Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NOVEMBER 1974 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1974 21 Jón Sigurðsson skorar körfu í leik Armanns og Vals Þegar Einar fékk fimm villur varð eftirleikurinn auðveldur hjá KR KR-INGAR unnu yfirburðasig- ur gegn nýliðunum Snæfelli um heigina. 98:72 urðu lokatöl- ur leiksins, en það tók KR-inga samt mjög langan tíma að brjóta „Hólmarana" niður. Snæfeli hafði nefnilega forust- una lengst af f fyrri hálfleik, og komst f 6 stiga forskot, en KR jafnaði og komst sfðan yfir 39:38 fyrir hálfieik. Eftir að Einar Sigfússon, „primus motor“ Snæfells, fékk tvær vill- ur á 5. mfn. s.h. og varð að fara af velli með 5 villur, varð eftir- leikurinn KR auðveldur. Þeir sigu hægt og sfgandi fram úr og kepptu einungis við 100 stiga múrinn undir lokin. Litlu mun- aði að þeir klifu hann, en herslumuninn vantaði. KR-ingar léku þennan leik án þriggja landsliðsmanna, það vantaði Þröst og Birgi í liðið en þeir eru báðir frá vegna meiðsla, og Hilmar Victorsson gat ekki leikið þennan leik. Þetta hefði sett strik í reikning- inn hjá mörgum liðum, én KR tefldi fram nýjum mönnum, Árna Guðmundssyni og Gísla Gíslasyni, og komu þeir báðir vel frá leiknum. Þeir Kolbeinn Pálsson og Bjarni Jóhannsson áttu báðir góðan leik, og ekki má gleyma Sófusi Guðjónssyni sem lék nú sinn besta leik með KR til þessa. Það er greinilegt, að hinar erfiðu ferðir til leikjanna í 1. deild koma fram í leikjum Snæfells. Þeir leggja af stað frá Stykkishólmi snemma laugar- dags, keppa i Njarðvík um eft- irmiðdag, og síðan aftur daginn eftir á Seltjarnarnesi áður en þeir haida heimleiðis. En þetta er. gert samkvæmt þeirra eigin ósk, vegna mikils kostnaðar og fyrirhafnar þeirra vegna fjar- lægðarinnar. Þeir hafa nú leikið tvær helg- ar (4 leiki) og hafa í bæði skipt- in sýnt mun bttri leiki á laugar- deginum. En liðið á eftir að gera hluti í vetur sem munu koma á óvart. Mannskapurinn er góður, þar eru sterkir ein- staklingar, og yngri mennirnir eru óðum að yfirvinna fyrsta þröskuldinn á ferlinum — feimnina við hina þekktu leik- menn hinna liðanna. Davíð Sveinsson og Bjartmar Bjarna- son hafa t.d. sýnt miklar fram- farir i leikjunum. Stighætir: KR: Bjarni 23, Sófus 21, Kolbeinn 18. Snæfell: Kristján Ágústsson 27, Einar 20, Sigurður Hjörleifsson 11. — gk Þórír og Jóhannes í ham Og Valur vann Armann 101-91 Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu nýbakaða Reykja- víkurmeistara Ármanns í fyrra- kvöld. Eftir frammistöðu liðanna á undanförnum vikum voru Ar- menningar bókaðir sem hinir öruggu sigurvegarar f þessum leik, en Vaismenn, sem tefla nú í fyrsta skipti á keppnistímabilinu fram öllum sfnum sterkustu mönnum, sýndu mjög góðan leik og unnu nokkuð öruggan sigur 101:91. Já það munar svo sannarlega um það að Þórir Magnússon og Jóhannes bróðir hans eru komnir af stað á ný eftir veikindi. Þórir hefur ekkert leikið með fyrr i haust, og Jóhannes er nýbyrjaður eftir að hann slasaðist i vinnu. Þeir bræður, ásamt