Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 30
%
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2, MARZ 1977
Nú er erfitt að
vera spámaður
Getraunaþáttur
Morgunblaðsins
ÞAÐ var ekkr að sökum aö
spyrja, aö um leið og viö fórum
aftur að spá eftir eigin sann-
færingu, þá fór strax að ganga
betur (8 réttir af 11). Aldrei
þessu vant, erum við ekki ýkja
bjartsýnir á snilldarframmi-
stöðu að þessu sinni, vegna
þess, að við teljum að seðillinn
nú sé einn sá erfiðasti i allan
vetur.
Arsenal — Ipswieh X.
Eftir góða frammistöðu fyrr í
vetur, hafa bæði þessi lið dalað
all-mikið upp á sfðkastið. Því
troðum við meðalveginn, jafn-
tefli (1—1).
Birmingham — Coventry 1.
Hér eigast við tvö rétt miðl-
ungs lið, en við teljum, að
heimavöllurinn skipti hér
megin máli og höllumst því að
heimasigri (3—1).
Bristol C — Everton X.
Everton hefur sótt sig
nokkuð undanfarið, en varla fá
þeir meir en eitt stig í Bristol,
því að heimaliðið er afar erfitt
heim að sækja. Jafntefli
(0—0).
Leeds — Middlesbrough X.
Hér finnst okkur jafntefli
einnig líklegast, vegna þess, að
okkur þykir bæði liðin ólíkleg
til taps (0—0).
Leicester — Aston Villa X.
Eitt jafnteflið enn, og ástæð-
urnar hinar sömu og f leik
Leeds og Middlesbrough fyrir
ofan og eins og þau keppa bæði
þessi lið að því að hljóta sæti i
Evrópukeppninni að ári og er
því mikilvægt að tapa ekki að
minnstakosti (2—2).
Liverpool — Newcastle 1.
Newcastle-liðið er eitt heima
og annað úti, en á útivöllum er
liðið oft æði örlátt á mörk til
handa andstæðingum sinum og
teljum við að Liverpool vinní
öruggan sigur (3—1).
Manehester Utd — Manchester
C. Tvöfaldur 1 eða X.
Óumdeilanlega mjög
athyglisverður leikur. City
hefur nú tapað tveim leikjum í
röð, eftir mikla sigurgöngu
fram að þvi, en United vinnur
hins vegar hvern leikinn af
öðrum um þessar mundir og
freistumst við því til að hafa
aðalspána heimasigur, (2—1).
Norwich —Tottenham I.
Árangur Tottenham hefur
verið lygilega lélegur i vetur,
meira að segja West Ham skor-
aði fimm sinnum hjá þeim og
annað botnlið, Derby, skoraði
átta. Tottenham eiga ekki
möguleika gegn all-þokkalegu
liði Norwich. Heimasigur
(3—0).
Stoke — QPR. Tvöfaldur X eða
2.
Miðað við hve lið Stoke er
slakt, er mesta furða hve vel
þvi gengur að hala inn stigin.
QPR hefur farið mikið fram
undanfarið og auk þess hefur
miklu leikjafargi verið létt af
þeim undanfarið er þeir voru
slegnir út úr bikarkeppnunum
ensku. Spá okkar er útisigur
eða jafntefli (0—2 eða 1—1).
Sunderland — West Ham. Tvö-
faldur, 1 eða X.
Fram eftir öllum vetri voru
lið þessi límd við botninn í
fyrstu deild, en nú hefur svo
brugðið við að þeim halda
engin bönd og vega þau nú á
báða bóga hvert liðið af öðru.
Einkum hefur Sunderland
farið í andlitslyftingu og hefur
liðið í þrem síðustu leikjum
sínum skorað aðeins tveim
mörkum minna en þeir höfðu
skorað allan veturinn fram að
því.
WBA — Derby 1.
