Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 23 1. deildin í körfuknattleik Ármenningar úr Jeik eftir tapið gegn ÍS STUDENTAR gerðu endanlega út um vonir Armenninga um að verja meistaratitil sinn frá þvf ( fyrra er þeir unnu þá 102 — 98 ( afar skemmtilegum og spennandi leik, eftir að staðan (leikhléi hafði verið 56 — 47. Þetta var 4. tapleikur Ármenninga ( röð og virðast þeir nú algjörlega heillum horfnir. Fyrri hálfleikur var mjög jafn framan af, en Ármenningar náðu þð 5 stiga forystu á 9. mfnútu, 28 — 23, en stúdentar voru ekki á þvf að gefa sig og eftir 4 mfnútur höfðu þeir snúið dæminu við og náð 5 stiga forystu, 37 — 72, og frumkvæðinu héldu þeir til leiksloka en f leikhléi var staðan 56 — 47. Ármenningum tókst svo aldrei að ógna sigri stúdenta verulega þó að þeim tækist að minnka muninn talsvert, eða niður i 4 stig, 82 — 86, á 15. minútu og á 20. minútu var aðeins 2 stiga munur, 99 — 97, en stúdentar voru sterk- ari og unnu verðskuldaðan sigur og jafnframt kærkominn, þvi að enn hafa þeir ekki unnið önnur lið en botnliðin. Þetta var bezti leikur stúdenta i langan tima og réðu Ármenningr ekkert við þá Bjarna Gunnar Sveinsson og Jón Héðinsson, sem voru mennirnir á bak við sigur- inn, en Guðni Kolbeinsson átti einnig góðan leik svo og þeir Steinn Sveinsson og Ingi Stefáns- son, en stigin fyrir liðið skoruðu: Bjarni Gunnar Sveinsson 38, Jón Héðinsson 18, Steinn Sveinsson 17, Ingi Stefánsson 15, Guðni Kol- beinsson 12 og Helgi Jensson 2 stig. Það var sama sagan og venju- lega hjá Ármenningum, þeir Jón Sigurðsson og Símon Ólafsson voru aðalmennirnir og af 98 stig- um liðsins skoruðu þeir 67. Ann- ars átti liðið fremur slakan leik og virðist sem áhuginn sé eitthvað að dofna hjá þeim. Stigin fyrir Ármann skoruðu: Símon Ólafsson 34, Jón Sigurðs- son 33, Jón Björgvinsson 11, Björn Magnússon 9, Björn Christiansen 5, og þeir Hallgrim- ur Gunnarsson, Haraldur Hauks- son og Guðmundur Sigurðsson 2 stig hver. HG ÍR hélt upp á 70 ára afmælið með sigurleik fR-ingar héldu upp á 70 ára afmæli félagsins með góðum sigri yfir Njarðvfkingum f 1. deild karla f körfuknattleik, 79 — 75. t leikhléi var staðan 40 — 33 þeim f vil. Með þessum sigri styrktu fR-ingar stöðu sfna f deildinni verulega, þeir hafa náð 22 stigum og eiga eftir að leika við Ármann. Vinni þeir þann leik eru þeir orðnir fslandsmeistarar, en takist þeim það ekki eru þeir öruggir með aukaleik um efsta sætið, sem yrði þá gegn KR, sem er eina liðið, sem á möguleika á því að ná fR-ingum að stigum og til þess þurfa þeir að vinna bæði UBK og Njarðvík. Framan af fyrri hálfleik var leikurinn afar jafn, þó að ÍR- ingar hefðu alltaf frumkvæðið og var jafnt á öllum tölum frá 6—6 til 26—26, en þá tókst ÍR-ingum loks að ná nokkru forskoti og munaði þá mest um góðan varnar- leik þeirra og góðan leik Agnars Friðrikssonar sem hitti geysi vel, og í leikhléi var staðan orðin 40 — 33, þeim í vil. Njarðvíkingum tókst svo að minnka muninn niður í 1 stig i upphafi seinni hálfleíks, 42 — 41, en ÍR-ingar voru mun ákveðnari og baráttuglaðari og juku þeir muninn strax nokkuð og voru all- an tímann öruggir með sigur. Leiknum lauk svo eins og áður sagði með sigri ÍR, 79 — 75. Þessi leikur var vel leikinn og skemmtilegur, einkum af hálfu ÍR-inga sem börðust af krafti all- an tímann og