Kára Marís- syni og Torfa Magnussyni mynda vírkilega sterka heild, og Valur er nú að eignast nýja m.fl. leikmenn þar sem þeir eru Ríkharður Hrafnkelsson og Þorvaldur Kröy- er. Valur hefur mjög létt leikandi lið sem er til alls llklegt. Ármenningar tefldu fram sínu sterkasta liði að því undanskildu að Birgir Birgirs var ekki með, og kom þaó sér greinilega illa. Valur hafði nær ávallt frum- kvæðið í fyrri hálfleiknum. Þó jöfnuðu Ármenningar af og til t.d. 8:8, 19:19, 40:40, og svo komst Ármann yfir fyrir lok hálfleiksins 50:49. — í byrjun s.h. komst svo Ármann yfir 60:54, en Valur jafnaði. Og upp úr þessu urðu nokkur þáttaskil í leiknum. Vals- menn náðu sínum besta kafla og skoruðu 20 stig gegn 2, og gerðu þar með út um leikinn. Var leikur liðsins á þessum tima mjög glæsi- legur, hörkuskemmtileg vörn, hraðaupphlaup og góð hittni úr langskotum, og þetta var Ármenningum of stór biti að kyngja. Ekki bætti það svo úr skák að flestir leikmenn Ármanns voru komnir í villuvandræði og fóru að tínast út af hver á fætur öðrum undir lokin. Það skyldi enginn vanmeta Vlasliðið í vetur. Þeir hafa verið kallaðir efnilegir á undanförnum árum, en hver veit hvenær blómið springur út? Að öðrum ólöstuðum átti Kári Marísson bestan leik að þessu sinni, og sýndi allar sínar bestu hliðar. Hann hafði mjög góð tök á Jóni Sigurðssyni í leiknum, og við það varð Ármannsliðið sem vængbrotið. Annar stór hlutur sem háði Ármanni i þessum leik var það, hversu framherjarnir brugðust. Þeir Hallgrímur, Haraldur og Björn virtust allir leika undir getu, en vel að merkja, það leikur enginn betur en andstæðingurinn leyfir. Stigin: Valur: Torfi 27, Jóhannes 23, Kári 22, Þórir 14, Hafsteinn Guómundsson 7, Rík- harður 5, Lárus Hólm 4. Ármann: Sfmon Ólafsson 32, Jón Sig. 22, Jón Björgvinsson og Guðmundur Sigurðsson 8 hvor, Hallgrímur Gunnarsson 7, Atli Arason og Björn Christenssen 5 hvor, Haraldur Hauksson 4. gk — Úr leik KR og Snæfells. Kristinn Stefánsson er með knöttinn, en Einar Sigfússon er til varnar. Övæntir yfirburðir UMFN yfir slöku liði stúdentanna NJARÐVÍKINGAR unnu óvænt- an yfirburðaisgur gegn t.S. á laugardaginn þegar iiðin mættust í Njarðvík. Fyrirfram reiknuðu víst flestir með öruggum sigri ÍS, og sennilega hafa engir verið viss- ari um úrslit leiksins fyrirfram en einmitt leikmenn ÍS. Þeir mættu greinilega til leiksins með þvf hugarfari að þetta væri „bara léttur leikur sem þyrfti að spila“, en komust fljótt á aðra skoðun. Troðfullt hús áhorfenda fagn- aði sínum mönnum vel þegar þeir mættu til leiksins, og eftir að hann hófst var ekki möguleiki á að tala saman í húsinu fyrir hróp- um þeirra. Þetta, ásamt mjög ákveðnum leik UMFN strax í byrjun, setti ÍS-liðið gjörsamlega út af laginu, og UMFN tók strax forustuna. ÍS skoraði að visu fyrstu stigin en Stefán Bjarkason svaraði með fjórum stigum. Og hann átti svo sannarlega eftir að hrella stúdenta í þessum leik. Hann var mjög góður í vörninni, og I sóknarleik sinum var hann þannig aó Bjarni Gunnar