Morgunblaðið - 01.09.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1976
3
íslendingur
þátttakandi
í „Per Gynt
stemned”
NVLEGA var Ágúst F. Petersen
listmálara boðið til Noregs til að
vera viðstaddur og taka þátt I
svokallaðri „Per Gynt stemned“,
sem stóð yfir frá 4.—15. ágúst s.l.
Hátið þessi hefur verið haldin
árlega í bænum Vinstra I Guð-
brandsdal frá 1967. Þá voru liðin
100 ár frá því að Ibsen gaf út
Pétur Gaut, en Pétur Gautur var
ættaður frá Vinstra og var uppi
um 1700.
Auk málverkasýningarinnar
(samsýning) voru þarna fjöl-
breytt skemmtiatriði svo sem
hljómleikar, leiklist, söngvar, list-
dans o.fl. Auk innlends listafólks,
sem þarna kom fram, má nefna
list- og þjóðdansaflokk frá Riga í
Lettlandi, hljómlistarmenn frá
Svíþjóð og ballett og látbragðs-
leikarar frá Danmörku.
Agúst F. Petersen.
Leikritið Pétur Gautur var að
sjálfsögðu sýnt og fóru Alf
Malland frá ríkisleikhúsinu í Ósló
og Arnhild Skurdal með aðalhlut-
verkin.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
íslendingi er boðin þátttaka í
hátið þessari.
Seljahverfið tengist
leiðakerfi SVR í dag
NÝJU verkamannabústaðirnir i
Seljahverfi f Breiðholti verða frá
og með deginum I dag tengdir
leiðakerfi Strætisvagna Reykja-
víkur. Verður það gert á þann
hátt að breytt verður leiðinni
„Hólar — Bakkar.“ sem hér eftir
heitir „Hringleið — Breiðholt".
Fyrst um sinn verður ekið á hálf-
tfma fresti mánudaga til föstu-
daga frá 07—19 og verður leitazt
við að tengja þessa leið við leið 12
á gatnamótum Stekkjarbakka og
Miðskóga.
Þá verður einnig sú breyting á
akstursleiðinni, að hætt verður að
aka Arnarbakkahringinn, en þess
i stað verður ekið að verzluninni
Breiðholtskjör og snúið þar við.
Hér er um skammtímalausn að
ræða, en fyrirhugaðar eru á
næsta vori gagngerðar breytingar
á Breiðholtsleiðunum.
Aætlun hringleiðarinnar og
leiðbeiningar munu liggja
frammi í farmiðasölu SVR á
Lækjartorgi og Hlemmi, svo og
hjá vagnstjórum á þessari nýju
leið og leið 12.
50 -
10-
:io -
20 -
10 -
Tímabil
yiðreisnar-
stjórnar
60 61 6263 64 65 66 67 68 69'70 71 72 73 7
Þetta stöplalfnurit sýnir þróun verðbólgunnar frá 1960 til 1976.
Lóðréttu punktalfnurnar sýna stjórnarskipti á tfmabilinu en hvfti
og sfðasti stöpullinn fyrir árið 1976, sem er afmarkaður er með
punktalfnu er áætlaður.
Þróun verð-
bólgunnar
í 15 ár
SKIPZT hafa á skin og skúrir
síðasta hálfan annan áratug í
verðlagsþróun á íslandi.
