Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÖBER 1976 ÆFINGAR ÞURFA AÐ TAKA MIÐ AF ATVIKUM LEIKSINS SJÁLFS MEIRI hluti íslenzkra knatt- spyrnumanna vinnur ekki nægjanlega vel með knöttinn. Tækni þeirra er yfirleitt of gróf. Þeir spyrna oft dálitið stórkarla- lega og eins eru sendingar þeirra of ónákvæmar. 1 knattspyrnu er það ekki endilega aðalatriið að geta gert ótal kúnstir með knöttinn, heldur hitt að hafa vald á honum og geta samræmt tækni sína og hraða. lslenzkir knatt- spyrnumenn þurfa yfirleitt um- fram allt að geta hreyft sig hraðar með knöttinn og hika minna I leik sfnum. Nauðsynlegt er að ná valdi á knettinum strax og tekið er við honum, og sleppa þannig við að eyða of miklum tíma í að koma honum í þá aðstöðu sem leik- maðurinn vill hafa hann í. Þarna er pottur brotinn hjá okkar mönnum, og verður það til þess að sendingar milli þeirra mistakast oft, og eins eru þeir oft of seinir að koma knettinum frá sér, áður en andstæðingurinn er kominn. Þetta þýðir auðvitað það að allar áætlanir mistakast. I leik sér maður fslenzka knatt- spyrnumenn yfirleitt ekki nota mörg kænskubrögð, t.d. plata and-, stæðinginn með bolvindum eða þess háttar. Yfirleitt reyna þeir að nota hraðann einan þegar þeir ætla sér framhjá andstæðingi. Þetta getur verið ágætt þegar verið er með knöttinn úti á miðjum vellinum, þar sem nóg rými er, en þegar nálgast mörkin og margir eru orðnir til varnar gildir slíkt ekki nema þá í fáum tilfellum. Þar með er orðin lítil hreyfing í leiknum, og leikmennirnir komnir í erfiða að- stöðu. í bezta falli lendir knöttur- inn þá hjá leikmanni frá sama liði, en í flestum tilfellum tapast hann til mótherjans. Þannig glatast mörg tækifæri sem boðist hefðu ef leikmennirir hefðu yfir meiri tækni að ráða við að komast framhjá andstæðingi. Það er ósjaldan sem góð mark- tækifæri bjóðast í leikjum, en fá mörk eru skoruð. Hvernig stendur á því. Aðalástæðan er sú, að leikmennirnir eru ekki viðbúnir þegar tækifærið býðst, hafa ekki nógu mikið sjálfsöryggi og eru of seinir að taka ákvörðun. Þarna kemur ekki bara skortur á tækni til. Allir sem fylgjast með knattspyrnumönnum á æfingum og i leikjum vita það. Þeir eru ófáir knattspyrnumennirnir sem eru miklu betri á æfingum og skora þá ef til vill mörg mörk. Þá eru þeir afslappaðir og öruggir. Aðstæðurnar breytast eðlilega ekki eins fljótt á æfingum og i leikjum, þar sem knattspyrnu- mennirnir fá ekkí nema örfá andartök til þess að ákveða sig og dæma um hvað þeir eigi að gera — hvort þeir eigi að skjóta eða senda. Menn venja sig því á að vera lengi að hugsa. Við þjálfun þarf því að leggja aðaláherzluna á að æfa upp svip- aðar stöður og kunna að koma fyrir í leikrium. Það er að segja að leikmennirnir verða að haga sér eins á æfingum og þeir gera í leikjum. hlaupa af fullum krafti og sækja ákveðið að markinu. Nauðsynlegt er að leikmennirnir, jafnt á æfingum sem í keppni, séu tilbúnir að beita brögðum og mis- munandi spyrnum a markinu þcgar fær; gefasí Meö í jölbreytni í leik sínum ei oft hægt að plata andstæði - fnvel ekki bara einn ■ ii,u íu l(iui þrjá eða fjóra. 