Morgunblaðið - 06.07.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.07.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 116. tbl. 61. árg. LAUGARDAGUR 6. JULl 1974 Prentsmiðja >Ioi ^unblaðsins. N-Irland: Hógvær bjartsýni Belfast og London 5. júlí AP — NTB. HINUM nýju tillögum brezku stjórnarinnar um lausn á deil- unni á N-lrlandi hefur verið tekið með hóflegri bjartsýni. Tillögur þessar komu fram f gærkvöldi, er stjórn Wilsons lagði fram hvíta bók um málið. Kjarni tillagnanna er, að kosið verði 78 manna stjórnarskrárþing í landinu, en á meðan þingið vinni að samningu nýrrar stjórnarskrár, verði landinu áfram stjórnað frá Bret- landi. Leiðtogar kaþólikka á írlandi hafa verið fremur jákvæðir í við- brögðum sínum, en þó gætir nokkurs ótta við, að mótmælend- ur muni ráða lögum og lofum á hinu nýja þingi, en þeir eru í miklum meirihluta á N-írlandi. Ekkert hefur verið ákveðið, hvenær kosningar til þingsins fara fram, en talsmaður brezku stjórnarinnar, Merlyn Rees, sagði á blaðamannafundi f gær, að þær gætu vart farið fram fyrr en á næsta ári. Lagt er til að sami háttur verði hafður á í kosningun- um og var í kosningunum á N-Ir- landi 1972. Leiðtogar Ihalds- flokksins í Bretlandi hafi látið í ljósi áhyggjur og ótta við þessar tillögur. I dag létu nokkrir stjórnmála- fréttarar í ljós þá skoðun, að leið- togar öfgasinnaðra mótmælenda myndu reyna að knýja fram kosn- ingar sem allra fyrst, því að þeir telji sig með því móti geta borið sigurorð af hægfara flokkum, sem styðja valdskiptingu milli kaþólskra og mótmælenda. Ian Paisley hefur þegar hafið undir- búningsstarfið og sagði, að kosn- ingar mættu ekki fara fram seinna en í nóvember nk. Gert er ráð fyrir, að Vanguardhreyfingin styðji Paisley svo og sambands- flokkarnir. Nokkrir stjórnmála- fréttaritarar í Belfast hafa látið í ljós ótta við, að nái öfgasinnaðir mótmælendur meirihluta í þing- inu, verði ógerningur að ná sam- komulagi við Breta um stjónmála- lega framtfð Irlands. Miðinn aðeins 56 þús. kall! Miinchen 5. júlf AP. Svartmarkaðsbraskarar f Miinehen núa saman höndun- um f dag og eiga líklega eftir að núa enn fastar á morgun. Þeir keyptu nefnilega sumir marga miða á 30 mörk eða um 1150 fsl. kr. og seldu þá f dag fyrir 1500 mörk eða um 56 þúsund krónur. Er talið, að verðið eigi eftir að hækka til muna, áður en Taylor blæs f flautuna til merkis um að leik- ur Hollands og V-Þýzkalands geti hafizt. Það eru einkum auðugir Hollendingar, sem sprengja verðið svona upp. Nú andar suðrið . . . Ólafur K. Magnússon tók myndina af þessari blómarós, sem naut sumarsins f laugunum nú fyrir skömmu. Af svipnum að ráða gæti hún verið að velta fyrir sér stjórnarmynduninni. Skýrsla OECD: ISLAND HEFUR NU NAÐ VERÐBÓLGUFORYSTLNM Parfs 5. júlí AP — NTB. ÍSLENDINGAR eiga verð- bólgumetið fyrir það 12 mánaða tímabil, sem lauk 31. maí sl. með 32,2%, skv. skýrslu Efnahags- og fram- farastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í París í dag. Minnsta verð- bólgan á þessu tímabili var í V-Þýzkalandi eða 7,2%. Minnsta verðhækkunin á þessu tfmabili var í Noregi, Svíþjóð og Lúxem- burg um 8,6%. I kjölfar Islands kom Grikkland Ferðin gat orðið Nixon að f jörtjóni New York 5. júlí AP—NTB. LÍFLÆKNIR Nixons forseta, Walter Tkach hershöfðingi skýrði frá þvf í viðtali við blaðið New York Daily News f gærkvöldi, að hann hefði ein- dregið ráðlagt Nixon forseta frá þvf að fara f ferð sína til Miðausturlanda á