Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 32
mnRCFRLonR mOGULEIKR VÐRR 2ltorgiinf>lai>t& smnRGFmonR mnRKRÐ VÐRR LAUGARDAGUR 12. JANtJAR 1974 STÓR- SALA SVAL- BAKS AKUREYRARTOGARINN Sval- bakur seldi 1139 kit eða 72.3 lest- ir í Grimsby í gær fyrir 29.900 sterlingspund eða tæpar 5.8 milljðnir. Meðalverðið var kr. 79.38, sem er næst hæsta meðal- verð, sem íslenzkt fiskiskip hefur fengið fyrir fisk í erlendri höfn. Aðeins togbáturinn Fylkir NK á hærra meðalverð, kr. 84.26, sett 14. desember s.l., en þess ber að gæta, að þegar Fylkir seldi, var gengi pundsins mun hærra, þannig að ef gengið er tekið til hliðsjónar mun meðalverð pr. kíló vera nokkuð svipað hjá Fylki og Svalbaki. f dag verður opnuð á Kjar- valsstöðum sýning á lista- verkum í eigu Reykjavíkur- borgar og eru 107 verk á sýningunni eftir 65 lista- menn. Reykjavíkurborg hef- ur á sfðustu áratugum eignazt mjög gott safn ís- lenzkra listaverka og hefur þeim nú verið safnað saman úr hinum ýmsu stofnunum borgarinnar til sýnis fyrir borgarbúa. A myndinni sjást nokkur verkanna á sýn- ingunni í Vestursalnum. Ljösmynd Mbl. ÓI.K.M. Þróunarsýning atvinnu- veganna í Laugardalshöll AÐ FORGÖNGU þjóðhátíðar- nefndar 1974 hefur verið unnið að undirbúningi mikillar sýn- ingar, sem halda á í Laugardals- höllinni f júlí- og ágústmánuði næstkomandi. Sýning þessi hefur Fiskblokk lækkar 1 Bandaríkjunum NÚ HEFUR það komið í ljós, sem margir óttuðust, að fiskblokkin ætti eftir að lækka á Bandaríkja- markaði. Allt frá þvi um áramót hefur blokkin lækkað, og mest lækkaði hún í fyrradag. Guðmundur H. Garðarsson, blaðafulltrúi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að stein- bítsblokkin hefði lækkað um 3 cent, og karfa- og ufsablokkin um 2 cent. Sagði hann, að hér væri miðað við verða á ensku pundi, (0.4536 kg.). — Þessar lækkanir þýða 3—4% lækkun á umræddum tegundum miðað við fyrra verð á Banda- ríkjamarkaði. Staða þorsk- blokkarinnar á markaðinum vestra er óljós þessa dagana, hún hefur að vísu ekki lækkað enn, en allt er í óvissu um hana, sagði Guðmundur. verið kölluð Þróunarsýning atvinnuveganna, en að henni standa helztu atvinnuveg- ir landsmanna, landbúnaður, verzlun, sjávarútvegur, iðn- aður, en að auki verður sér- staklega fjallað um samgöngur landsmanna og einnig mun Reykjavíkurborg og ríkis- vald taka þátt f sýningunni. Hlutverk Þjóðhátíðarnefndar hefur verið að sameina fulltrúa frá öllum þessum aðilum um sýn- inguna og er nú verið að leggja sfðustu hönd á kostnaðaráætlun- ina og verður þá gengið frá mál- inu af hálfu nefndarinnar og tek- ur þá við sérstakt sýningarráð. Indriði G. Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Þjóðhátíðarnefndar 1974, tjáði Mbl. í gær, að nú um Þráttað um skiptaprósentuna Á mánudaginn á Narfi RE 13 að selja í Grimsby og gera menn sér jafnvel vonir um, að meðalverðið verði þá enn hærra, því algjör fiskskortur er nú á brezka markaðnum og mun verða fram í miðja næstu viku. Afli Narfa er áætlaður 115—120 lestir. Skut- togarinn Arnar frá Skagaströnd mun svo selja i Grimsby á þriðju- dag eða miðvikudag. SATTASEMJARI ríkisins hóf fund með fulltrúum sjómanna og útgerðarmanna kl. 4 í gær. Matar- hlé var gert kl. 7 en fundur hófst aftur kl. 9 og stóð enn þegar Morgunblaðið hafði síðast fréttir af fundinum. Blaðið náði í gærkvöldi tali af Jóni Sigurðssyni, formanni Sjó- mannasambandsins, og sagði hann, að sér fyndist lítil hreyfing á málunum ennþá. ,,Við vorum með kröfur um hækkun skipta- prósentunnar en það atriði hefur ekkert gengið. Hins vegar má segja, að nokkur smærri atriði hafi þokazt i áttina," sagði Jón. Sjávarútvegurinn: Framleiðsluverðmætið nærri 19 milljarðar kr. LATA mun nærri, að verðmæti útf