WBA hefur lítið sýnt af viti á
nýja árinu, en Derby er svo
lélegt að WBA ætti að kippa þvi
i lag á laugardaginn (2—1).
Chelsea — Blackpool.
Tvöfaldur I eða X.
Jafntefli Chelsea við Bolton í
siðustu viku bendir til þess, að
liðið sé að ná sér aftur á strik
eftir hálfslakt tímabil. í sam-
ræmi við það tippum við á
heimasigur (2—0). Til vara er
jafntefli, ef Chelsea-liðið skyldi
enn vera eitthvað miður sin
(1 — 1). — gg-
Knattspyrnufélagið
Þróttur
Arshátíð
í Víkingasal Hótel Loftleiða föstudaginn
4. marz og hefst með borðhaldi kl.
19.30. Miðasala í Klausturhólum Lækjar-
götu og Háteigskjöri, Háteigsvegi 1.
Síðast var uppselt.
Skemmtine fndin.
SAGT EFTIR LEIKINN í LINZ
NÚ ÞEGAR segja má að íslendingar séu komnir með annan fótinn í
A-heimsmeistarakeppnina í Danmörku að ári, er sjálfsagt sú spurning
ofarlega i huga margra hvort Janusz Cerwinski fáist til áframhaldandi starfa
með íslenzka landsliðið. Morgunblaðið lagði þá spurningu fyrir Janusz eftir
leikinn I gærkvöldi, hvað hann hygðist gera:
— Ég hef mikinn áhuga á að starfa áfram að þjálfun íslenzka liðsins, sagði
Janusz. — Það hefur verið mjög gaman að vinna með þessum piltum, þeir
eru fullir af áhuga og fúsir að leggja mikla vinnu á sig. Þess vegna hef ég
áhuga á að starfa að undirbúningi íslenzka liðsins fyrir keppnina í Danmörku,
ef það kemst þangað, og stjórn Handknattleikssambands íslands hefur lýst
áhuga sínum á að ég haldi áfram með liðið. Verður unnið að því á næstunni
að ég geti komið málum mínum þannig fyrir að ég geti verið áfram með liðið
— ef það kemst áfram.
Sigurður Jónsson, formaður HSÍ, sagði það vera næsta stórmál HSÍ að fá
Janusz til áframhaldandi starfa, — það verður að takast sagði Sigurður.
íslenzku leikmennirnir eru einnig greinilega á því, að á öllu velti að Janusz
verði áfram með liðið, og kom raunar fram, þegar Morgunblaðið ræddi við
leikmennina, að það yrði forsenda þess að þeir héldu áfram að leggja eins
hart að sér og leika með liðinu, að svo yrði.
Um leikinn í gærkvöldi sagði Janusz.
— í þessum leik náði íslenzka liðið bezta „taktiska" leiknum sem það
hefur leikið undir minni stjórn, sagði Janusz Cerwinski í viðtali við Morgun-
blaðið í Linz f gærkvöldi. Strákarnir gerðu nákvæmlega allt sem fyrir þá var
lagt. Samvinnan var í fyrirrúmi í leiknum. Menn hugsuðu ekki um sjálfa sig
heldur fyrst og fremst og eingöngu um árangur liðsins.
Ég er auðvitað í sjöunda himni eftir þennan sigur okkar, þdð var búið að
vera mikil pressa á okkur, og hér í Austurríki var greinilegt að allir áttu von á
fremur auðveldum sigri Spánverja. Ég sagði áður en við fórum frá íslandi að
við yrðum að komast í A keppnina. Eftir þennan sigur eigum við mjög mikla
möguleika, og nú stefnum við að sigri í leiknum við Holland og þriðja sætinu
í keppninni. Hollenzka liðið leikur fremur einfaldan handknattleik að mínu
mati, en þeir geta samt sem áður orðið okkur hættulegir.
