Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.11.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1974 Þorbjörg Hannibalsdóttir frá Klett — Minning F.27. júnf 1884 D. 12. okt. 1974. „Harða blíða, heita sterka sál, hjarta þitt var eldur, gull og stál“ Þessar hendingar urðu mér fyrst I huga, þegar ég heyrði að Þorbjörg væri dáin. Raunar kynntumst við ekki persónulega fyrr en tvö síðustu æviár hennar. Og hún var níræð 1 vor, 27. sólmánaðar. Þá var veizla hjá Ás- geiri eldri syninum, gestir og gaman að lifa. Samt er Þorbjörg ein fyrsta kona, sem ég heyrði mikið talað um með aðdáun og virðingu. Hún var vaxin upp í skriðuhlíð- um allsleysis og örbirgðar á ber- angri munaðarleysis í byrjun. Foreldrar hennar börðust við skortinn unz yfir Iauk. Hann stóð helsár við slátt. Þrýsti að sér görnunum sem gengu út við kviðslit, milli þess sem hann brýndi ljáinn til þess er hann féll á teiginn. Hún mátti siðan slíta af sér allan hópinn, áður en hún lézt. Svona var lífið á Islandi fyrir aðeins 90 árum. Þor- björg kom sem smábarn til hjón- anna á Kletti i Gufudalssveit, Þor- bjargar og Þórðar. Það voru góð hjón, sem réttu mörgum munaðarlausum börnum hjálpar- hönd. Hann jafnan glaður, góður og gestrisinn. Hún heiðarleg, stór- brotin kona, ströng og siðvönd. Enginn hafði meiri áhrif á Þor- björgu en nafna hennar og fóstra. Hún þakkaði það ævilangt, að ein- mitt hún hefði búið hana bezt undir stranga lifsbaráttu sem eld- ur, gull og stál, mótað, hert og meitlað. Aginn og heiðarleikinn efldi til átaks og sigurs i öll- um raunum lífsgöngunnar. Eng inn varð minnisstæðari, enginn andlega skyldari. Erfðirnar urðu stórar við slíkt uppeldi, við afar fjölbreytt störf úti og inni. En hver stund notuð t Elskuleg fósturmóðir mín og systir, SIGNÝ ÓLAFSDÓTTIR, Njarðargötu 9, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavlk föstudaginn 8. nóv. kl. 1.30 e.h. Fyrir hönd vandamanna, Kristín Pétursdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir. t Móðir okkar LAUFEY BÖÐVARSDÓTTIR Búrfelli andaðist í Landspítalanum í Reykjavik að morgni 6. nóvember. Börnin. t Eiginmaður minn, GÍSLI GUÐNASON, verkstjóri, lézt í Borgarspitalanum 5. nóvember. Jóna Kristmundsdóttir. t SIGURÐUR GÍSLASON, Sörlaskjóli 1 3, verður jarðsunginn í Fossvogskirkju föstudaginn 8. nóvember kl, 3 síðdegis. Þórhildur Guðmundsdóttir og fjölskylda. t Þökkum innilega veitta samúð við andlát og jarðarför. GUÐMUNDAR J. ÓLAFSSONAR, Selvogsgrunni 31 Anna Halgadóttir, Sigurbjörg Guðmundsd., Ólafur Guðmunds., Sigriður Sæmundsdóttir. Sigurbjörg Guðmundsd., Auðun Ágústsson, Elín Karlsdóttir, Arnþór Pálsson, Helgi Þ. Sigurðsson og barnaböm. t Útför eiginmanns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður og afa. JÓNS HELGASONAR, Blönduholti, Kjós, fer fram frá Reynivallakirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 2 e.h. Lára Þórhannesdóttir, Helgi Jónsson, Hrefna Gunnarsdóttir, Herdis Jónsdóttir, Sigurður Brynjólfsson, Þóra Jónsdóttir, Haukur Bergmann, Björg Jónsdóttir, David