lutningsframleiðslunnar í sjávarútvegi hafi numið um 18,9 milljörðum króna á sl. ári, samkvæmt upplýsingum Jóns Sigurðssonar, hagrannsóknar- stjóra. Þetta eru að vísu áætlun- artölur, sem reiknaðar eru með hliðsjón af útflutningsframleiðsl- unni á síðasta ári allt fram í októbermánuð, og ekki talið að þar skeiki ýkja miklu frá rauntöl- unni. Ef litið er á verðmæti útflutn- ingsframleiðslunnar innan ein- stakra greina sjávarútvegsins verður niðurstaðan sem næst þessu: Nýr ísaður fiskur, seldur erlendis, mun hafa numið sem næst 1500 milljónum króna; frystar fiskafurðir (þar með talin rækja og humar) mun hafa numið um 9000 milljónum króna; salt- fiskur og skreið mun hafa numið um 3500 milljónum króna; afurðir síldar- og fiskmjölsverk- smiðja mun hafa numið um 4000 milljónum króna og loks aðrar sjávarafurðir (svo sem hvalur, grásleppuhrogn og niðurlagn- ingarvörur ýmiss konar) munu hafa numið um 900 milljónum króna. Rétt er að taka fram, að í öllum þessum tölum er miðað við fob-verðmæti framleiðslunnar. þessar mundir væri verið að tilnefna menn til þess að vera fulltrúar hinna ýmsu atvinnu- greina, Reykjavíkurborgar og ríkisins. Frumteikningar hafa verið gerðar af sýningunni, sem fylla mun alla Laugardalshöllina, svo og svæðið utan hennar. Þegar sýningarráð hefur verið myndað kýs það sér formann og ræður sér framkvæmdastjóra og vinnur siðan úr þeim hugmyndum, sem lagðar hafa verið til grundvallar sýningunni. Indriði sagði, að sýningin yrði með dálítið sérstæðum svip, þar sem hvorki væri hér um að ræða sölusýningu eða kaupstefnu. Kappkostað yrði að gera sýning- una eins létta og skemmtilega og frekast væri kostur og einn- ig yrði reynt að gera hana eins óvænta og kostur væri á. Hugmyndin að uppbyggingu Framhald á bls. 18 Amerískir bílar hækka AMERÍSKAR bifreiðar af venju- legri gerð munu sennilega hækka um frá 40 þúsund upp í 60 þúsund krónur á næstunni. Ástæðan fyrir þessari hækkun er afnám verð- stöðvunar i Bandarikjunum á bif- reiðaverði og batnandi staða Bandarikjadals. Afnám verð- stöðvunarinnar hefur I för með sér, að bandariskar bifreiðar hækka um 150—200 dali frá verksmiðjunum í desember eða um 2—4%. Siðan hefur batnandi staða dalsins i samanburði við krónuna haft i för með sér um 2,8% hækkun, þannig að samtals er hækkunin um 5—7% eftir bif- reiðategundum. Atvinnulausum fjölgaði um 305 í desember VERULEG aukning hefur orðið á atvinnuleysisskrá um land allt í desembermánuði sl. Um áramót- in reyndust alls um 790 manns vera á atvinnuleysisskrá og er það aukning um 305 frá þvi mánuð- inum á undan. I kaupstöðum voru 473 skráðir atvinnulausir í lok ársins, 47 í hinum stærri kaup- túnum (yfir 1000 íbúar) og 270 í öðrum kauptúnum. t nóvember voru hins vegar 307 á skrá í kaup- stöðum, 46 i stærri kauptúnunum og 132 í öðrum kauptúnum. í kaupstöðunum voru flestir skráðir atvinnulausir á Siglufirði eða 156 og er það aukning um 97 manns frá því i nóvember. í Reykjavík voru 86 á skrá eða 31 fleiri en í nóvember, 74 voru á skrá í Keflavík eða 18 fleiri en í mánuðinum á undan, 57 í Hafnar- firði eða 8 fleiri en i nóvember, 36 á Ólafsfirði og 17 fleiri en í nóvember og 32 á Akranesi en þar fækkaði atvinnulausum um 12 frá því í nóvember. Á ísafirði, Vest- mannaeyjum og Neskaupstað var enginn skráður atvinnulaus í árs- lok. í stærri kauptúnunum voru flestir skráðir atvinnulausir á Framhald á bls. 18 Álfadansinn á morgun NÚ hefur verið ákveðið, að álfadans og brenna, sem frestað var um sl. helgi fari fram á Melavelli á morgun, sunnudag kl. 17. Að álfadansi loknum verður flugeldasýn- ing. Jafnframt hefur verið ákveðið, að börn 13 ára og yngri fái ókeypis aðgang að skemmtuninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.