Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1976 79 Anna Pieturss sjötug Anna Pjeturss pfanóleikari er sjötug 16. aprfl n.k. Hún stundaði tónlistarnám i „Det Kongelige Danske Musikkonservatorium" og útskrifaðist þaðan f desember 1926 tvítug að aldri og er fyrsta fslenska konan, sem er klassiskur konsertpíanisti. Skömmu eftir að hún lauk prófi hélt hún sinn fyrsta konsert á tslandi 2. júnf 1927. Fyrir tónleikana skrifaði Páll tsólfsson um hana eftirfar- andi greinarstúf í Morgunblaðið 29. maí 1927: „Ungfrú Anna Pjeturss leikur á pianó i Nýja bfó á fimtudaginn kemur. Hún hefir nýlokið prófi við sönglistaháskólann f Höfn með ágætiseinkunn, og var Har- aldur Sigurðsson frá Kaldaðar- nesi aðalkennari hennar þar. Nám sitt hefir hún stundað þar f sfðustu fjögur árin og var veitt ókeypis kensla en það hlotnast fá- um, og þeim einum, sem fram úr skara. Við burtfararprófið voru henni veitt verðlaun fyrir prýði- lega frammistöðu. Nú er hún hingað komin, og er það að ein- dregnum hvögum Haralds kenn- ara hennar, að hún efnir nú þegar til hljómleika hjer í bænum. — Sjálfur hefi jeg hlýtt á hana spila tvö af þeim verkum, sem hún ætlar að flytja nú, c-moll-tilbrigði eftir Beethoven og eina af Etudum Chopin’s. Leikur hennar er stflhreinn og fágaður, leiknin mikil og örugg og leynir sjer ekki, að þar fer saman listræn gáfa og að hún hefir notið kenslu hjá frá- Anna Pjeturss. Myndin er tekin daginn eftir tónleikana f Nýja bfó 2. júnf 1927. bærlega góðum og vandlátum kennara. Ungfrú Pjeturss mun vera sú fyrsta íslenska kona, sem heldur hjer píanóhljómleika, enda ein notið fullkominnar menntunar í þeirri grein. Hún er dóttir dr. Helga Pjeturss, en sonardóttir frú önnu Petersen, sem um Iangt skeið var eini pfanókennari í bæn- um og allflestir þeirra, sem við pfanóspil hafa fengist alt fram að sfðustu tímum, hafa notið kenslu hjá. Þessar fáu lfnur vil jeg enda með þvf að ráða öllum söngvinum FRÁ LEfðSEINING&STÖÐ HÚSMÆGRA Woolmark — Woolblend Eins og allir vita er Wool- mark gæðamerki. Þegar það merki er fest við vöru ábyrgist framleiðandinn að varan sé úr hreinni nýrri ull. Endurunn- inni eða endurnotaðri ull hefur ekki verið blandað saman við. Leyfilegt er þó að blanda allt að 5% af öðrum trefjum saman við i þeim tilgangi að fá fram sérstakt útlit eða áferð á efnið eða af tæknilegum ástæðum eins og t.d. ef talið er nauðsyn- legt að styrkja sokka i hæl og tá með öðrum efnum. International Wool Secretar- iat (I.W.S.) hefur eftirlit með þvf að framleiðendur sem nota ullarmerkið á framleiðslu sína fylgi settum reglum um gæði. Framleiðandinn verður að vera við því búinn að fulltrúar frá International Wool Secretariat geti komið hvenær sem er til þess að skoða framleiðsluna og framleiðsluaðferðirnar f verk- smiðjunni. En þar sem Wool- mark er gæðamerki verður sú framleiðsla sem merkt er einn- ig að fullnægja vissum lág- markskröfum um ýmsis önnur gæði, en þær gæðakröfur fara eftir því um hvaða framleiðslu er að ræða. Það geta verið kröf- ur um litþol styrkleika o.fl. Með ullarmerkinu fylgja stundum ábendingar um með- ferð eins og t.d. „handvash only“ sem þýðir að eingöngu skuli þvo flfkina í höndum eða „dry clean only“, sem þýðir að eingöngu skuli láta hreinsa flíkina í efnalaug. Einnig kem- ur fyrir orðið „superwash" en það þýðir að efnið hefur fengið sérstaka meðferð sem kemur fyrir að það hlaupi og þófni í þvotti. Öhætt er því að þvo all- an fatnað sem merktur er með ullarmerkinu og orðinu „super- wash“ f þvottavél á vægþvotta- kerfi. Stundum er sagt frá þvf að fatnaðurinn sé „mothproved by eulan“. Eulan er með besta mölvarnarefni sem til er og endist mölvörnin eins lengi og fatnaðurinn. Með því að möl- verja ullargarn eykst fram- leiðslukostnaðurinn. Islensk fyrirtæki sem nota Woolmark eru Alafoss hf, Ull- arverksmiðjan Gefjum, Hilda hf, Prjónastofa Borgarness og Pólarprjón á Blönduósi. Woolblend er gæðamerki fyr- ir vörur úr nýrri ull, þar sem öðrum trefjum hefur verið blandað saman við ullina. Viss hluti af vörunni þarf að vera hrein ull, hve mikið fer eftir þvi um hvaða vöru er að ræða. 80% ull þarf að vera í nær- fatnaði, 70% í sokkum, hús- gagnaáklæði, gluggatjaldaefn- um, teppum og værðarvoðum, 60% f jerseyefnum sem notuð eru í karlmannafatnað, í barna- fatnað (prjónuðum og ofnum), í síðbuxur