Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 Lér konungur frumsýndur í kvöld: Rúrik Haraldsson konungs. Þriðjudaginn 15. marz verður Lér konungur frumsýndur í Þjóðleik- húsinu. Þetta er eitt af frægustu verkum Shake- spears og jafnframt eitt af þeim kröfuhörðustu. Helgi Hálfdanarson hef- ur þýtt leikinn, leikstjóri er Hovhannes I. Pilikian og leikmynd hefur Ralph Koltai gert. Lér konung- ur hefur aldrei áður ver- ið fluttur á leiksviði á íslandi. Lér konugur er saminn um 1605 og sækir Shake- speare efnið í keltneskar sagnir, sem hann hefur kynnzt i krónikum Hlinsheds, en þangað sótti hann oft söguefni. Sagan af Lé og dætrum hans fær í meðförum Shakespeares næstum yf- irmannlega reisn, sem opnar yztu víddir í öllum mannlegum samskiptum og innbyrðis afstöðu per- sónanna; þarna er lýst hroka og niðurlægingu, eigingirni og fórnfýsi, of- stopa og blíðu, hinni sár- ustu neyð á mörkum vits og vitleysis og hinni dýpstu gleði og fullnæg- ingu. Leikurinn um Lé konung hefur löngum verið talinn einhver mesti harmleikur allra tíma; hann er saminn á því tímabili, sem kallað hefur verið harmleikja- skeið Shakespeares. Júl- íus Sesar varð til um 1600, Hamlet 1602, Othello tveimur árum síðar og Makbeð 1606. öll þessi leikrit hafa verið flutt hér á landi áður nema Lér, sem hins veg- ar hefur verið leikinn I útvarp. Steingrlmur Thorsteinsson þýddi Lé eða Lear, eins og hann heitir á frummáiinu, fyrstur á Islenzku um líkt leyti og Matthlas Jochumsson vann að sln- um miklu Shakespeares- þýðingum. Þýðing Helga Hálfdanarsonar birtist i f hlutverki Lés Baldvin Halldórsson f hlutverki ffflsins. Flosi Ólafsson Kent. f hlutverki jarlsins af Þórhallur Sigurðsson f hlutverki Jðt- geirs sonar Glosturjarls. safni hans af leikritum Shakespeares fyrir nokkrum árum og hefur að maklegheitum hlotið mikið lof. Þjóðleikhúsið hefur frá upphafi frum- flutt margar Shakespear- þýðingar Helga; Sem yð- ur þóknast, Draum á Jónsmessunótt, Júlíus Sesar, Þrettándakvöld, Othello og Kaupmanninn I Feneyjum en Leikfélag Reykjavikur hefur flutt Romeó Og Júlíu og Mak- beð. í þau tvö skipti, sem Hamlet hefur verið flutt- ur hér á sviði, var hins vegar notuð þýðing sr. Matthíasar. Rúmlega hálf öld er siðan leikrit Shake- speares voru fyrst kynnt íslenzkum leikhúsgest- um. Fyrst komu Þrett- ándakvöld og Vetrar- ævintýri I þýðingu Indr- iða Einarssonar, en síðar Kaupmaðurinn I Fen- eyjum I þýðingu Sigurð- ar Grímssonar. Það kemur I hlut Rúriks Haraldssonar að leika hér fyrstur manna hið margfræga og vanda- sama hlutverk Lés kon- ungs. Dætur hans þrjár, Goneril, Regan og Cordeliu, leika þær Krist- björg Kjeld, Anna Kristín Arngrímsdóttir og Steinunn Jóhannes- dóttir, fiflið er Baldvin Halldórsson og jarlinn af Kent leikur Flosi Ólafs- son. Erlingur Gíslason leik- ur Glostur jarl og syni hans tvo, Játmund og Játgeir, leika þeir Sig- urður Skúlason og Þór- hallur Sigurðsson. Með önnur stór hlutverk fara Gísli Alfreðsson, Sig- mundur Örn Arngríms- son, Róbert Arnfinnsson, Bessi Bjarnason, Jón Gunnarsson, Randver Þorláksson og