Morgunblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1975 Getum sigrað þá með toppleik — sagði Jón Karlsson — ÉG ÁLÍT að við getum sigrað júgóslavneska liðið, en til þess þurfum vi8 a8 ná toppleik, sagði Jón Karlsson, sá leikmaSur ís- lenzka liðsins sem komið hefur einna bezt út I landsleikjum ís- lands að undanförnu og hefur ver- ið markhæsti leikmaður þess. Jón var upprunalega ekki valinn I landsliðshópinn — kom inn I hann er Einar Magnússon meiddist, og hefur rækilega sannað að hann átti þar heima. — Ég er mjög ánægður me8 æfingaferSina til Danmerkur, sagði Jón Karlsson. — Það var góður andi I liSinu og mikil sam- staða og þær æfingar sem við fengum þama voru okkur mikils virði, sérstaklega þó æfingaleik- irnir við danska landsliðið. Það kann að hljóma undarlega eftir þrjú töp fyrir því Ii8i, að segja að við eigum nú betra lið en þeir, en það er samt skoðun mln. Það var hræðilegur klaufaskapur að tapa einum þessara leikja, en Danirnir skoruðu sigurmark sitt þegar um ein sekúnda var til leiksloka. Ég ætla bara að vona að ekkert slfkt komi fyrir I kvöld. lék gegn Júgóslavlu, Ólafur H. Jónsson er fyrirliði landsliðsins og hefur 87 landsleiki að baki, Óiafur Benediktsson leikur sinn 50. landsleik f kvöld og ætlar sér að verja „frá þessum köllum" verði varnarleikurinn í lagi. Erfíður leikur en hugur í mann- skapnum fyrir átökin í kvöld ÞAÐ or erfiSur leikur sem Islenzka handknattleikslandsliSiS á fyrir höndum I kvöld og landsliSsmennirn ir okkar eru sér þess fyllilega meSvitandi AndstæSingurinn er einn si sterkasti I heimi og allir munu Islenzku leikmennirnir leggja allt hvaS þeir geta I þennan leik. Æft Blökknmennirnir létn Irnefa semja sátt en Ármenningar sipðn í leiknnm 85 - 81 ÞAÐ slettist heldur betur upp á vin- skapinn hjá Trukk Carter og Jimmy Rogers f leik Ármanns og KR f fyrra- kvöld, þegar nokkrar sek. voru til leiksloka braut Trukkur á Jimmy við miðlfnu, nokkuð gróflega, og Jimmy svaraði með þvf að spyrja hvern dj. . . þetta ætti að þýða og sýndi Trukk aðvörunarmerki með hend- inni. Trukkur sillti sér þá upp f hnefa- leikastellingar og sfðan ruki þeir saman. Carter kom einu miklu sveifluhöggi á Jimmy og sendi hann á gólfið, en sfðan ruku þeir saman á ný. Urðu úr þessu mikil slagsmál sem lauk á þann hátt að báðir voru kapparnir reknir af leikvelli. Já, þeir fengu talsvert fyrir aurana sína sem lögðu leið sina í Höllina í fyrrakvöld. Leikurinn var æsispennandi allt fram á síðustu sek og þá höfðu Ármenningar það af að ná forustunni og sigra með 85 gegn 81. Annars var þessi leikur ekki vel leik- inn fyrr en undir miðjan síðari hálfleik, er liðin fóru verulega í gang í fyrri hálfleik höfðu liðin skipst á um að hafa frumkvæðið og Ármann hafði yfir i hálfleik 41:37. Það markverðasta í fyrri hálfleik var að Birgir örn og Björn Magnússon fengu báðir 4 villur og þeir höfðu gætur á Trukk og gerðu það ekki með hangandi hendi eins og sjá má. — KR náði siðan forustu í upphafi siðari hálfleiks og nær allan síðari hálfleik hafði KR yfir 2 til 6 stig Það voru svo 45 sek eftir þegar Jimmy kom Ármanni yfir 83 81 og hinir 1200 áhorfendur i Höllinni ætluðu hreinlega að sleppa sér af spenningi_ Og ekki minnkaði spennan stuttu siðar þegar hnefaleikarnir hófust, en þá stóðu allir áhorfendur upp og öskruðu hver sem betur gat — þvilíkar „senur" hafa ekki sést á fjölum Hallarinnar áður — húsið hreinlega „glóði" af spenn- ingi En hnefaleikarnir geta orðið köpp- unum dýrt spaug, báðir eiga yfir höfði sér keppnisbann Þeir Kristbjörn Albertsson og Ingi Gunnarsson sem dæmdu þennan leik léku stórt hlutverk — að sumra áliti allt af