Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 13. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						30

MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1977

Setja veðurguðirnir

strik í reikninginn?

GETRAUNAÞATTUR

MORGUNBLAÐSINS

ÞEIR gerast nú æði leiðigjarnir

veðurguðirnir á Bretlandseyjum

þar sem þeir spilla leikjapró-

gramminu viku eftir viku og

klekkja auðvitað um leið á get-

spekingum Morgunblaðsins. Nú

er bara að vona, að þeir sjái að sér

og láti okkur i friði héðan í frá.

Birmingham—Manchester Utd.

Tvöfaldur 1 eða 2.

Þessi lið eru meðal þeirra fáu i

deildinni, sem leika með tveim

kantmönnum og með það í huga,

gæti hér orðið um skemmtilega

viðureign að ræða. Spáin er tvö-

föld, ekki jafntefli, heldur annað

hvort heimasigur eða útisigur

(2—1) eða (1—2).

Bristol C—Arsenal. x

Hér teljum við okkur finna

ramman jafnteflisfnyk og treyst-

um við fullkomlega á þefskyn

okkar. Jafntefli (1—1).

Coventry—Middlesbrough. x.

Middlesbrough er ekki eins

pottþétt lið að spá um síðan þeir

fóru að skora mörk síðustu vik-

urnar, í haust var nóg að spá

dauðu jafntefli og þar með var

einn leikur öruggur. Nú er það

ekki svo einfalt. Coventry er

sterkt heimalið, en við spáum því,

að þeir nái ekki að knýja fram

sigur og ekki M.borom heldur.

Jafntefli, já 0—0.

Derby—Newcastle. x.

Derby-liðið er marga kílómetra

frá styrkleika sínum undanfarin

ár og er það skoðun okkar að þeir

nái heppnisjafntefli gegn góðu

liði Newcastle. Jafntefli (1—1)

Everton—QPR. Tvöfaldur x eða

1.

Þessi lið eru furðu neðarlega í

stiganum miðað við allar stjörn-

urnar innanborðs. QPR er enn án

sigurs á utivelli og er því önnur

spáin heimasigur (3—2), en á

hinn bóginn hefur Everton geng-

ið illa i deildakeppninni til þessa

eins og fyrr segir og er þvi vara-

spáin jafntefli (2—2).

Manchester C—Leicester C. 1.

Hér teljum við líkurnar á

heimasigri vera yfirgnæfandi

miklar, a.m.k. meiri heldur en lik-

urnar á jafntefli eða útisigri.

Heimasigur (2—0).

Norwich—Liverpool Tvöfaldur, x

eða2.

Aðalspáin er sú, að Liverpool

steli báðum stigunum með einu

marki, útisigur (0—1). Til vara

tippum við á jafntefli án marka

og litla skemmtun fyrir áhorfend-

ur.

Sunderland—Stoke. x.

Hér eigast við tvö lið, sem hafa

gleymt því, hvað mark er og væru

hátt skrifuð ef skora ætti sem

minnst. Við teljum, að hér verði

lítil breyting á og hvorugt liðið

skori. Jafntefli (0—0).

Tottenham—Ipswich. Tvöfaldur

x eða 2.

Hér spáum við að verði fjörugt

marka-jafntefli en hugsanlega

naumur útisigur (2—2) eða

(2—3). Ipswich hefur nú leikið

16 leiki I röð án taps og sá

sautjándi bætist væntanlega við á

laugardag ef ekki snjóar allt í kaf.

WBA—Leeds. x.

Hér er sama fýlan á sveimi og

yfir leik Bristol og Arsenal og

mun þefskynið ekki bregðast hér

fremur en þar. Jafntefli (1—1).

West Ham— Aston Villa. 2.

Aston Villa er mörgum gæða-

flokkum betra sóknarlið en West

Ham og mun það að okkar mati

gera útslagið, útisigur (1—3), og

enn einn naglinn i likkistu West

Ham rekinn inn.

Burnley—Wolves. 2.

Úlfarnir eru með albestu útilið-

um sem finnst um þessar mundir

en Burnley á hinn bóginn er með

allélegustu liðum annarrar deild-

ar og ættu Ulfarnir að vinna

þennan leik nokkuð örugglega.

