Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 13. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1977

6 þús. tonn-

um landað

á Norðfirði

Neskaupstaður, 18. janúar —

LANDAÐ hefur verið hér á

Norðfirði um 6 þúsund tonn-

um af loðnu, en á sama tfma f

fyrra hafði engin loðna borizt

hingað. Löndun hefur verið

stanzlaus sfðustu tvo sólar-

hringa.

Bræðsla hófst í dag. Þrær

hér geta tekið 7.5000 tonn,

þannig að áreiðanlega Ifður

ekki á löngu, unz allt þróar-

rými fyllist.   — Asgeir.

Furðuhlutur-

inn reyndist

vera Orion

VEGFARENDUR, sem leið

áttu um Borgartúnið sáu tor-

kennilegan hlut á lofti i gær-

morgun um klukkan 07 eða

rúmlega það. Flaug þessi hlut-

ur í um það bil norðaustur á

talsvert         miklum        hraða.

Morgunblaðið fékk upphring-

ingar vegna þessa atburðar og

sömuleiðis hafði fólk samband

við flugturninn. Á þessum

tíma flaug Orion-flugvél frá

Keflavíkurflugvelli í þessa

stefnu með full lendingarljós

og gæti þar komin skýringin á

þessu fyrirbæri.

Góð sala

hjá Snorra

Sturlusyni

SKUTTOGARI Bæjarútgerðar

Reykjavíkur, Snorri Sturlu-

son, seldi 221 lest af ísfiski,

mest þorski, í Cuxhaven f

fyrradag fyrir 370 þúsund

mörk eða 29.4 millj. króna.

Meðalverð á hvert kíló er kr.

133.

t gær átti sfðan að taka

Snorra Sturluson f þurrkvf f

Cuxhaven, en eins og Mbl. hef-

ur áður skýrt frá, skemmdist

stefni togarans allverulega

neðan sjólfnu í fsnum á Hala-

miðum og f Þverál milli jóla

og nýárs, er aflinn var sem

mestur hjá togurunum á þess-

um slóðum.

Lygamælar

ekki notaðir

við rannsókn-

ir sakadóms

VEGNA fréttar i Mbl. á sunnu-

daginn um nýja aðferð við

lygamælingar, sem sakadómur

Reykjavíkur hefur reynt, hef-

ur Halldór Þorbjörnsson yfir-

sakadómari óskað eftir að það

komi skýrt fram, að sakadóm-

ur hefur aldrei notað lyga-

mæla við rannsóknir mála.

Hins vegar var lygamælir

reyndur í fyrrasuma, aðallega

á starfsmönnum sakadóms, og

raddmælingar voru reyndar

fyrir skömmu eins og fram

kom í fréttinni.

Fyrirlestur

umveðurfars-

breytingar

VEÐURFARSFRÆDINGUR-

INN H. Lamb prófessor, frá

Scholl of Environmental

Sciences, University of East

Anglia f Norwich, heldur fyrir

lestur á vegum Félags fs-

lenzkra           náttúrufræðinga,

fimmtudaginn 20. janúar n.k.

kl. 20.30 og verður íunðurinn

haldinn f fyrirlestrasal nr. 158

f húsi verkfræðideildar Há-

skólans við Hjarðarhaga.

Fyrirlestur Lambs próf-

essors nefnist: „Our under-

standing of changes öf

climate."

ög landsins

endurskoðuð

Þetta eru nokkrir nemendur í Árbæjarskóla, en skömmu

fyrir jólin færði Kiwanisklúbburinn Jörfi í Árbæjar-

hverfi nemendum barnaskólans í Árbæjarhverfi endur-

skinsmerki að gjöf. Jón Árnason skólastjóri tók við

gjöfinni fyrir hönd skólans og þessir ungu nemendur

hafa komið merkjum sínum fyrir á hlífðarfötunum.

