Morgunblaðið - 19.06.1974, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.06.1974, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNl 1974 39 Eldur í Mýrarhúsum I GÆRKVÖLDI var slökkvilióið i Reykjavik kvatt að Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi, en það er gamalt timburhús. Töluverður eldur var í húsinu, en slökkviliðinu tókst fljótlega að slökkva hann. Eitt- hvert eignartjórn mun hafa orðið. Menntamálaráðuneytið hefur ráðið Árna Heimi Jónsson líf- fræðing til að fara um landið í sumar um þriggja mánaða skeið til þess að safna upplýsingum um tjón af völdum hrafns og svart- baks og gefa ráðuneytinu skýrslu um það, svo og gera tilraunir til fækkunar þessum fuglategund- um. — Atvinnuleyfi Framhald af bls. 40 þessu stigi vil ég ekkert um það segja, hvernig þær verða, né hve- nær verður til þeirra gripið". sagði Sigurður. Hann bætti því við, að verka- lýðsfélögin myndu ekki liða, að erlendur vinnukraftur ynni að Sigöldu, á meðan hundruð Islend- inga væru þar á biðlista. — Samningar Framhald af bls. 40 stjórn Læknafélags Reykjavíkur beðið Mbl. um eftirfarandi: Við útreikninga á greiðslum til lækna er gert ráð fyrir, að vitjana- fjöldi sé 22,8 á kvöldvakt, 7,95 á næturvakt og 26 á helgidagavakt. Með þessu móti er gert ráð fyrir, að læknar geti fengið að meðaltali 24.000 kr. laun fyrir helgidaga- vakt. Þessir útreikningar eru þó mjög villandi, þar eð venja er að kalla út aukalækni, þegar mikið álag er á vöktum og deilast þá að sjálfsögðu greiðslurnar á fleiri lækna. Er til dæmis fráleitt að ætla, að læknir fari að meðaltali í 24 vitjanir á 8 klukkustundum, eða 3 vitjanir á klukkustund. Harmar stjórn Læknafélags Reykjavíkur, að stjórn Sjúkra- samlags Reykjavlkur skuli rang- færa tölur á þennan hátt í grein- argerð sinni og gefa þannig í skyn, að kröfur lækna séu óeðli- lega miklar. Er vandséð, hvaða tilgangi slík málsmeðferð þjónar. — Axarfjörður Framhald af bls. 4 miklu mannfundum fór in- flúensupestin að stinga sér ört niður hér og þar, og herjaði hún hér í sveitunum í apríl- mánuði og fram I maí. Skógræktarfélag Norður- Þingeyinga var endurvakið með nýju skipulagi á samkomu í Lundi í Axarfirði I maíbyrjun sl. Var þar kominn Snorri Sigurðsson frá Skógræktar- félagi íslands til traust og halds. Fyrra félag með sama nafni hafði verið eitthvað líflit- ið í mörg ár. Nokkurs er vænst af þessu nýendurvakta félagi um skógrækt og skógvernd í héraðinu á komandi árum. For- maður var kjörinn Halldór Sigurðsson á Valþjófsstöðum i Núpasveit. Sigurvin. — Umhorf Framhald af bls. 26 ráði þvf, hvort, hvaða eða hvenær ákveðnar vörur séu á boðstólum. Þetta er þó kannski ekki svo fjar lægt, þegar hugsað er til þeirrar áráttu vinstri manna, einkum vinstri menntamanna, að vilja hafa vit fyrir almenningi, — segja almenningi hvað hann á að horfa á, hlusta á, hafa áhuga á o.s.frv. Vinstri menn margir hverjir telja það t.d. enn sjálfsagt, að ríkisvald- ið segi til um, hvaða vörur skuli fluttar til Islands og boðnar neyt- endum. Sjálfstæðismenn eru þeirrar skoðunar, að slík mið- stjórnarvaldsforsjá (vinstri manna) misbjóði gróflega þeirri una fyrir varanlegum friði. Isra- elsmenn kvörtuðu yfir þvf, að þeim væri ekki heitið stuðningi. ef þeir tækju slíka áhættu, en starfsmenn Nixons bentu á, að 350 milijón dollara hernaðarað- stoð