úr kambgarni handa konum og körlum, ofin efni úr léttu kambgarni í skyrtur, blússur og náttföt. Undir Woolblend-merkinu er ætfð sagt frá því hvaða efnum er blandað saman við ullina og blendingshlutföllin gefin upp i hundraðshlutum. Innflytjendur og neytendur sem hafa ástæðu til að kvarta undan vöru með Woolmark- merkinu geta snúið sér til skrif- stofu International Wool Secre- tariat i Svíþjóð, Lergöksgatan 4, 42120 Vestra Frölunda, en þessi skrifstofa sér um mál Is- lendinga. Sigrfður Haraldsdóttir. bæjarins til að hlusta á þessa gáf- uðu og efnilegu stúlku." Anna stundaði framhaldsnám í Parfs og Kaupmannahöfn og vakti hvarvetna athygli kennara sinna og annarra tónlistarunnenda er til hennar heyrðu fyrir frábæra tónlistarhæfileika og stóð henni til boða að starfa erlendis, en hún kaus að setjast að á tslandi. Hún lék með ýmsum kórum og ein- söngvurum og kom fram sem ein- Ieikari og kenndi auk þess á pfanó. Islenskt tónlistarlíf var heldur fáskrúðugt á þessum árum og bauð efnilegum píanóleikara ekki mikla möguleika á að þrosk- ast f list sinni og það mun önnu hafa verið fullkomlega ljóst, en ein megin ástæðan til þess að hún hvarf heim til tslands að námi loknu var sú, að hún vildi annast um föður sinn. Var hún stoð hans og stytta síðari æviár hans. Hvers virði það var honum má marka af eftirfarandi orðum, sem hann rit- aði f eintak af bók sinni Sannýall 30. okt. 1943: „Til Önnu minnar, en án þeirr- ar hjálpar, sem hennar umhyggja hefir verið mjer, mundi þessi bók ekki vera til orðin." Fáa er jafn gaman að heim- sækja og önnu. A fögru og sér- stæðu heimili hennar, þar sem hver hlutur geymir minningu töfrar hún fram líf og óm liðins tíma og ástvinir hennar standa manni lifandi fyrir hugskotsjón- um. Eitt sinn er við ræddum sam- an sagði Anna eitthvað á þessa leið er hún talaði um ævikjör sfn: „Ég óskaði ekki eftir heims- frægð og hefði aldrei haft úthald eða löngum til að flakka borg úr borg og halda tónleika, en ég vildi óska, að ég hefði notið viðurkenn- ingar hjá þjóð minni eins og sú sem ég var.“ Kæra Anna. Með þessum fátæk- legu lfnum vil ég óska þér gæfu og gengis á ókomnum árum og þakka þér margar ánægjulegar samverustundir. Elsa G. Vilmundardóttir Þórisós h.f. með lægsta tilboð í Hofsárveitu ÞANN 31. marz s.l. voru opnuð hjá Rafmagnsveitum ríkisins tilboð í Hofsárveitu vegna Mjólkárvirkjunar. Þrjú tilboð bárust og voru þau 81,6% (Þórisós h.f ), 81,9% (Aðal- braut h.f.) og 82.3% (tstak hf.) af kostnaðaráætlun AI- mennu Verkfræðiskrifstof- unnar h.f. sem var kr. 180.858.739. 3 togarar landa á Skaganum Akranesi, 13. apríl. NU ER loðnulöndun lokið hér sem annars staðar á þessari vertið. Á land bárust alls 17.777 lestir, sem fór til bræðslu í Síldar- og fiskmjöls- verksmiðjunni. Mánaðarverk- fall kvenna varð þess valdandi að engin loðna var fryst fyrir Japansmarkað og er það óbætanlegt tjón fyrir alla aðila, ekki sízt konurnar, þar sem þær voru hálfum mánuði lengur í verkfalli hér en á öðr- um stöðum á landinu. Talið er að hver þeirra hafi tapað um 100 þúsund krónum á þessum tíma í vinnulaunum. Það munar um minna f dýrtfð- inni. Netabátar öfluðu vel á tíma- bili hér á grunnslóð, en nú er afli þeirra afar rýr. Það vakti eftirtekt að þorskurinn var stærri framan af f vetur en undanfarin ár. Skuttogararnir Krossvík og Haraldur Böðvarsson og Arnar frá Skagaströnd landa afla sín- um hér í dag. Þeir eru með frá 100—120 lestir hver af blönduðum fiski. Víkingur landaði hér f s.l. viku 120 lestum og var aflinn að mestu þorskur. Júlfus. Veislumatur við vægu verði ÞETTA ERU RETTIRNIR ÞITT ER AÐ VELJA Laugardagur 17/4 kvöld. Glóðarsteikt lambalæri með bernaisesósu, bökuðum kartöflum, hrásalati og grænmeti á 850 krónur. Páskadagur 18/4hádegi. Gljáður hamborgarhryggur m/ rauðvinssósu, sykurbúnuðum sveppum og hrásalati á 950 krónur. Páskadagur 18/4 kvöld. Buffsteik með choron-sósu, parísarkartöflum, ristuðum sveppum og hrsalati á 950 krónur Annar páskadagur 19/4hádegi. Léttreykt lambalæri m/rjómasveppasósu, steiktum kartöflum, hrásalati og snittubaunum á 850 krónur. Annar páskadagur 19/4 kvöld. Grísasteik m/rauðkáli, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáðum gulrótum á 900 krónur. Það er ódýrt að borða hjá okkur Verið velkomin D m n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.