Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 Fagurmæli Í sjónvarpsþætti fyrir nokkrum dögum var fjallað um örlög Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna og flokksbrotin á vinstri væng stjórnmála- manna. Ólafur Ragnar Grfmsson, prófessor, taldi að eini flokkurinn sem gæti orðið samein- ingarvettvangur vinstri manna væri Alþýðu- bandalagið. Mesta athygli f mál- flutningi Ólafs Ragnars Grfmssonar vakti þó sú rfka áberzla, sem bann lagði á mikilvægi sam- starfs Alþýðuflokks og Alþýðubandalags f verkalýðshreyfingunni. Hann taldi, að sú sam- vinna, sem tekizt befði með þessum aðilum á sfðasta þingi Alþýðu- sambands Islands, væri merkasti árangur af sameiningarstarfinu á vinstri væng fslenzkra stjórnmála. Slfk fagur- mæli f garð Alþýðu- flokksins eru ekki ný af nálinni. Æviminningar Stefáns Jóhanns I æviminningum sfn- um rekur Stefán Jó- bann Stefánsson, for- maður Alþýðuflokks frá 1958—1954, nokkuð átökin milli jafnaðar- manna og kommúnista allt frá fyrstu dögum Alþýðuflokksins og seg- ir m.a.: „Eins og áður getur fór að bera á veru- legum ágreiningi innan flokksins strax um og eftir árið 1921. Urðu oft börð átök og mikil flokksstreita á milli þeirra, er aðhylltust kenningar kommúnista og hinna, er balda vildu flokknum á grundvelli sósfaldemókrata bæði um starfsaðferðir og stefnumið. Lengi var reynt að breiða yfir þennan ágreining og út á við gætti bans ekki ýkja mikið, þótt glögg augu andstæðinganna hlytu að verða hans vör. Við, sem vorum sósfal- demókratar, böfðum jafnan yfirböndina f stjórn flokksins, flest- um flokksfélögum og innan verkalýðssamtak- anna. En reipdráttur- inn harðnaði með bverju ári sem leið og að sjálfsögðu dró bann nokkuð úr baráttu- hæfni flokksins, þvf að verulegur blutur af orku bans fór f þessar deilur. Sú gjá, sem myndazt hafði milli þessara tveggja fylk- inga breikkaði óðum og varð að lokum óbrú- andi.“ Nokkru sfðar fjallar Stefán Jóhann Stefáns- son um sameiningarvið- ræður Alþýðuflokksins og Kommúnistaflokks- ins 1937 og lýsir afstöðu helztu forystumanna Alþýðuflokksins til þeirra með þessum orð- um: „Við bjuggumst að vfsu ekki við, að af þeirra hálfu yrði um neinn sameiningarvilja að ræða. Hitt þóttumst við sjá, að þeir myndu nota umræðurnar til þess að reyna að tvfstra röðum Alþýðuflokksins eða skapa þar óeiningu og riði þvf mikið á, að vel væri haldið á mál- stað Alþýðuflokksins og fulltrúar bans ekki ginntir með neinum fagurmælum kommún- ista.“ Allir þekkja þá sögu, sem á eftir fór, og verður bún ekki rakin hér. En kjarni hennar er sá, að frá upphafi til þessa dags hafa komm- únistar með blfðmælum eða hótunum reynt að koma Alþýðuflokknum á kné. Fyrir tveimur ár- um boðaði Ragnar Arn- alds dauða Alþýðu- flokksins f næstu kosn- ingum. Nú er Ólafur Ragnar sendur fram með fagurmæli. Hvoru tveggja þekkja Alþýðu- flokksmenn og ættu að vera reynslunni rýkari. Merkileg saga I þessum sjónvarps- þætti á dögunum bafði I Olafur Ragnar sem auð- . vitað er ekki kommún- I isti, en einn margra, | sem bafa látið blekkjast ■ til fylgilags við þá, ekki ' aðeins uppi fagurmæli | beldur Ifka ögranir f i garð Alþýðuflokksins. ' Hann talaði fagurlega | um mikilvægi sam- i starfs Alþýðuflokksins ' og Alþýðubandalagsins | f verkalýðshreyfing- | unni. A binn bóginn j ögraði hann Gylfa Þ. I Gfslasyni með þvf að I benda á, að f kosningun- um 1942 hefði styrk- I leíki Sósfalistaflokksins | og Alþýðuflokksins ver- . ið svipaður, en nú væri I Alþýðuflokkurinn helmingi minni flokkur . en Alþýðubandalagið. I Yfirlýsing Ragnars | Arnalds um að mark- ■ mið Alþýðubandalags- ' ins væri að ganga að Al- | þýðuflokknum dauðum i hefur aldrei verið dreg- in til baka. En skyldi | velþóknun Ólafs Ragn- | ars f þvf þjónustuhlut- verki, sem Alþýðu- I flokknum er ætlað að I taka að sér fyrir komm- únista f verkalýðshreyf- I ingunni, ekki verða til | þess að vekja upp gaml- i ar og óþægilegar minn- ' ingar bjá ýmsum Al- | þýðuflokksmönnum? Margir þeirra hefðu áreiðanlega gott af þvf I að taka æviminningar | Stefáns Jóbanns niður j úr hillum og lesa þær á I ný. Þar er reynsla Al- | þýðuflokksins af sam- . starfi við kommúnista I rakin. Og það er merki- | leg saga. Við eigum timbrið, hurðirnar og gluggana en þú átt næsta leik. w Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SIMI 85244 7 SSTRATFORD E N S K I R PENINGASKÁPAR þjófheldir — eldtraustir heimsþekkt — viðurkennd framleiðsla. j E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIROI — SÍMI 51888 Skuldabréf Vantar í umboðssölu nokkuð af 5 ára og 3 ára skuldabréfum Fyrirgreiðsluskrifs to fan, Fasteigna og verðbr.sala Vesturgötu 1 7 simi 16223. Blómaföndur Lærið að skreyta með blómum og ræktun stofublóma Uppl. og innritun í síma 42303 Nýjasta tölva með hornaföllum frá CASIO Fljótandi kristall i stafaborði, notar aðeins 1 rafhlöðu, Þykkt 14 mm Lengd 128 mm. Breidd 67 mm. Þyngd 93 g. Smellur i brjóstvasann. Verð kr. 12.900 — CASIO umboðið STÁLTÆKI, Vesturveri. S. 27510

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.