dögunum, vegna þess að ferðin gæti orðið honum að aldurtila. Sagði læknirinn, að líðan Nixons vegna blóðtappans f fæti hans hefði verið mjög slæm og stór- hættulegt fyrir hann að ferðast þannig á sig kominn. Tkach sagði, að forsetinn hefði alger- lega neitað að taka þetta til greina og ekki hlustað á rök sfn. Tkach veitti þetta viðtal, þar sem hann hefur sætt gagnrýni bandarfskra lækna fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir, að forsetinn færi f ferðalagið. Tkach sagðist ekki geta bannað Bandarfkjaforseta eitt eða annað, aðeins ráðlagt honum. Tkach sagði, að Nixon hefði vitað, hve mikil hættan var en ákveðið að taka áhættuna af ferðalaginu. Tkach hefur verið líflæknir Nixons um árabil Nixon virðist ekki hafa aukið vinsældir sfnar heima fyrir, þrátt fyrir ferðina til Mið- austurlanda og Moskvu á sfð- ustu dögum, ef dæma má af skoðanakönnun Gallups, sem kunngerð var f dag. Þar kemur fram, að aðeins 22% eru ánægðir með störf hans, en 61% óánægðir. Hann stendur sig þó betur, er kemur að utan- rfkismálum, en þar eru 54% ánægðir með störf hans, en 32% óánægðir. Hins vegar syrt- ir f álinn, er kemur að innan- rfkismálum þar eru 71% and- vfgir stefnu hans, en aðeins 18% hlynntir. Fréttaskýrendur segja, að þessar niðurstöður hljóti að vera mikið áfall fyrir for- setann, þvf að hann hafi farið f ferðina til Mið-Ausiurlanda, þvert ofan í læknisráð, til að reyna að auka persónulegar vinsældir sfnar. — iihT BW með 31% verðbólgu og Portúgal með 26,6%, en Portúgalar urðu sem kunnugt er mjög illa úti vegna olíubanns Araba, því að þeir leyfðu bandarískum flugvél- um sem fluttu hergögn og annað til Israels í októberstríðinu að millilenda til að taka eldsneyti á Azoreyjum, eftir að öll Evrópu- löndin höfðu neitað Bandaríkja- mönnum um lendingarleyfi á sin- urn flugvöllum. Mjög miklar verðhækkanir urðu í Bandarfkjunum og Kanada í maimánuði, var verðbófgan í Bandaríkjunum í maí 1,1%, á móti 0,6% í aprfl og enn þá verra var ástandið í Kanada, en þar nam verðbólgan í maí 1,7%, en var 0,7% í apríl. Bezta þróunin varö i Japan, en þar minnkaði verðbólgan úr 2,7% í aprfl niður í 0,3% í maí og þar með lækkaði verðbólgan þar f landi miðað við ársgrundvöll niður i 23.2% úr 24,9%, sé tekiö 12 mánaða tímabil- ið, sem lauk 30. apríl. Hér að eftir fer yfirlit yfir verð- bólguna í OECD-löndunum rniðað við 31. maf og í sviga eru tölurnar fyrir 12 mánaðatfmabilið til 31. apríl. Kanada 11% (9.9%), Bandarikin 10,7 (10,2%), Japan 23,2% (24,9%), Astralía 13,6% (13,6%), Nýja Sjáland 10,3% (10,3%), Frakkland 15% (13,9%), V-Þýzkaland 7,2% (7,2%). Italía 16,1% (16.2%). Bretland 15,9% (15,2%). Belgía 11,6% (10.2%), Lúxemburg 8.6% (9%), Danmörk 14,2% (14,3%), írland 13.5% (13.5%). Holland 8,8% (8,9%), Austurríki 9,6% (9,7%), Finnland 18,1% (17,3%), Grikkland 31.9% (32,6%), Island 32,2% (32.2%), Noregur 8,6% (8,9%). Portúgal 26.6% (26.6%), Spánn 16.3% (16,6%), Svíþjóð 8.9% (9.4%), Sviss 9,9% (8,7%) og Tyrkland 19% (19%). ísland hefur nú náð verðbólguforystunni úr höndum Grikkja. Um borð í Saljut III Moskvu 5. júlí AP—NTB. SOVÉZKU geimfararnir tveir um borð í Sojusi 84 tongdu geimfarið f nótt við geim- stöðina Saljut 3. Tókst tenging- in mjög vel og eru geimfararn- ir, Pavel Popovitsj og Juri Artjukhin nú við vísindastörf f geimstöðinni. Geimferðin er liður í undirbúningi að sameiginlgri geimferö Banda- ríkjamanna og Sovótmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.