Morgunblaðið - 16.10.1973, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.1973, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1973 Marteinn Þorsteinsson kaupmaður — Minning F. 24. apríl 1877 D. 6. okt. 1973 Þegar ég var ungur að árum komst ég í töluverð kynni við nokkra sýslunefndarmenn Sunnmýlinga. Fundirnir voru haldnir á Eskifirði. Sumir nefndarmanna voru í kosti, þar sem ég var þá til húsa. Þar sem ég var mötunautur þessara manna, átti ég þess kost að hlíða á borðræður þeirra, og t Eiainkona mín, ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR frá Iðunnarstöðum Lundareykja- dal, Selvogsgrunni 3, Reykjavlk, lézt í Borgarsjúkrahúsinu 12 þ - m. GuðmundurG Guðjónsson. vissulega bar þar margt á góma meðan matazt var. Sérstaklega varð mér minnisstæður Sveinn Ólafsson í Firði, sem um árabil var þingmaður Suðurmúlasýslu. Sveinn talaði um kjölfestumenn, sem væru bráðnauðsynlegir hverju þjóðfélagi jafnvægis vegna. Menn, sem ekki vörpuðu hugsunarlítið fyrir borð gömlum verðmætum. Margt mælti Sveinn greindarlega um þessi efni, eins og hans var von og vísa. Af kynn um mínum síðar af mönnum úr ýmsum byggðarlögum landsins, hafa mér oft flogið i hug ummæli Sveins í Firði um þessi efni. I mínum huga voru kjölfestumenn þeir, sem hugsuðu um framtíðina af skynsemdmeð hliðsjón af fortið og samtíð. Þetta voru menn traustleikans, þar sem loforð og efndir fóru saman eftir því, sem frekast var kostur. — Vitanlega voru og eru þessir menn ekki allir steyptir í sama mót. Beztu kjöl- festumennirnir eru oft hugsjóna- menn, sem vissulega horfa fram á veginn og vilja jafnframt að allt sé byggt á traustum grunni, eftir þvi sem frekast verður við komið. Sem betur fer höfum við átt og eigum marga kjölfestumenn í öll- um stéttum, en hinu er heldur ekki að leyna, að oft virðist okkur bókstaflega hafa vantað og að slíka menn vanti. Þegar menn ferðast oft um sömu kunnugu staðina og verða þess áskynja, að ýmsir, sem þar hafa lengi dvalið og starfað, eru burtu fluttir, þá fyrst verður manni Ijóst, hve mikinn svip margir þessara manna settu á staðina, þar sem þeir unnu megin hluta sinnar starfsævi. Sérstak- lega átti ég kost á að kynnast þessu í sjávarplássunum á Austurlandi á því tímabili, er ég gegndi erindrekastörfum fyrir Fiskifélag íslands í Austfirðinga- fjórðungi. Ferðalög á milli fiski- félagsdeildanna var þá fastur lið- ur í starfi erindrekans, og á ég margar ánægjulegar minningar frá þeim ferðalögum. — Eg kom oft að Búðum í Fáskrúðsfirði, þótt ekki væri um erindrekaferðir að ræða, heldur einnig vegna þess, að þar voru náin skyldmenni búsett á nálæg- um grösum. Það var nálega ófrávíkjanleg venja, er ég átti leið um Búða- kauptún, að koma við hjá Marteini Þorsteinssyni og rabba við hann um stund. Marteinn starfaði talsvert að málefnum Fiskifélagsins og fleiri félagsmál- um sjávarútvegsins. Hann sat á fjórðungsþingum fiskifélags- deildanna og á fiskiþingi. Ekki ber að skilja þetta svo, að við Marteinn ræddum eingöngu um sjávarútvegsmál, síður en svo. Hann var prýðilega greindur mað- ur. Sérlega fróður um Iiðinn tíma (þó að ættfræði bæri þar hæst), fylgdist með samtíð eins og bezt gerist og horfði inn í framtfð með athygli og greind sjáandans. Ég græddi yfirleitt á því að hlusta á t Faðir okkar HALLGRÍMUR GUOMUNDSSON járnsmiður frá Patreksfirði andaðist i sjúkradeild HRAFNISTU, sunnudaginn, 14.október. Böm hins látna. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma GUÐRÚN BÓASDÓTTIR BRUNBORG andaðist 14 okt Salomon Brunborg, Reidun og Rolf Staver, Erling og Anne Brunborg, Egil og Else Brunborg, Ellen, Elin og Eva Brunborg. t PÉTUR ÞORBERGSSON, Nautaflötum, Ölfusi lézt að Sólvangi í Hafnarfirði að kvöldi 1 2 okt Vigdís Eyjólfsdóttir og börn hins látna. t Faðir minn LUOVIK HJORTÞORSSON frá Vestmannaeyjum, andaðist að núverandi heimilí okkar, Hólabraut 1 6, Akureyri, aðfarar- nótt laugardags 13 október Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju, fimmtudaginn 1 8. okt kl. 1 3.30 e.h Fyrir ralna hönd og annarra vandamanna Sigrún