Morgunblaðið - 11.04.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.04.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1975 Magnús Jónasson trésmiður — Minning Jósep Ragnar Heiðberg-Minning Fæddur 15. nóvember 1882. Dáinn 30. marz 1975. Þaó kemur engum á óvart, þegar háaldraður maður hverfur af sjónarsviðinu. En „Þegar Hel í fangi minn hollvin ber þá sakna ég einhvers af sjálfum mér‘‘. Magnús Jónasson tengdafaðir minn var á 93. aldursári, þegar hann lézt á páskadag, þann 30. marz. Kona hans, Sigurjóna Magnúsdóttir, lézt fyrir rúmum tveimur árum. Mörgum góðum manneskjum hef ég kynnzt um dagana en engum betri en þeim hjónum. Hjálpsemin og elskusemin var slik, ekki aðeins i garð barna þeirra, tengdabarna og barna- barna, heldur og i garð vina og kunningja, að fágætt má heita. Bæði unnu þau söng og það var niikið sungið, er ættingjar og vin- ir heimsóltu þau á tyliidijgum. Ættir þeirra kann ég ekki aö rekja, en ég veil að bæði unnu þau hörðum höndum frá barn- æsku og þar til krafta þeirra þraut. Skólaganga þeirra mun ekki hafa verið löng, trúlega aðeins fáar vikur í barnaskóla, en þau bjuggu yfir þeim skilningi hjartans, sem engin skólaganga getur veitt. Nám þeirra fór l'ram i háskóla lífsins, sem er öörum há- skólum æðri, og þar stóöust þau pröf með miklum ágætum. Bæði voru þau sjúklingar síð- ustu æviár sín, en nutu þá ein- stakrar umönnunar dætra sinna, Sæunnar og Herdísar, og þeirrar ágætu konu, Ingveldar Elin- rruundardóttur, sem búió hefur hjá þeim að Reynimel 50 um ára- bil og veitt þeim þá aðstoð sem hún hefur mátt. Bæði voru þau Magnús og Sigurjóna einlægar trúmanneskj- ur. Ekki veit ég öðrum fremur hvað við tekur handan landa- mæra lífs og dauða en ég hef ekki þekkt aðrar manneskjur sem frekar hafa átt rétt á að ganga inn í fögnuð herra sins. Með kveðju og þökk fyrir allt það sem þau hafa verið mér og minni fjölskyldu frá fyrstu kynnum. Torfi Jónsson. Sofiö er ástaraugað þitt sem aldrei brást, er mætti mínu. Mest hef ég dáðst að brosi þínu. Andi þinn sást þar allt með sitt. J.H. Er ég kom heim þann 31.3-. hringdi ég í mömmu og sagði hún mér þá að hann afi vesturfrá væri sofnaður svefninum langa sem hann hefur eflaust lengi þráð, oröinn 92 ára gamall og þreyttur á sinni löngu lífsgöngu og átti þvi hvildina skilið. Mig langar til að kveðja aía með nokkrum orðum og þakka honum fyrir allt það góða sem hann hefur veitt mér og öllum sínum barnabörnum. Alllaf var gott og hlýlegt að koma til al'a því hann tók alltaí svo glaðlega á móti sérhverjum er til hans kom, hann naut sín best í góðum vinahópi við söng og gleði, og aldrei var eins gaman og er hann átti afmæli. Hvaö hann var góður er ekki hægt að lýsa í nokkrum orðum né mildi eða hlý- leik hans. Sæu, Dísu, Ingu Elinmundar og Guðbjörgu var það að þakka að hann gat verið heima fram á sið- ustu stundu. Elsku Sæa og Disa, Guð veri með ykkur. Gerður. — 5 ára áætlun Framhald af bls. 5 ingar islensk sovéskra samskipta á ýmsum sviðum. Aðilar eru sannfærðir um að góð samskipti milli íslands og Sovétrikj- anna á sviði stjórnmála, efnahags- mála og menningarmála séu báðum þjóðunum i hag, stuðli að eflingu friðar og öryggis i Evrópu og séu i samræmi við hinar jákvæðu breyt- ingar, sem nú eru að verða i alþjóða- samskiptum. Báðir aðilar lögðu áherslu á mikil- vægi persónulegra funda ráðamanna og lýstu sig reiðubúna til að auka slik samskipti. Aðilar telja jákvæða þá venju er skapast hefur i samskiptum