Morgunblaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGUST 1976 Þórarinn Dúason skipstjóri -Minning I dag verður til moldar borinn í Reykjavik Þórarinn Dúason, fyrr- um skipstjóri og siðar hafnar- stjóri á Siglufirði, en hann lést í sjúkrahúsinu á Siglufirði 19. ág- úst siðastliðinn, kominn þá niður á annað hnéð eftir langa starfs- ævi. Þórarinn Dúason, eða Benedikt Þórarinn Dúason, eins og hann hét fullu nafni, fæddist á Akur- eyri 19, maí árið 1895, í fyrsta húsinu sem byggt hafði verið á Torfunefi, og fyrstu nóttina, sem foreldrar hans bjuggu þar, en þau voru hjónin Aldís Jónsdóttir og Dúi Benediktsson, útvegsmaður og lögregluþjónn, en þau voru þekktir borgarar á Akureyri. Ekki veit ég með vissu hvar fyrsta húsið sem byggt var á Torfunefi stóð, en gamall maður sem ég þekkti einhverntímann fyrir norðan, sagði mér að Þórar- inn Dúason, skipstjórí, hefði, þeg- ar hann var drengur, átt heima í húsi, er stóð þar sem nú er aðal- verzlun Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. Um æsku Þórarins Dúasonar veit ég fátt, nema það sem ég get sagt mér sjálfur, fór til sjós, en þangað lá leiðin, ef hún ekki Iá inn fyrir búðarborðið eða út i sveitirnar, því valgreinar ung- menna voru ekki svo margar fyrir norðati. Þórarinn gekk i barna- og gagnfræðaskóla, en árið 1917 lauk hann prófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík, í skólastjóratíð Páls Halldórssonar. Var Þórarinn upp frá því stýrimaður og skip- stjóri á ýmsum skipum sem stund- uðu sídveiðar fyrir Norðurlandi. Var Þórarinn frábær aflamaður og í hópi þekktustu sildarmanna um þetta leyti. Þá var Þórarinn líka talsvert á togurum sem stýrimaður og þá hjá þjóðkunnum aflamönnum eins og Pétri Maack og Guðmundi Markússyni, en þeir gátu valið úr mönnum. Um tíma fékkst hann við útgerð og átti þá línuveiðar- ann Nonna með einhverjum mönnum. Þórarinn Dúason fluttist aftur norður árið 1939 og þá til Siglu- fjarðar. Fyrstu árin starfaði hann hjá Friðrik Guðjónssyni, sem var í eina tíð þekktur athafnamapur hér á landi, en réðst síðan til Siglufjarðarbæjar, fyrst sem að- stoðarhafnarstjóri, en hafnar- stjóri varð hann árið 1950 og gegndi því starfi til ársins 1965, er hann lét af starfi vegna aldurs, eða öllu heldur ákvæða um aldur opinberra starfsmanna. Sem hafnarstjóri og hafnsögu- maður á Siglufirði var Þórarinn harðduglegur og athafnasamur. Hann gat svarað fyrir sig, það man ég, en fyrst og fremst var hann samviskusamur og víðsýnn stjórnandi, en i hans tíð lágu oft hundruð síldarskipa i Siglufjarð- arhöfn. Þau voru að landa, að salta, að fá vistir, vatn og viðgerð- ir og önnur lágu fyrir akkerum útá legunni og biðu afgreiðslu, eða veðurs. Þá var ekki auðvelt að stjórna Siglufjarðarhöfn, en það var nú samt gert, og að mestu án geðshræringa. Þá var unnið dag og nótt á Siglufirði og gilti það jafnt um alla menn. Síldarstúlkur og dixilmenn unnu sofandi með opin augun, því þá voru tímar á Siglufirði og næg síld. Þórarinn Dúason lét félagsmál nokkuð til sín taka, bæði meðan hann starfaði enn á sjónum og eins eftir að hann hafði borið sig í land. Hann var einn af stofnend- um Skipstjóra- og stýrimannafé- lags Reykjavikur og siðar starfaði hann í Skipstjóra- og stýrimanna- félaginu Ægi og í Skipstjórafélagi Norðlendinga, og hann var meðal stofnenda Farmanna- og fiski- mannasambands íslands og var ætið virtur vel innan þeirra sam- taka er mér kunnugt. Þá var Þórarinn um tima for- maður sjómannadagsráðs á Siglu- firði og formaður slysavarna- deildarinnar þar, en formanns- starfinu gegndi hann um árabil og varð síðar heiðursfélagi deild- arinnar. Af þessu sést að störf Þórarins Dúasonar voru alla tíð tengd sjó- sókn og