réð ekkert við hann. Stefán var maðurinn bak við 8 stiga forskot UMFN um miðjan hálfleik, en í leikhléi höfðu stúdentar jafnaó metin 35:35. Síðari hálfleikurinn var hins- vegar martröð líkastur fyrir ÍS. Njarðvíkingarnir sýndu þá allar sínar bestu hliðar, mjög góða bar- áttu í vörninni.hraðaupphlaup.og einnig skemmtilega útfærðar sóknarlotur á annan hátt. Það tók hinsvegar ÍS-menn nær allan hálfleikinn að sannfærást um að þeir gætu tapað þessum leik, og það var ekki fyrr en undir leiks- lok að þeir virtust skynja það og byrja verulega að reyna að rétta sinn hlut. En það kom fyrir ekki, Njarðvikingarnir léku af sama kraftinum þótt þeir væru með 20 stiga forustu og gáfu engan högg- stað á sér. Og þegar leikurinn var flautaður af og lokatölurnar 85:69 lágu ljósar fyrir, óskaði maður þess helst að hafa tekið með sér eyrnatappa, þvílikur var fögnuð- ur áhorfenda. Og þeir höfðu ærna ástæðu til að gleðjast. Lið þeirra hafði sýnt frábæran leik, allir leikmenn liðs- ins voru mjög góðir að þessu sinni. Stefán bar þó af og það eru aldeilis furðulegar framfarir sem hann sýnir. Varnarleikur hans og barátta + stigin 37 segja allt. Haldi liðið áfram líkt þessu verða þeir ekki auðunnir á heimavelli, og örugglega ekkert tilhlökkunar- efni fyrir liðin að eiga eftir að heimsækja þá. Um ÍS-liðið er það að segja, að það lék undir getu i þessum leik og virtist sem áhorfendurnir hefðu mikil áhrif á þá til hins verra. Jón Héðinsson var eini maðurinn sem hélt höfði í fyrri hálfleik og hélt þá líðinu á floti með góðum leik, en aðrir leik- menn voru hálf utan við sig að því er virtist. Stúdentar hafa örugg- lega lært það af þessum leik að það er ekki hægt að ganga til neins leiks með þvi hugarfari að hann sé unninn fyrirfram. Stigin: UMFN: Stefán 37, Brynjar Sigmundsson 16, Gunnar Þorvarðarson 12, Sigurður Haf- steinsson og Haukur Guðmunds- son 8 hvor, Einar Guðmundsson 4. IS: Bjarni Gunnar 20, Jón Héóinsson 15, Ingi Stefánsson 12, Steinn Sveinsson 8, Þórður Óskarsson 6, Jón Indriðason og Albert Guðmundsson 4 hvor. gk. KR-INGAR LEIKA HEIMA — ÞAÐ MUN nú afráðið, að KR>ing- ar leiki heimaleik sinn í Evrópu- keppni meistaraliða í körfuknatt- leik hér á iandi. Samningar höfðu nær tekist um að leika báða leikina erlendis, og var það ekki hvað síst vegna eindreginna óska forráða- manna andstæðinga KR í fyrstu um- ferðinni. En leikmenn U.B.S.C. frá Vínar- borg í Austurriki sem eru einmitt andstæðingar KR voru ekki aldeilis á þvi að samþykkja þessa máls- meðferð. E.t.v hafa þeir heyrt sitt- hvað um dásemdir íslandsferða, og voru þeir ólmir í að koma hingað. Forráðamenn liðsins gáfu eftir, og munu því KR-ingar leika sinn heimaleik í Laugardalshöllinni 5. des. Fyrri leikur liðanna fer fram ytra 28. þ.m. — Ekki er mikið vitað um styrkleika körfuknattleiksliða frá Austurriki, þeir eru nær óþekkt- ir á alþjóðavettvangi og því getur svo farið að KR hafi mikla mögu- leika á að komast í 3. umferð keppn- innar en þeir sátu yfir í fyrstu um- ferð. ... og taka