sem Nixon hyggst veita ísra- el á næsta fjárhagsári væri sönn- un um áframhaldandi stuðning. Nixon fullvissaði ísraelsmenn um, að þótt Bandaríkjamenn reyndu að bæta samskiptin við grannrfki þeirra, mundi ekki draga úr stuðningi Bandaríkj- anna við Israel. Hins vegar hét Nixon ekki hernaðaraðstoð, hann hét því ekki að viðhalda valda- jafnvæginu í Miðausturlöndum og hann lýsti ekki yfir stuðningi við kröfu Israels um örugg landa- mæri. Ephraim Katzir forseti sagði að Israelsmenn væru reiðubúnir til þess að taka þátt f friðartilraun um Bandarfkjamanna. Nixon kom til Israels frá Dam askus þar sem ákveðið var að Bandaríkin og Sýrland tækju upp stjórnmálasamband eftir sjö ára hlé. Þar með hafa Bandaríkin tek- ið aftur upp stjórnmálasamband við öll helztu Arabaríkin, sem börðust við Israel 1967 og 1973. Þrátt fyrir að litla stúlkan sé komin f öruggar hendur lögregluþjónsins, er ekki alveg laust við að ótti lýsi sér í andlitinu, enda horfir hún á eftir móður sinni á sjúkrabörum inn f sjúkrabílinn. Ljósmyndari Mbl. Olafur K. Magnússon tók þessa mynd á horni Hofsvallagötu og Hringbrautar um eittleytið I gær, en þar hafði orðið árekstur á milli Cortinu bifreiðar og Volkswagen. Slys urðu ekki á mönnum en konan sem ók Cortinunni mun hafa fengið vott af taugaáfalli. Báðar bifreiðarnar skemmdust töluvert og m.a. brotnaði vinstra afturhjólið undan Cortinunni. Þess má geta að þetta horn þykir mjög varhugavert, og eru umferðaróhöpp þar tfð, þrátt fyrir götuljós, sem ættu að auðvelda umferð á horninu. virðingu, sem einstaklingnum ber og reyndar sjálfri lýðræðishug- sjóninni. Því sé það eðlilegt, að rfkisvaldið hafi vit fyrir þegnum á sviði efnahagsmála, þá er ekki langt að fara yfir á önnur svið svo sem menningarmál — eða sjálf stjórnmálin. — Arsskýrsla SÍS Framhald af bls. 40 1973 um 430 milljónir króna. Þessi upphæð var hærri en svo, að Sambandið gæti með góðu móti brúað þetta bil, þrátt fyrir mjög mikilsverða fyrirgreiðslu frá við- skiptabönkum Sambandsins. Erfið lausafjárstaða seinni hluta ársins hafði neikvæð áhrif á flestar greinar rekstrarins. Eins og áður er minnst á, hefur lánafyrirgreiðsla samvinnu- hreyfingarinnar til bænda verið hefðbundin um áratugi. Þessi fyrirgreiðsla hefur reynzt mjög þýðingarmikill þáttur í upp- byggingu íslenzks landbúnaðar. Nú er hins vegar svo komið, að samvinnuhreyfingin getur ekki lengur brúað bil rekstrarfjárþarf- ar landbúnaðarins frá vori til hausts, nema til komi stóraukin fyrirgreiðsla lánastofnana, fram yfir það sem verið hefur.“ I niðurlagi ársskýrslunnar segir Erlendur Einarsson: „Þegar þetta er skrifað, er lið- inn rösklega þriðjungur ársins 1974, þjóðhátíðarársins, þá er Is- lendingar niinnast 1100 ára af- mælis búsetu i landinu. Öneitan- lega setur það nokkurn skugga á afmælisárið, að efnahagsmálin eru komin í mikinn hnút. For- skotið á sæluna er farið að segja til sín. Vandamálin eru stór, þótt þau séu að miklu leyti heimatil- búin, og það er augljóst, að sam- vinnuhreyfingin, sem er svo margþættur aðili í islenzku efna- hagslifi, stendur nú, þegar þetta er ritað, frammi fyrir miklum vanda. Allur rekstrarkostnaður hefur hækkað gífurlega, og eina leiðin til þess að geta haldið rekstrinum gangandi hallalaust er að auka veltu og þar með tekj- ur til þess að mæta auknum kostnaði. En