# IÐNAÐARRAÐHERRA,

Gunnar Thoroddsen, skipaði f

gær nefnd til þess að endurskoða

orkulög og gera tillögur um heild-

arskipulag orkumála landsins.

Gunnar Thoroddsen sagði f við-

tali við Mbl. f gær að orkulögin

væru nú orðin 10 ára gömul, frá

1967, en þau f jalla bæði um Orku-

stofnun, Rafmagnsveitur rfkisins

og fjölmargt fleira. Sagði ráð-

herrann að nú væri orðið tfma-

bært að lögin yrðu endurskoðuð.

Gunnar Thoroddsen sagði að

undanfarið hefðu nokkrar nefnd-

ir starfað á vegum iðnaðarráðu-

neytisins, landshlutanefndir til

þess að kanna viðhorf sveitar-

stjórnarmanna til stofnunar

landshlutaveitna, sem væru sam-

eign sveitarfélaganna og ríkisins.

Eitt slíkra fyrirtækja hefur þegar

Landbúnaðarráðherra:

Útflutningur undanrennu-

duftsins stórhættulegur

fyrir íslenzkan landbúnað

— ÞAÐ að fara út f útflutning á

þessu undanrennudufti með þeim

hætti, sem gert var f haust, er

stórhættulegt fyrir fslenskan

landbúnað. Um það hvort rfkis-

sjóður greiðir fullar útflutnings-

bætur á þennan útflutning get ég

ekki sagt á þessu stigi, þvf beiðni

um þá greiðslu hefur ekki enn

borist ráðuneyti mfnu, sagði

Halldór E. Sigurðsson f samtali

við blaðið f gær er hann var

spurður, hvort tekin hefði verið

ákvörðun um greiðslu á útflutn-

ingsbðtum vegna þeirra 100

tonna af undanrennudufti, sem

Búvörudeild StS seldi á sl. hausti

til Sviss en 10 krónur fengust

fyrir hvert kfló. Skráð heildsölu-

verð hér innanlands á undan-

rennudufti var þá 250 krónur

hvert kfló en komið hefur fram að

óskað   verður   eftir   greiðslu    á

nærri 24 milljónum króna í út-

flutningsbætur úr rfkissjóði

vegna þessa útflutnings.

Halldór sagði á almennum

bændafundi á Kjalarnesi sl.

laugardag, að þessi útflutningur á

undanrennuduftinu hefði verið

framkvæmdur án sinnar vitundar

og hefði hann ekki fengið að vita

um hann fyrr en duftið var farið

úr landi. Halldór sagði ennfremur

Framhald á bls. 18

verið ákveðið með lögum, Orkubú

Vestfjarða, þar sem ríkið á 40%

en  sveitarfélögin  60%.  Ráðherr-

Framhald á bls. 31

Krafla:

Upptök skjálft-

anna sunnar

en áður

FLEIRI jarðskiálftar mældust á

Kröflusvæðinu á síðustu mæli-

önn, þ.e. frá því kl. 15 á mánudag

til 15 í gær, en nokkru sinni frá

því í hrinunni um mánaðamótin

október-nóvember. Alls komu 98

skjálftar fram á mælitækjum á

fyrrnefndu tfmabili, og voru 12

þeirra á bilinu frá 2,2 til 3,2 stig á

Richter. sex af þessum stærri

skjálftum fundust á milli kl. 9 og

10 í gærmorgun, og varð fólk f

Reykjahlíðarhverfinu og við

Kröflu vart við stærstu skjálft-

ana. Upptök þeirra voru sunnar

en undanfarið, þ.e. í línu frá Leir-

hnúk í Hlíðarf jall

Jarðvísindamenn voru í gær við

mælingar á sprungum í Leirhnúk

og grófu þaðan mælitæki undan

snjófargi. Virðist sem talsverð

gliðnun hafi orðið þar síðan fyrir

fjórum dögum er mælingar fóru

síðast fram. I gær voru settar upp

mælistikur í Gjástykki norðan við

Kröflu og á fleiri stöðum.

