Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976 J6n Stefánsson og Þorvald- ur Skúlason í Listasafni ASI I TILEFNI Listahátírtar hefur verið opnuð óvenju skemmtilee sýninp í Uistasafni A.S.Í., sem er til húsa á þrióju hæð í húsi Alþýóubankans vió Uaupaveí;. held, aó fullyróa mepi, aó þessi sýninK sé ein af t)estu sýninpum. sem peróar hafa ver- ió á íslenskri list. Hún er sér- lejja vönduó on ekki of stór í snióum til þess aó snobba þurfi fyrii* meóalmennskunni, sem því mióur er dra«bítur á mörK- um samsýninKum, sérstaklepa á seinni árum. Sú hupmynd aó koma saman sýninpu, sem I)\kj>ó er á verk- um þeirra Jóns Stefánssonar og Þorvalds Skúlasonar, er aó mín- um dómi áj>æt. Báóir ei«a þess- ir menn einn mestan þátt í því aó hafa stutt þannÍK aó ís- lenskri myndlist, aó hún hefur oróió meira en föndur oj> nátt- úruskoóun. Jón Stefánsson er um marpt okkar merkilejtasti myndlistarmaóur á þessari öld oj; kom til Islands meó óvenju- lejta stranpa skólun oj; nýstár- lej;ar hujjmyndir um eóli oj> til- j;anj> máherksins, enda hafói hann notió þeirra einstöku for- réttinda, ;ió vera í Iteri hjá sjálf- um Matisse þann stutta tíma, er hann rak einkaskóla sinn i París. Kn Matis.se by j;j»ói kennslu sína mikió á verkum Cé/.anne og var þar meó kom- inn aó kjarna þeim, er átti eftir aó hafa ein mestu áhrif á mynd- list á tuttuj;ustu öld. Þorvaidur Skúlason komst snemma í kunninj;sskap vió Jón Stefáns- son ok var því þej;ar frá unj;linj;sárum kominn i snert- inj;u vió þaó, sem efst var á bauj;i í myndlist samtímans. Og ef éj> veit rétt, var það Jón Stefánsson, sem réð hvert Þor- valdur fór til náms, þegar hann um vettvangi. Þvi er það ekki gripið úr lausu lofti að sýna þessa tvo brautryðjendur ís- lenskrar samtímalistar saman. Einn af sölum Listasafns A.S.I., er helgaóur portrettum af nokkrum íslenskum listamönn- um í tilefni listahátíðar, og þar eiga þau Snorri Arinbjarnar. Nína Tryggvadóttir og Jón Eng- ilberts, eftirminnileg verk, sem falla ágætlega aö öðru efni sýn- ingarinnar, en allt þetta fólk var i nánum listrænum tengsl- um skóp í rauninni vissan kapi- tula í islenskri myndlist. Enn- fremur má geta þess, að margur samtíóarmaðurinn er þeirrar skoðunar, að einmitt þetta timabil sé skemmtilegasti þátt- ur myndlistar okkar að undan- förnu. Sé það rétt, þá er hér gott tækifæri til að kynnast völdum verkum, sem öll eru i eigu Listasafns A.S.I, en eins og allir vita, er þetta einkasafn Ragnars Jónssonar, sem hann afhenti A.S.I. að gjöf fyrir nokkuð mörgum árum. Það, sem sýnt er eftir Jón Stefánsson, er frá síðustu árum hans. Þá hafði hann slakað nokkuð á stífri formbyggingu, er hann hafði stundað hvaö mest islenskra þálifandi mál- ara, og þau áhrif, er hann hafði á samtíð sfna eru ómetanleg, einkum og sér i lagi var Jón valdur þess, aö þeir, er síöar komu, lögðu meiri áherslu á sjálfa myndbygginguna en áöur tiökaðist. Hann var síleitandi i list sinni, og ég held. aö hann hafi sjaldan eöa alls ekki oróið ánægður með verk sín. Hann vann löngum verk sín á löngum tíma og átti þaö til að endur- vinna sum verka sinna, — svo að árum skipti. Þótt furðulegt megi virðast, hafa þessi ströngu vinnubrögð Jóns valdið þeim misskilningi hjá sumum, er um listir rita i dag, að honum hafi verið ósýnt um að koma saman málverki og jafnvel hæfileika- laus. Þetta er auðvitað fjar- stæðukennd skýring og á sér enga stoð í veruleikanum. Á þessari sýningu gefur að lita sjálfsmynd, sem að minum dómi er eitt af merkustu verk- um, sem ég hef séð eftir Jón. A LISTAHÁTÍÐ eftir VALTÝ PÉTURSSON Hestar í jökulvatni, er annað verk, sem ég bendi á. En raun- verulega er það rangt að fara að gera upp á milli þess, sem hér er á boðstólum. Þetta eru mjög ekta verk, sem sverja sig til eins og sama upphafs. Jóns Stefánssonar. Stórskemmtilegt og fróðlegt er að kvnnast þess- um verkum. Sama gildir um verk Þorvalds Skúlasonar, sem nú er nýlega orðinn sjötugur, og satt að segja bjóst ég við, að þessi tímamót mundu verða betur notuð og að stór yfirlits- sýning á verkum þessa meist- fyrst leitaði sér fanga á erlend- Jón Stefánsson: Sjálfsmvnd. Sýning á verkum Gerard Schneiders LISTAHATÍÐ i Revkjavík er hafin, og er það i fjórða sinn. sem landsmenn fá að njóta þess, er þar kemur fram. Það má sannarlega kalla slíkan við- burð hátíð, þar sem fólk fær t;ekifæri til að sjá og kynnast listsköpun, sem ekki er á boð- stólum daglega í okkar ágæta þjóðfélagi. Þessum orðum til sönnunar