Morgunblaðið - 21.05.1976, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976
rrwrzéfan* /
Mál tnálanna á Alþingi.
Eimskip kemur upp
bílaryðvarnarstö ð
Mragvíslegar framkvœmdir
á döfínni á vegum félagsins
EIMSKIPAFÉLAG Islands vinn-
ur nú aú þvf að koma upp full-
kominni ryðvarnarstöð og er von-
ast til að hún geti tekið til starfa
næsta haust.
Það var f fyrra að fram fóru
viðræður milli Eimskipafélagsins
og bifreiðainnflytjenda um
skipulag á innflutningi bifreiða
til landsins. Leituðu bifreiðainn-
flytjendur eftir þvf að tekin yrðu
upp hreinsun og ryðvörn á öllum
bifreiðum, sem inn eru fluttar,
eins fljótt og kostur væri eftir
komu þeirra til Reykjavfkur, þar
sem bifreiðarnar standa oft óaf-
greiddar f nokkurn tfma f vöru-
geymslum Eimskipafélagsins.
Ákvað stjórn félagsins að verða
við þessum óskum og koma upp
nýtfzku ryðvarnarstöð f vöru-
geymslu félagsins við Borgar-
tún.
Þá kom það fram á aðalfundi
Eimskipafélagsins í gær, að verið
er að reisa viðbyggingu við skrif-
stofuhús Eimskipafélagsins að
Pósthússtræti 2. Það hús var reist
á árunum 1919—21 og var nokkru
minna en upphaflega hafði verið
gert ráð fyrir. Nú er félaginu hins
vegar þörf á því að fá aukið skrif-
stofuhúsnæði og þegar borgaryf-
irvöld veittu leyfi til að byggja við
húsið í nóvember sl. var strax
hafizt handa. Verður lokið við að
steypa upp húsið á þessu ári en
verkinu siðan haldið áfram eftir
því sem aðstæður leyfa.
Þá er f ráði að Eimskipafélagið
hefji að nýju byggingarfram-
kvæmdir við Oddeyrarskála á
Akureyri í sumar, en sem kunn-
ugt er varð að hætta þessum fram-
kvæmdum árið 1969 þegar jarð-
vegurinn undir húsið reyndist
vera ótraustur. Síðan hafa marg-
háttaðar rannsóknir verið gerðar
á jarðveginum og er nú svo komið
að unnt þykir að halda fram-
kvæmdum áfram. Verður verkinu
hraðað eins og frekast er kostur.
Framhald á bls. 20
Farið hægt
í námsbóka-
útgáfu án z
Rætt við Vilhjálm og Magnús Torfa
MORGUNBLAÐIÐ leitaði f gær
umsagnar Vilhjálms Hjálmars-
sonar menntamálaráðherra og
Magnúsar Torfa Ólafssonar á
afgreiðslu zetumálsins á al-
þingi og fara svör þeirra hér á
eftir.
Aðspurður svaraði Vilhjálm-
ur þvf að f sambandi við útgáfu
á nýjum námsbókum án z,
hefði einungis verið gefið það
út sem óhjákvæmilegt hefði
verið að prenta til þess að hafa
bækur fyrir nemendur, en hins
vegar væri það svo að menn
flýttu sér hægt f þessum efnum
á meðan rfkjandi væri óvissa
um framvindu mála.
Hér fer á eftir umsögn
menntamálaráðherra um af-
greiðslu og stöðu zetumálsins
og síðan umsögn Magnúsar
Torfa:
„Ég tel skynsamlegast," sagði
Vilhjálmur, „að alþingi setji
löggjöf um meðferð staf-
setningarmála líkt og lagt er ttl
í frumvarpi því sem ég flutti.
Mér sýnist hins vegar óráð að
alþingi ákveði stafsetningu
með löggjöf. (En ef sá háttur
yrði upp tekinn þá legg ég til að
ritreglur og greinamerkjafræði
verði gefin út með alþingis-
tíðindum og hæfileg viðurlög
verði sett við brotum á lögum!)
Með afgreiðslu zetunnar þykist
ég geta ráðið að alþingi muni
þrátt fyrir allt, ekki lögfesta
stafsetningarreglurnar.
Meirihluti menntamála-
nefndar neðri deildar afgreiddi
frumvarp G.Þ.G. og fleiri án
þess að leita umsagnar og deild-
in samþykkti það eftir nætur-
umræður. Menntamálanefnd
efri deildar kallaði 20 málvís-
indamenn og kennara á sinn
fund og ræddi við þá á þriðju
klukkustund og síðan var málið
afgreitt samhljóða frá nefnd-
inni. Efri deild samþykkti siðan
tillögu menntamálanefndar
deildarinnar samhljóða en þar
var um að ræða tillögu til
menntamálaráðherra um að
efna til umræðna með málvís-
indamönnum og móðurmáls-
kennurum um stafsetningu og
meðferð þeirra mála.
Þá afgreiðslu efri deildar
mun ég leitast við að hafa að
leiðarljósi í sumar."
Hér fer á eftir umsögn Magn-
úsar Torfa Ólafssonar fyrrver-
andi menntamálaráðherra, en
hann var í minnihluta mennta-
málanefndar neðri deildar þeg-
ar málið var til meðferðar þar á
síðustu vikum þingsins:
„Ég vil fyrst víkja að þvf f
sambandi við þetta mál að það
var hlaupið f það í snatri mjög
seint á þingi að afgreiða úr
menntamálanefnd neðri deild-
ar frumvarp Gylfa og Sverris
og fleiri þingmanna án athug-
unar á málinu, en athugun
hefði verið sjálfsögð og nauð-
Framhald á bls. 20
Nýbygging Sundlaugar
Vesturbæjar senn 1 notkun
Sólbakstur í Bláfjöll-
um - og skot skíðafæri
I SPJALLI við Stefán Kristjáns-
son fþróttafulltrúa Reykjavfkur-
borgar f gær kom það fram að
aðstaða til skfðaiðkunar f Blá-
fjöllum er mjög góð um þessar
mundir en ekki vel sótt að sama
skapi.