til þess að auka veltu þarf aukið fjármagn. Nú hefur það hins vegar skeð, að nýgerðar ráðstafanir i efna- hagsmálum miða að þvi að skerða iausafjárstöðu verzlunarinnar það mikið, að gera má ráð fyrir miklum samdrætti. Augljóst er að verzlunarrekstri Sambandsins er stefnt f hættu. Er þetta staðreynd, burt séð frá þvf, hve nýgerðar efnahagsráðstafanir geta talizt nauðsynlegar frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Útlitið með rekstur Sambands- ins og kaupfélaganna er þvf mjög fskyggilegt á þjóðhátíðarárinu 1974. Augljóst er, að gera verður sérstakar ráðstafanir, ef komast á hjá mjög alvarlegum skakkaföll- um, en vandasamt er að finna leiðir, sem koma að gagni nógu snemma. Það fer þó ekki milli mála, að aukið fjármagnsstreymi í innlánsstofnanir samvinnu- hreyfingarinnar kemur að beztu liði í glimunni við aðsteðjandi efnahagsvanda." — Kaupmáttur Framhald af bls. 40 ustu hefur kaupmáttur þessara sömu stétta aukizt um 9,5% á tveimur árum og 10 mánuðum eða um 3,4% að jafnaði á ársgrund- velli. Hinn 1. ágúst 1971, hálfum mánuði eftir valdatöku vinstri stjórnar, var vikukaup þeirra launþega, sem þá voru í lægsta taxta Dagsbrúnar, Framsóknar og Iðju 3.500 kr. en 1. maí 1974 var vikukaup þessara sömu launþega 7.616 kr. og hafði þvf á þessu timabili hækkað um 117,6%. Vfsi- tala framfæslukostnaðar 1. ág. 1971 var 154 stig en 1. maf 1974 var hún 289 stig eða 88,1% hærri. Vísitala vöru og þjónustu var 1. ágúst 1971 161 stig, en 1. maí 1974 320 stig og hafði hækkað um 98,8%. Munurinn á vísitölu fram- færslukostnaðar og vísitölu vöru og þjónustu er sá, að f vísitölu framfærslukostnaðar er gert ráð fyrir fjölskyldubótum og húsnæð- iskostnaði o.fl., en í vfsitölu vöru og þjónustu aðeins neyzluvöru- liðnum í framfærsluvísitölunni. — Avarp forseta Framhald af bls. 14 þjóðlegrar eindrægni, þrátt fyrir það að I odda skerst f glfmunni við vandamál hverrar tföar, stór og smá. Slíkt eining- artákn sómir sér vel milli tvennra kosninga, sem þjóðin gengur að frjáls og að fullum lögum. Ég óska yður öllum, sem mál mitt heyrið, gleðilegrar hátfðar og læt þá von I ljós, að þjóðhá- tíðarhaldið á þrftugsafmæli hins fslenzka lýðveldis megi verða hverjum og einum til gleði og ávinnings, en landi og þjóð til sóma. — I varðhald Framhald af bls. 40 nokkuð. Er þvi óljóát um tilgang verknaðarins. Hreinsun Stjórnarráðshússins hófst fljótlega eftir að atburður- inn átti sér stað, og að hreinsun lokinni var húsið málað, en það er sem kunnugt er hvftt að lit. — Egyptar Framhald af bls. 1 ísraels sagði að eftir heimsókn Nixons forseta væru ísraelar enn ekki vissir um, hvort samningur- inn úm afhendingu kjarnaofnsins til Egypta gæti leitt til þess, að Arabar kæmu sér upp kjarnorku- vopnum. Hann sagði, að Israel hefði alltaf stutt samninginn um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og hann væri reiðubúinn að undir- rita hann jafnskjótt og nokkur smáatriði hefðu verið útkljáð. Andstæðingar ísraelsstjórnar ætla að bera fram tillögu um van- traust á hana vegna þess hvernig hún hefur brugðizt við kjarnorku- aðstoð Bandaríkjamanna við Egypta. Edward Kennedy öldungadeild- armaður lét í ljós efasemdir vegna fyrirhugaðrar kjarnorku- aðstoðar stjórnar Nixons við Egypta í gærkvöldi. — 5.000 fulltrúar Framhald af bls. 1 rfki hömluðu gegn 200 