Morgunblaðið - 19.05.1974, Blaðsíða 44
»—- ■««««
Vinsælasta ameríska sælgætid
RUCLVSinCRR
ÍÍL*-*22480
SUNNUDAGUR 19. MAl 1974
Indveriar:
Vilja tilboð
í 50 Bátalónsbáta
SKIPASMlÐASTÖÐIN Bátalón
h.f. í Hafnarfirói hefur fengið
fyrirspurn frá Indlandi um það,
hvort stöðin vildi gera tilboð í
smfði fiskiháta af sömu gerð og
stöðin smfðaði fyrir tveimur
árun-. Þeir hátar, sem voru 70
rúmlesta stálbátar, voru seldir
indverskum aðilum. Þeir voru
frambyggðir og útbúnir fyrir
skutdrátt. Innflutningsleyfi
verða veitt í Indlandi fyrir 50
báta af þessari gerð á þessu ári.
Þorbergur Ólafsson, fram-
Gistihúsið í Forna-
hvammi lokar í júní
FYRIR nokkru var ákveðið að
iiaetta rekstri gistihússins f
Fornahvammi frá og með næstu
fardögum, þ.e. hyrjun júnf. Gisti-
hús hefur verið rekið í Forna-
hvammi f hartnær hálfa öld. Hús
á staðnum eru orðin svo léleg, að
talið er að minnst 11 milljðnir
kosti að gera þau upp. I stað þess
að ráðast f þær framkvæmdir, er
ráðgert að reisa sæluhús framar f
HÆKKAR AFF.NGI?
TALIÐ er að áfengi hækki f
verði eftir helgina. Mbl. tókst
ekki að fá þetta staðfest f gær,
en blaðið hefur fregnað, að
nákvæm birgðatalning hafi
verið gerð í öllum vfnbúðum í
Reykjavfk eftir lokun f fyrra-
kvöld, en það er ætfð gert,
þegar hækkanir standa fyrir
dyrum. Heyrzt hefur, að hækk-
unin verði 15%, en sú tala
hefur heldur ekki fengizt stað-
fest.
Ef hækkunin verður 15%,
fer viskíflaskan f 1850 krónur,
vodka í 1800 krónur, romm f
1860 krónur og brennivfn í
1160 krónur.
Norðurárdal, sem á að gegna
sama öryggishlutverki og Forni-
hvammur hefur gert.
Fornihvammur er í eigu ríkis-
ins, og hefur Vegagerð rikisins
haft umsjón með staðnum.
Sigurður Jóhannsson vegamála-
stjóri tjáði bl. í gær, að tap hefði
verið á rekstri staðarins undan-
farin ár og hefði ríkið t.d. greitt i
fyrra á aðra milljón króna af þeim
ástæðum. Þegar núverandi ábú-
andi jarðarinnar ákvað að hætta
að búa auglýsti Vegagerðin stað-
inn lausan til ábúðar og sóttu
fimm aðilar um. Að vel athuguðu
máli ákvað samgöngumálaráðu-
neytið að taka engu tilboðanna,
heldur hætta rekstri gistihússins,
bæði vegna tapsins og þess mikla
viðgerðarkostnaðar, sem yrði
óhjákvæmilegur ef rekstrinum
yrði haldið áfram.
Sem fyrr ségir hefur gistihús
verið rekið í Fornahvammi í nær
fimmtíu ár. Var þar ofl gest-
kvæmt fyrr á árum, en hin siðari
ár hafa vegfarendur um Holta-
vörðuheiði stórlega dregið úr
komum sínum þangað.
kvæmdastjóri Bátalóns h.f., sagði
f viðtali við Mbl., að f athugun
væri að bjóða f smfði slfkra skipa,
en ekki væri Ijóst, hvort fslenzk
skipasmfði væri samkeppnisfær á
sama hátt og var fyrir tveimur
árum.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
bergs Ólafssonar barst fyrir-
spurnin um smíði skipanna fyrir
tilstilli annars hinna íslenzku
skipstjóra, sem vinna við skipin í
Indlandi. 1 fyrirspurninni er það
tekið fram, að indversk stjórnvöld 'j!
muni á þessu ári veita innflutn-
ingsleyfi fyrir 50 bátum af þessari
gerð og sagði Þorbergur, að
iðnaðarráðuneytið hefur grennsl-
Framhald á bls. 43
Bátalónsbátarnir, sem Bátalón
h.f. smfðaði fyrir Indverja fyr-
ir tveimur árum, Viking I og
Viking II. Myndin er tekin f
Hafnarf jarðarhöfn áður en
þeir lögðu upp f hina löngu
sjóferð til Indlands.
Framkvæmdir að hefjast við
fjölbrautaskóla í Breiðholti
Austurlandskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur Sjálf-
stæðisflokksins í Austurlands-
kjördæmi verður haldinn á Eski-
firði i dag og hefst kl. 10 f.h. Á
fundinum verður tekin ákvörðun
um framboðslista flokksins í þing-
kosningunum.
JBvröimhlnbih
Askrifendur í Kópavogi
GERÐUR Sturlaugsdóttir læt-
ur nú af störfum sem umboðs-
maður Morgunblaðsins í Kópa-
vogi. Framvegis eru áskrif-
endur í Kópavogi beðnir að
snúa sér til Morgunblaðsins,
sími 10100.