Weils, Axel Jónsson, Guðrún Gisladóttir, Skarphéðinn Pálsson og barnabörn. Cí/AD MITT r m 1 flH t: 1 J VAK M### EFTIR BILLY GRAHAM Ég skil ekki, hvað átt er við með orðunum „eilfft Iff“ f Jóh. , 3,16: „Til þess, að hver, sem trúir á hann, glatist ekki, heldur hafi eilfftlff Þegar við tölum um eilíft líf, höfum við ekki aðeins lengd þess í huga, heldur þá tegund lífs, sem Guð leggur þeim í brjóst, er treysta Kristi. Kristur sagði: „Ég er kominn, til þess að þeir hafi líf og nægtir“ (Jóh. 10,10). Þetta líf, sem Kristur gefur, er meira en tilvera. Guð gaf okkur líkamslífið við fæðinguna. Eins gefur hann okkur andlegt líf, þegar við þiggjum tilboð hans um eilíft líf. Þetta er kallað að fæðast að nýju. Jesús sagði við Nikódemus forðum: „Yður ber að endurfæð- ast“ (Jóh. 3,3). Það merkir ekki, að Guð neyði þetta líf upp á okkur. Það táknar einfaldlega, að við verðum að fæðast aftur, ef við viljum lifa ævinlega í návist hans. Við verðum að opna and- legu lífi hans aðgang að hjörtum okkar. „Mér finnst ég vera eins og fyrirlitleg hefðarfrú", sagði Elísabet Fry, áður en hún sneri sér til Drottins, „öll í því ytra, en innantóm.“ Andlega lífið, sem Guð gefur okkur fyrir Jesúm Krist, veitir saðn- ingu. Við öðlumst „innri fyllingu“. Það táknar líka eilíft í þeirri merkingu, að þetta líf tekur aldrei enda, það er ævarandi. Já, það það þýðir líf á himnum með Kristi. Aldarminning til lestrar, sem afgangs varð sem augnablik. Síðar urðu því margs konar störf henni leikur einn. Hús- freyja, móðir, fósturmóðir, kaup- kona, hjúkrunarkona, matselja, allt unnið af drenglund, myndar- brag, með höfðingsblæ og bið- lund. Alltaf kjarkmikil, stórbrot- in, áræðin, sigrandi. Hún sómdi sér jafnvel sem allslaus móðir „á mölinni" I kreppunni, eins og hún hafði gert sem efnuð kaupmanns- frú í vaxandi velsæld. Nokkur notuð frímerki urðu auðlegð í höndum hennar. Sparsemi, nýtni, nægjusemi og örlæti fylgdist að á þann hátt að „kostgangararnir" kölluðu hana móður. Gistivinir ortu henni lofgjörð. Samt tregaði hún ævilangt ástvin, sem hún hugði týndan. Saga Þorbjargar gæti orðið met- sölubók hjá þjóð, sem kynni að meta kosti sinna beztu barna. Síðast var hún ótrúlega ein á stóru heimili .fyrir aldraða, ákaf- lega góðu heimili, þar sem hún fann sig þó aldrei alveg. Hún þakkar samt öllum sem voru henni vel, Auðunni frænda sfn- um, Þorgeiri fósturbróðurnum trygga, lækninum góða, honum Karli, börnum slnum, tengda- börnum, fósturbörnum og niðja- hópnum stóra, en bezt henni Ingu dóttirinni, sem alltaf sýndi svo mikla umhyggju, nærgætni, bið- lund og tryggð. Þorbjörg unni æskustöðvum • sínum alla tíð og dvaldist síðast oft í huganum við gengin spor og öðrum gleynd í mos og lyngi heima á Kletti. Hún var ákaflega hreinskilin kona, einörð og djörf. Hún kunni ekki að hræsna og sannleiksást hennar var einstök, helgur dóm- ur, hver sem átti í hlut. öllum sem vildu vita eitthvað meira um Þorbjörgu Hannibalsdóttur og hennar ævisögu skal vísað á Sunnudagsblað Tlmans að vori 1973. Hún gengur nú til starfa