Morgunblaðið - 07.10.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1975 kfíf&s* JK ' * , * - * aÉÉtefcé**,:, *>»•*• _ »-3BB VELTA — Þessi Bronco-jeppi valt á Hellisheiði um hádegisbilið á sunnudag, en þá var snjóföl ofarlega á heiðinni. Tveir voru í bílnum, en þótt ótrúlegt megi virðast slapp annar ómeiddur, en hinn brákaðist á fæti og skarst lítillega á höfði. Ljósm. Mbl.: Georg Michelsen. Verzlunarráð íslands: VERZLUNARRAÐ lslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem fram kemur að útlán Guðjón Hjórleitsson Aldraður mað- ur lézt eftir umferðarslys GUÐJÓN Hjörleifsson, 83ja ára gamall maður, sem varð fyrir bifreið klukkan 15,20 sfðastliðinn föstudag á Hverfisgötu á móts við húsið númer 39, lézt af völdum höfuðáverka, sem hann hlaut við slysið á föstudagskvöld. Guðjón átti heima á Hverfisgötu 47. Tildrög slyssins voru þau, að Guðjón var á leið suður yfir Hverfisgötuna og lenti þá fyrir bíl, sem ók austur Hverfisgötu á hægri helmingi götunnar. Önnur bifreið var á leið austur Hverfis- götu á vinstri helmingi götunnar og ber bifreiðarstjórinn, sem ók á Guðjón, að hann hafi ekki séð hann fyrr en skyndilega að hann kom úr hvarfi frá bílnum, sem ók á vinstri helmingi götunnar. Bifreiðarstjórinn hemlaði, en tókst ekki að forðast árekstur. Guðjón heitinn var þegar flutt- ur í slysadeild Borgarspítalans. Hann lézt um klukkan 20 á föstu- dagskvöld. viðskiptabankanna til atvinnu- veganna hafa aukizt að meðaltali um 25% meðan útlán Seðlabank- ans til rfkissjóðs og rfkisstofnana hafa aukizt um 118%. Mótmælir Verzlunarráðið áframhaldandi útlánastöðvun til atvinnuveganna á sama tfma og útlán til rfkissjóðs aukast. Fréttatilkynning Verzlun- arráðs Islands fer hér á eftir: ALYKTUN Verzlunarráðs tslands um útlána- bindingu bankanna í tilefni af fréttatilkynningu Seðlabanka tslands og viðskipta- bankanna, þess efnis, að brýna nauðsyn beri til að halda áfram þeirri stefnu í útlánamálum, sem fylgt hefur verið fram til þessa, til þess að hamla gegn áframhald- andi þenslu í efnahagsmálum, vill framkvæmdastjórn Verzlunar- ráðs íslands taka fram eftirfar- andi. Á þvf timabili, sem umrædd stefna í útlánamálum hefur verið við lýði, hafa útlán Seðlabanka tslands til ríkissjóðs og stofnana hans stóraukizt. Slík útlánaaukn- ing getur einungis leitt til aukinn- ar eftirspurnar eftir öllum vörum og þjónustu. Þegar slíkt er gert á sama tíma og atvinnuvegunum er með útlánastöðvun gert ókleyft að mæta eftirspurninni með aukinni framleiðslu og vöruframboði, hlýtur afleiðingin að verða aukin þensla og verðbólga. Þessu til skýringar fylgja hér nokkrar töl- ur, sem sýna útlánaaukninguna frá 31. ágúst 1974 til 31. ágúst 1975. Útlánaaukning 31/8 1974 — 31/8 1975. Seðlabanki íslands til: % Ríkissjóðs og ríkisstofnana 118 Bankar og aðrar innláns- stofnanir til: % Ríkissjóðs og ríkisstofnana 58 Bæjar-og sveitarfélaga 17 Lánastofnana 31 Landbúnaðar 43 Sjávarútvegs 31 Verzlunar 19 Iðnaðar 28 Byggingarverktaka íbúða 31 Byggingarverktaka aðrir -f-12 Þjónustustarfsemi 27 Utlán viðskiptabankanna hafa á Framhald á bls. 35 Ársþing LÍV á Hornafirði: Bíða með kröfugerð- ir þar til fjárlög hafa verið lögð fram Mótmælir útlánastöðv- un til atvinnuveganna — meðan útlán til ríkissjóðs aukast Höfn 6. október KL. 10 ARDEGIS var sett f Hótel Höfn í Hornafirði ársþing LÍV, Landssambands fsl. verzlunar- manna. Þingið setti Björn Þór- hallsson að viðstöddum 72 full- trúum. Gestir þingsins voru Þor- steinn L. Þorsteinsson formaður verkalýðsfélagsins Jökuls f Höfn, Sigurður Hjaltason sveitarstjóri og Friðjón Guðröðarson lögreglu- stjóri. 1 setningarræðu sinni bað formaður menn um að fara var- lega f kröfugerð, þar sem fjárlög væru ekki komin fram og ekki vitað hvort rfkisstjórnin héldi sömu útþenslustefnu. En ef svo færi væri ekki annað að gera en svara f sömu mynt. Formaður bauð velkomið f LlV Verzlunar- mannafélag A-Skaftfellinga, sem stofnað var sl. miðvikudag og með þvf hefði hringurinn hjá LlV lokazt, þvf að nú væru komin verzlunarmannafélög um allt landið. I samtölum við fulltrúa kom fram, að þeir telja þetta þing munu verða stefnumarkandi I kjaramálum, þar sem þetta er fyrsta þing launasamtaka nú f haust. En LlV er stærsta lands- sambandið innan ASl og telur nálægt 10 þúsund manns. Að kjaramálum frágengnum mun Lífeyrissjóður verzlunar- manna verða eitt af stóru um- ræðuefnum þingsins. Honum hefur safnazt mjög fé á seinni