ÞIÐ VORUÐ EINFALD-
LEGA MIKLU BETRI
Ánægður jneð
Axel og Olaf
SIGURÐUR Jónsson, formaöur
Handkanttleiksambands tslands,
var einn hinna ánægðu íslend-
inga i Linz i gærkvöldi:
—Það er búið að vinna mjög
gott starf að þjálfun íslenzka liðs-
ins, sagði Sigurður, — og árangur
þess starfs er nú að koma í ljós.
Allt þetta starf hefur verið ákaf-
Iega ánægjulegt, ekki sízt vegna
þess meðbyrs sem við höfum haft
heima, og þess almenna áhuga
sem virðist ríkjandi á handknatt-
leiknum.
— Og ég verð að segja það beint
frá hjartanu, sagði Sigurður, —
að sennilega hefur enginn verið
ánægðari með það hvað þeir Ólaf-
ur og Axel komu vel frá þessum
leik en ég — þeir voru frábærir.
ÞURFUM AÐ NA
ÞRIÐJA SÆTINU
— Auðvitað er ég ánægður með
minn hlut í þessum leik, sagði
Axel Axelsson, sem í gærkvöldi
lék eins og hann gerði bezt i „hina
gömlu góðu daga“. — Vörnin var
góð hjá okkur i leiknum, og
sóknarleikurinn einnig allgóður,
sagði Axel, þótt hann dytti reynd-
ar niður á köflum. Þá má auðvitað
ekki gleyma þvi að markvarzla
Ólafs var stórkostlega góð, og kom
þar hið gamla fram, að ef við
stöndum okkur i vörninni, þá
fylgir hann á eftir. Nú er ekkert
annað en að hreppa þriðja sætið i
keppninni.
JOSE Perramon, mark-
vörður spánska liðsins og
bezti leikmaður þess í
leiknum f gærkvöldi sagði
f viðtali vð Morgunblaðið,
að einföld ástæða hefði
verið fyrir ðsigri Spán-
verja f leiknum. — Við réð-
um einfaldlega ekkert við
íslendingana, sagði hann,
— þeir voru miklu betri en
við, og sá sigur sem þeir un
u vvr verððdskuldaður. Við
vorum á toppnum fyrir
þremur mánuðum, og
erum greinilega á niður-
leið um þessar mundir. Við
höfum oft leikið betur en í
kvöld, og það er staðreynd
að okkur hefði ekki veitt af
okkar bezta til þess að eiga
möguleika í íslendingana.
Þegar Perramon var
spurður álits um beztu
leikmenn fslenzka liðsins
svaraði hann, að það hefðu
verið þeir Viðar Símonar-
son, Ólafur H. Jðnsson og
Axel Axelsson.
FANN MIG VEL
í LEIKNUM
— ÉG fann mig mjög vel í þessum
leik, sagði Ólafur Benediktsson
markvörður íslenzka liðsins í gær-
kvöldi.'— Það er segín Saga, að ef
vörnin stendur sig vel, þá gengúr
mér betur í markinu. Þetta var
góðurTeikur, sem við getum verið
ánægðir með, og sigurinn var
okkur mikilvægur. Ekki má þó
gleyma því að við eigum Hol-
lendinga eftir, og þurfum við auð-
vitað að „keyra“ á fullu f þeim
leik einnig.
BINGO ARSINS
I Sigtúni fimmtudaginn 3. marz. Húsiö opnaö kl. 19.30
og bingóiö hefst kl. 20.30.
Heildarverðmæti vinninga
GÓÐIR AUKAVINNINGAR
Spilaðar verða 18 umferðir.
Spjaldið kostar 300 kr. og inngangur 200 kr.
750.000
kr.
LITASJÓNVARP
2 sólarlandaferðir með Útsýn.
2 mokkajakkar saumaðir af steinari
Júliussyni feldskera.
Vikudvöl í Kerlingafjöllum.
Heimilistæki, ferðaviðtæki og fleira frá
Heimilistækjum sf.
*
Körfuknattleikssamband Islands