íslands og Sovétrikjanna, einkum hjá utanrikisráðuneytunum, að skiptast á skoðunum. Það var talið gagnlegt að halda framvegis áfram slíkum skoðanaskiptum. j viðræðunum ráðherranna áttu sér stað nytsamleg skoðanaskipti varðandi þróun verslunarviðskipta milli islands og Sovétrikjanna og aukna samvinnu á sviði efnahags- mála, visinda og tæknimála. Þar að gildistimi fjögurra ára sam- komulagsins um vöruafhendingar lýkur á árinu 1975, lýstu aðilar yfir þeim vilja sinum, að taka upp samn- ingaviðræður með það fyrir augum að tryggja frekari aukningu versi- unarviðskipta Báðir aðilar lýstu yfir áhuga sinum á samvinnu að þvi er tekur til vernd- unar náttúruauðæva og umhverfis- verndar bæði á tvihliða og fjölhliða grundvelli. Aðilar voru sammála um að æski- legt væri að efla tengsl á sviði menn- ingarmála, visinda, menntunar og ferðamála.. Meðan á heimsókninni stóð var undirrituð áætlun um sam- starf jslands og Sovétrikjanna í menningar- og visindamálum á tima- bilinu 1975—1979. Þannig eru menningarsamskipti landanna nú t Bróðir okkar ODDUR J. EYJÓLFSSON andaðist 5. april i Oaklandi, Cali- forniu Kristin Eyjólfsdóttir, Ingunn Eyjólfsdóttir, Lóló Eyjólfs, Día Eyjólfsdóttir Daly. Minningaleiftrin blika, þegar æskufélagarnir hverfa af sjónar- sviðinu. Jósep Ragnar Heiðberg, sem hefur nú kvatt okkur, var einn þeirra æskumanna, sem lifði sín táningsár á árunum sitt hvor- um megin við striðslokin. Þá voru þeir umrótstfmar i mannlífinu, sem ef til vill hafa markað mun dýpri spor í sálir ungmenna þess tima en almennt er athugað i dag. Það hefur áreiðanlega að mörgu leyti verið erfitt fyrir unglinga þeirra daga að móta lífsstefnu sína undir skugga styrjaldar- ógnarinnar, í skynlausu blóðbaði veraldar. En hvort sem það var vegna þessara ógna eða þrátt fyrir þær þá liðu táningsárin rétt eins og í dag — hröð og glöð. Lífsþróttur og glettni Jóseps bugaóist ekki og í góðum vinahópi var hann í fararbroddi. Þessi myndarlegi piltur, hár og spengilegur, komin á grundvöll, sem tekur til langs tima i einu. j viðræðunum kom fram sú skoð- un, að samvinna landanna beggja i fiskveiðirannsóknum hefði mikla þýðingu. Aðilar ákváðu að kanna möguleika fyrir frekari samvinnu á þessu sviði. Aðilar létu i Ijós ánægju yfir nyt- semi funda þeirra og viðræðna, sem fóru fram meðan á heimsókn Einars Ágústssonar til Sovétrikjanna stóð, og lýstu yfir þeirri sannfæringu sinni að fundir þessir og viðræður stuðli að eflingu vinsamlegrar sambúðar og samvinnu milli Íslands og Sovét- rikjanna. Utanrikisráðherra íslands lét i Ijós þakklæti fyrir gestrisni þá, sem hon- um og fylgdarmönnum hans hefði verið sýnd meðan á dvölinni i Sovét- rikjunum stóð. Fyrir hönd rikisstjórn- ar íslands bauð hann A.A. Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, að koma i opinbera heimsókn til ls- lands. Boði þessu var tekið með ánægju. Siðar verður ákveðið, hvenær sú heimsókn fer fram. Utanrikisráðuneytið, 9. aprit 1975. ÍHovfliinX>Iaí>ií> margfoldar markad vdar t Systurdóttir min SIGRlÐUR LÁRA PÁLSDÓTTIR frá Þórormstungu, Vatnsdal, andaðist i Chicago, 3 apríl s.l Hannes Jónsson Lönguhlíð 1 7. eignaðist ævinlega vini, þar sem hann fór, traust þeirra og ein- lægni. Hvort sem ár skólasamvist- anna urðu mörg eða fá, þá skildu þau eftir ljúfar minningar. Síðar skildu leiðir til margvís- legra starfa i dagsins önn. Fundir urðu strjálli og kynninn dofnuðu án þest að fjara út. Alltaf af og til hittust gömlu