Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976 Minning: Vagn Egill Jónsson hœstaréttarlögmaður Fæddur 5. júlf 1914 Dáinn 5. aprfl 1976 • .f á infnnni a*\ úslvim.n. f*«.* IíihVím !l : .;!•.»< ■ ,.*iri*l l*Ú f*it»í“ 4»*vm<l!r »*r»» l»»-»r h »á imr \f» r f»«*fa J-é. * kal I þar st*ii» h<*l « i uranri i má. II. Hálfdánai son. Mér brá mjög er ég frétti hið óvænta andlát míns elskulega og góða vinar, Vagns E. Jönssonar hæstaréttarlögmanns, sem andaðist fyrir aldur fram þann 5. april s.l., aðeins 61 árs. Við höfð- um þekkzt í nærri 50 ár og verið einlægir trúnaðarvinir síðan. Ekki fer hjá þvi, að slik vinátta marki djúp spor í vort jarðneska lif, og svo var sannarlega í þessu tilviki, en þegar ég hugsaði til eftirlifandi ástvina Vagns fannst mér að formálsorð þessarar minningargreinar veittu hæði þeim og mér þá huggun sem trú min og von hyggðu á. Vagn var einn af traustustu og beztu lögmönnum landsíns, heil- steyptur, grandvar og gjóðgjarn og vildi hvers manns vanda leysa. Prúðmennska var honum í hlóð borin. Athugull var hann og atorkusamur og var hverju því máli vel borgið, er hann tók að sér. Er því mikið skarð fyrir skildi viö fráfall hans. Þeim sem bezt þekktu til, komu ekki áóvart mannkostir Vagns. Foreldrar hans voru mannkostafólk og heimili þeirra var mikið menningarheimili. Listir voru þar í hávegum hafðar, bæði klassísk tónlist og gnægð bóka var þar til, bæði innlendra og erlendra. Nærri má geta, hvort þetta hefur ekki verið gott veganesti ungum og fróðleiksfúsum manni, eins og Vagn var. Foreldrar Vagns voru Magnús Jónsson, fluggáfaður mennta- maður, sem hafði lokið bæði lög- fræðiprófi og verkfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla. Þar hafði hann gegnt fjölmörgum embættisstörfum, verið ritari dönsku sambandslaganefndarinn- ar 1918, og hér heima m.a. verið fjármálaráðherra í ráðuneyti Sigurðar Eggertz og prófessor i lögum við Háskóla íslands. Kona Magnúsar var dönsk, Harriet Edith Isabel að nafni, dóttir Gottlieb Heinrich L. Bonnesen stórkaupmanns í Kaupmanna- höfn, en Bonnesensættin er þar vel þekkt og virt. Foreldrar Magnúsar voru Jón bóndi á Ulfljötsvatni í Grafningi, Þórðarson, einnig bónda þar Gislasonar. Kona Jóns bónda á Ulfljótsvatni, föður Magnúsar, var Þórunn Magnúsdóttir, prests í Meðallandsþingum, Jónssonar Nordahls prests i Hvammi i Norðurárdal og má rekja þá ætt til margra merkustu manna i sögu þjöðarinnar. Bróðir Vagns var Ulf Jónsson, lögfræðingur að mennt, dáinn ár- ið 1974, giftur Vilborgu kennara Kolbeinsdóttur. Vagn Egill Jónsson var fæddur 5. júli 1914 í Kaupmannahöfn, og þar dvaldi hann fyrstu bernskuár sín unz hann fluttist með foreldr- um sínum til íslands á 7. ári. Vagn var fljótur að venjast íslenzkum aðstæðum og var strax og hann hafði aldur til settur til mennta. Vorið 1928 tók hann inn- tökupróf i Menntaskólann i Reykjavik og stöðst það með ágæt- um, það ár var fyrst takmarkaður fjöldi nemenda í 1. bekk. Svo vildi til, að ég þreytti þá einnig mína inntökuprófraun i skólann og hófust frá þeirri stundu fyrstu kynni min og síðan vinátta milli okkar Vagns og við urðum sessu- nautar þessi skólaár. 