sjávarafla. Árið 1920 kvæntist Þórarinn Dúason eftirlifandi konu sinni, Theodóru Oddsdóttur frá Braut- arholti í Reykjavík, en hún var dóttir Odds Jónssonar, formanns þar, og Guðrúnar Árnadóttur, sem ættuð var frá Guðnabæ í Sel- vogi. Þau Þórarinn og Theodóra bjuggu fyrst í Reykjavik, þar sem börn þeirra fæddust, nema ein dóttir, sem fædd var á Akureyri, en sem áður sagði fluttu þau til Siglufjarðar árið 1939. Eg kom oft á heimili þeirra i Reykjavík, en þau bjuggu að mig minnir á Skólavörðustíg 36. Þar var gott fyrir stráka að koma og er mér það minnisstætt að við bræður treguðum mikið þegar Dóra frænka og Þórarinn fluttu norður með börnin. Þá var sárs- aukafullur skilnaður, því þá var langt norður á Siglufjörð, eins og verið hefur lengst af. Þetta varð þó ekki til þess að aðskilja fjölskylduna til fulls. Komið var suður til að ferma og komið suður i þetta og hitt. Oft dvalið nokkuð lengi, eftir að börn- in voru sum flutt suður. Oft lágu leiðirnar lika á Siglu- fjörð, eftir að maður var kominn til sjós, og þá var oft gott að koma á Hlíðarveg 25 upp úr grútsoðn- Fædd 2. febrúar 1895 Dáin 22. ágúst 1976 Friða, eins og við vinir hennar kölluðum hana, var fædd í Purkey á Breiðafirði, dóttir hjón- anna Helgu Finnsdóttur og Jóns Jónssonar, og var hún fimmta í röðinni af tiu börnum þeirra hjóna. Það kom fljótt i hennar hlut að vera stoð og stytta móður sinnar við heimilishaldið, þar sem tvær eidri systur hennar létust úr barnaveiki I sömu vikunni. Enda var það þannig, að það var eins og hún mætti ekki af heimilinu fara. Nóg var að starfa á stóru heimili og var hún hinn góði, kærleiksríki andi, sem öllum vildi hjálpa, ekki einungis á sinu heimili, heldur um sfldarbátum og sæbörðum varðbátum, þar sem menn héldu sér með báðum höndum allan túr- inn, þegar veður voru vond og illt f sjó. Seinast kom ég og heimsótti þau fyrir tveim árum, einn dýrð- legan sumardag. Þá var fallegt á Siglufirði, sól og blíða. Þeim Theodóru Oddsdóttur og Þórarni Dúasyni varð fjögurra barna auðið. Þau eru: Aldís Dúa, einnig þegar illa stóð á hjá ná- grannakonunum. Fríðu var margt til lista lagt, hún var góð saumakona og hafði sérstakt yndi af alls konar hann- yrðum og margt gerði hún fallegt, þótt tími væri lítill til þeirra hluta. Þegar ég var aðeins sex vikna munaðarlaust barn, var mér um stundar sakir komið fyrir hjá for- eldrum hennar í Purkey, en sá tími reyndist lengri en i fyrstu var ætlað, og var ég ekki látinn fara þaðan aftur. Purkeyjarfólk- inu munaði ekki um að bæta einu barni við, og kom það í hlut Fríðu að annast um mig og var það gert af einstakri ástúð og kærleika, trúmennskan brást ekki, enda sem gift er Baldri Eiríkssyni, fltr. hjá Sementsverksmiðju ríkisins, Ásgeir, afgreiðslumaður, kvænt- ur Katrfnu Valtýsdóttur, Brynja, gift Gunnari Bergsteinssyni, for- stjóra Sjómælinga islands, og yngst er svo Ása Hafdís, gift Óla Geir Þorgeirssyni, kaupmanni á Siglufirði. Afkomendur þeirra eru orðnir margir, það er ungt og fallegt fólk. Sumt býr fyrir norðan, ann- að er hér f Reykjavík, ýmist við störf eða nám. Seinustu árin voru Þórarni erf- ið. Sjónin þvarr og það varð örð- ugra um vik, enda meira en átta- tíu ár liðin. Tfminn hefur liðið fljótt. Með undarlegum hætti streymir hann fram uns fyrir stafni er opið haf. Við óskum gömlum skipstjóra góðrar ferðar i hinstu för og sjá- um skip hans hverfa við ysta haf. Þórarftin Dúason verður jarð- settur frá Fossvogskirkju i dag kl. 13.30. Ég sendi konu hans og öðrum ástvinum kveðjur. Jónas Guðmflndsson. skyldi allt gert fyrir minnsta barnið á bænum. Og þannig liðu árin, að hún annaðist foreldra sína á meðan þau þurftu á að halda, og brást ekki því trausti er til