á Ljósalandi eilífðardraumsins. Árelfus Nielsson. Aldarafmæli frú Jóhönnu G. Olgeirsson kaupkonu var 18. ág. síðast liðin. Isafjarðarkaupstaður, Reykja- víkurborg, Winnipegborg I Canada höfðu því láni að fagna og heiðri að telja frú Jóhönnu meðal sinna borgara. Alsstaðar var Ijós þar sem hún fór, -ljósið bar hún með sér. Ekkert aumt mátti hún sjá, hvort heldur var hjá fólki eða málleysingjum, án þess að vilja bæta úr því. Hún var virt og elsk- uð af öllum þeim, sem af henni höfðu nokkur kynni. Auðnin var lfka mikil, eftir að hún hvarf vin- um sínum, sýnilegum augum, inn á svið sólarstranda næstu tilveru. Jóhanna var mjög vel gefin, eins og hún átti ætt til. Hagorð, en um það vissu mjög fáir. Vel máli farin, hélt fast sinni skoðun. Ávallt glöð, viðkvæm, stórbrotin, en mild og hlý, kjarkmikil og stjórnsöm, trygglyndust allra. Gestrisin og höfðingi heima að sækja. Jóhanna hafði flesta þá mann- kosti og glæsileik er konur geta borið. Hún var ekki stór vexti, en allt yfirbragð hennar góðmann- legt og virðulegt. Einstaklega ró- legt og rannsakandi augnaráð. Mér er sú minning bernsku og æskuáranna afar kær, er ég fékk að fara til ömmu. ömmu vildi hún sjálf að ég kallaði sig. Sóttist ég eftir sögum hennar, en hún virtist ótæmandi sagnabrunnur og sagði vel frá, allt söguefni stóð ljóslif- andi fyrir manni. Margbreytileg- ar voru þær, sumar skáldsögur og ævintýr með gamanyrðum, höfðu sfna töfra, eða huldufólkssögur. Sögurnar hennar ömmu voru eftirsótt hnossgæti. Jóhanna var fædd að Stærra- Árskógi viðEyjafjörð 18. ág. 1874. Foreldrar hennar voru hjónin Ingunn Stefánsdóttir stúdents og umboðsmanns að Snartarstöðum og Gísli skipstjóri Jónsson. Jóhanna var tvígift. Fyrri mað- ur hennar var VilhjálmurOlgeirs- son frá Vatnsleysu í S.-Þing., seinni maður Árni Sveinsson frá Isafirði. Seinustu æviárin dvaldi hún að sjúkradeild Hrafnistu. Með frú Jóhönnu Gísladóttur Olgeirsson hneig i valinn góð- gjörn og forvitur kona. Helgi Vigfé.sson. t Alúðarþakkir fyrir áuðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför, MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR skólastjóra. Marla og Sverrir SigurSsson. t Þökkum innilega hluttekningu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORBJARGAR HANNIBALSDÓTTUR. Ingunn Ásgeirsdóttir. Jón Egilsson, Aðalbjörg Ásgeirsdóttir, Kristinn Bergþórsson, Ásgeir M. Ásgeirsson, Baldvin Þ. Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir mín, JÓHANNA SVEINSDÓTTIR lést að Vifilsstaðaspítala 5/11. Sesselja Sveinsdóttir. t Við þökkum af hjarta auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför, KONRÁÐS MATTHÍASSONAR, Langholtsvegi 142. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild 3 C Landspitalanum. Viktoría Eggertsdóttir, Sigríður Unnur Konráðsdóttir, Ægir Vigfússon, Guðlaug Konráðsdóttir, Agnar Þór Haraldsson, og barnabörn. t Við þökkum hjartanlega öllum, sem sýnt hafa samúð og hlýhug við fráfall og útför, YNGVA LOFTSSONAR múrarameistara. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.