Morgunblaðið - 21.03.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974
Danssýning í Háskólabíói
DANSKENNARASAMBAND
íslands minnist 10 ára afmælis
síns um þessar mundir og efnir
í því tilefni til danssýningar í
Háskólabfó á laugardaginn
kemur kl. 2 síðdegis.
Sérstaklega hefur verið til
þessarar sýningar vandað, segir
f fréttatilkynningu frá samtök-
iinum Þar munu dansa
ne'i'pdm og kennarar frá fjor-
um skúium borgarinnar, ball-
ett, djassdans, stepp, barna og
samkvæmisdansa. Einnig mun
íslenzki dansflokkurinn dansa
frumsaminn ballett, er sérstak-
lega var saminn fyrir þessa sýn-
ingu af Alan Carter við tónlist
eftir Brahms.
Myndin var tekin á æfingu
nú fyrir skömmu.
— Kratar
Eramhald af bls. 40
ild til niðurskurðar á fjárlögum
og minni hækkun söluskatts.
Þessar tillögur hefðu allar verið
felldar og því væri ekki um annað
að ræða en að greiða atkvæði
gegn frumvarpinu. Fluttu sjálf-
stæðismenn 3 breytingartillögur
við frumvarpið við umræðuna í
neðri deild í gær, en þær voru
allar felldar. í fyrsta lagi fluttu
þeir tillögu um meiri lækkun
tekjuskattsins. Var hún felld með
20 atkvæðum gegn 20, en Alþýðu-
flokksmenn og Bjarni Guðnason
greiddu breytingartillögu þessari
atkvæði. I öðru lagi fluttu þeir
breytingartillögu um að söluskatt-
ur skyldi aðeins hækka um 3%.
Sú tillaga var felld með 20 at-
kvæðum gegn 16, en Alþýðu-
flokksmenn sátu hjá. Loks var
svo breytingartillaga frá sjálf-
stæðismönnum um að launaskatt-
ur yrði áfram 2'A% og rynnu 2% í
Byggingarsjóð en 'A% í ríkissjóð.
Aður runnu VA% i rikissjdð og
1% í Byggingarsjóð. í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyr-
ir 1% í viðbót í Byggingarsjdð, en
óskertu framlagi í ríkissjóð, svo
að launaskattur hækkar um 1%.
Þessi tillaga sjálfstæðismanna var
felld með 21 atkvæði gegn 16.
Bjarni Guðnason og tveir Alþýðu-
flokksþingmenn sátu hjá, en
Björn Pálsson studdi tillöguna.
Nánari grein er gerð fyrir afstöðu
Sjálfstæðisflokksins á þingsíðu
blaðsins í dag, bls, 18.
í upphafi fundar í neðri deild í
gær gerði Halldór E. Sigurðsson
fjármálaráðherra grein fyrir
breytingartillögu sinni um, að
söluskattur hækkaði um 4% í stað
5%. Sagði hann að nauðsynlegt
væri fyrir rikisstjórnina að gera
þessa breytingu til að koma mál-
inu fram, þar sem við meðferð
málsins hefði komið fram, að
ríkisstjórnin hefði ekki nægileg-
an þingstyrk til að koma frum-
varpinu fram óbreyttu. Ekki
þýddi að deila um keisarans
skegg, þar sem allir væru sam-
máia um, að skattkerfisbreytingin
væri æskileg. Ef frumvarpið næði
ekki samþykki, myndi það reyn-
ast þrándur í götu siðar, þegar
ríkisstjórn þyrfti að semja við
verkalýðshreyfinguna, þar sem
hún myndi glata trausti á stjórn-
völdum.
Gylfi Þ. Gíslason sagði, að Al-
þýðufiokkurinn myndi styðja
frumvarpið með 4% söluskatts-
hækkuninni, ef skýlaus yfirlýsing
fengist um það frá ríkisstjórn-
inni, að hætt yrði við að lækka
niðurgreiðslur á landbúnaðaraf-
urðum á árinu um 400 milljónir
og annað hvort kæmi ákvæði í
frumvarpið um, að útgjöld fjár-
laga yrðu skorin niður eða yfirlýs-
ing um að slikur niðurskurður
yrði framkvæmdur.