Samkvæmt mælingum í gær

heldur landris enn áfram á

Kröflusvæðinu.

Vegið og metið hér hvenær

um hættuástand er að ræða

— segir Hallgrímur Pálsson, búðastjóri Kröflu

— EF hættuástand kemur upp

teljum við hér við Kröflu mestu

máli skipta að skipulag og skyn-

semi sitji f fyrirrúmi, sagði

Hallgrfmur   Pálsson,   búðastjóri

Fridrik og Guðmundur

gerdu báðir jafntefli

ÍSLKNZKU stórmeistararnir á al-

þjóðlega skákmótinu í Wijk Aan

Zee f Hollandi gerðu báðir jafn-

tefli í 4. umferð. Guðmundur

gerði jafntefli við Jan Timman og

Friðrik við Nikolac eftir að skák-

in hafði farið í bið. Friðrik sagði í

viðtali við Morgunblaðið f gær, að

þeir Guðmundur hefðu farið frek-

ar rólega af stað. En á mótinu eru

margir sterkir skákmenn og því

hætt við að töluvert verði af jafn-

teflum.

Friðrik sagði, að Sosonko frá

Hollandi hefði nú tekið afgerandi

forystu, þar sem álitið væri að

skák Gellers við Miles frá Eng-

landi væri töpuð, en það var eina

skákin f 4. umferð, sem fór aftur í

bið. Staðan eftir 4. umferð er því

þannig, að I fyrsta sæti er

Sosonko með 3H vinning, þá

koma Geller, Kurajica og Boehm

með 2'4 vinning. Geller á biðskák

við Miles. í 5. til 7. sæti eru Kava-

lek, Timman og Friðrik með 2

vinninga. Miles er í 8. sæti með

i'/,. vinning og biðskák, þá kemur

Guðmundur f 9. til 10. sæti með

1 'h ásamt Nikolac, í 11. sæti er

Ligternik með 1 vinning og í 12.

Barczay meó H vinning.

Fjórða umferð fór þannig:

Boehm og Kurajica gerðu jafn-

tefli, Nikolac og Friðrik gerðu

jafntefli, Timman og Guðmundur

gerðu jafntefli, Ligternik og

Kavalek gerðu jafntefli, Sosonko

vann Barczay og skák Miles og

Gellers fór f bið.

Hér fer á eftir skák Timmans

og Guðmundar, Timman hafði

hvítt:

1. d4 — g6, 2. e4 — Bg7, 3. Rc3 —

d6, 4. f4 — Rf6, 5. Rf3 — c5, 6.

Dxc5 — Da5, 7. Bd3 — Dxc5, 8.

De2 — 0-0, 9. Be3 — Dc7, 10. 0-0

— Rbd7, II. h3 — a6, 12. a4 — b6,

13. Df2 — Bb7, 14. f5 — e6, 15.

Dh4 — Hae8, 16. Bh6 — Dc5+, 17.

Framhald á bls. 18

við Kröflu, I samtali við Mbl. f

gær. Sagði Hallgrímur, að það

gerði aðeins illt verra, þegar ver-

ið væri að þyrla upp moldviðri í

fjölmiðlum, e.t.v. að óathuguðu

málí.

I gær var unnið að því við

Kröflu að lagfæra ræsibúnað á

sírenum á þaki kælíturnanna og

við skiljuhúsið. Sírenur þessar

hafa ekki farið í gang á æfingum

undanfarið þegar það hefur verið

reynt með fjarstýribúnaði úr búð-

um starfsmanna. Er talið að

ástæðan fyrir því, að sá búnaður

hefur ekki virkað, séu frostin að

undanförnu. Þau hafi dregið

kraft úr rafhlöðunum. Hins vegar

Ríkarður   Jónsson,

myndhöggvari, látinn

RlKARÐUR Jónsson, mynd-

höggvari, er látinn. Hann var 88

ára að aldri.