þátt í móti erlendis I. DEILDARLIÐ KR í körfubolta mun taka þátt í miklu körfubolta- móti sem fram fer á Irlandi i lok þessa mánaðar. Liðið heldur utan annan föstudag, og leikur í Dublin um þá helgi. Þetta mót verður án efa mjög sterkt, því meðal þátttöku- liða eru meistaralið Skotlands, írsku meistararnir, og 3 ensk lið. Skoska liðið hefur eina 6 landsliðsmenn í sínum hópi, það írska 4 og ensku liðin eru í fremstu röð i þessu mesta landi körfuboltans á Bretlands- eyjum. KR-ingar hafa tekið þátt i keppnum á Irlandi i 3 ár í röð, og er liðið mjög vinsælt meðal áhorfenda í Dublin. Avallt er leikió í sama íþróttahúsinu þar, en það er braggi sem minnir mjög mikið á gamla Hálogalandshúsið og stemmningin er mjög lík og þar tíðkaðist. Eftir þessa keppni heldur KR-liðið til Austurríkis, og leikur fyrri leik sinn í Evrópukeppni meistaralióa gegn U.B.S.C. frá Vínarborg. Heim koma KR-ingarnir 1. des. Ætlaði á handknattleiksæfingu en körfuknattleikurinn hreif hann — Þetta byrjaði nú heldur slysalega allt saman. Eg og kunn- ingi minn ætluðum á handbolta- æfingu hjá Armanni, en þegar við komum á æfingastaðinn var okkur tjáð, að það ætti að vera körfuboltaæfing. Það var fþrótt, sem við þekktum ekki neitt, en samt sem áður ákváðum við að slá til. Þetta var árið 1954. Vinur minn hélt út einn vetur f körfu- boltanum, en ég flentist f þessu og hef stundað körfuboltann sfðan. — Þannig sagðist Birgi Erni Birgis körfuknattleiksmanni úr Ármanni frá upphafi körfubolta- ferils síns. Birgir er öllum körfu- knattleiksmönnum að góðu kunnur, enda hefur hann staðið í fremstu vfglfnu f ísl. körfubolta í 20 ár. Mbl. hitti Birgi að máli á dögunum, og spjallaði lftillega við hann. — Ég spilaði minn fyrsta leik með 3. fl. Ármanns 1957 og við urðum Islandsmeistarar. Flest- allir þeir leikmenn, sem voru þá í 3. fl., voru einnig í handboltanum, t.d. Hörður Kristinsson, Grímur Valdimarsson, Árni Samúelsson o.fl. og við unnum Islandsmót í báðum greinunum 3 ár í röð. Þetta var sérstaklega samstilltur hópur utan vallar sem innan, og þjálfarinn, Ásgeir Guðmundsson (núverandi form. Fimleikasam- bandsins). kenndi okkur allt frá byrjun. Þegar við gengum upp í 2. fl. fórum við í keppnisferð til Danmerkur, og það var sannkölluð glæsiferð. Vegna misskilnings vorum við látnir spila við m.fl. lið og mætt- um fyrst Kaupmannahafnar- meisturum SISU. Þeim leik töp- uðum við með einu stigi. Eftir leikinn vildu Danir breyta leikj- um okkar og láta okkur leika gegn 2. fl. liðum, en Bogi Þorsteinsson, sem var fararstjóri, var ekki á því og sagði við þá: „Komið bara með það sterkasta, sem þið hafið.