Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977
3
K jarnf ódur lid-
urinn lækkaði
hækkar um 7.7%, dísilolia um
11.08%, flutningskostnaður um
7.92%, fasteignagjöld um 23.1%,
rafmagn um 14.3% og^ýmis kostn-
aður um 4.2% en þar er einkum
um að ræða kostnað við dýralækn-
ingar og lyf.
Loðnuaflinn yfir
13 þúsund tonn
Höfn. Hornafirði 1. marz.
FRÁ áramótum er heildarafli
kominn á land á Höfn í Horna-
firði 1281 tonn af bolfiski og
13540 tonn af loðnu eða 14822
tonn. Á sama timá í fyrra var
bolfiskafli 745 tonn og loðna 8037
tonn, eða 6040 tonnum minni. Bol-
fiskaflinn skiptist þannig eftir
veiðarfærum: Togarinn Skinney
390 tonn í 5 löndunum. Aðeins
einn bátur, Gissur hvíti, hefur
róið með línu og aflað 320 tonn í
33 róðrum. Fimm bátar hafa verið
á togveiðum og er afli þeirra 317
tonn i 35 sjóferðum. Sjö bátar eru
byrjaðir með net og hafa farið 69
sjóferðir og er afli þeirra aðeins
254 tonn eða um 3M tonn i sjóferð.
Loðnumjölsframleiðslan gengur
vel og er hún orðin 1500 tonn og
búið er að afskipa 420 tonnum af
lýsi. — Gunnar.
Orkuspá til aldamóta:
Til viðbótar Sigöldu þarf
þrjár virkjanir á stærð
við Hrauneyjarfossvirkjun
Ljósm. Frmþjotur.
Á fundi orkuspárnefndar með fréttamönnum í gær. Á myndinni má m.a. sjá Jakoh Björnsson
orkumálastjóra, sem situr fremst til vinstri.
NÝTT verð á landbúnaðarvörum
tók gildi I gær og nemur hækkun
á algengustu búvörutegundum
5—7%. Verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarvara hækkar hins
vegar um 4.4% og þar af hækkar
launaliður bóndans um 7.63% frá
siðustu verðlagningu 1. desember
sl. Einn liður verðlagsgrundvallar
lækk'ar en það er kjarnfóður, sem
lækkar um 2.1% eða um 14000
krónur. Hækkun á einstökum lið-
um verðlagsgrundvallar er sem
hér segir: Aðkeypt viðgerðavinna
TIL AÐ anna áætlaðri raforku-
þörf árið 2000 verða tvær virkjan-
ir á stærð við Hrauneyjarfoss-
virkjun að rfsa hér á landi á árun-
um 1980—2000, að Hrauneyjar-
fossvirkjun lokinni. Að Sigöldu-
virkjun meðtalinni, en Hrauneyj-
arfossvirkjun undanskilinni þýð-
ir þetta 1 raun tvöföldun afkasta-
getu virkjana landsins. Kemur
þetta I Ijós ef skoðaðar eru niður-
stöður orkuspár sem samstarfs-
nefnd Orkustofnunar, Lands-
virkjunar, Rafmagnsveitu
Reykjavfkur, Rafmagnsveitna
rfkisins, Laxárvirkjunar og Sam-
bands fslenzkra rafveitna hefur
nú látið frá sér fara, og kynnti
fjölmiðlum f gær.
Samkvæmt orkuspá þessari er
gert ráð fyrir að raforkuþörf
landsmanna um næstu aldamót
verði um 6370 gígawattstundir, en
afkastageta virkjana landsins, að
Sigölduvirkjun meðtalinni, er um
3300 gigawattstundir. Sé reiknað
með að orkuvinnsla Hrauneyjar-
fossvirkjunar verði um 1000 gíga-
wattstundir þarf tvær aðrar eins
til að hægt sé að anna þessari
spáðu þörf. í spánni um orkuþörf
er siðan aðeins reiknað með þeirri
stóriðju sem nú þegar hefur verið
samið um, svo verði teknar
ákvarðanir um aðra frekari stór-
iðju mun sú orka sem til hennar
þarf bætast við það sem spá sam-
starfsnefndarinnar gerir ráð fyr-
ir. Þá hefur orkuspárnefndin lagt
til grundvallar spánni mann-
fjöldaspá og spá um mannafla í
einstökum atvinnugreinum sem
Framkvæmdastofnun rikisins
hefur gert, svo breytist þessar
spár breytist raforkuspáin einnig.
Raforkuspáin er miðuð við þá
forsendu, hvað húshitun varðar,
að forgangsorka komi i stað oliu
til hitunar húsrýmis I dreifbýli og
i þéttbýli þar sem möguleikar á
öflun jarðvarma eru taldir litlir
eða vafasamir sem stendur. Gert
er ráð fyrir að þessi umskipti á
hitunaraðferð eigi sér stað að
25,7%
hækkun
auglýsinga
útvarps
ÁKVEÐIN hefur verið hækk-
un á auglýsingataxta Ríkisút-
varpsins á tilkynningum, sem
lesnar eru í hljóðvarpi. Meðal-
talshækkun auglýsinganna er
15,7%.