Ólafur Jóhannesson sagði, að
ríkisstjórnin hefði samþykkt á
fundi sínum, að niðurgreiðslurn-
ar yrðu ekki lækkaðar frá því sem
nú væri. Þá hefði ríkisstjórnin í
undirbuningi tillögur, sem stuðla
ættu að jafnvægi í efnahagsmál-
um. Einn liður þeirra tillagna
væri lækkun á útgjöldum rikis-
sjóðs, hvort heldur væru útgjöld,
sem eingöngu væru inni á fjárlög-
um eða einnig bundin í Iögum.
— Nixon
Framhald af bls. 1
ins í dag sagði að samkomulag
hefði náðst milli Bandaríkjanna
og V-Þýzkalands um greiðslu á
kostnaði við dvöl bandariska her-
liðsins í V-Þýzkalandi. Ekki var
skýrt frá efni samkomulagsins, en
gert er ráð fyrir að það verði
undirritað eftir viku eða svo.
Heimildir herma að V-Þjóðverjar
hafi fallist á að greiða 75% kostn-
aðarins, en hann mun nema um 1
milljarð dollara á ári.
Á fyrrnefndum blaðamanna-
fundi var annars mest fjallað um
Watergatemálið og endurtók Nix-
on þar, að hann myndi ekki segja
af sér embætti, en myndi eins og
hann hefði lofað að- vinna með
dómsmálanefnd þingsins í undir-
búningi hennar að hugsanlegri
málssókn og á hendur sér.
---------------
Leita vit-
stola manns
á stolnum báti
SLYSAVARNAFÉLAG Islands
fékk kl. 14 í gær tilkynningu frá
Björgunarmiðstöðinni í Þórshöfn
i Færeyjum, að þar hefði 29 tonna
bát — Röde kross að nafni —
verið stolið í höfn af vitstola
manni og siglt á haf út.Færeying-
ar höfðu sjálfir hafið leit en án
árangurs. Þeir höfðu gert ráðstaf-
anir til að láta leita frá Noregi í
átt að Færeyjum og eins frá Skot-
landi norður eftir. Fóru þeir nú
fram á, að íslendingar leituðu
bátsins frá íslandi og vestur á
bóginn í átt að Færeyjum. Að
sögn Hannesar Hafstein, fram-
kvæmdastjóra SVFÍ, hefur verið
ákveðið að hef ja leit héðan í dag.
• •
Oldruð kona
1 bílslysi
KONA hátt á áttræðisaldri varð
fyrir bifreið á Hringbraut við
Furumel um kl. 18:15 i gær. Var
hún á leið suður yfirHringbraut á
gangbraut, er hún varð fyrir
fólksbifreið, sem var á leið vestur.
Var konan flutt á slysadeild og í
fyrstu skoðun var talið, að hún
væri lærbrotin. — Bifreiðinni
virðist hafa verið ekið allgreitt,
þvi að hemlunarförin voru tæpir
23 metrar á þurru malbikinu.
Bandarískur
sendiherra
Stokkhólmi, 20. marz NTB
SÆNSKA sjónvarpið skýrði frá
því i kvöld að leiðin væri nú opin
fyrir Bandaríkin og Svíþjöð að
skiptast á sendiherrum á ný.
Sagði sjónvarpið að Wilhelm
Wachtmeister, yfirmaður stjórn-
máladeildar sænska utanríkis-
ráðuneytisins, yrði sendiherra
Svíþjóðar í Washington. Þá sagði
sjónvarpið að Nixon hefði valið
mann, sem nú er sendiherra i
öðru Evrópulandi, til að vera
sendiherra Bandaríkjanna f
Svíþjóð. Tvö ár eru nú liðin frá
því að Bandaríkjamenn kölluðu
sendiherra sinn í Svíþjóð heim,
eftir að Olof Palme forsætisráð-
herra haf ði tekið þátt í mótmæla-
göngu gegn Vietnamstríðinu í
Stokkhólmi.
Nýlagðar
háspennulínur
í FRÁSOGN Morgunblaðsins 19.
marz. um nýútkomna skýrslu Raf-
magnseftirlits ríkisins (Rafveitur
áíslandi) brenglast frásögnin um
nýlegar háspennulínur. Fer hér á
eftir leiðrétt frásögn um þetta atr-
iði:
Veigamestu breytingar á aðal-
flutningslínum (háspennulínum)
hafa orðið þær, að ný 220 kV lína
var lögð frá Búrfellsvirkjun til
Reykjavíkur (spennistöð við Geit-
háls), 60 kV lína var lögð frá Búr
fellsvirkjun að Hvolsvelli, og 30
kV lfna var lögð frá Laxárvatns-
virkjun i Húnavatnssýslu að
nýjum greinivirkjum í Vatnsdal,
og 19 kV línur lagðar þaðan um
Austur- og Vestur-Húnavatnssýsl-
ur. En meiri og minni breytingar
hafa orðið á háspennudreifikerf-
um ýmsra rafveitna.