stórt. Margir dómar þeirra voru vægast sagt furðulegir svo ekki sé meira sagt, t.d. þegar þeir dæmdu 10 sek. á KR í síðari hálfleik. Þá höfðu Ármenningar komist inn I sendingu KR-inga á slnum eigin vallarhelmingi en KR náði boltanum aftur. Frá því Ármenningurinn kom við boltann og þar til dæmdar voru 10 sek. á KR liðu ekki nema 3 til 4 sek. Ármann fékk boltann og skoraði, og vildu margir hallargesta I fyrrakvöld meina að þetta hefði verið vendipunktur í síðari hálfleikn- um Ármanni f hag. Þá fór Trukkur ekki vel út úr dómgæslunni, hann var ávallt slðari hálfleik með tvo og þrjá menn á bakinu, en lltið var dæmt. Ekki var þó öll dómgæzlan KR I óhag, en yfir höfuð kom hún mun verr niður á þeim. En þessi leikur var mjög erfiður fyrir dómarana, mikil barátta, mikill hraði, og hasar undir körfunum. Jimmy var langbezti maður Ármanns í þessum leik, og sýndi margt stórkostlegt á köflum bæði í vörn og sókn. Jón Sigurðsson sótti sig mikið er á leikinn leið og sýndi mest undir lokin þegar mest reið á Þá áttu þeir Harald- ur Hauksson og Birgir örn góða kafla Hjá KR var Kolbeinn beztur, Trukkur var seinn í gang, en var geysidrjúgur í fráköstum Aðrir skáru sig ekki úr, nema e.t.v. Gunnar Jóakimsson, sem þó lék ekki mikið með vegna villuvand- ræða og Bjarni Jóhannesson, Birgir Örn,, Björn Magnússon og Kolbeinn Pálsson fengu allir 5 villur, og var sérstaklega slæmt fyrir KR-inga að missa Kolbein, hann hafði haldið öllu spili gangandi hjá KR Stighæstir: Ármann: Jimmy 37, Haraldur 12, Björn M og Jón Sig 9 KR: Carter 26, Bjarni Jóhannesson 16, Birgir Guðbjörnsson 12. mm var I iþróttahúsinu I HafnarfirSi um miðjan dag I gær. slSan var gufubað, nudd og rólegur rabbfundur é dagskrð. LiSiS, sem leikur I kvöld var endanlega valiS I gærkvöldi og mun landsliSsmarkvörðurinn Ólafur Benediktsson leika sinn 50. lands- leik I kvöld. fslenzka liðiS verður þannig skipað: Ólafur Benediktsson, Val, Guðjón Erlendsson, Fram, Ólafur H. Jónsson, Dankersen, Axel Axelsson, Dankersen, Gunnar Einarsson, Göppingen, Ólafur Einarsson, Donzdorf, Sigurbergur Sig- steinsson. Fram, Björgvin Björgvins- son, Vikingi, Páll Björgvinsson Vlkingi, Jón H Karlsson, Val, Stefán Gunnars- son, Val og Árni Indriðason. Gróttu Út úr liðinu fóru þeir Friðrik Friðriks- son, Þrótti, Viggó Sigurðsson Vikingi, og Ingimar Haraldsson, Haukum Fyrirliði landsliðsins verður Ólafur H Jónsson, sem leikið hefur fleiri landsleiki en nokkur annar Islendingur eða 87 í leikjum landsliðsins að und- anförnu hafa nokkrir leikmanna átt ..afmæli’’ Björgvin Björgvinsson lék sinn 75 landsleik, Axel Áxelsson sinn 50. og Jón H. Karlsson landsleik númer 25. í kvöld er hins vegar komið að Ólafi Benediktssyni að leika timamótaleik, þvl leikurinn I kvöld verður hans 50 landsleikur. Ólafur lék fyrst I marki landsliðsins gegn Dönum 1971, er íslenzka liðið vann 15:12 og segir Ólafur það vera sinn efitrminnilegasta leik — Ég verð að viðurkenna að ég er hálfhræddur fyrir leikinn I kvöld, and- stæðingurinn er geysilega sterkur og erfiður við að eiga. Standi vörn liðsins fyrir slnu þá treysti ég mér til að berja frá þessum köllum sagði Ólafur í gær. Forsala aðgöngumiða hefur gengið mjög vel og var nær uppselt I öll sæti Laugardalshallarinnar. Leikurinn hefst klukkan 20.30 og með dyggilegum stuðningi geta áhorfendur fleytt Islenzka liðinu yfir þann erfiða hjalla I Ólympiukeppninni, sem Júgóslavar verða eflaust I kvöld Reyndasta lið í heimi? ÞEIR ERU reynslunni rlkari júgóslavnesku handknattleiks- mennirnir sem leika viS fslendinga I Laugardalshöllinni I kvöld, enda sennilegt að hér hafi ekki keppt handknattleikslandslið áSur, þar sem meðalaldur leikmanna er hærri. Margir þeirra leikmanna sem skipa júgóslavneska liSið voru i gullliðinu I Munchen 1972, og hafa verið burðarásar liSsins I 6—8 ár. Hafa nokkrir leikmannanna margsinnis leikið hérlendis áður og eru vel kunnir. Má þar fyrst og fremst nefna fyrirliSa liðsins, Hrvoje Horvant, og markvörSinn góðkunna, Abas Arslanagió. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Handknattleikssamband íslands fékk um júgóslavneska liðið, þá er meðal- aldur leikmanna 26 ár — það þýðir að meðalaldur leikmannanna er svipaður og elzta islenzka leikmannsins i leikn- um á morgun Leikmenn Júgóslaviu hafa samtals 1154 landsleiki að baki, sem gerir rúmlega 72 landsleiki að meðaltali á mann og i leikjum þessum hafa þeir skorað samtals 2238 mörk Þetta eru þó ekki nýjar tölur, eða frá 1 desember s.l Fram að þeim tima hafði júgóslavneska landsliðið leikið 293 opinbera landsleiki gegn 29 þjóðum og af þeim höfðu þeir unnið 182, 27 höfðu orðið jafntefli og 84 tapast Markatala samanlagt var 5 405 mörk gegn 4.490 eða rúmlega 1000 mörk I plús. f leiknum i kvöld er júgóslavneska landsliðið skipað eftirtöldum leikmönn- um: Hrvoje Horvant, Partizan Bjelovar, 29 ára — 174 leikir, 459 mörk Branislav Pokarjac. Dinamo Pancevo, 28 ára — 1 59 leikir, 458 mörk Miroslav Pribanic, Partizan Bjelovar. 29 ára — 1 24 leikir, 272 mörk Milorad Karalic, Borac-Banja Luka, 29 ára — 107 leikir, 149 mörk Abas Arslanagic. Borac Banja Luka, 31 árs — 105 leikir, markvörður Nebojsa Popovic, Borac Banja Luka, 28 ára — 100 leikir, 224 mörk Zdravko Miljak, Mevescak, 25 ára — 94 leikir — 227 mörk Zdenko Zorko, Medvescak, 25 ára — 57 leikir, markvörður Radisav Pavicevic, Crevenka, 24 ára — 44 leikir 95 mörk Zdravko Radjenovic, Borac Banja Luka, 23 ára — 41 leikur, 91 mark Zvonimir Serdarusic, Partizan, 25 ára, — 36 leikir, 69 mörk Zeljko Bims, Partizan, 25 ára — 29 leikir, markvörður Radivoj Krivokapic, Slovan Ljubljana, 21 árs — 27 leikir, 121 mark Vlado Bojovic, Celje, 23 ára, 27 leikir, 28 mörk Petrit Fejzula, Crvena Zvzda, 24 ára — 21 leikur, 1 9 mörk Predag Timko, Krivja, 27 ára — 16 leikir, 26 mörk Með Júgóslavneska liðinu komu svo hingað þrlr þjálfarar, einn læknir eða nuddari og einn fararstjóri og er sá formaður júgóslavneska handknatt- leikssambandsins. JIMMY Rogers og Trukkurinn Carter eltu grátt silfur saman I gærkvöldi en eru annars mestu máfar dags daglega. Svo kann að fara að þessir litrlku leikmenn verði að súpa seyðið af slagsmálunum með þriggja leikja banni. Fá Rogers og Carter þrigga leikja baiui? „ÉG MUN aS sjálfsögSu vlsa þessu máli til aganefndar. ViS neyddumst til aS reka þá Carter og Jimmy af velli og aganefnd mun þvl fá máliS til meSferSar." Þetta sagSi Kristbjörn Alberts- son aBaldómari I leik KR og Ár- manns þegar viS ræddum viS hann. „Ég vil ekki orSa þetta þannig aS ég sé aS kæra þá fyrir nefndinni. ég vlsa einungis málihu til nefndarinnar." f 3. Ii8 6. gr. I agareglum stend- ur: . . . hafi dómari vikiS leikmanni af leikvelli fyrir ofbeldi. sem telst alvarlegs eSlis, gagnvart leik- manni, starfsmönnum eSa áhorf- endum, skal honum refsaS meS leikbanni I minnst þrjá leiki. ViS Itrekun komi minnst 6 leikja bann. Nú mun Kristbjörn sem var aS- aldómari, ekki kæra þá félaga fyrir nefndinni, og verSur fróSlegt aS sjá hvaSa afstöSu aganefnd tekur til þess máls. Sleppir hún þeim Jimmy og Carter með áminningu eða verSa þeir dæmdir I þriggja leikja bann? Sllkt myndi hafa mjög alvarlegar afleiSingar, ekki einungis fyrir KR og Ármann, heldur einnig fyrir körfuboltann I heild. gk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.