Samkvæmt upplýsingum
Gunnars Vagnssonar, fjár-
málastjóra útvarpsins, er um
fjóra verðflokka að ræða.
Lægsti verðflokkurinn hækkar
úr 95 krónum orðið í 120 krón-
ur eða um 26,3%. í þeim flokki
eru jarðarfarartilkynningar,
auglýsingar frá kirkjunni og
liknarfélögum. Annar flokkur
hækkar úr 150 krónum hvert
orð i 190 krónur eða um 26,6%.
í þessum flokki eru verzlunar-
auglýsingar, sem lesnar eru
klukkan 09.30 og klukkan
16.00. Þriðji flokkur hækkar
úr 180 krónum hvert orð i 225
krónur eða um 25%. i þeim
flokki er almennar verzlunar-
auglýsingar, sem lesnar eru á
öðrum timum, en getið er um i
sambandi við annan flokk.
Fjórði flokkur hækkar úr 360
krónum hvert orð i 450 krónur
eða um 25%, en íhonum eru
tilkynningar, sem lesnar eru
eftir kvöldfréttir hvers efnis
sem eru.
Ekkert kom fram sem
studdi fullyrðingu um
fíkniefnaneyzlu 1 skólum
NIÐURSTÖÐUR könnunar, sem
fram fór um neyzlu flkniefna I
skólum, var f gær rædd f borgar-
ráði Reykjavfkur. Samkvæmt
upplýsingum Krisjáns J. Gunn-
arssonar námsstjóra voru niður-
stöðurnar þær að ekkert kom
fram, sem styður fullyrðinguna
um að ffkniefna væri neytt f skól-
um eða þau seld þar.
Kristján sagði að leitað hefði
verið til allra skólanna, skóla-
stjóra, kennara og nemenda og til
yfirsakadómara og sakadómara i
ávana-og fikniefnarannsóknum.
Kom þar hvergi neitt fram, sem
studdi þessa fullyrðingu, sem svo
mjög hefur valdið umtali meðal
fólks.
Þá sagði Kristján J. Gunnarsson
að ákveðið hefði verið i borgar-
ráði að blöðum yrði send fréttatil-
kynning, þar sem nákvæmar yrði
skýrt frá þessum niðurstöðum.
langmestu leyti fyrir 1985. Ef
húshitun í þéttbýli verður leyst
með fjarvarmaveitum frá olíu- og
rafskautakötlum í kyndistöðvum í
stað beinnar rafhitunar kæmi af-
gangsorka og olla í stað ofan-
greindrar forgangsorku að hluta,
og lækkar þá rafhitunarspáin,
sem því nemur.
Raforkuspá orkuspárnefndar-
innar tekur ekki til afgangsorku
til neinna nota, enda hefur sala
hennar ekki áhrif á stærð og tfma-
setningu virkjana, segir í spánni.
Að öðru leyti sýnir raforkuspáin
þá orkunotkun, sem að mati
nefndarinnar er þörf fyrir á
hverjum tíma. Hún tekur ekki
mið af þvi að orkunotkun verði
haldið niðri með beinni skömmt-
un, né haldur eð hún haldist niðri
vegna þess að orkan sé ekki tiltæk
þeim notendum, sem á henni
þurfa að halda, vegna takmark-
aðrar vinnslugetu orkuvera og/
eða takmarkaðrar flutningsgetu
flutnings- og dreifikerfa.
Til að áætla þörfina fyrir raf-
magn til húshitunar i hverjum
landshluta er I raforkuspánni
gerð áætlun fyrur hvern byggðar-
kjarna landshlutans og dreifbýlið
i hverri sýslu, og metið að hve
miklu leyti hægt sé að nýta jarð-
hita til húshitunar. Samkvæmt
því er rafhitun árið 2000 áætluð
minnst á Suðurlandi og Reykja-
Framhald á bls. 19
Góður afli
Siglufirði, 1. marz —
STÁLVÍKIN landaði hér á milli
120 og 130 tonnum af Austfjarða-
miðum. Hér eru menn nú orðnir
heldur hissa á þvi, að ekki skuli
vera flutt hingað loðna, þegar svo
mikil löndunarbið er syðra og
verksmiðjurnar hér standa
aðgerðalausar.
Vertíðin hér meðal netabáta er
ein albezta vertiðin, sem komið
hefur í mörg ár. Er firkurinn, sem
veiðst hefur, bæði stór og falleg-
ur. Linubatur, sem rær héðan, er
með um 6 til 8 tonn í róðri. — m.j.
áætlunarflug
póstflug...
Suma árstíma er flugþjónusta Vængja hf. einu ®
samgöngumöguleikar fólksins í stórum byggða -
lögum. Við fljúgum reglulega til: " I
Hetlissands, Stykkishólms, Buóardals, Suöureyrar, Siglufjaröar. Bíldudals, Gjögurs.
Olafsvíkur, Hvammstanga, Reykhóla, Hólmavikur, Blönduóss Flateyrar,
Tökum að okkur
leiguf lug. sjúkraf lug.vöruf lug
hvert á land sem er.
Höfum á að skipa 9 og 19 farþega flugvélum.
öryggi • þægindi • hraðí
. VÆNGIR h/f
REYKJAVIKURFLUGVELLI — Símar 26066 — 26060