem hann ritaði
ráðinu í tilefni bréfs þess frá því
12. september sl. vegna Seðla-
bankabyggingarinnar. I bréfi ráð-
herra firrir hann sig allri ábyrgð
af byggingarmálum Seðla-
bankans.
I bréfi ráðherra segir m.a.:
Ráðuneytið hefur ekki með að
gera húsbyggingarmál Seðla-
banka Islands. Til þess hefur ekki
verið leitað um neinar heimildir í
því sambandi, og ráðuneytið
hefur ekki átt í neinum samninga-
viðræðum við Reykjavíkurborg
um það mál.
Það sem ráðuneytinu er
kunnugt um, að stjórn Seðla-
bankans hefur lýst sig reiðubúna
„til viðræðna við borgaryfir-
völdin um hugsanlegar
breytingar í byggingarfram-
kvæmdum bankans“ og hefir
óskað eftir að „viðræður milli
borgaryfirvalda og Seðlabank-
ans“ verði teknar upp, þá er Ijóst,
að viðræður um mál þetta á milli
réttra aðila, — þeirra aðila sem
hingað til hafa fjallað um málið
— ættu að geta f arið fram.“