Nýstárlegur fyrirlestur
um heilbrigðisþjónustuna
NÝSTARLEGUR fyrirlestur
verður fluttur í Norræna húsinu
annað kvöld um tölvustýrða upp-
lýsingamiðlun til heilbrigðis-
þjónustunnar. Fyrirlesarinn er
dr. Gunvor Svartz-Malmberg frá
Karólínsku stofnuninni f Stokk-
hólmi og f sambandi við fyrir-
lesturinn verður komið á beinu
sambandi við tölvu í Stokkhólmi,
og geta fundarmenn lagt fyrir
hana spurningar er varða heil-
brigðisþjónustuna og fengið svör
við. Um þennan fyrirlestur segir
svo í fréttatilkynningu frá Nor-
ræna húsinu:
Breytingar og framfarir á sviði
heilbrigðisvísinda eru mjög mikl-
ar og örar. Stöðugt er verið að
finna upp ný lyf, nýjar aðferðir
og ný tæki til þess að auðvelda
meðferð sjúkdóma, draga úr þján-
ingum og flýta fyrir bata.
Þessi aukna þekking gerir aftur
á móti miklar kröfur til bættrar
menntunar og simenntunar
lækna og allra annarra starfs-
manna heilbrigðisstétta.
Um 19.000 tímarit koma nú út á
sviði læknisfræði og skyldra
greina, og getur hver og einn sagt
sér sjálfur, hve erfitt er að fylgj-
ast með og vinza úr þessu þekk-
ingarflóði það, sem máli skiptir
hverju sinni.
Til þess að auðvelda mönnum
þessa úrvinnslu hafa verið tekin í
notkun í vaxandi mæli ýmiss kon-
ar hjálpargögn, miklar bóka- og
greinaskrár, sem raðað er eftir
efni og getur leitandinn þannig
auðveldlegar fylgzt með, hvað rit-
að er um hans áhuga- og fræði-
svið.
Á siðustu árum hefur efni ým-
issa þessara skráa verið sett í tölv-
ur, sem geyma upplýsingarnar og
skila þeim á mjög fljótvirkan
hátt, þegar leitað er ákveðins efn-
is.
Þessi tölvustýrða upplýsinga-
miðlun er í stöðugri framþróun,
og nú þarf notandinn ekki lengur
að bfða eftir svari í nokkra daga,
heldur getur hann sjálfur fengið
beint samband viðtölvuna og lagt
inn sína upplýsingabeiðni og
fengiðsvar samstundis.
Næstkomandi föstudag og laug-
ardag mun læknum, starfsfólki
heilbrigðisþjónustu, bókavörðum,
og öllum öðrum, sem áhuga hafa á
þessum málum, gefast kostur á að
hlusta á lýsingu á upplýsinga-1
— Gagnrýni
Framhald af bls. 1
han fer til Bonn á morgun og
ræðir við Walter Scheel utanríkis-
ráðherra, en V-Þjóðverjar eru
áhyggjufullir vegna ákvörðunar
brezku stjórnarinnar um að
endurskoða samninginn við EBE
og eru hræddir um að það kunni
að verða áfall fyrir evrópska ein-
ingu. Mun Scheel reyna að fá það
á hreint hvað Bretar vifja, en yfir-
lýsingar þeirra um málið hingað
til hafa veriðmjögóljósar.
— Fjölmenni
Framhald af bls. 2
kirkjunni önnuðust Lárus
Sveinsson og Jón Sigurðsson.
Kistu hins látna báru úr kirkju
kennarar og nemendur guðfræði-
deildar Háskóla íslands, en f
kirkjugarðinum báru fyrst
félagar úr Skálholtskórnum og
síðasta spölinn aðstandendur og
vinir hins látna. Söngsveitin Fíl-
harmonía söng við gröfina „Allt
eins og blómstrið eina“ i útsetn-
ingu dr. Róberts undir stjórn
Martins Hungers. Utvarpað var
frá útförinni.
— Golan
Framhald af bls. 1
að hægt verði að tryggja öryggi
landsins. ísraelar gera sér grein
fyrir og óttast mjög hve mikinn
stuðning þeir hafa misst víða um
heim vegna áhrifa olíubanns
Araba og eru hræddir við aukinn
þrýsting um tilslakanir, sem þeir
allsekki vilja gera álandamærum
Sýrlands og Jórdaníu.