1 raun og veru var engin tilviljun, að ég skyldi hænast að Vagni öðrum fremur. Hann var hæglátur, prúður, glaðlegur og reglusamur ungur maður, og mönnum leið ósjálfrátt vel í návist hans. Skóla- systkini okkar sem við höfðum dagleg samskipti við á þessum árum voru góðir félagar, og við útskrifuðumst öll sem stúdentar 20. júní 1934. Af þessum fámenna hóp sem taldi aðeins 37 nemendur eru nú 12 látnir er þessi orð eru rituð. Eins og að líkum lætur vorum við Vagn tíðir gestir á heimili hvors annars. A heimili foreldra hans var stórt píanó, sem móðir hans átti, en hún var mikill list- unnandi enda brautskráð úr tón- listarháskólanum í Kaupmanna- höfn og lék stundum á þetta hljóðfæri fyrir okkur strákana af mikilli innlifun. Faðir Vagns hafði lfka mikið dálæti á búskap og átti um hrið fæðingarjörð sína, t Eiginkona min, GUÐRUN JÓNSDÓTTIR. Glaðheimum 8, andaðist í Landspitalanum 12 þ.m Guðbrandur Jónasson. t Inrulegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar. SOFFÍU ELÍASDÓTTUR, Auðbrekku 29. Haukur Vigfússon, Sigurður Vigfússon. t Hugheilar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu oq langömmu SIGRÍÐAR JÚLÍUSDÓTTUR, Ásvallagötu 63. Inga S. Gestsdóttir, Jón G.S. Jónsson, Rósa Gestsdóttir, Jónas Halldórsson, Guðný Gestsdóttir, Bjarni Gislason, Róbert Gestsson, Ingveldur Einarsdóttir, Júlíus Gestsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Sigriður S. Júliusdóttir, börn og bamabörn. Ulfljótsvatn í Grafningi. Þetta býli var með afbrigðum fagurt við enda Ulfljótsvatns, og á ég þaðan ásamt Vagni fjölmargar ógleym- anlegar ánægjustundir. En lífið er ekki alltaf leikur sem léttur sumarþeyr. Magnús faðir Vagns lézt um veturinn 1934 aðeins 56 ára að aldri, um það leyti sem við Vagn innrituðumst til náms í Lagadeild Háskóla Islands. Vagn unni föður sínum og mat að verðleikum og því var þetta honum mikil reynsla. En áfram var haldið. Móðir Vagns hélt heimili fyrir son sinn fyrst í stað, en bjó síðan tugi ára á heimili Vagns eftir að hann hóf búskap og andaðist hún árið 1968, 88 ára gömul. Vagn kvæntist þann 10. október 1937 eftirlifandi konu sinni Lauf- eyju Hólm Sigurðgarðsdóttur, kennara Sturlusonar, en móðir Laufeyjar var merkiskonan Viktoria kaupkona Bjarnadóttir fra Eysteinseyri í Tálknafirði. Viktoria var þekkt hér í Reykja- vík fyrir margvísleg félagsmála- störf. Laufey og Vagn stofnuðu heimili hér í Reykjavík og hafa búið þar jafnan síðan. Það var Vagni mikið lán að eignast þegar á unga aldri svo heilsteypta og trausta konu sem Laufey var honum alla tíð. Einnig var hún ómetanleg stoð aldraðri móður hans. Heimili Vagns og Laufeyjar var fagurt og snyrtilegt og bar ætíð vott myndarskapar í þess orðs beztu merkingu. Laufey er glæsileg kona i sjón og raun og hún helgaói heimilinu alla krafta sína. Hún er listhneigð og saumar og málar jöfnum hönd- um. Veggi og innanstokksmuni prýddu hannyrðir húsmóður- innar, og gamlir ættargripir sómdu sér vel innán um nýtízku- legt umhverfi og sameinuðu hið forna og nýja á fagran hátt. Öll námsárin i Háskólanum lásum við Vagn saman unz lög- fræðiprófi okkar lauk sama dag þann 27. maí 1939. Einstaklega gott var að vinna með Vagni. Við vorum báðir giftir síðustu skólaár okkar i Háskólanum og helguðum náminu og heimilinu krafta okkar. Við skipulögðum öll okkar daglegu vinnubrögð, deildum aldrei, en skiptumst oft á skoðun- um og ræddum viðfangsefnin hverju