Lúðvíksdóttir. t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og dóttir, ERLA HARALDSDÓTTIR Hjarðarhaga 1 1, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn, 17. október kl. 13.30 Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Krabbameins- félagið. Helgi Bachmann, Edda H. Bachmann, Kristján Svansson, Sjöfn H. Bachmann, Vilhelmina Einarsdóttir. Hrönn H. Bachmann, Sif H. Bachmann. t Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, MAGNÚS BL. JÓHANNESSON, verkstjóri, Nýlendugötu 24. verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni, miðvikudaginn 1 7. okt. kl 1 3.30. Erna Magnúsdóttir, Sigurbjörn Kristinsson, Magnhildur Sigurbjörnsdóttir, Magnús Bl, Sigurbjörnssin, Laufey B. Jóhannesdóttir. t Maðurinn minn EIRÍKUR BJÖRNSSON. Vesturbraut 8, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudagínn 1 7. október n k kl 2 srðdegis Blóm vinsamlegast afþökkuð Fyrir hönd vandamanna Guðfinna Jónsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi KONRÁÐ ÞORSTEINSSON, Háaleitisbraut 1 8, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 16 okt. kl. 1 3,30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á kristniboðið i Konsó. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Sigríður Skúladóttir. Martein, maðurinn varð mér sér- staklega minnisstæður. Hafi ég ekki vitað það áður, þá varð mér það fyllilega ljóst, er ég ferðaðist um þessar slóðir, eftir að Marteinn fluttist til Reykjavíkur, að hann hafði um áratuga skeið staðið f fremstu röð þeirra manna, er settu svip sinn á Búðakauptún á fyrrihluta þessarar aldar. Hann var að mínu mati tvímælalaust einn af kjölfestumönnum sinnar samtíðar. Friðrik Steinsson. í dag er til moldar borinn Marteinn Þorsteinsson, fyrrum kaupmaður á Fáskrúðsfirði. Hann er fæddur 23. apríl 1877, að Stafa- felli i Lóni. Tveggja ára gamall fluttist hann með foreldrum sfn- um að Steinaborg á Berufjarðar- strönd, og þar ólst hann upp. RUmlega tvítugur hóf hann nám í Búnaðarskóla Torfa í Ólafsdal og lauk þar námi 1901. Árið 1903 gerðist hann verzlunarmaður hjá Örum & Wulff á Fáskrúðsfirði. 1920 stofnaði hann ásamt mági sínum verzlunina Martein Þor- steinsson & Co., sem þeir ráku ásamt útgerð og fiskverkun til ársins 1951, er hann fluttist til Reykjavíkur. Á Fáskrúðsfirði gegndi hann margvíslegum trúnaðarstörfum. 4. júní 1905 steig hann mikið gæfuspor, er hann kvæntist Rósu Þorsteinsdóttur frá Hóli i Stöðvarfirði. Hjónaband þeirra var einstaklega farsælt. Gesta- komur á heimili þeirra tíðar og gestirnir kvaddir með orðunum: þakka þér fyrir að þú komst. Rósa lézt 14. ágúst 1956. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Barna- börnin eru 13 og barnabarna- börnin um 20. Ég, er þessar fá- tæklegu Iínur skrifa, á þvi láni að fagna að vera barnabarn þessa merkismanns. Umhyggja hans fyrir okkur öllum var slik, að það var sem hvert okkar væri hans einasta, með hverju okkar fylgdist hann, allt fram á síðasta dag, af þvilíkri alúð að einsdæmi er, hann ræddi við okkur um líf sinnar kynslóðar, sagði okkur frá dvöl sinni hjá Torfa I Ölafsdal, sem hann minntist með mikilli ánægju, sagði frá ætt okkar og uppruna, en hann var mjög fróður um austfirzka ættfræði, en umfram allt lifði hann lífinu með okkur, vildi á allan hátt styðja okkur og styrkja í lífsbaráttunni. Barnabarnabörnin voru umvafin sömu ástúðinni, öll urðu þau að fá mola við heimsóknir og öll fengu þau afmælispakka, umslag, áritað til viðkomandi yngismeyjar eða yngissveins, með kveðju frá gamla afa M.Þ., í umslaginu var peningaseðill, súkkulaðistykki og Framhald á bls. 30. t Systir okkar HALLDÓRA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Snorrabraut 40, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju, miðvikudaginn 17. okt kl. 10:30 f.h. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna Eiríkur Jónsson t Alúðar þakkir fyrir auðsýndan vinarhug við andlát og jarðarför REIMARS EYJÓLFSSONAR. Læknum og hjúkrunarliði Borg- arspítalans þökkum við innilega góða umönnun. Börn, systkini og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.