Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUCJARDAGUR 26. FEBRUAR 1977 3 Hringur Jóhannesson sýnir á Kjarvalsstöðum í dag opnar Hringur Jóhannesson sýningu á Kjarvais- stöðum á fimmtíu og einu olíumálverki og fjörutíu og þremur teikningum. Teikningarnar á sýningunni ná yfir fimmtán ára tímabil, en málverkin eru elzt þriggja ára. Öll verkin eru til sölu Hringur Jóhannesson hefur haldið ellefu meiri háttar einka- sýningar. Á núna níu olíupastel- myndir á farandsýningunni Öga mot öga, sem fer milli höfuðborga Norðurlanda um þessar mundir. Sýning hans á Kjarvalsstöðum opnar klukkan 14 í dag. Hún verður opin alla virka daga frá kl. 16—22 og um helgar frá kl. 14—22. og stendur hún fram til 13. marz næstkomandi. Aðalsteinn Ingólfsson hefur ritað formála um Hring i vandaðan kynningarbækling sem kemur út í tilefni af sýningunni. Þar segir m.a.: „Um 1950 kom fram ný kynslóð í ísle'nzkri list, skóluð í frönskum og amerískum listaakademíum og opinberaði hún verk sín á hinum árvissu og umdeildu septembersýningum. Rauðsokkar kynna Ástu Sigurðar- dóttur skáldkonu Á morgun, sunnudag hefst i Norræna húsinu kl. 15 tveggja tima dagskrá um Ástu Sigurðardóttur skáldkonu og verk hennar. Það er starfshópur innan Rauðsokkahreyfingarinnar, sem stendur fyrir þess- ari dagskrá. t starfshópi þessum eru Bríet Héðinsdóttir, Silja Aðal- steinsdóttir, Elfsabet Gunnarsdóttir, Kristtn Anna Þórarinsdóttir og Helga Ólafsdóttir. Hafa þær unnið að dagskrðnni og undirbúið sfðast- liðna tvo mánuði. Var það að sögn mikið verk að leita uppi bæði óbirt Ijóð og smásögur eftir Ástu og viða að sér heimildum. hún gerði i verkum sinum og fyrir það væru islenzkir Rauðsokkar henni þakklátir. Á dagskránni i Norræna húsinu verður lesið úr ritverkum Ástu Sigurðardóttur og myndir eftir hana og af henni verða til sýnis i anddyri hússins út alla næstu viku. Þarna verða kynnt verk, sem ekki hafa komið fyrir al- menningssjónir áður. Gunnar Reynir Sveinsson hefur í tilefni þessarar listkynningar samið lög við fjögur ljóð Ástu. Dagskráin hefst á því að Oddný Sigurðardóttir, systir skákdkon- unnar, fer nokkrum orðum um æsku þeirra systra og uppvöxt. Síðan les Bríet Héðinsdóttir leik- kona óbirta smásögu eftir Ástu, sem heitir Kona Sfmonar frá Kýrene. Þá les Silja Aðalsteins- dóttir samsöguna Sunnudags- kvöld til mánudagsmorguns. Kristín Anna Þórarinsdóttir les bæði birt og óbirt ljóð eftir skáld- konuna. Elísabet Gunnarsdóttir gerir síðan grein fyrir málverkum þeim sem hanga í anddyrinu eftir Ástu. ■'< í enda dagskrárinnar frumflyt- ur Gunnar Reynir Sveinsson ásamt fleiri tónlistarmönnum, Framhald á bls 22. Tilgangurinn með þessari dag- skrá er að minna á góðan lista- mann, sem sjálfsagt sumir hafa aldrei kynnst eða gleymt, að því er starfshópurinn sagði. Önnur ástæðan, sem starfshópurinn hafði orð á, var að Ásta Sigurðar- dóttir hefði verið á undan sinni samtíð og enginn orðið á undan henni til að fjalla opinskátt og mannlega um mál kvenna, eins Ásta Sigurðardóttir. Verk þessarar nýju kynslóðar einkenndust að vísu af expressjónisma þeim, sem sett hafði mark sitt á list næstu kyn- slóðar á undan, en var þó með óhlutlægara yfirbragði undir áhrifum frá Píkassó og hinni seið- mögnuðu Kóbra list, sem Svavar Guðnason hafi komið með frá Kaupmannahöfn. Upp úr 1953 fékk þessi nýja íslenzka list á sig huglægari blæ fyrir áhrif geómetriskrar listar frá Frakk- landi og um 5—6 ára skeið réði geómetrían lögum og lofum á flestum þeim sýningum, sem haldnar voru í Reykjavík. Ef skoðuð eru fæðingarár lista- manna, þá tengjast Hringur Jóhannesson, Sverrir Haraldsson og Guðmundur Erró þessari kyn- slóð...“ Menntamálaráðherra setur einvígi Spasskys og Horts í dag VERÐLAUNAFÉÐ er þeir Spassky og Hort bera úr býtum á áskorendaeinvíginu, sem hefst á Hótel Loftleiðum í dag, er mun meira en félagar þeirra keppa um á hinum áskorendamótunum þremur. Samtals er keppt hér um upphæð, sem nemur 32 þúsund svissneskum frönkum. Sigurvegarinn fær um eina og hálfa milljón íslenzkar krónur en sá er tapar um 800 þúsund krónur. Aætlað er, að mótshaldið hér kosti um sex milljónir króna, en til samanburðar má geta þess að veltan á „einvígi aldarinn- ar" — einvígi þeirra Fischers og Spasskys 1972 — var um 70 milljónir króna. Nú er ekki keppt um heims- meistaratitil, og þó að verðlauna- upphæðin sé ekki likt því eins há og var fyrir fimm árum ætla aðstand- endur mótshaldsins hér að gera það eftirminnilegt. Þeir hafa ekki haft mikinn tíma til stefnu, en undirbún- ingur hefur gengið vel síðustu daga, og i gær var