sinni. Með þessu móti fannst okkur við ná beztum árangri á skemmstum tíma. Vagn var með afbrigðum hláturmildur, hnyttinn og skemmtilegur í við- ræðum. Og þrátt fyrir alvöruna sem undir bjó, hafði hann yndi af að finna hinar gamansömu hliðar á hverju máli. Hann gat gleymt sér yfir fagurri tónlist og góðum kveðskap og söng. V'ö áttum því vel saman, enda eru þessi glöðu, löngu liðnu háskólaár einhver dá- samlegustu ár ævi minnar. Börn þeirra Vagns og Laufeyjar eru tvö: Esther Britta, kennari á Akur- eyri, gift Braga Skarphéðinssyni, og Atli, lögfræðingur, kona hans er Kristbjörg Hjaltadóttir kenn- ari, þau eru búsett í Reykjavík. Vagn var einstaklega góður og hjálpsamur börnum sínum og öðr- um ástvinum. Hann hafði tiðum holl ráð að gefa og því þótti mörg- um gott til hans að leita i vanda sinum. Lögmannsstarfinu fylgir löngum erill og álag. Góður lög- maður verður því að hafa til að bera festu, skilning og stillingu. Málefni lífsins eru viðkvæm og geta ekki flokkazt undir eitt. Líta verður á hvert mál frá öllum hlið- um og mynda sér síðan skoðun byggða á heiðarleik og dreng- lyndi. Þótt örlögin höguðu því svo að við Vagn höfum ekki unnið saman að lögfræðistörfum frá lög- fræðiprófi, heldur hver í sínu lagi, veit ég, að hann vann eftir þessum reglum og hlaut af því almennt lof. Sama árið og hann varð lögfræðingur gerðist hann fulltrúi hjá Garðari Þorsteinssyni og tók við málflutningsstörfum að Garðari látnum og hefur fengizt við það síðan. Héraðsdómslögmað- ur varð hann 1941 og hæstaréttar- lögmaður 12. sept. 1963. Vagn var sviphreinn maður og hjartahlýr, virðulegur í fram- Minning: Margrét Jóhannes- dóttir frá Skagaströnd Fædd 13. júní 1910 Dáin 25. janúar 1976 Margrét Jóhannesdóttir frá Skagaströnd er horfin frá okkur, sem enn lifum hér á jörðinni og ég sakna hennar sem góðrar og tryggrar vinkonu. Ég kynntist henni fyrst á Heilsuhæli Náttúrulækninga- félagsins i Hveragerði, árið 1958 og tókst með okkur góð vinátta og órjúfanleg. Við áttum ýms hin sömu áhugamál. Við ræddum oft um lífið og tilveruna og við hug- leiddum saman hin ýmsu merki- legu og torræðu atvik, sem oft t Hjartans þakkir fyrir hjálp og auðsýnda samúð við fráfall og útför, BENEDIKTS FINNSSONAR, Háafelli, Miðdölum. Guð blessi ykkur öll. Málfrlður Benediktsdóttir, Anna Finnsdóttir, Finnur Þór Haraldsson. Sigurður Ágúst Haraldsson, Rósa Hrönn Haraldsdóttir. gerast í lífi okkar mannanna og sem einnig við höfum stundum sjálfar fengið að r.eyna. Báðar vorum við næmar fyrir utanað- komandi áhrifum og þótti okkur gaman að geta sagt hvor annarri frá dulrænni reynslu, sem hvor okkar hafði lifað. Báðar áttum við síðan heima í Kópavogi og hittumst oft. Voru mér þá ávallt gleðistundir að hitta hana. Alltaf var hún glöð i bragði og ánægð, þrátt fyrir langvarandi vanheilsu og þjáningar, sem hún varð að þola um mörg og löng ár. Alltaf streymdi frá henni hlýja og kærleikur, sem yljaði mér um hjartarætur í hvert sinn sem mér gafst tækifæri til að hitta hana. Margrét var gift norskum manni, sem hét Ole Omundsen. Var hann ljúfmenni hið mesta og drengur góður, skemmtilegur í tali og kunni frá mörgu að segja, ma. frá sjóferðum sínum á segl- skipum til fjarlægra landa á yngri árum sínum. Þau Margrét áttu lengi heima á Skagaströnd (frá 