þjónustu með aðstoð tölvu. Dr.
Gunvor Svartz-Malmberg frá
Karolinska Institutet í Stokk-
hólmi mun halda fyrirlestra um
slíka þjónustu, og þá aðallega
MEDLINE-kerfið, sem reynzt
hefur mjög vel og þykir afar
handhægt.
Á laugardagsmorgun er svo
áætlað að koma á beinu sambandi
milli Reykjavíkur og Stokkhólms,
þannig að fundarmenn sjálfir
geti lagt fram fyrirspurnir til
tölvunnar í Stokkhólmi og fengið
svör samstundis. Árið 1971 var
svipuð tilraun gerð hér, þegar
IBM kynnti kerfi með beinu sam-
bandi við tölvumiðstöð f Kaup-
mannahöfn. IBM mun nú einnig
veita tæknilega aðstoð og leggja
fram vélakost til þessarar kynn-
ingar.
Dr. Svartz-Malmberg kemur
hingað á vegum Fræðslunefndar
læknafélaganna, Félags bóka-
safnsfræðinga, og Norræna húss-
ins, en Heilbrigðismálaráðuneytið
leggur einnig fram fjárstyrk til
þessarar kynningar.
Fyriríestrarnir munu fara fram
á ensku. Þeir verða i Norræna
húsinu, föstudagskvöld kl. 20.30
og laugardagsmorgun kl. 9.30.
— Sundraðir
Framhald af bls. 19
út um þúfur siðastliðið haust,
hafa Austur-Evrópurikin hert
mjög árásir sínar á Kína og einnig
aukið stuðning sinn við hugmynd-
ina um alheimsráðstefnu
kommúnistaf lokka.
Kommúnistaflokkarnir i Vest-
ur-Evrópu, hafa hins vegar stung-
ið við fótum og berjast nú hálfu
harðar en áður gegn því að láta
blanda sér í deiluna. Fremstur í
flokki er ítalski kommúnista-
flokkurinn, sem er þungur á vog-
arskálunum utan Sovétrikjanna,
ekki aðeins vegna þess, að hann
er mjög sterkur á Italfu, heldur
og vegna þess, að hann hafði for-
ystu í harðri gagnrýni á Stalin allt
frá þvf um 1950.
Siðasta alheimsráðstefna
kommúnista var haldin árið 1969
og þá reyndu Sovétrikin árang-
urslaust að koma í gegn almennri
fordæmingu á kínversku leiðtog-
unum. Sovétrikjunum er nú mjög
umhugað um að halda nýja ráð-
stefnu og segja, að megintilgang-
ur hennar verði að auka tengsl og
samheldni flokkanna þannig að
þeir standi sameinaðir í samning-
um um bætta sambúð milli aust-
urs og vesturs.
Það er hins vegar almennt vit-
að, að það er einnig tilgangur
Sovétrikjanna að koma i gegn ein-
hvers konar and-kinverskri sam-
þykkt. En það er öruggt, að marg-
ir flokkarnir munu neita að senda
fulltrúa nema þeim verði Iofað að
ekkert slíkt verði reynt.
Þrátt fyrir þetta halda tals-
memi kommúnistaf lokkanna í
Austur-Evrópu áfram að reyna að
æsa til andstöðu við Peking. Jan-
os Kadar, leiðtogi ungverska
kommúnistaflokksins, hélt mikla
ræðu i siðasta mánuði og þar sak-
aði hann meðal annars Kínverja
um að reyna að spilla stefnu Sov-
étríkjanna og bandamanna þeirra
í öllum alþjóðamálum. Hann
nefndi þar meðal annars tilraunir
Sovétríkjanna tilbættrar sambúð-
ar og meiri efnahagstengsla við
Vesturlönd.
— Myndlist
Framhald af bls. 16
Eg er viss um, að Hafsteinn á
eftir að gera ýmislegt, ef hann
hefur tækifæri til í þessu tíma-
skorts-þjóðfélagi, sem allt virðist
vera að fótum troða, sem útheimt-
ir natni og yfirvegun, tíma og
aftur tíma.
Hafsteinn Austmann er
nonfígúratífur listamaður, sem
unnið hefur að list sinni af alúð
og umhyggju. Hann á það skilið,
að verkum hans sé veitt eftirtekt,
og ég vona, að svo verði.
Valtýr Pétursson.