félagarnir. Það voru stundir upprifjunar og áætl- ana. Hinn bjarti piltur fór sína leið til athafna í lífinu. Honum var eins og öðrum ætlað dagsverk að vinna. Arin liðu og hann eignaðist sína fjölskyldu — dagsverkunum fjölgaði. Veraldarvafstrið setti sina punkta og strik í myndina. Nú er hans dagsverkum lokið. Hafi hann þökk fyrir samfylgd- ina. Minningaleiftrin munu halda áfram að blika í hvert sinn, er við heyrum góðs drengs getið. Hvíli Jósep Ragnar Heiðberg í friði. ht. Vinur minn og allra sem áttu því láni að fagna að kynnast honum, er horfinn sjónum okkar eins og er, en kemur í ljós á ný, þegar við förum í okkar ianga ferðalag. Jósep Ragnar Heiðberg fæddist hér í Reykjavík árið 1928. Foreldrar hans voru hjónin Jón Heiðberg stórkaupmaður sem flestir eldri borgarar kannast við og eiginkona hans Þórey, ættuð vestan af Mýrum. Heimili þeirra var annálað fyrir gestrisni og myndarskap í öllu. Á þessum góða stað ólst Jósep upp ásamt systur og tveim bræðrum sem upp kom- ust. Jósep stundaði nám I Verzlunarskóla Islands ennfrem- ur verzlunarnám í Bretlandi. Hann var við flugnám ungur að árum og lauk einkaflugmanns- prófi i þeirri grein. Jósep var mjög trúaður og víðlesinn á því sviði svo jaðraði við að undrum sætti. Því mjög ungur að árum fékk hann áhuga á þeim málum. Ég veit að hann var undir áhrif- um frá föður sinum, minnsta kosti fyrst í stað, því Jón heitinn var með trúaðri mönnum. Jósep giftist árið 1959 Valborgu Maríu hjúkrunarkonu sem reynd- ist honum góð kona. Þau eignuðust fjögdr börn, sem enn eru ung að árum, mannvænleg og þeim mjög kær. Góður Guð gefi móður hans, konu og börnum þann styrk sem þau þurfa á að halda og ég óska þeim alls hins besta í nútíð og framtíð. Satt að segja get ég vart hugsað mér betri dreng en Jósep minn. Blessuð sé minning hans. Ó.M. t Maðurinn minn VALDIMAR BJARNASON frá Hellissandi, Sporðagrunn 2, Reykjavík andaðist að heimili sínu 9 þ.m Svanfríður Hermannsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JENS BENJAMÍN ÞÓRDARSON, Hafnargötu 48, verður jarðsungtnn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 1 2. apríl kl. 2 e h. Þuríður Halldórsdóttir, Alda S. Jensdóttir, Sævar Þorkell Jensson, Halldór Á. Jensson, María Valdemarsdóttir, Kristinn Þ. Jensson, Elsa Halldórsdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma KRISTIN INGVARSDÓTTIR, Viðimel 27, verður jarðsungin frá Dómkirkjunnt i dag, föstudaginn 11 april kl 3 e.h. Axel Einarsson Unnur Öskarsdóttir Jóhanna Jórunn Thors Óláfur B. Thors Kristin Klara Einarsdóttir Árni Indriðason og barnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móður. tengdamóður og ömmu GUÐFINNU ÞORLEIFSDÓTTUR, Ásvallagötu 24. Reykjavik fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 12. aprílkl. 10.30 f h Friðrik Jónsson. Þorgerður Friðriksdóttir, Steinn Steinsson og barnabörn. t Móðir okkar, dóttir mín, systir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG KARLSDÓTTIR, Kleppsveg 58. verður jarðsett frá Dómkirkjunni laugardaginn 1 2 april kl 1 0 30 Ásdis Karlsdóttir, Ólafur Karlsson, Gunnar Karlsson, Karl Þorvaldsson, Þórhildur Karlsdóttir, Karlotta Karlsdóttir, Magnea Karlsdóttir. Magnús Karlsson, Þorvaldur Ó. Karlsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför, SIGURÐAR GÍSLA JÓNSSONAR, Miðtúni 36. Sonur og systkini hins látna. útfaraskreytingar blómouol Groðurhusiö v/Sigtun simi 36.7 7'.’.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.