Ríkarður fæddist í september

1888 í Tungu í Fáskrúðsfirði f

S-Múlasýslu, og voru foreldrar

hans Jón Þórarinsson, bóndi og

smiður á Strýtu við Hamarsfjörð,

og sfðari kona hans, Ólöf Finns-

dóttir. Ríkarður stundaði mynd-

skurðarnám í 3 ár hjá Stefáni

Eiríkssyni, myndskurðarmeistara

í Reykjavík, og samtímis dráttlist-

arnám hjá Þórarni Þorlákssyni,

listmálara. Hann lauk sveinsprófi

á myndskurði 1908, fyrstur manna

hérlendis, en stundaði eftir það

nám í Kaupmannahöfn, þar sem

hann m.a. nam mótun hjá Einari

Jónssyni og síðan myndhöggvara-

nám hjá Konunglegu listaaka-

demíunni til ársins 1914. Eftir að

heim kom vann Ríkarður að list

sinni, lengst af búsettur i Reykja-

vík en einnig á Djúpavogi fáein ár

á þriðja áratugnum auk þess sem

hann dvaldist eitt ár á Italíu.

Ríkarður mótaði á ferli sinum

fjölda andlitsmynda, útimyndir

margar og einnig legsteinsmynd-

ir. Margar innandyramyndir hans

er að finna f þinghúsinu og opin-

berum byggingum en hann gerði

elnnig mörg myndskurðarverk f

kirkjum.

Ríkarður stundaði kennslu fyrr

á árum í teikningu. Hann var for-

maður Listamannafélagsins á

stundum og Austfirðingafélags-

ins. Ríkarður var hagyrðingur og

birtust nokkur ljóð hans á prenti.

Ríkarður var kvæntur Mariu

Ólafsdóttur.

eru sirenurnar sjálfar i góðu ásig-

komulagi, og auðvelt að setja þær

i gang með ræsi á staðnum, sagði

Hallgrímur.

Starfsmenn Almannavarnar-

ráðs voru við Kröflu í gær-

morgun, og gerðu úttekt á ástandi

öryggiskerfisins þar. Sagði

Hallgrímur, að þeir hefðu ekki

bent á nein ákveðin atriði, sem

hefðu farið úrskeiðis frá upphaf-

legri áætlun og ekki hefði þegar

verið, byrjað að lagfæra. í sam-

bandi við ræsibúnað sírena beint

frá skjálftavaktinni i Reynihlíð,

sagði Hallgrímur Pálsson, að fólki

við Kröflu þætti þaó tvíbent ráð-

stöfun að setja slíkt kerfi upp.

— Milli Reynihlíðar og Kröflu

er símasamband allan sólarhring-

inn alla vikuna og auk þess gott

talstöðvarsamband, sagði Hall-

grímur. — Við viljum að það sé

vegið og metið hér hvenær eigi að

telja að um hættuástand sé að

ræða, en þó að sjálfsgögðu í sam-

ráði við skjálftavaktina. Ef

sírenurnar yrðu einhliða settar af

stað úr Reynihlíð, teljum við að

það myndi jafnvel skapa

öngþveiti og setja öryggiskerfið

úr lagi.

A sjálfu Kröflusvæðinu er

starfandi nokkurs konar al-

Framhald á bls. 18

Mikill skort-

ur á blóði í

Blóðbankanum

MIKILL skortur er nú á blóði í

Blóðbankanum og á það við alla

blóðflokka. Segja má að blóð-

þnrrð sé þar þótt blóð sé gefið f

bankann daglega. Ástæðan er sú,

að sérstaklega mikið er utn

aðgerðir á sjúkrahúsunum og

blóð, sem berst Blóðbankanum,

fer samstundis til sjúkrahúsanna.

Horft hefur til vandræða sfð-

ustu daga af þessum sökum, en

fólk er þó fljótt til að hlaupa

undir bagga. Blóðbankinn þiggur

aðstoð fólks með þökkum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32