“ Danir gerðu það svo sannarlega, við spiluðum við úrval Álaborgar og unnum, við úrval Jótlands og unnum þá einnig, og svo kórónuð- um við allt með því að sigra Dan- merkurmeistarana, Efterslægten. Þetta var glæsilegur árangur hjá 2.fl. liði. — — Hvenær spilaðir þú þinn fyrsta m.fl. leik? — Það var strax og ég hafði aldur til. Ég varð 16 ára 1958 og lék þann vetur með m.fl. Árin á eftir var Ármann ekki með m.fl. en 1961 sendum við aftur lið og ávallt síðan. Ég hef ávallt verið með, og ekki misst úr nema örfáa leiki. — Og sfðan eru það landsleikirnir. Hvað varst þú gamall þegar þú lékst þinn fyrsta landsleik? — Ég spilaði minn fyrsta lands- leik 16 ára gamall og hann var gegn Dönum. Við Þorsteinn Hall- grímsson erum sennilega þeir yngstu, sem höfum leikið i lands- liði I flokkaíþrótt fyrir Island. Ég var síðan með í öllum landsleikj- um allt fram til 1970 og lék minn siðasta landsleik á Polar Cup í Osló gegn Dönum. Minnisstæðasti leikurinn? Sennilega sá fyrsti, og einnig leikurinn gegn Svfum 1959 þegar við töpuðum með aðeins 8 stigum og vorum óheppnir. Þrátt fyrir, að Birgir hafi keppt svo lengi, fer lítið fyrir verð- launasafni hans. Margir, sem aðeins hafa stundað körfuboltann f stuttan tíma, eiga mun fleiri verðlaun. — Já, það fer lítið fyrir verð- launapeningunum og styttunum. Við höfum tvívegis orðið Reykja- víkurmeistarar, 1971 og 1974, og urðum í 2. sæti í Islandsmótinu í fyrra, svo verðlaunapeningarnir eru nú aðeins þrír. — Við rákum augun f styttu, sem stendur á hillu f stofunni hjá Birgi, og spyrjum um hvernig á henni standi. — Þetta er eina verðlaunastytt- an, sem ég hef eignazt. Hana fékk ég 1968. Þá gaf Bandaríkjamaður, David Zinkoff, hana, og vildi, að hún yrði veitt þeim leikmanni, sem þætti mikilvægastur liði sínu í Islandsmótinu. Leikmennirnir kusu sfðan, og hér er hún. En þetta með verðlaunin stendur allt til bóta. Nú hrúgast þau inn f vetur og ég er búinn að koma mér upp hillu til að vera við öllu bú- inn. Og nú glotti Birgir mikið. En f fyrra munaði litlu, að Birg- ir yrði lslandsmeistari f fyrsta skipti. Það voru tvö misheppnuð vftaskot, sem komu f veg fyrir það. — Maður er nú orðinn ýmsu vanur eftir öll þessi ár, en þvf er ekki að neita, að spennan var mik- il meðan vítaskotin voru tekin, og óneitanlega hefði verið gaman að hljóta Islandsmeistaratitil eftir allt puðið í öll þessi ár. SlÐASTI VETURINN — Þetta verður örugglega síðasta árið mitt f m.fl. Tíminn, sem í þetta fer, er mikill, og væri raunar ekki hægt fyrir fjölskyldu- mann nema hann ætti skilnings- ríka eiginkonu eins og ég á. Maður hefur oft æft á hverju kvöldi vikum saman, og rétt komið heim til sín til að sofa. Það er kominn timi til að snúa sér að fjölskyldunni. Þó geri ég mér grein fyrir þvf, að það verður erfitt að hætta alveg, ætli maður snúi sér ekki bara að þjálfun eitthvað, til að slíta ekki alveg öll tengsl við körfuboltann. gk. Boltanum er fylgt vel eftir, og hér hangir Birgir f körfuhringnum 305 sm frá gólfi. Bræðurnir Sveinn og Björn Christenssen fylgjast vel með öllu. SNÆFELL VANN HSK í FRAMLENGINGU ÞAU LIÐ sem af allflestum eru orðuð við botnbaráttuna f körfu- boltanum í vetur, Snæfell og HSK léku fyrri leik sinn um helgina. Eftir mjög jafnan og spennandi leik sem lauk með jafntefli 54:54 tókst Snæfelli að merja sigur á sfðustu sek. framlengingar og sigra með einu stigi 65:64. Þórður Njálsson tók