Morgunblaðið - 01.08.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.08.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976 „Tryggvi Gunnarsson" (81, Magnús Ólafsson) .Sólarlag viS höfnina" (Magnús Ólafsson) mynd seldist á sex milljónir króna. Gamlar myndir, vel teknar og með mikið heimildargildi, eru t.d. mun verðmætari en nýrri myndir því það gefur auga leið, að ekki er hægt að taka fleiri myndir þegar um liðna tíð er að ræða. Af þessum sökum eru t.d. gömlu myndirnar á sýningunni, er Oskar hefur unnið upp af miklum dugnaði, furðulega ódýrar, en hann verðleggur all- ar myndirnar á sama hátt, ■sem ég á bágt með að skilja. Allir geta t.d. tekið myndir af fólki í sundlaugunum í dag, en enginn getur tekið mynd af Erlingi Pálssyni í gömlu sundlaugun- um forðum daga! Þetta ætti að vera auðvelt að skilja . . . Sumar myndanna á sýning- unni eru með afbrigðum hrif- margar gerðir af Ijósmyndum að ræða og vafalítið vantar ým- islegt inn í myndina til að allt komi til skila. Það vakti sérstaka athygli mína og varð mér öðru frekar til umhugsunar hvað mikið hef- ur verið fyrir hendi af góðum og mjög gildum viðfangsefnum fyrir málara í næsta umhverfi þeirra á þessum tímum; þeir þurftu sannarlega ekki að þjóta um byggðir og óbyggðir í leit að gildu myndefni. En það er önn- ur saga, sem hér skal ekki tíunduð... Áhugi er mikill fyrir þessari sýningu, svo sem verðskulduð aðsókn sýnir. Ber að þakka Ösk- ari Gíslasyni mikillega fyrir frumkvæðið, en það undirstrik- ar að hann er í hópi frumkvöðla íslenzkrar ljós- og kvikmynda- gerðar. „Einar Benidiktsson" 1935 (Óskar Gíslason) Að Kjarvaldsstöðum stendur yfir um þessar mundir yfir- gripsmikil ljósmyndasýning er hinn velkunni ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður Óskar Gíslason stendur fyrir. Er hér um að ræða 242 ljósmyndir er Óskar hefur safnað saman og eru þær flestar eftir hann sjálf- an og Magnús Ölafsson, en einnig eftir Sigfús Eymunds- son, Pétur Brynjólfsson og Ölaf Magnússon. Svo sem fyrirsögn- in gefur til kynna þá eru þær allar frá Reykjavík, daglegu lífi þar, minnisstæðum atvikum og þekktum borgurum. Sýningin er sett upp í tilefni hálfrar ald- ar afmælis Ljósmyndarafélags tslands. Það liggur mikil vinna að baki þessarar umfangsmiklu sýningar, þvf að til viðbótar eig- in myndum fékk Óskar lánaðar filmur frá Þjóðminjasafninu eftir félaga sína og voru þær sumar m.a. á gömlum máðum glerplötum frá því um aldamót og reyndust margar gallaðri en ætlað var. Reyndist því mjög mikið starf að fullvinna þær og standa við áætlaðan sýningar- tíma, en þeim tíma varð ekki haggað vegna sóknar í sýning- arhúsnæðið. Að sjálfsögðu geldur sýning- in hins knappa undirbúnings- tíma, en þó minnst hvað varðar vinnslu sjálfra ljósmyndanna, en það atriði virðist einatt með ágætum. Hins vegar saknar skoðandinn mjög ártala í sýn- ingarskrá ásamt nauðsynlegum skýringum og er hér t.d. baga- legt, að ekki skuli fylgja nafna- listi fundarmanna á stofnfundi Ljósmyndarafélags íslands. Má hér fleira tína til í kringum sýninguna, sem betur hefði mátt fara, en margt má hér afsaka, enda er þetta fyrsta einkasýning er Óskar stendur að og hér skortir því reynslu. Hitt er hér einnig mun þyngra á metum sem vel hefur tekizt og vísa ég þar um til margra velgerðra og bráðskemmtilegra