N(J er hafin smfði fjölbrauta-
skóla í Breiðholti. Þetta er ein
mesta framkvæmd, sem Reykja-
víkurborg hefur ráðizt f hvað
skólabyggingar áhrærir. Bygg-
ingarkostnaður við skólann f
heild er áætlaður um 860 milljón-
ir króna miðað við núverandi
verðlag, en hann verður reistur f
mörgum áföngum. Rúmar hann
fullgerður a.m.k. 1400 nemendur
á aldrinum 16—19 ára — þ.e.
fjóra aldursflokka f framhalds-
námi á ýmsum námsbrautum, svo
sem f iðnnámi, menntaskólanámi,
verzlunarnámi og fleiru.
Fyrsti áfangi skólans hefur
verið boðinn út og er á fram-
kvæmdastigi. Þar er um að ræða
íþróttasvæði — leikvang á lóð
skólans ásamt úti- og innisund-
laug. Þá er verið að ganga frá
teikningum að öðrum áfanga
hans, sem er húsnæði fyrir al-
menna kennslu og svarar til
22—24 kennslustofa. Húsnæðið er
þannig úr garði gert, að þar má
reka hvort heldur sem er opinn
skóla eða hefðbundið skólaform.
Stefnt er að þvf, að kennsla geti
hafizt i þessum fjölbrautaskóla
strax haustið 1975. Hins vegar á
framkvæmdum við sundlaugina
að ljúka um áramótin 1975—76
samkvæmt verksamningi. Þá er
um þessar mundir verið að ganga
frá teikningum að iþróttahúsi,
sem tengjast mun aðstöðu sund-
laugarinnar (búningsherbergjum
hennar) og verður í þessu húsi
áhorfendasvæði fyrir allt að 1000
manns. Gólfflötur vallarins f hús-
inu er 22x44 m, þannig að hann er
í fullri keppnisstærð samkvæmt
alþjóðareglum. Þessi fþrótta-
mannvirki við fjölbrautaskólann
eiga jafnframt að vera til almenn-
ingsnota einkum fyrir íbúana í
Breiðholti III.
UNGA FOLKIÐ I
SIGTÚNI í KVÖLD
ÞRlR ungir frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins við borgarstjórn-
arkosningarnar efna í kvöld til
skemmtunar f Sigtúni. Hefst hún
kl. 20.30.
Á skemmtuninni koma fram
Jörundur Guðmundsson, Sæmi og
Didda og Henný og Örn og Módel-
samtökin sýna tfzkufatnað ársins
1974.
Hljómsveitin Islandia leikur
fyrir dansi til kl. 1.
Sameinumst um að verja
Reykjavík óstjórn vinstri manna
I baráttusæti
sjálf-
stæðismanna:
segir Páll Gíslason læknir
MAÐURINN í baráttusæti
Sjálfstæðisflokksins I borgar-
stjórnarkosningunum n.k.
sunnudag er Páll Gíslason
læknir, sem skipar 8. sæti á
framboðslista flokksins. t
sfðustu borgarstjórnarkosning-
um í Reykjavik, sem fram fóru
í maí 1970, hélt Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihluta sínum
mjög naumlega. Áttundi maður
Sjálfstæðisflokksins náði kosn-
ingu þá með aðeins 300—400
atkvæða mun. I viðtali við
Morgunblaðið f dag telur Birgir
Isl. Gunnarsson borgarstjóri
kosningahorfur mjög tvfsýnar.
Af þessu tilefni hefur
Morgunblaðið snúið sér til Páls
Gfslasonar, og spurt hann,
hvort hann sé bjartsýnn á að ná
kjöri f borgarstjórn og tryggja
þar með áframhaldandi meiri-
hluta f höfuðborginni.
— Eg geri mér grein fýrir
þvf, segir Páll Gíslason að ekki
munaði nema rúmlega 300 at-
kvæðum í sfðustu
borgarstjórnarkosningum. Þess
vegna þurfa allir Reykvfking-
ar, sem hafa fengið nóg af
sundrung og deilum f ríkis-
stjórninni, að sameinast um að
verja Reykjavfk slíkri óstjórn.
Það er aðeins hægt með þvf að
tryggja meirihluta undir
traustri stjórn Birgis Isl.
Gunnarssonar.
— Sumir segja, að tfmi sé til
kominn að breyta til.
— Ég held, að enginn vafi
leiki á þvf, að samhent forysta,
sem er sjálfri sér samkvæm, sé
bezta stjórnarformið. Nauðsyn-
legar breytingar á stjórn geta
bæði orðið með því að skipta
um flokka, en líka með því að
skipt sé um fulltrúa innan þess
flokks, sem stjórnina hefur
með höndum. En aðalatriðið er,
að nauðsynleg endurnýjun
borgarfulltrúa skapi ekki
glundroða og stefnuleysi, þar
sem hver höndin er upp á móti
annarri og allir vilja tileinka
sér vinsæl verk, en sfður er hirt
um útgjöldin og heildina. Þetta
sáum við vel hjá vinstri stjórn-
inni fyrri og þeirri, sem við
ennþá búum við.
— Hver eru helztu viðfangs-
efni, sem þú munt einbeita þér
að, náir þú kosningu?
— Ég var í bæjarstjórn
Akraness f 8 ár meðan ég var
læknir þar og veit þvf, að
borgarfulltrúi þarf að kynna
sér nánast öll mál, sem upp
koma, til þess að geta tekið
afstöðu til þeirra. En það er
enginn vafi á þvf, að sjálfsagt
verða meginverkefni mfn á
sviði heilhrigðismála og ýmissa
félagsmála, en áhugi minn hef-
ur alia tíð verið mikill á mál-
efnum æskunnar og mun ég
reyna að vinna að auknum
stuðningi borgarinnar við hin
frjálsu æskulýðsfélög.