hennar var borið. Að þvf kom að Jón sonur þeirra hjóna tók við jörðinni og hóf búskap, og gerðist Frfða þá ráðs- kona hjá bróður sinum. Þá eins og svo oft áður var nóg að starfa og enn varð að taka litið barn á heim- ilið. Bróðir þeirra missti konuna frá þriggja ára dreng, er Jón hét, eftir afa sinum. Eg mun aldrei gleyma því þegar Fríða kom með litla drenginn leiðandi sér við hlið heim túnið f Purkey. Enginn vissi betur en ég hve lánsamur hann var að hafa hönd hennar til að styðjast við. Og enn liðu árin, bæjar- og skepnuhús voru byggð af myndar- skap og jörðin bætt svo sem kost- ur var. Árið 1938 dó systir þeirra Fríðu og Jóns frá fjórum ungum börnum, en þau voru búsett í Keflavík. Var nú úr vöndu að ráða, en úr öllu rættist á þann hátt, að föðursystir þeirra tók tvö börnin, en móðursystkinin f Purkey hin tvö, Helgu og Eirik, og ólust þau þar upp til fullorðins- ára. Eftir að ég fluttist að heiman úr Purkey og eignaðist sjálf heimili, var það sjálfsagður hlutur að Purkeyjarfólkið kæmi í heimsókn til mín og minnar fjölskyldu er leiðin lá til Reykjavfkur, enda gagnkvæmt þegar við brugðum okkur á mfnar æskuslóðir vestur á Breiðafjörð. Þegar drengirnir okkar stækkuðu var þeim boðin sumardvöl í Purkey, sem var þeim ómetanleg reynsla. Þar lærðu þeir að þekkja dýrin og fuglana og alla þá dásemd, sem hin sérstæða náttúra Breiðafjarð- areyja hefur upp á að bjóða. Og fyrir allt þetta erum við innilega þakklát. Fyrir tæpum fimmtán árum veiktist Frfða af alvarlegum sjúk- dómi er leiddi til þess, að hún varð að dveljast á sjúkrahúsi alla tíð sfðan.— Hún verður nú borin til hinztu hvfldar í Dagverðarnes- krikjugarði, þar sem ættingjar hennar og vinir hvíla mann fram af manni. Við þökkum Frfðu fyrir allt sem hún hefur fyrir okkur gert og biðjum guð að blessa minningu hennar. Margrét Hjartardóttir. t Útför foreldra okkar FREYJU FINNSDÓTTUR OG JÓNS ÍSLEIFSSONAR sem létust af slysförum 22 áaúst s I fer fram frá Stykkíshólmskirkju laugardaginn 28 ágúst kl 2 eftir hádegi Fyrir hönd annarra vandamanna, ísleifur Jónsson Finnur Jónsson Eggert Sveinn Jónsson. t Innílegar þakkir sendum við öllum þeim, er vottuðu okkur samúð við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa BIRGIS KJARAN, hagfræðings. Ásvallagótu 4. Sveinbjörg Kjaran > Ólöf Knudsen Sofffa Kjaran Helga Kjaran og bamabom. Hilmar Knudsen Pálmi Jóhannesson Ólafur Sigurðsson t Þokkum inmlega samúð og vmarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa ÞÓRARINS HELGASONAR frá Látrum. Sérstakar þakkir færum v»ð starfsfólki á hjúkrunardeild Hrafnistu Helgi Þórarinsson Runólf ur Þórarinsson Guðrún Þórarinsdóttir Nikulás Sigfússon Bragi Þórarinsson Sigríður L. Þórarinsdóttir Sigurþór Jakobsson og barnaböm Guðrún Lárusdóttir t Yndislega litla dóttir okkar og systir SARA ÞÓRSDÓTTIR lést I barnaspltala Hringsins laugardaginn 21 þ m Bestu þakkir til alls starfsfólks vökudeildar Útförin hefur farið fram Áslaug Þorsteinsdóttir, Þór Jens Gunnarsson, Bjöm Markús Þórsson. t Kveðjuathöfn um HELGU HÓLMFRÍÐI JÓNSDÓTTUR, frá Purkey, fer fram i Fossvogskirkju, i dag, föstudaginn 27 ágúst kl 3. Jarðsett verður frá Dagverðarneskirkju, Aðstandendur. t Hjartkær faðir okkar, ALFREÐ HILMAR ÞORBJÖRNSSON. verður jarðsunginn frá Frlkirkju Hafnarfjarðar laugardaginn 28 ágúst kl 1 0 30 fyrir hádegi Fyrir hönd móður og annarra ástvina Kristfn Hilmarsdóttir, Napier, Ágúst Hilmarsson. t Hjartkær eiginmaður minn og faðir, ÞORGRÍMUR JÚLÍUS SIGURÐSSON lézt I Landspltalanum aðfararnótt mánudagsins 23 ágúst Fyrir hönd aðstandenda: Marla Sigurðardóttir Hólmgeir Júllusson. Helga Hólmfríður Jónsdóttir frá Purkey — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.