milunum, sem væri orðin söguleg þróun. Hún sagði að mikill fjöldi rikja ætti þátt í þróuninni, sem stefndi gegn siglingayfirráðum risaveld- anna tveggja — Sovétrikjanna og Bandaríkjanna." — Nixon Framhald af bls. 1 um til lausnar öllum vandamál- um,“ en kvað svo ekki vera. Hins vegar talaði hann um „nýja at- burði, sem gefa okkur ástæðu til að vona“ en útskýrði það ekki nánar. Heimsókn Nixons til Israels lauk með því, að Nixon lofaði að selja tsraelsmönnum kjarnaofna á sama hátt og Egyptum. Bandarískir embættismenn segja, að í sölusamningunum verði ákvæði sem komi f vég fyrir, að þjóðirnar geti notað ofnana og þá þekkingu, sem þær afla sér, i hernaðarþágu. Nixon skoraði á Israelsmenn að taka áhættu til þess að efla barátt- —* NATO Framhald af bls. 1 fullvissaði hann ráðherrana um, að Bandarfkjastjórn hefði ekkert á móti beinum samningum Efna- hagsbandalagsins og Araba- landanna f olíumálum. Texti Atlantshafsyfirlýsingar- innar er tilbúinn að öðru leyti en því, að hann þarf að hljóta sam- þykki ráðherranna á fundi þeirra á morgun. Gert er ráð fyrir þvf að Nixon forseti og leiðtogar annarra aðildarrfkja heimsæki aðalstöðvar NATO f næstu viku og undirriti formlega yfirlýsing- una sem þá tekur þegar gildi. Að henni hefur verið unnið í 14 mánuði. Henry Kissinger, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði þegar hann kom til fundarins í dag, að hann yrði „einn sá mikilvægasti í sögu bandalagsins." 13 utanríkis- ráðherrar sækja fundir.n. danski landvarnaráðherrann er fulltrúi stjórnar sinnar og fulltrúi Luxem- borgar er sendiherra landsins hjá NATO. I ræðu sinni sagði Luns, að októberstrið Araba og Israels- manna hefði sýnt að heimsfriður- inn væri fallvaltur og bættri sam- búð takmörk sett. Hann sagði, að þá hefði komið í ljðs, að Rússar hikuðu ekki við að beita valdi ef þeir teldu sig geta tryggt sér ávinning af því, án of mikillar áhættu. Októberstríðið hefði sýnt að „sovézka hættan væri enn fyrir hendi.“ James Callaghan, utanríkisráð- herra Breta, sagði að tiltölulega friðsamlegt ástand og velsæld ár- anna 1950—70 hefði orðið til þess, að fólk á Vesturlöndum hefði tek- ið NATO sem sjálfsögðum hlut og upp hefðu komið erfiðleikar og jafnvel deilumál. Hann bað aðra ráðherra að ítreka tryggð sína við bandalagið, þar sem „öryggi væri eini grundvöllur bættrar sambúð- ar.“ Callaghan sagði, að ráðstefnan um öryggi Evrópu í Genf sýndi, að hvorki óhófleg bjartsýni né svartsýni ættu rétt á sér í umræð- um um framtfðarskipulag sam- skipta austurs og vesturs. Hann kvað alla gera sér grein fyrir erf- iðleikum sem stöfuðu af tor- tryggni og gengið hefði verið til þessara viðræðna af fullu raun- sæi. „Þær munu ekki mistakast vegna efasemda okkar eða vegna bjartsýni, sem á ekki rétt á sér,“ sagði hann. Hann kvaðst sannfærður um, að horfur á þvf, að bæta samskipti austurs og vesturs væru betri en nokkru sinni frá stofnun banda- lagsins. Hann lýsti sérstakri ánægju vegna þátttöku portú- galska utanríkisráðherrans, Mario Soares, f viðræðunum. Pierre Elliott Trudeau forsætis- ráðherra Kanada sagði f stuttu ávarpi að aðildarrfkin hefðu full- an rétt til að gagnrýna hvert ann- að. Samstarf væri nauðsynlegt, en allir hefðu rétt til að varðveita sérkenni sin. Þetta væri styrkur bandalagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.