allt á rúi og stúi í salarkynnum Hótels Loftleiða, þar sem mótið verður sett í dag Verið var að setja upp alls kyns borð og klukkur, sjónvarpskerfi og aukinn Ijósbúnað svo nokkuð sé nefnt Allt á að vera komið á sinn stað þegar mótssetningin hefst klukkan 1 6 Við setninguna mun Einar Einars- son, forseti Skáksambandsins, flytja ávarp, en siðan setur Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra einvígið Þá mun Guðmundur Arn- laugsson, yfirdómari einvígisins láta keppendur draga um lit í fyrstu skákinni Að því loknu verður gest- um boðið upp á veitingar, en síðan gefst þeim kostur á að fylgjast með fyrstu leikunum í áskorendamótun- um i Lucerne og Rotterdam. Viðstaddir setninguna í dag verða menntamálaráðherra, Matthías Á. Matthiesen fjármálaráðherra og trú- lega fleiri úr ríkisstjórninni Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri og borgarstjórinn í Dublin, sem hér er i heimsókn, sendiherra Sovétríkjanna --------------------------- Getraunir á einvíginu? SÚ hugmynd hefur komið fram að þegar líða tekur á einvígi Spasskys og Horts verði gefnir út einhvers kon- ar getraunaseðlar. Er ekki að efa að slíkt mundi mælast vel fyrir meðal skákunn- enda og þá færa Skáksam- bandinu eitthvert fé í aðra hönd. Eins og fram hefur komið er verð aðgöngumiða 750 krónur á hverjá einstaka umferð. Hver aðgöngumiði gildir einnig sem happ- drættismiði og er vinningur- inn sólarlandaferð með Sunnu. á íslandi. tékkneski verzlunarfull- trúinn og framámenn úr skákhreyf ingunni Ekki höfðu erlendir blaða menn boðað komu sína vegna ein- vígisins í gær, nema hvað Alster aðstoðarmaður Horts er frétta- maður Fyrsta umferðin í einvígi Spasskýs og Horts verður síðan tefld á sunnu- daginn og hefst hún klukkan 14 og verður teflt til klukkan 19 Síðan verður teflt á þriðjudögum, fimmtu- dögum og sunnudögum, 12 skákir þar til annar hvor keppendinn nær 6V2 vinningi Takist það ekki i fyrstu 12 umferðunum, verður teflt þar til annar hvor vinnur skák Biðskákir verða tefldar á mánudögum og mið- vikudögum klukkan 1 7 og á föstu- dögum kl 10 Á þriðjudögum og fimmtudögum hefst keppnin sömu- leiðis klukkan 1 7 Skáksambandið hefur gefið út vandaða leikskrá vegna einvigisins og eru þar i upphafi ávörp frá for- seta Skáksambandsins. mennta- málaráðherra og borgarstjóranum i Reykjavík Birtur er útdráttur úr reglugerð Alþjóðaskáksambandsins. FIDE, um áskorendaeinvigi Gunnar Gunnarsson skrifar grein, er ber heitið „Hvers vegna er ísland stór- veldi i skák?" Einar Einarsson skrifar um aðdraganda einvigisins, Jóhann Örn Sigurjónsson um „forkeppni heimsmeistarakeppninnar. sem nú stendur yfir", Þráinn Guðmundsson um „einvígi aldarinnar" og loks skrifar Jón Pálsson um lif og skák- feril þeirra Horts og Spasskys Leik- skráin er 44 siður að stærð Þá hefur Skáksambandið látið gera skemmtilegt plakat með merki mótsins Frú Larsen eigin- manninum til hjálpar Kostnaður við einvíg- ið um 6 milljónir kr. Dr. Ladislav Alster var væntanlegur til landsins ( gær- kvöldi, en hann verður að- stoðarmaður Horts f einvfgi hans við Spassky. Eins og kunn- ugt er verður stórmeistarinn Smyslov Spassky til aðstoðar og kom hann til landsins eins og Spassky sfðasta sunnudag. A hinum áskorendamótunum þremur, á ftalíu, Sviss og Hol- landi, verða margir stórmeist- arar í baráttunni, auk þeirra sex sem sitja við sjálft skák- borðið. Þannig hefur Petrosjan fyrrum heimsmeistari eigi færri en þrjá sovézka stórmeist- ara sér til trausts og halds. Er Geller þar fremstur í flokki. Mecking til aðstoðar verður ítalinn Mariotti og Poluga- jevski verður með 2 sovézka stórmeistara með sér. Hollend- ingurinn Ree verður Kortchnoi til aðstoðar gegn Petrosjan. Szabo og Ribli verða aðstoðar- menn Portich gegn Larsen. Lar- sen til trausts og halds meðan á einvíginu í Rotterdam stendur verður hins vegar eiginkona hans, frú Larsen. Eins og fram kom í fréttum á sínum tíma fór Kortchnoi þess á leit við Friðrik Ólafsson að hann aðstoðaði hann í mótinu gegn Petrosjan. Hafði Friðrik mikinn áhuga á þessu, en sá sér það hins vegar ekki fært, þar sem hann teflir á mótinu i V- Þýzkalandi og Sviss á næst- unni. Stjórnarmenn úr Skáksambandinu virða fyrir sér plakat það, sem Skáksambandið lét gera í tilefni einvfgisins. Frá vinstri: Þráinn Guðmundsson, Sverrir Norðfjörð, Einar S. Einarsson, Högni Torfason, Hálfdán Hermannsson og Ómar Jónsson. (Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.) Dr. Ladislav Alster, sem verður aðstoðarmaður Horts á einvíg- inu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.