Utisigur (2—4).

—gg.

§K>*^ft*,?i5*

Nokkrir þeirra kappa sem verða væntanlega f sviðsljósinu næsta sumar. Pétur Pétursson frá Akranesi í

baráttu við Magnús Bergs og Hermann Gunnarsson, Valsmenn, í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ 8.1. sumar.

íslandsmótið hefst 5. maí

Víkingur og KR verða fyrst í sviðsljóanu

Einokun austurrísku

— Þetta reynist ekki eins erfitt

viðureignar og ætlað var fyrir-

fram, sagði Gylfa Þórðarson, for-

maður mótanefndar KSt, f viðtali

við Morgunblaðið f gær, en Gylfi

og félagar hans f nefndinni eru

nú vel á veg komnir með að raða

niður leikjum f Islandsmótinu.

Mun keppni f 1. deild hefjast um

viku fyrr en f fyrra og verður

fyrsti leikur deildarinnar 5. maf.

Verða Vfkingur og KR sem þá

leiða saman hesta sfna. Vfkingar

eiga einnig sfðasta leik mótsins

og verða mótherjar þá núverandi

tslandsmeistarar Vals. Sá leikur

á að fara fram 25. ágúst.

—  Það er stefnt að því að jafn-

an fari fram heil umferð í einu,

oftast á tveimur dögum, sagði

Gylfi Þórðarson i viðtalinu við

Morgunblaðið. —Það hjálpaði

okkur einnig mikið við niður-

röðunina, að búið var að ákveða

alla landsleiki sumarsins s.l.

haust og því var hægt að skipu-

leggja Islandsmótið út frá þeim.

Þannig   mun   verða   gert   í   það

minnsta vakuhlé á leikjum 1.

deildarinnar fyrir landsleikina til

þess að landsliðið geti fengið tima

til samæfinga.

Landsleikir i knattspyrnu verða

sjö næsta sumar — f jórir hérlend-

is og þrír erlendis. Fyrsti lands-

leikurinn verður við Færeyinga

21. maí, 11. júní verður leikið við

Norður-Ira i heimsmeistara-

keppninni, 30. júni verður leikið

við Norðmenn og 20. júlí við Svía.

Allir þessir leikir verða hérlend-

is. Fljótlega að loknu tslands-

mótinu mun landsliðið halda utan

og 31. ágúst á það að leika við

Hollendinga f Hollandi í heims-

meistarakeppninni og siðan 4.

september við Belgiumenn. Síð-

asti landsleikur keppnistímabils-

ins verður svo við Norður-íra í

írlandi og mun hann fara fram

21. september.

Samhliða fslandsmótinu á svo

bikarkeppni KSl að fara fram, og

verða t.d.  16-liða úrslitin, er 1.

deildar liðin koma inn i keppnina

dagana 12. og 13. jiílí. — Fyrir-

komulag bikarkeppninnar verður

þannig að þegar komið er í 16.

liða úrslitin verða jafnan hafðir

lausir dagar í vikunni eftir þá

leiki svo unnt sé að koma fyrir

aukaleikjum ef um jafntefli verð-

ur að ræða, sagði Gylfi.

Keppnin I 2. deild mun svo hef j-

ast 14. mai og verður þar leikin

ein umferð I viku hverri fram í

miðjan septmeber, að fyrstu vik-

unni í ágúst undanskilinni.

Keppnin í þriðju deild verður svo

með svipuðu fyrirkomulagi og

undanfarin ár. Liklegt er þó að

keppt verði i átta riðlum, og er

það gert til þess að minnka ferða-

kostnað liðanna í deildinni. Sagði

Gylfi að það færi nokkuð eftir þvi

hvort tvö ný félög f Reykjavik,

sem boðað hafa þátttöku sina i 3.

deildar keppninni, Óðinn og Létt-

ir, yrðu samþykkt. Fengju þau

ekki að vera með gæti svo f arið að

riðlarnir yrðu ekki nema sex.

stúlknanna var hnekkt   ™«

TVtTUG stúlka frá Sviss, Berna-

detta Ziirbriggen, batt enda á

óslitna sigurgöngu austurrfskra

stúlkna f brunkeppni heimsbikar-

keppni kvenna f vetur, er hún

sigraði f keppni sem fram fór f

Schruns f gær. Og það sem meira

var: Austurrfskar stúlkur náðu

ekki heldur öðru eða þriðja sæti.