1 þjálfun isletizk ra knatt- Syyrnumanna í'innst mér áberandi að leikmennirnir æfa sig að skjóta og skora allt frá vítateigslínu þar sem þeir standa og jafnvel stilla knettinum upp áður en þeir skjóta. Slíkt skeður ekki í leikjum, og þessi þjálfun veitir ekki þá kunnáttu sem þarf til þess að geta leikið I meistara- flokki. Þess vegna álit ég að hverjum einasta leikmanni sé nauðsynlegt að staldra við, reyna að finna eigin veikleika og miða síðan æfingar sina r við að reyna að uppræta þá. Hlutverk þjálfarans er fyrst og fremst að hjálpa leikmönnunum að finna þessa veikleika sína og þjálfa þá tækni og þær leikaðferðir sem hann vill að liðið noti i leiknum. Þjálfun, í heild, þarf að byggja upp á miklum hraða og allar æfingar verða að vera við það miðaðar að þar komi upp sömu aðstæður og svipuð tækifæri og leikurinn sjálfur býður upp á. Þess vegna er það mjög áríðandi að leikmennirnir æfi undir ákveðnu álagi, þ.e. að þeir hafi takmarkaðan tíma til stefnu á ákveðnu svæði á vellinum. LEIKAÐFERÐIR HAFA BREYTZT MIKIÐ Leikaðferðir íslenzkra liða hafa breytzt mikið á undanförnum árum. Mesta breytingin hefur átt sér stað I varnarleiknum, og þá vegna tilkomu nýs varnarleik- manns, svokallaðs „sweepers“. Nokkur liðanna hafa éinnig sett mann inn I stöðu milli varnar og tengiliða og er hlutverk hans að gæta tengiliða hins liðsins og freista þess að kæfa sóknar- aðgerðir hins liðsins í fæðingu. I heild hefur tala þeirra leikmanna sem leika í vörn hækkað á kostn- að sóknarleiksins. Formið á vörninni er ekki aðal- atriðið, heldur leikur varnarinnar sín i milli og innra samband leik- manna hennar. Á þessu keppnis- tímabili töpuðu mörg íslenzku liðanna leikjum sínum með miklum mun, jafnvel þótt þau hefðu marga menn í vörn. Það er auðvitað vandalítið að bæta endalaust við mönnum í vörn og til að byrja með bar mikill varnarleikur árangur. Austur- ríkismenn byrjuðu á þessum varnarieik kringum 1940. siðar var hann tekinn upp á Italíu og marar þjóðir tóku hann síðan upp í framhaldi af því. Var þetta góð leikaðferð allar götur að þvi að önnur lið fundu upp mótleikinn. 1 nútíma knattspyrnu gildir það fyrst og fremst að leggja verður hæfilega mikla áherzlu á hvert atriði leiksins, þannig að unnt sé að verjast vel og vera samtímis tilbúinn að gera áhlaup. Ef ég nefni hér leik Vals sem dæmi, þá notuðum við í mörgum leikjum okkar aðeins þrjá menn i vörninni. Samt sem áður veikti það hana ekki, heldur gerði hana einmitt styrkari og jafnframt jukust verulega möguleikar liðsins til sóknarleiks. Miðlínan varð hins vegar alltaf að vera tilbúin til þess að hjálpa varnar- leikmönnunum ef á því þurfti að halda, en gat tekið virkan þátt í sókninni. Þannig varð nýting leik- mannanna mun betri en ella — allir leikmennirnir voru virkir og viðbúnir að bregðast við í sókn og vörn þegar á þurfti að halda. Þegar slíkt leikkerfi er notað gefast einnig betri tækifæri fyrir leikmenn að hvíla sig örlítið öðru hverju í leiknum og slappa af. Hitt er svo auðvitað rétt, að Vals- menn náðu ekki alltaf að útfæra þetta leikkerfi. Leikmennirnir eru ekki atvinnumenn og þótt þeir hefðu marga góða kosti til að bera, þá gátu þeir einfaldlega ekki leikið svona mótið út í gegn. En þrátt fyrir allt tel ég að þeir hafi á þessu keppnistímabili oft náð að sýna íslenzkum knatt- spyrnuáhugamönnum hvernig nútímaleg knattspyrna er í raun og veru. Að mínum dómi er það aðal- hlutverk góðs þjáfara um þessar mundir að breyta leikskipulaginu þannig að sóknarleikurinn skipi hærri sess. Með þvi að vinna sér- stakar æfingar, æfingaskrár og leikkerfi sem miða að þessu ætti að vera unnt að ná bærilegum árangri. En þá verður líka að leggja á hilluna ýmíslegt sem er enn of áberandi í íslenzkri knatt- spyrnu, eins og t.d. grófar sendingar og spyrnur. Þjálfararnir þurfa að leggja á það áherzlu í æfingum sinum að byggja upp hreyfingar hvers og eins leikmanns og samstilla þær hreyfingu liðsins og tengja þær samvinnu hópsins. Þetta er undir- staðan og út frá henni þarf að leggja lfnurnar um heildarleik- kerfi