bendi ég á hina stórmerku sýningu á 40 Couaehemyndum eftir hínn viðfræga snilling abstraktlist- ar. Gérard Schneider, sem kom- ið hefur verið fyrir i Kjarvals- Á LISTAHÁ TÍÐ eftir VALTÝ PÉTURSSON sal á Kjarvalsstöðum. Þar eru að vísu aðrar sýningar á vegum listahátíðar, en um þær verður ekki fjallað að sinni. Eitt vildi ég þó minnast á, en það er, að nú eru Kjarvalsstaðir með fleiri sýningar og aðra listvið- burði í senn, og nú ætti að koma í ljós. hvort grundvöllur er f.vrir slíku fyrirkomulagi í þess- ari verðandi listamiðstöð Reykjavíkur. Verður fróðlegt að sjá, hvernig til tekst. Per- sónulega er ég ekki í neinum vafa um. að þannig á framtíðar- skipulag þessa húss að vera. en við skulum heldur ekki gera okkur of miklar vonir strax í byrjun. Ef ég þekki landa mína rétt. þá þurfa þeir svolftinn aðlögunartíma, þegar um list- ra'nt átak er að ræða. Eg yerö að játa, að mér hlýnaöi innvortis, er ég kom á sýníngu Sehneiders. Ekki hafði mig órað fyrir að sjá verk hans hér á landi, og þar sem ég dvaldi í Parisarborg einmitt um það leyti, er Schneider var í þann mund að koma aftur fram á sjónarsviðið með verk sín eftir tæpra þrjátíu ára hlé á sýningu þeirra, fannst mér eins og tíminn hefði staldrað við andartak og gleði mín var engu minni en er fundum okkar Schneiders bar fyrst saman, en síðan er liðinn góður aldar- fjórðungur. Já það var í þann tíð. er abstrakta listln var sú slagæð, er einna örast sló meðal framúrstefnumanna í álfunni. og einn þeirra, er áttu sterk- astan þátt í því ævintýri, var Gérard Schneider. Hann er nú farinn að eldast og er orðinn það fótfúinn, að hann gat ekki séð sér fært að koma hingað til lands í tilefni þessarar sýningar. G. Schneider er fædd- ur 1896 í Sviss, en fór ungur til náms til Frakklands og hefur ílengst þar eins og margur myndlistarmaðurinn fyrr og síðar. Schneider er enn í fullu fjöri sem málari, og hann hefur ekki orðið til á einum degi frek- ar en Rómaborg. Það yrði of langt mál að rekja feril hans hér, en þar sem væntanleg er grein um hann í Lesbók á næst- unni, fer ég ekki meir út í þá sálma nú. Ég get vart látið vera í þessum fáu línum að minnast þess hér, hve við vorum hrifnir af verkum þessa merkilega listamanns, er við vorum við nám í Parisarborg hér forðum daga. En ekki varð nú. hagur strympu minni er okkur var boðið, íslensku málurunum, er vorum þarna samankomnir, að sýna á þeim fræga Salon de Mai, og einn af máttarstólpum þeirrar sýningar var einmitt Gérard Schneider. Sýning sú, er nú er á Kjar- valsstöðum, gefur ágæta hug- mynd um Schneider sem málara. Hann er einn af þess- um ótrúlegu kunnáttumönnum, sem ekki eingöngu hafa lært lexíuna. heldur bætt þar dálítlu við, því sem gerir meðferð litar og forms að því, sem orkar á mannveruna, likt og áhrif hljómkviðu. Schneider er einn grundvöll með hávaða og als- konar skringilegheitum. Hann er einn þessara þöglu meistara, sem hafa aðeins eitt takmark i tilverunni: að fullkomna list sina. Hann skapar þessi feikna- legu sterku og einföldu verk með eins litlu og mögulegt er, stundum jafnvel finnst manni við fyrstu sýn eins og hann sé svolítið harður og kaldur i myndsköpun sinni, en við nánari kynningu kemur allt annað í ljós. Sveiflur hans í formi og einbeitni sú, er kemur fram i grunntónum verka hans, eru fyrst og fremst afrakstur mikillar reynslu og næmrar til- finningar fyrir efni og mögu- leikum þess ásamt sjálfsögun. Hann hefur á valdi sínu markaða tækni, sem verður auðveldlega lesin úr því öryggi og snerpu, sem einkenna allt, er Schneider leggur hönd á. Verk hans eru svo persónuteg að hann verður ekki endurtek- inn án þess að allir þeir, er þekkja til listar hans, viti, að í upphafi var orðið, eins og segir i ritningunni. Ekki er ég þess umkominn að gera upp á milli þeirra verka, er þessi sýning samanstendur af. Þau eru öll auðvitað mjög í stíl Schneiders, en þau eru sér- lega fjölbreytileg, og þarna kemur einmitt vel í ljós, hvernig hann vinnur. Samt sakna ég þess, að ekki eru á þessari sýningu nokkrar af stærri olíumyndum Schneiders, sem hafa að minum dómi enn meiri slagkraft og ferskleika en þessar gouachemyndir. Þetta er að minum dómi mesti viðburð- ur i myndlist, sem gefur að líta á Listahátíð 1976. Ég fullyrði, að enginn er svikinn af að sjá þessa sýningu, og ég vona að, sem flestir hafi tækifæri til að njóta þeirrar auðlegðar, sem Frakkar hafa sent okkur á þessu vori.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.