„Það er opið þar alla daga vik-
unnar,“ sagði Stefán, „frá kl. 1—9
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum, frá kl. 1—10 á
þriðjudögum og fimmtudögum og
frá kl. 10—6 um helgar.
Snjótroðarinn sér um það að
skíðafæri er mjög gott og á góð-
viðrisdögunum að undanförnu
hefur aðstaðan verið hreint frá-
bær og þeir sem eru daglangt í
fjöllunum koma sólbakaðir í bæ-
inn að kvöldi. Lyfturnar eru alltaf
f gangi á framangreindum tíma,
nokkuð af fólki hefur verið þar,
en ekkert miðað við það hvað
margir koma oft á hrakviðrisdög-
um. Nú fer það saman eins og bezt
verður á kosið, blíðviðri og gott
skfðafæri við lyfturnar og við
reiknum með að færið haldist
næstu vikurnar."
Rútuferðir eru frá U-mferðar-
miðstöðinni kl. 6 á þriðjudögum
og fimmtudögum og til baka um
tíuleytið og um helgar eru ferðir í
fjöllin kl. 10 f.h. og 13.30 e.h. en
til baka síðdegis.
SUNDLAUGIN f Laugardal var
lokuð í gær og f fyrradag vegna
nauðsynlegra lagfæringa á mann-
virkjum. t næstu viku verður
Sundlaug Vesturbæjar lokað um
2—3 vikna skeið á meðan lag-
færingar verða gerðar þar og
breytingar f sambandi við nýja
búningsklefa og fleira.
Morgunblaðið hafði samband
við Stefán Kristjánsson fþrótta-
málafulltrúa Reykjavíkurborgar
og spurði hvers vegna slíkar
lokanir væru á þeim tíma sem
búast mætti við góðviðrisdögum.
Kvað hann viðhald nauðsynlegt á
sundlaugarmannvirkjum eins og
öðrum mannvirkjum og þá ekki
síður vegna þess að sund-
laugarnar væru í stöðugri notkun
og væri í rauninni gefinn allt of
þröngur tfmi til viðhalds, en jafn-
framt væri það að til viðgerða
þyrfti gott veður og þvi væri ekki
um neitt að velja til þess að hafa
aðstöðuna sem bezta úr garði
gerða.
„Það fer að líða að því,“ sagði
Stefán, „að loka verður Sundlaug
Vesturbæjar vegna breytinga f
sambandi við það að nýbyggingin
með búningsklefum og margs
konar aðstöðu er senn tilbúin til
notkunar og það þarf að vinna
sitthvað f því sambandi. Við vilj-
um ekki loka fyrr en við vitum að
allt fer saman, málun allrar
laugarinnar og sú smíðavinna
sem þarf að framkvæma í sam-
bandi við breytinguna. Aðstaða er
fyrir tæplega 100 gesti f Sundlaug
Vesturbæjar, en f nýja hús-
næðinu er aðstaða fyrir 340
manns.
Málingarvinnu utan dyra f
laugunum er ekki unnt að vinna
nema á vorin og t.d. þurfum við
auk þess að festa flísar f Laugar-
dalslauginni, skipta um glugga á
böðum og sitthvað fleira og þetta
er ekki hægt að gera nema loka
lauginni. Við höfum þó miðað við
að útilaugarnar báðar væru ekki
lokaðar um leið. Fólk spyr stund-
um að því hvers vegna sólardagar
séu teknir í þessar framkvæmdir.
Málið er að við ráðum ekki sólar-
dögunum þótt fegnir vildum,
vinnu þarf að ákveða með
nokkurra daga fyrirvara og hluti
vinnunnar verður reyndar ekki
unninn nema á góðviðrisdögum.“
Um 14500 nemend-
ur eru í lokaprófum
950 þregta stúdentspróf
UM það bil 14500 nemendur á
hinum ýmsu lokastigum náms-
kerfisins þreyta nú próf f skól-
um landsins. Fjölmennastir f
þessum hópi eru nemendur 6.
bekkjar f barnaskólum en þeir
eru um 4900 talsins, 4500
þreyta unglingapróf, 2100
þreyta gagnfræðapróf og um
1900 landspróf. 900—950 munu
þreyta stúdentspróf úr 11 skól-
um á landinu og um 150
háskólaborgarar munu ljúka
embættisprófi f júnfmánuði, en
132 luku prófi frá Háskóla
Islands s.l. sumar.
Þetta er í sfðasta sinn sem
landspróf er haft með því fyrir-
komulagi sem rikt hefur um
árabil, því næst kemur til fram-
kvæmda grunnskólafyrirkomu-
lagið þar sem landspróf verður
lagt fyrir allan 9. bekk á grunn-
skólastiginu.
Mikil aðsókn hjá Eirfld
MÁLVERKASVNING Eirfks
Smith að Kjarvalsstöðum gengur
mjög vel og hefur hún verið fjöl-
sótt. Eiríkur opnaði sýninguna s.l.
laugardag og hefur hann selt 40
málverk, en alls eru um 100 verk
á sýningunni. Málverkasýningin
verður opin til n.k. sunnudags-
kvölds.
I stuttu spjalli við Eirík sagði að
þessar myndir væru málaðar á
undanförnum þremur árum.
Kvaðst hann mjög ánægður með
undirtektir sýningargesta, sem
hann kvað hafa verið sérstaklega
góðar.