liðsins. Allir leikmennirnir þurfa að vita nákvæmlega um hlutverk sitt á vellinum og hvaða aðstæður kunna að koma þar upp. Þá þarf hann að þekkja vel til félaga sinna og vita hvernig þeir bregðast við. Sé þetta í lagi er unnt að komast hjá ýmsum mis- tökum, eins og t.d. að tveir sam- herjar rekist saman þegar þeir eru komnir að eða í vítateig and- stæðingsins eða að þvaga myndist kringum knöttirin einhvers staðar á vellinum. UNGLINGAÞJALFUN Nú langar mig til þess að fjalla nokkuð um unglingaþjálfun. Framtið ísllenzkrar knattspyrnu er í höndum þeirra manna sem fást við slíka þjálfun. Ég vona að starfsfélagar mínir, aðrir þjálfar- ar, móðgist ekki við mig, þegar ég segi að vinna þeirra með ungling- unum er oft nánast spegilmynd af þvi sem gerist við þjálfun fullorð- inna, og að slíkt sé rangt. Likamlega og andlega eru börn ekki tilbúin að meðtaka þjálfun á sama hátt og fullorðnir og þar að auki á hver aldurshópur sinar sér- stæðu hliðar. Þess vegna hlýtur líka þjálfun hvers aldursflokks fyrir sig að verða að vera mismun- andi. Mjög áríðandi er fyrir unglinga- þjálfara að skipuleggja vinnu sína. Þjálfarinn þarf að vita ná- kvæmlega að hverju hann stefnir og hvað hann ætlar að fá út úr hverjum þeim knattspyrnumanni sem hann hefur með að gera. Ég hef fylgzt með þjálfun í yngri flokkunum hjá nokkrum is- lenzkum liðum. Því miður verð ég að segja, að ég hef tekið eftir því, að þar er lögð alltof lítil áherzla á að þjálfa hvern og einn einstakl- ing og þroska hæfileika hans. Meiri hluti þjálfarinna leggur greinilega mesta áherzlu á að skipta i tvö lið og láta börnin síðan leika. I slíkum leikjum hef ég séð að sum barnanna komu aðeins við knöttinn þrisvar eða fjórum sinnum á æfingunni. Er Dr. Yuri skrífar HÉR með birtist þriðja grein dr. Yuri Ilichev, þjðlfara ls- lands- og bikarmeistara Vals um fslenzka knattspyrnu. Fjall- ar dr. Yuri að þessu sinni um þjálfun knattspyrnumanna og þjálfun og aðstöðu fslenzkra ungmenna sem stunda knatt- spyrnu. Telur hann pott vera brotinn I unglingaþjálfuninni, og bendir á að nauðsynlegt sé að standa sem bezt að málum á því sviði — á þvl velti framtíð tslenzkrar knattspyrnu. Þá fjallar dr. Yuri einnig um Is- lenzka knattspyrnudómara. 1 sfðari greinum sínum mun dr. Yuri svo fjalla um skipulag knattspyrnumóta, fslenzka fþróttafréttamenn, Iandsliðið og fl. unnt að segja að þessi börn hafi fengið einhverja þjálfun og þekk- ingu á æfingunni? — Að þau hafi lært eitthvað? — Ég tel, að svör við þessum spurningum liggi í augum uppi. Ég er þvi ekki hliðhollur að þjálfun barna fari fram á þann hátt að skipt sé í tvö lið og síðan leikið i ákveðinn tíma. Það er miklu betra að æfa börnin með alls konar leikæfingum, og litlum leíkjum á afmörkuðu svæði, þar sem ákveðin atriði eru tekin fyrir. Þannig er mun auðveldara að byggja upp tækni hvers og eins, þjálfa upp hraða og leikkerfi. í þjálfun liðsins I heild verður svo að mínu mati að leggja mun meiri áherzlu á nútímaleg vinnubrögð en gert er almennt. Það á ekki að kenna börnum gamaldas aðferðir, heldur taka strax upp þær nýj- ungar sem fram eru að koma í knattspyrnunni. Það á ekki að láta börnin leika útlifuð kerfi Islenzkir knattspyrnuunglingar hafa oft staðið sig mjög vel 1 leikjum gegn erlendum jafnöldrum sínum og nú sfðast er þeir unnu Norðmenn I—0 1 landsleik á Laugardalsvellinum, en þar var þessi mynd tekin. Dr. Yuri segir f meðfylgjandi grein sinni, að nauðsynlegt sé vanda betur til þjálfunar fslenzkra ungmenna og bendir á leiðir f þeim efnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.