Minnsta hækkun framfærslu-
vísitölu varð á árinu 1971, en þá
var verðbólgan 2,7%. Mesta
hækkun verðbólgunnar var
hins vegar á árinu 1974, er hún
náði að hækka um 53,5%. Fer
svo úr að rætast og á árinu 1975
er verðbólgan rétt rúmlega
36% og á árinu 1976 er svo spáð
að hún verði á bilinu 25 til
30%. Má því segja að þróun
verðbólgunnar sé nú farin að
nálgast það, sem hún var fyrir
árið 1971, þótt hún sé enn all-
miklu hærri en þá,
Athyglisvert er að bera þróun
verðbólgunnar saman við hvaða
ríkisstjórnir hafa farið með
völd i landinu. Frá árinu 1960
til 1971 situr við völd svokölluð
viðreisnarstjórn og rokkar þá
verðbólgan upp og niður frá ári
til árs, en er að meðaltali þessi
ár 11,5%. Árið 1971 tekur við
vinstri stjórn, sem er við völd i
um það bil þrjú ár. Þá skiptir
mjög sköpum og meðaltalsverð-
bólga þessara ára er 34,2% og
kemst hæst þjóðhátiðarárið
1974 upp í 53,5%. Frá þvi er
vinstri stjórnin fór frá völdum
hefur verðbólgan talsvert
rénað og á fyrsta ári núverandi
ríkisstjórnar var verðbólgan
36.1% og samkvæmt spám Hag-
stofu íslands er gert ráð fyrir
að á árinu 1976 verði verð-
bólgan einhvers staðar á bilinu
25 til 30%.
Verðbólgan þessi ár hefur
verið sem hér segir: árið 1960
var hún 4%, árið 1961 11,5%,
árið 1962 10,3 %, árið 1963
19,5%, árið 1964 9,8%, árið
1965 8,9%, árið 1966 6,5%, árið
1967 12,3% árið 1968 19,6%,
árið 1969 13,0%, árið 1970
11,8%, árið 1971 2,7%, árið
1972 16,5%, árið 1973 32,6%,
árið 1974 53,5% og árið 1975
36,1%.
Slasaðist
alvarlega á
Kröfluvegi
JEPPABIFREIÐ valt á Kröflu-
vegi, um 2 km frá aðalveginum,
skömmu eftir klukkan 10 í gær-
morgun. Fjórir menn voru í bíln-
um og slasaðist einn farþeganna
alvarlega. Var hann fluttur til
Reykjavíkur þar sem hann var
lagður inn á Landakotsspítala.
Mun maðurinn vera mjað-
magrindarbrotinn og viðbeins-
brotinn auk minni háttar meiðsla.
Hinir þrir, sem í bílnum voru,
sluppu án teljandi meiðsla. Var
bíllinn nýkominn út úr beygju,
þegar óhappið varð og mun hafa
lent í lausamöl, eð þeim afleiðing-
um að bílstjórinn missti stjórn á
farartækinu, sem valt út af vegin-
um. Sá sem slasaðist varð undir
jeppanum og þurfti að velta hon-
um ofan af manninum.
Dularfullir
telexskrár-
útgefendur
VERZLUNARRÁÐ Islands varar
í fréttabréfi sínu félagsmenn sfna
við fyrirtækjum erlendis, sem
segjast gefa út handbækur yfir
telex-númer og ýmsar skrár í sam-
bandi við notkun telextækja. Eru
nefnd tvö fyrirtæki, sem sérstak-
lega er varað við, og sagt að þau
séu „huldufyrirtæki".
Þessi fyrirtæki hafa leikið sér
að því að senda reikning fyrir
ókeypis nafnbirtingu og hafa
jafnframt rukkað fyrir óumbeðn-
ar auglýsingar. Hefur verið rukk-
að fyrir nafnbirtingu eða auglýs-
ingu í handbókum, sem aldrei
hafa komið út. Segir verzlunar-
ráðið að það hvetji menn til þess
að greiða aðeins fyrir umbeðna
þjónustu.
Mjög óhreinn fatnaður þarf mjög gott þvottaefní...
MeÓ Ajax þvottaefni veróur mislití
þvotturinn alveg jafn hreinn og
suóuþvotturinn.
Hínir nýju endurbættu
efnakljúfar gera þaó kleift
aó þvo jafn vel meó öllum
þvottakerfum.
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvitur.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótviræða
kosti sina, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efni og nýir, endurbættir efnakljúfar ganga alveg
inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i
forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni.
Ajax pvottaefní þýóir:
gegnumhreinn þvottur meó ölium
þvottakerfum.