Morgunblaðið - 31.07.1974, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLl 1974
t
Eiginmaður minn
KRISTJÁN JÚLfUSSON,
loftskeytamaður,
Kvisthaga 18,
andaðist mánudaginn 29. 7. '74.
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna,
Anna B. Óskarsdóttir.
mmm
Þorleifur Þorleifsson Ijós-
myndari—Minning
t
Faðir okkar,
SIGURÐUR EINVAROSSON,
Meistaravollum 35,
andaðist í Borgarspítalanum 29. þ.m.
Guðfinna Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson
t
Eiginmaður minn
BJARNI SIGURÐSSON,
Vigur,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 30. júlí i Borgarspitalanum Reykjavík.
Jarðarförin auglýst siðar
Fyrir hönd vandamanna
Björg Björnsdóttir.
F. 17. febrúar 1917
D. 22. júlf 1974
VINUR minn, Þorleifur
Þorleifsson, ljósmyndari,
andaðist á spítala hinn 22. júlf.
Ég þekkti Þorleif frá því að
hann fæddist, eða f 57 ár. Hann
var ekki nema 4ra ára, þegar faðir
hans, Þorleifur Þorleifsson eldri,
og ég stofnuðum ljósmyndastofu
og rákum hana saman f mörg ár.
Aðstæður hafa hagað þvi
þannig, að eftir að Þorleifur yngri
hafði verið lærlingur minn og
tekið ljósmyndarapróf, áttum við
eftir að vinna saman í mörg ár við
kvikmyndagerð, Þorleifur hefir
skrifað handritin að öllum mínum
kvikmyndum, sem leiknar hafa
verið, sérstaklega er kvikmynda-
handritið að „Síðasti bærinn í
dalnurn," eitt af hans meistara-
verkum, þar sem hann fann upp
sérstakan stíl við gerð kvik-
myndahandrita, og býst ég við, að
þetta handrit eigi eftir að verða
mjög sögulegt. Það leiddi af sjálfu
sér, að Þorleifur var sjálf-
kjörinn aðstoðarleikstjóri í öllum
mínum kvikmyndum, sem
leikarar léku f. Einnig smiðaði
hann allan leiksviðsútbúnað eftir
eigin teikningum, og þar ber
einna hæst sviðsútbúnaðurinn í
kvikmyndinni „Ágirnd", sem
tekin var á fjölum Þjóðleikhúss-
ins.
Þorleifur var afbragðs teiknari,
sem kom glöggt í ljós, er hann
fékk 1. verðlaun f þekktum
amerfskum teiknibréfaskóla og
fría kennslu f skólanum í 3 ár.
Þorleifur var oddhagur svo af
bar, það sýna öll hans „model“
smiði af flugvélum, skipum o.fl.
Sérstaklega er athyglisvert skák-
borð og taflmenn, sem hann skar
úr tré og eru taflmenn allir í
fornbúningum. Var Þorleifur 4 ár
með þetta meistaraverk. Eitt af
því sfðasta, sem Þorleifur hand-
smfðaði, var eftirlíking af einu
járnbrautinni á Islandi og var
hún gerð að mestu úr kopar og
var hann að vinna að henni í 3 ár.
Einnig eru litskuggamyndir
Þorleifs svo listrænar og fagrar,
að flestum verður starsýnt á þær,
og sérstaklega hinar þekktu nær-
myndir hans.
Þorleifur var mjög dulur maður
og vildi sem minnst láta á sér
bera. Oft minntist ég á það við
hann, að hann héldi sýningu á
öllum listaverkum sfnum, en það
var ekki við komandi, — er ég
viss um, að sú sýning hefði vakið
verðskuldaða athygli. Hlédrægni
hans var svo mikil, að t.d. bað
t Fósturfaðir minn og bróðir JÓSEP SIGURÐSSON, lést laugardaginn 20. júlí s.l. Jarðarförirr fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1 ágúst kl. 15. Fyrir hönd aðstandenda, Pálmar Sigurðsson, Sölvi Óskarsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, MARfU JÓNSDÓTTUR, Tómasarhaga 41. Ketill Guðmundsson. börn, tengdaböm og barnabörn.
t Okkur hjartkær GEIRÞRÚÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, Hraunteigi 28. Reykjavlk, andaðist I Landspítalanum þann 30. júlí. t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, ALFRED RÓSENBERG. Þakklæti til stjórnar Loftleiða og starfsfólks.
Kristinn Einarsson, Brynhildur og Geir R. Andersen. Bömin.