Brautin í Schruns, sem er 2.215

metra löng með 536 metra fall-

hæð, þykir mjög erfið og var hin

fræga Anne Marie Pröll Moser

ein þeirra stúlkna, sem fóru flatt i

heinni. Pröll hlekktist á ofarlega í

Bernadette Ztirbriggen

brautinni og fékk slæma byltu.

Óttuðust flestir er sáu byltu henn-

ar að hún hefði hlotið slæm

meiðsli, en svo reyndist þó ekki

vera. Pröll slapp lítið meidd, og

verður sennilega fljótt tilbúin í

slaginn aðnýju.

Zurbriggen fékk tímann 1:23,49

mín., en önnur varð Evi Mitter-

maier frá Vestur-Þýzkalandi á

1:23,85 mín. og í þriðja sæti varð

Marie-Therese Nadig, gullverð-

launahafinn í bruni frá Ólympíu-

leikunum í Sapporo á 1:23,95 min.

I fjórða sæti varð svo Brigitte

Habersatter frá Austurríki á

1:24,24, fimmta varð Nicola

Spiess, Austurriki, á 1:24,43 mín.

og sjötta varð Irene Epple, V-

Þýzkalandi, á 1:24,45 mín.

Þrátt fyrir óhappið í gær er

Anne M:rie Pröll Moser enn með

góða forystu i stigakeppni heims-

bikarkeppninnar. Hefur hún sam-

tals 142 stig. 1 öðru sæti er

Brigitte Habersatter með 121 stig,

þriðja er Lise Marie Morerod frá

Sviss með 95 stig, f jórða er Hanny

Wenzel frá Lichtenstein með 83

stig, fimmta Marie Therese Nadig

með 74 stig, Zurbriggen er sjötta

með 71 stig, og í sjöunda sæti er

Nicola Spiess með 61 stig.

AÐALFUNDUR Ungmennafé-

lagsins Aftureldingar í Mosfells-

sveit verður haldinn fimmtudag-

inn 20. janúar n.k. og hefst kl.

20.00 i Brúarlandi. Jafnframt

verða haldnir aðalfundir hand-

knattleiks- og knattspyrnudeildar

fél'ígsins.

BADMINTONMOT

KR-INGAR gangast fyrir opnu

badmintonmóti í tvilaðaleik karla

og kvenna i KR-húsinu 29. janúar

n.k. og á mót þetta að hefjast kl.

13.00. Þátttaka tilkynnist til Frið-

leifs Stefánssonar fyrir 26. janúar

n.k.

Arni Þór Helgason — náði góðum árangri f Kaupmannahöfn

Ámi náðí góðum árangri

ARNI Þór Helgason, lyftingamað-

ur úr KR, varð þriðji í sinum

þyngdarflokki á miklu lyftinga-

móti sem fram fór í Kaupmanna-

höfn um síðustu helgi.  Þátttak-

endur i móti þessu voru frá 9

löndum og meðal þeirra margir af

beztu lyftingámönnum heims. Á

mótinu voru sett þrjú landsmet

eitt danskt og tvö sænsk. Metin

settu Preben Krebs frá Dan-

mörku, sem lyfti 180 kg i jafnhött-

un í 100 kg flokknum, og Svíinn

Leif Nilsson, sem lyfti 215 kg i

jafnhöttun I yfirþungaflokknum

og 375 kg alls.

Arni Þór Helgason keppti í 90

kg flokknum. Hann lyfti 295 kg

alls, en ekki er vitað hvernig gekk

i  hvorri   keppnisgrein  fyrir  sig.

Sigurvegari í þessum þyngdar-

flokki varð Broillejt frá Sviss sem

lyfti samtals 355 kg og í öðru sæti

varð Stefan Jakobsson frá Svi-

þjóð sem lyfti 352 kg.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32