árum, en bótagreiðslur verið í al- geru lágmarki. Árið 1974 greiddi sjóðurinn vegna 43 barna 4,2 milljónir ekknalífeyri fyrir 21 ekkju, 643 þúsund, ellilffeyri til 39 aðila, 902.124 kr., örorkulífeyri til 3ja sjóðsfélaga, 72.608 kr. Þetta er samtals 5.817.732 kr. Mun þetta næsta lítið miðað við vaxtatekjur upp á 181 milljón Björn Þórhallsson formaður L.I.V. króna á sl. ári, iðgjaldatekjur 410,5 milljónir og endurgreidd lán 95,5 milljónir. Er aukningin á árinu 143,9 milljónir eða 53,9%. Björn Þórhallsson var endur- kjörinn formaður L.I.V. og að Framhald á bls. 35 Leit að gull- skipi ár- angurslaus LEIT að hollenzku Indíafari, sem Bergur Lárusson hóf 1960 hélt áfram f sumar á vegum Björgunar h/f o.fl. Leitin bar ekki árangur og áttu leitar- menn við mikla erfiðleika að etja þar sem gffurlegt vatn var á sandinum vegna rigninga f sumar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um, hvort leit verður haldið áfram. „Hefði alltaf átt að salta síldina í landi” •• — segir Ogmundur á Jóni Garðari „OKKUR Ifzt mjög vel á þetta nýja fyrirkomulag og svona hefði það alltaf átt að vera. Með þvf að salta sfldina f landi, skapast miklu meiri verðmæti fyrir þjóð- arbúið en þegar vcrið er að bogr- ast við að salta síldina um borð f veiðiskipunum," sagði Ögmundur Magnússon, skipstjóri á Jóni Garðari þegar Morgunblaðið spurði hann að þvf hvernig hon- um litist á þá ákvörðun sjávarút- vegsráðuneytisins að heimila Gagngerð skoðun á staf- setningarreglum að hefjast — Z einn liður í því, segir menntamálaráðherra MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við Vilhjálm Hjálmarsson menntamálaráð- herra til að spyrjast fyrir um hvað liði undirbúningi löggjaf- ar um fslenzka stafsetningu og þá sérstaklega varðandi z, en rfkisútgáfa námsbóka lét í sumar prenta zetulausa fs- lenzka stafsetningarorðabók með beygingarendingum. „I samræmi við fyrri orð okkar,“ sagði menntamálaráð- herra, ,,og samþykkt slðasta Alþingis um að fela ríkisstjórn- inni að undirbúa löggjöf um stafsetningu, munum við taka þessi mál fyrir að afloknum sumarleyfum og þá verða hin ýmsu atriði skoðuð niður í kjöl- inn. Varðandi útgáfu stafsetn- ingarorðabókarinnar þá var ákveðið í for að láta hana bíða um sinn ef unnt yrði að komast hjá því að gefa hana út, en gamla stafsetningarorðabókin mun hafa verið orðin uppurin og því þótti ekki annað fært en prenta bókina í Iitlu upplagi, því hún var lengi búin að bíða tilbúin til prentunar og þótt fullorðnir þræti um zetuna, verður að halda áfram að kenna unga fólkinu að skrifa, en inn- an skamms verður sett í gang gagngerð skoðun á málinu og z er einn liður í því.“ I samtali Morgunblaðsins við Sigurð Pálsson skrifstofustjóra ríkisútgáfunnar sagði hann, að þessi bók, sem er 230 blaðsiður að stærð í litlu broti, hefði verið tilbúin til prentunar í feb. sl. eða þremur mánuðum áður en meirihluti þingmanna skoraði á menntamálaráðherra að taka z aftur í gildi I íslenzku ritmáli. Sagði Sigurður, að þar sem hliðstæðar bækur hjá ríkisút- gáfunni hefðu verið uppseldar héfði forlagið látið prenta aðeins 1500 eintök af-stafsetn- ingarorðabókinni og ætti það að nægja eftirspurn í vetur, því bókin væri sölubók til að bæta úr vöntun en ekki til skyldu- dreifingar. sfldarsöltun f landi, en fram til þessa hafa síldveiðileyfi verið bundin þvf að bátarnir söltuðu sfldina skilyrðislaust um borð. Ráðuneytið hefur nú gefið út leyfi til síldveiða í herpinót fyrir samtals 42 báta og hefur verið ákveðið að fleiri veiðileyfi verði ekki gefin út á þessari vertíð. Eins og kunnugt er þá er heimilt að veiða 7500 lestir af síld I herpi- nót á þessari vertíð og hefur afla- magni þessu veríð skipt milli bát-' anna þannig, að 185 tonn koma f hlut hvers þeirra. I fréttatilkynningu frá sjávar- útvegsráðuneytinu segir, að það muni fylgjast nákvæmlega með því, að einstakir bátar fiski ekki meira en nemur 185 tonna kvót- anum, en ef það mun koma fyrir Framhald á bls. 35 Börkur til Mauritaníu Neskaupstað 6. október NÖTASKIPIÐ Börkur kom í heimahöfn um helgina eftir meira en mánaðarútivist f Barentshafi en þar var skipið sem kunnugt er á loðnuveiðum ásamt tveimur öðrum loðnuskipum íslenzkum. Gert er ráð fyrir, að Börkur haldi eftir vikutíma eða svo áleiðis til Mauritaníu þar sem skipið mun verða á makrflveiðum ásamt fleiri fslenzkum skipum og leggja upp í Norglobal sem fyrr. Asgeir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.