Morgunblaðið - 02.07.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.1974, Blaðsíða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 112. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR 2. JULl 1972 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Vinstri stjórnin fallin: Mikil fylgisaukning S j álfstæðisflokksins — Mest í Reykjaneskjördæmi og Reykjavík — Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins um land allt einkenndi úrslit alþingiskosninganna, sem fram fóru sl. sunnudag. Stjórnar- flokkarnir misstu meirihluta sinn í kosningunum og mun Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í dag, eins og fram kemur í frétt á baksíðu Morgunblaðsins. 0 Sjálfstæðisflokkurinn hlaut um 49 þúsund atkvæði og jók atkvæðahlutfall sitt úr 36,2% 1971 í 42,7% nú. # Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 25 þingsæti og hefur ekki haft svo marga þingmenn frá því að nú- gildandi kjördæmaskipun var tekin upp. 0 Mest varð fylgisaukning Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi eða 10,7%. 1 Reykja- vík nam fylgisaukningin 7,5%. Um land allt var um verulega fylgisaukningu að ræða. 0 Framsóknarflokkurinn hélt óbreyttri þingmannatölu og hlaut 24,9% atkvæða, en fékk 25,3% í þingkosningunum 1971. # Alþýðubandalagið fékk 11 þingsæti — bætti við sig einu — og fékk 18,3% gildra at- kvæða, en 17,1% 1971. # Alþýðuflokkurinn fékk 5 þing- menn — tapaði einum — og hlaut 9,1% atkvæða í stað 10,5% 1971. 0 Samtök frjálslyndra og vinstri manna töpuðu þremur þing- sætum. Hlutu einn kjördæma- kosinn mann á Vestfjörðum og eitt uppbótarsæti. Samtökin Framhald á bls. 12. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og kona hans frú Erna Finnsdóttir greiða atkvæða á sunnudag. Geir Hallgríms- son um kosninga- úrslitin: Nauðsvnlegt að skapa víðtæka bióð- arsamstöðu um lausn vandamálanna ER úrslit í alþingiskosningunum voru kunn síðdegis í gær, leitaði Morgunblaðið til Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og innti eftir áliti hans á kosningaúrslitunum. I umsögn Geirs Hallgrímssonar kemur eftirfarandi fram: 0 Sjálfstæðisflokkurinn er ótvírætt sigurvegari kosn- inganna og hefur ekki fengið jafnhagstætt hlutfall atkvæða frá því fyrir stríð. # 1 samræmi við þessa niðurstöðu kosninganna er eðlilegt, að Sjálfstæðisflokknum verði falin stjórnarmyndun. 0 Málefnaleg samstaða um lausn örlagaríkra og alvarlegra vandamála er forsenda þess, að slík stjórnarmyndun geti tekizt. # Víðtæk þjóðarsamstaða til þess að leysa vandamálin er nauðsyn. Hún verður að ná til þeirra, sem utan stjórnar standa. # Leita verður sérstaklega eftir samstarfi við samtök launþega og vinnuveitenda við lausn efnahags- vandans. Umsögn Geirs Hallgrímssonar fer hér á eftir: Ljóst er, að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur unnið góðan sigur i þessum kosningum. Sjálf- stæðisflokkurinn fær væntan- lega um 49 þúsund atkvæði, hefur unnið 3 þingsæti og bætt fylgi sitt hlutfallslega, hafði rúm 36% atkvæða í alþingis- kosningunum 1971, en nú tæp 43% atkv. Hagstæðara hlutfall hefur flokkurinn ekki fengið síðan fyrir stríð. Flokkurinn bætir stöðu sína í öllum kjör- dæmum landsins. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka öllum kjósendum Sjálfstæðisflokksins hið mikla og ótvíræða traust, sem ég er fullviss að flokkurinn mun ekki bregðast. Jafnfram vil ég flytja þakkir öllum þeim mikla fjölda Sjálf- stæðismanna, er lagt hafa fram fórnfúst starf við undirbúning kosninganna og á kjördegi. ★ Kosningaúrslitin leiða í ljós, að kjósendur hafa hafnað þvi að framlengja líf vinstri stjórnar. Jafnvel þótt atkvæði Sam- takanna á Vestfjörðum séu tal- in með, en frambjóðandi þeirra þar stóð að vantrausti á vinstri stjórn, þá eru fyrrverandi stjórnarsinnar f minnihluta meðal kjósenda. Sú ákvörðun forsætisráð- herra, að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt er þvi eðli- leg og sjálfsögð. ★ Þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn er stærsti flokkur þjóðarinnar og hefur einn allra stjórnmálaflokka unnið veru- lega á í þessum kosningum, þá er eðlilegt, að honum sé falið að gera tilraun til stjórnarmynd- unar. Auðvitað fer það svo eftir þvf, hvort málefnaleg samstaða næst um lausn þeirra alvarlegu og örlagariku vandamála, sem við blasa, hvort slík tilraun tekst eða ekki. Nauðsynlegt er að skapa sem víðtækasta þjóðarsamstöðu til að leysa vandann. Að því Ieyti sem slik samstaða tækist ekki mcð samvinnu innan ríkis- stjórnar, þá er nauðsynlegt að efna til hennar einnig við þá, er utan ríkisstjórnar standa. Þá.er ljóst að leita verður í raun sérstaklega eftir samstarfi við samtök launþega og vinnu- veitenda við lausn efnahags- vandans. ★ Fyrir kosningar birtu Sjálf- stæðismenn kosningaávarp til þjóðarinnar og sérstaka stefnu- yfirlýsingar i varnar og öryggis- málum landsins annars vegar Framhald á bls. 38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.