mynda á sýningunni. Einnig er það, þvi miður, engin nýlunda að ártöl gleymist á yfirlitssýn- ingum, sem er sérfslenzkt fyrir- bæri, svo sem ég hefi oft vikið að en með litium árangri þó, enn sem komið er. Þegar um málverk látins málara er að ræða getur einatt verið útilokað að ákveða ártal með fullri vissu, en hér hefðu fróðir menn getað gefið upplýsingar um flesta atburði er myndaðir voru. Ég hef haft mikla skemmtun og fróðleik af að reika um vest- ursal Kjarvalsstaða og skoða þessa sýningu, fylgjast með þenslu borgarinnar úr ósjálegu smáþorpi fyrir og um aldamót í höfuðborg á gelgjuskeiði. Þarf vart glöggt auga til að sjá, að hér hefur ekki ævinlega verið skipulega haldið á málum né af útsjónarsemi, enda mun fáum í upphafi hafa komið til hugar að þetta smáþorp ætti eftir að vaxa svo ört sem raun varð á. Jafnvel sá, er hér ritar og var unglingur á stríðsárunum, varð forviða er hann leit myndir frá Við Bergstaðastræti" (Oskar Gislason, 135). þeim árum — því að þótt þeir tímar séu honum í fersku minni er þetta svið í dag með nokkr- um forneskju- og frumbýlis- brag, — slikar hafa breyting- arnar orðið. Er sennilegt, að flesta erfiðleika þjóðfélagsins í dag megi rekja til hinna hröðu breytinga, sem engin dæmi eru til um áður í okkar sögu, og hugtakið framfarir er æði af- stætt þegar öllu er á botninn hvolft. Það er t.d. hægt að taka fullkomnari myndir með nú- tíma myndavélum þótt þekk- ingin á faginu sé að öðru leyti í lágmarki. Myndavélarnar eru m.ö.o. orðnar fullkomnarí, en enginn skyldi segja mér að aug- að og mannsheilinn hafi þrosk- azt að sama skapi né að maður- inn se fullkomnari á því herr- ans ári 1976 en t.d. við upphaf aldarinnar. — Myndir Sigfúsar Eymundsen eru t.d. margar hverjar mjög vel gerðar með rikri kennd fyrir viðfangsefn- unum, þótt með frumstæðri tækni sé, — hér réð haldgóð þekking og næm kennd fyrir viðfangsefninu þeim góða ár- angri sem fram kemur. Athyglisverðasti þáttur sýn- ingarinnar þykja mér vera myndraðir og samanburðar- myndir t.d Skólavörðustfgur- inn, þar sem sextíu ár ber á milli. Hefði ég óskað eftir fleiru í þessum dúr, svo og úr ýmsum þáttum leiklistarsögunnar, en það er t.d mjög áhugavert að líta ljósmyndir af Stefaníu Guð- mundsdóttur og Árna Eiríks- syni. Fleiri slíkar myndraðir hefðu gert sýninguna mun skipulegri í heild, en uppheng- ing hennar er nokkuð sundur- laus, eldri og nýrri myndum er blandað saman án nokkurs sjá- anlegs heildarsamhengis. Ljósmyndun er ekki einungis iðn heldur viðurkennd listgrein þegar vel er á haldið sbr. frétt í Mbl. sl. miðvikudag frá uppboði á ljósmyndum þar sem ein andi og minnisstæðar t.d. „Sól- arlag við höfnina“ (71) og „Sól- arlag við Tjörnina" (88, Magn- ús Ölafsson), „Hús við Berg- staðastræti" (135) og „Hljóm- skálagarðurinn“ (139 Óskar Gíslason) og mynd Magnúsar Ólafssonar af Tryggva Gunn- arssyni í Alþingishúsgarðinum (81) er óborganleg, mættu nú- tfma alþingismenn draga af at- höfn hans nokkurn lærdóm!! Að sjálfsögðu er slík upptaln- ing sem þessi vafasöm vegna þess að allir þessir Ijósmyndar- ar eiga ágætar myndir, en ákaf- lega mismargar, og erfitt er að gera upp á milli þeirra á þess- ari sýningu, enda mun ekki til þess ætlazt. Hér er um fjöl- Reykjavík líðínna daga Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.