1930), en fluttust síðan suður í Kópavog fyrir allmörgum árum (1968X Voru þau hjón mjög sam- hent og gestrisin svo sem best má verða. Ole andaðist 19. október 1975, en Margrét þann 25. janúar 1976 eftir fremur stutta vist á sjúkrahúsi. Varð því skammt á milli þeirra. Margrét var trúuð kona og efaði ekki, að framlíf tæki við að loknu göngu, aðalsmerki góðs drengs bar hann með sér. Hann var fé- lagslyndur maður, en laus við að láta bera á sér eða trana sér fram. En mannkostir hans fóru ekki fram hjá öðrum. Hann unni mannúðarmálum og var vel met- inn og virtur félagi f mannúðar- samtökum Islandsdeildar Amnesty International. Málflutningsstörf hans og fast- eignasöluþjónusta fóru ört vax- andi með árunum og gáfu honum lítinn frítíma til hvíldar. Vafa- laust hefur þetta flýtt fyrir and- láti hans, sem engu að siður kom öllum á óvart. Hann hafði ráðgert för til útlanda í maí sér til hvíldar með konu sinni, en nú hefur hann lagt upp í ennþá lengri för að þessu sinni einn. I þá hinztu för er Vagn vel búinn. Að afloknu löngu og áhrifariku lífsstor‘ i sé ée hann fyrir mér ganga umvaf- inn kærltúka guðs og láhnna ást- vina, á leið inn í ljósið eilifa. Sorgin og missirinn eru sárust hjá konu hans, börnum, barnabörn- um og öðrum ástvinum og þeim öllum votta ég mína dýpstu sam- úð. Sjálfur þakka ég mínum kæra vini, Vagni, einstaklega gott sam- starf og lífstíðarvináttu, sem aldrei gleymist. Blessuð sé minning hans. Þorsteinn Sveinsson. Vagn E. Jónsson, hæstaréttar- lögmaður, Laugarteigi 24 hér I borg lést 5. þ.m. og kom fregnin öllum á óvart, er kunnugir voru. Hann hafði verið í fullu starfi, en veiktist snögglega um miðnættið og var þá fluttur f sjúkrahús, en var látinn áður en birti af degi. Með Vagni er fallinn frá mætur maður og mjög hæfur og traustur lögfræðingur, sem rak um langt skeið eina virtustu lögmanns- skrifstofu og fasteignasölu borg- arinnar. Vagn fellur þannig frá svo að segja í önn dagsins og öllum að óvörum og er þetta sorg- arsaga, sem við heyrum stöðugt oftar nú á síðari árum. Þótt við Vagn værum útskrifað- ir sama ár úr MR., þ.e. 1934, kynntumst við ekkert fyrr en vet- urinn eítir í lagadeild H.I., þar sem ég hafði ekki sótt skólann, nema til að taka þar próf tvö vor. t lagadeildina innritaðist all- margt manna þetta haust, bæði að norðan og sunnan og luku flestir námi og hafa ýmsir þeirra komið við sögu og sumir valist til æðstu þessu lffi hér á jörð. Veit ég líka, að hún hefur orðið frelsinu fegin, að hverfa úr þessum lfkama sem svo lengi hafði þjáðst. Dauðinn kemur ávallt sem líknandi vinur til þeirra, sem hafa þjáðst og þolað erfiðleika þessa lffs. Og við sem eftir lifum ætium ávallt að minnast þess, að síðar mun fundum aftur bera saman. Þvi fyrir okkur öllum liggur að fara þessa sömu leið. Ég sakna kærrar vinkonu og allra ánægjulegu samverustund- anna, sem ég átti með henni. En jafnframt samgleðst ég henni yfir hinum góðu umskiptum, sem nú eru orðin í lífi hennar, því „engill daudans laut þér og leysti þig úr böndum, og leiddi þfna sál inn í drottins helgidóm“. (Davfð Stefánsson). Ég þakka allar ánægju- stundirnar, sem við áttum saman. Ég mun ávallt minnast þeirra með einlægri gleði. Hittumst heilar síðar. A.T.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.