tvö vítaskot fyrir Snæfell á lokasek. framlengingar- innar og hitti í þeim báðum. Staðan breyttist því út 64:63 fyrir HSK f 65:64 fyrir Snæfell, og hin dýrmætu stig þessa leiks féllu „Hólmurunum“ í skaut. Ekki voru þó allir ánægðir með þessi málalok, margir vildu meina að HSK maður hefði átt a.m.k. rétt á vftaskotum um leið og leikurinn var flautaður af, en dómarar leiksins voru á öðru máli og töldu að leiktfminn hefði verið útrunn- inn þegar brotið var á HSK mann- inum. Annars leit ekki svo illa út fyrir HSK, þeir voru 12 stig yfir um miðjan fyrri hálfleik 24:12, en þeir Kristján Ágústsson og Eirík- ur Jónsson löguðu stöðuna fyrir Snæfell þannig að í hálfleik var hún 26:20 fyrir HSK. — Snæfell jafnaði síðan fljótlega í byrjun s.h. og eftir það var allt í járnum. Það var svo „kapteinninn" Einar Sigfússon sem jafnaði fyrir Snæ- fell á síðustu sek. leiksins og gaf þar með tóninn fyrir liðsmenn sína í framlenginguna. Þar komust þeir strax yfir 63:60 en HSK jafnaði og konist yfir 64:63. Og svo kom Þórður Njálsson inn á í leikslok og skaut hinum dýr- mætu stigum leiksins til Stykkis- hólms með tveim örugglega tekn- um vitaskotum á lokasek. leiks- ins. Stigin: Snæfell: Eiríkur Jóns- son 20, Kristján Agústsson 19, Einar Sigfússon 14, Bjartmar Bjarnason 6, Sigurður Hjörleifs- son 4, Þórður Njálsson 2. — HSK: Birkir Þorkelsson 17, Gunnar Jóa- kimsson 15, Stefán Hallgrímsson 10, Guðmundur Svavarsson og Bjarni Þorkelsson 8 hvor, Gunnar Arnason 4, Gunnar Bjarnason 2. gk. KR-INGAR UNNU VALSMENN 94-81 íslandsmeistarar KR hófu vörn titilsins med leik gegn Val um helgina. Eftir skemmtilega viður- eign, og jafna framan af tókst KR að sigra í leikn- um með 94 stigum gegn 81. KR-ingar komu mjög skemmtilega frá þessum leik, það var mikil og góð barátta í liðinu, og þrátt fyrir góðan ieik Vals- manna tókst þeim ekki að sjá við Vesturbæjarliðinu. KR tók strax forustuna í leikn- um, og urn miðjan fyrri hálfleik var staðan 24:17. Stuttu síðar var staðan 30:25, en í hálfleik munaði 8 stigum, 44:36 fyrir KR. Það var ntikil barátta í Valslið- inu í seinni hálfleik, en þrátt fyrir það tókst þeim ekki að minnka bilið nema i 7 stiga mun. KR-ingar voru mjög friskir, hraðaupphlaup þeirra voru oft á tiðum rnjög skemmtileg, og maður gegn manni í vörninni kom vel út. Það fór því svo að undir lok leiksins bættu KR-ingarnir held- ur við forskotið, og leiknum lauk meó góðum sigri þeirra 94:81. Kolbeinn Pálsson átti ntjög góð- an leik aó þessu sinni, var iðinn við að „stela" boltanum í vörn- inni, hann var allt í öllu í hraða- upphlaupunum, og svo skoraði hann 30 stig. Kristinn Stefánsson var einnig góður, sömuleiðis Bjarni Jóhannesson. Þórir Magnússon lék þarna sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu og kont út með 30 stig. Hann virðist litlu hafa gleymt. Stigahæstir: KR: Kolbeinn 30, Kristinn og Bjarni 17 hvor, Bragi Jónsson 14. Valur: Þórir 30, Jóhannes Magnússon 23, Kári Marísson 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.