fleiri. Að- stoðarleikstjóri er Stefán Baldursson, búninga hef- ur teiknað og annazt Jane Bond I samráði við leikmyndateiknara. Sýn- ingin á Lé konungi er með umfangsmestu fyrir- tækjum sem leikhúsið hefur ráðizt I, en alls koma um 40 manns fram I sýningunni. Flutningur á Lé tæki I óstyttu formi milli fimm til sex klukkustundir. Leikurinn er að sjálf- sögðu styttur I flutningi hér en eigi að siður er þetta löng sýning, sem tekur fjórar klukku- stundir I sýningu. Leikstjórinn Hovhann- es I. Pilikian er af mörg- um talinn I hópi áhuga- verðustu og frumlegustu yngri leikstjóra Breta i dag. Hann hefur einkum vakið athygli fyrir fersk- ar en vandaðar sýningarv á sígildim verkum, en meðal þeirra þrjátiu sýn- inga, sem hann hefur að baki eru þó nútimaverk, eftir Ionesco t.d. Hann hefur verið gistiprófess- or I Bandaríkjunum og stjórnað sem gestur leik- sýningum þar, m.a. Medeu. Einnig hefur hann verið gestaleik- stjóri í Júgóslavíu, þar sem hann stjórnaði Fedru eftir Racine, en leikmyndina gerði Josef Swoboda. Frægustu sýn- ingar hans i Bretlandi eru á Electru Evripides- ar í Edinborg (verðlaun skozka sjónvarpsins fyrir beztu leikstjórn 1971), sýningin var tekin upp með öðrum leikurum í London; Medeu í Yvonne Arnaud-leikhúdinu i Guildford, Ræningjum Schillers í Roundhouse- leikhúsinu og Ödipus konungi eftir Sofokles i hátíðarleikhúsinu í Chic- hester. Pilikian er um þessar mundir að vinna Leikstjörinn Hovtaannes I. Pilikian og aðstoðarleikstjöri s.1. föstudag. Stef&n Baldursson fylgjast meðæfingu Ljösm. RAX. að doktorsritgerð um Lé konung við Lundúnahá- skóla. Ralph Koltai er I hópi fremstu leikmyndateikn- ara heims og af mörgum talinn sá sem hvað mest áhrif hefur haft á leik- myndagerð í Evrópu undanfarna tvo áratugi, að Swoboda undanskild- um. Hann hefur gert leikmyndir fyrir yfir 100 leiksýningar i Bretlandi, og um alla Evrópu, Ar- gentínu, Kanada, Ástra- líu og Bandaríkjunum. Hann er nú fastráðinn við Royal Shakespeare Company í Lundúnum, þar sem hann hefur unn- ið að mörgum sýningum. t.d. Krákasíska krítar- hringnum ’ eftir Brecht, Gyðingnum frá Möltu eftir Marlowe, Kaup- manni í Feneyjum og Tímon frá Aþenu eftir Shakespeare, Staðgengl- inum eftir Hochut, Af- mælisboðinu eftir Pinter, Endatafli eftir Beckett, Major Barbara eftir Shaw, Sem yður þóknast, eftir Shakespeare og nú síðast Erfðaskrá Lenins, sem er nýtt leikrit eftir Robert Bolt. Þá hefur hann gert leiktjöid fyrir ýmsar sýningar í Covent Garden og The English National Opera Com- pany, t.d. hina frægu uppsetningu á Niflunga- hring Wagners, svo og Tannhaiiser fyrir opnun- arár óperunnar í Sydney. Koltai hefur á ferli sín- um hlotið margvislega viðurkenningu, oftar en einu sinni verið kjörinn leikmyndateiknari ársins I Bretlandi. Meðal annars hlaut hann ásamt öðrum gullverðlaun á alþjóða- leiksýningu leikmynda- teiknara í Prag (1975). Það var fyrir leikmynd fyrir sýningu þeirra Piíi- kians á ödipusi I Chicest- er. Eitt umfangsmesta fyrirtæki, sem Þióðleikhúsið hefur ráðist í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.