Faðir okkar og stjúpfaðir, ^ ÁSGEIR HJARTARSON. bókavörður. Ljósvallagötu 12, lést að heimili sinu 29 júlí Ragnheiður Ásgeirsdóttir. Halldór Asgeirsson, Snorri Asgeirsson. Ingimar Jóhannsson. t Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar. JAKOBÍNU MARfU BJÖRNSDÓTTUR Guð blessi ykkur öll Bömin.
t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa ÓLAFS SÓLIMANNS LÁRUSSONAR, útgerðarmanns. Vallargötu 6, Keflavfk, fer fram fimmtudaginn 1. ágúst 1974 frá Keflsvíkurkirkju kl. 3 síðdegis Þeir sem vildu minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Guðrún Hannesdóttir, t Þökkum innilag öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu okkar, SALVARAR GUÐMUNDSDÓTTUR Sunnubraut 6. Akranesi. Vilhjálmur Benediktsson. böm, tengdaböm og bamabörn.
+
t Móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ FRIÐRIKA JÓHANNESDÓTTIR Tunguvegi 1, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn l .ágústkl 1.30 Blóm vinsamlega afþökkuð en þeir sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagið Guðrún Jónsdóttir, Sigurður Álfsson Alfheiður Jónsdóttir. vilhjálmur Ingólfsson. bamabörn og barnabarnaborn 1 Alúðarfyllstu þakkir færum við öllum þeim, er auðsýnt hafa okkur samúð og hluttekningu vegna sviplegs fráfalls mannsins míns, föður og tengdaföður SÉRA SKARPHÉÐINS PÉTURSSONAR Sérstakar þakkir færum við söfnuðum Bjarnanesprestakalls fyrir þann sóma, sem þeir hafa sýnt minningu hans. Sigurfaug Guðjónsdóttir. Gunnar Skarphéðinsson, Bergþóra Skarphéðinsdóttir. Védfs Skarphéðinsdóttir, Guðjón Skarphéðinsson. Guðrún Ægisdóttir. Pótur Skarphéðinsson. Sigrfður Guttormsdóttir. Anna Rósa Skarphéðinsdóttir. Sigurður J. Agústsson. Hildur Skarphéðinsdóttir, Sigurður Einarsson.
hann mig um að láta sfn hvergi
getið við gerð myndarinnar
„Síðast bærinn í dalnum", sem ég
auðvitað tók ekki f mál.
Þorleifur hafði unun af ferða-
lögum, sérstaklega gönguferðum
og taldi ekki eftir sér að ganga
niður f djúpa dali, eða á yztu brún
f jalla, ef hann sá góð „rnótív", því
hann sá oft dulda fegurð í því sem
aðrir sáu ekki, — reyndar var
langafi hans hinn þekkti dulspek-
ingur Þorleifur í Bjarnarhöfn.
Um margra ára skeið hafa þeir
bræður, Þorleifur og Oddur, rekið
ljósmyndastofu og verzlun á
Laugavegi 55 og hefir útstillings-
gluggi þeirra ávalt vakið mikla
athygli fyrir smekkvísi og list-
rænan blæ.
Ég hefi fátt eitt sagt um Þorleif
vin minn, þótt ég skrifi þetta,
kannski í óþökk hans.
Þorleifur var hinn mikli
myndasmiður.
Hans orð: „Ekkert lff deyr.“
Óskar Gfslason.
Jesús sagði: „Ég lifi og þér
munuð lifa“
Með virðingu og þakklæti er
mér ljúft að minnast eldskulegs
bróður, sem við kveðjum f dag.
I æsku hóf hann störf hjá föður
okkar, sem einnig var ljósmynd-
ari og rak Amatörverzlunina.
Hann gekk í Vezlunarskólann, en
lauk ekki námi vegna fráfalls föð-
ur okkar árið 1941. Hann var þá
24 ára gamall og næstelztur átta
systkina. Þá komu einstæðir
mannkostir hans fram: Hann
fórnaði eigin framtíð fyrir yngri
systkini sfn og gekk okkur í föður
stað.
Þrátt fyrir stutta skólamenntun
lærði hann til fullnustu þrjú
tungumál meðal margs annars.
Þessi málakunnátta átti eftir að
koma honum í góðar þarfir á lífs-
leiðinni við rekstur ljósmynda-
stofu og verzlunar, innflutnings
og þýðinga, en ekki sfzt vegna
ótæmandi fróðleiksþorsta um hin
ólfkustu efni. Með frábærum gáf
t
Þökkum auðsýnda samúð við
fráfall
ELSU BJÖRNSDÓTTUR.
Hverfisgötu 104 C.
GuDmundur Pétursson.
Áslaug Sigurðardóttir.
Áslaug Pétursdóttir.
Jóhann Kiesel.
t
Þökkum innilega samúð við and-
lát konu minnar. móðurokkarog
tengdamóður
INGIBJARGAR
JÓNSDÓTTUR.
Reynhólum.
Miðfirði. V-Hún.
Bjöm Guðmundsson.
böm og tengdaböm.