virtist sem þeir hefðu aldrei hugsað sér annað en sigur i leiknum. Beztu menn liðs- ins í þetta sinn voru þeir Agnar Friðriksson og Kristinn Jörunds- son, en annars átti liðið góðan leik i heildina og virðist leikur liðsins fara batnandi með hverjum leik. Stigin fyrir ÍR skoruðu: Agnar Friðriksson 22, Kristinn Jörunds- son 21, Kolbeinn Kristinsson 14, Þorsteinn Hallgrímsson 9, Jón Pálsson 7, Jón Jörundsson 6, Stefán Kristjánsson 2. Njarðvíkingar voru nokkuð frá sinu bezta I þessum leik og var baráttan i liði þeirra óvenju lítil og munaði þar miklu um Geir Þorsteinsson, sem ekki gat leikið með vegna meiðsla. Hjá þeim bar mest á Gunnari Þorvarðarsyni og Stefáni Bjarkasyni, en stigin fyrir liðið skoruðu: Gunnar og Stefán 16 hvor, Kári Marisson 12, Þor- steinn Bjarnason 9, Guðsteinn Ingimarsson og Jónas Jóhannes- son 8 hvor, Brynjar Sigmundsson 6. HG Jöfn og skemmtileg keppni ÞÓTT ekki næðust beint stðrafrek á Meistaramóti Islands í lyftingum, sem háð var um helgina, þá var mótið jákvætt að mörgu leyti. Það bauð upp á harða og mjög skemmtilega keppni í flestum flokkanna, en auk þess komu fram nokkur ný og mjög efnileg efni, sem áreiðanlega eiga eftir að láta að sér kveða f lyftingum f framtíðinni. Að þessu sinni höfðu aðeins þeir rétt til þátttöku sem náð höfðu sérstökum lágmarksárangri sem Lyftingasambandið ákvað. Það vekur þvi nokkra athygli hver hlutur Akureyringa er, en af 25 skráðum þátttakendum voru 7 frá ÍBA. Þeirra fremstur var Hjörtur Gíslason, kornungur lyft- ingamaður, sem krækti i islands- meistaratitilinn í 90 kg flokknum eftir mjög harða og spennandi keppni við þá Magnús Óskarsson Á, og Ólaf Sigurgeirsson, KR. Jafnaði Hjörtur um Ieió elzta islenzka lyftingametið, en það er jafnhending Óskars Sigurpáls- sonar upp á 155 kg, sem Óskar setti i þessum þyngdarflokki er hann varð þriðji á Norðurlanda- meistaramóti unglinga fyrir röskum áratug. Án efa er Hjörtur lyftingamaður sem mikið á eftir að láta að sér kveða, en hann er aðeins 18 ára gamall. Er hann ákveðinn og harður keppnis- maður, og einnig er hann afar „tekniskur", en allt þetta þrennt er gott vegarnesti á leiðinni að stórárangri. Akureyringar eignuðust annan íslandsmeistara, Kristján M. Fals- son, í 82,5 kg flokknum, og einnig urðu tveir ÍBA-menn i öðru sæti i sínum flokkum. Fyrir utan metjöfnun Hjartar Gíslasonar sáu ekki fleiri met dagsins ljós i þyngri flokka keppninni, en þrjú met voru sett um morguninn. Var þar að verki Ármenningurinn Þorkell Þóris- son en hann bætti sín fyrri met i snörun, jafnhendingu og saman- lögðu i 52 kg flokknum. Gústaf Agnarsson virkaði mjög sterkur á mótinu en samt mistókst honum að setja Norðurlandamet i snörun. Ekki virðist hann skorta kraft heldur frekar örlitlu betri tækni, eða einfaldlega aðeins meiri heppni. Sennilega mun Gústaf lika lyfta vel fái hann mót- stöðu, en hann var eini keppandinn i sínum flokki. Verður gaman að fylgjast með hvernig Gústaf mun vegna á Norðurlandameistaramótinu, sem er framundan. Ml í lyftingum: Erfitt er á þessari stundu að segja hvernig íslenzkir lyftinga- menn standa gagnvart Norður- landameistaramótinu sem fram fer hér í Reykjavík eftir um 5 vikur. Mestar vonir er hægt að binda við þá Gústaf Agnarsson og Guðmund Sigurðsson, en erfiðara er að segja um léttari flokkana. Guðmundur Sigurðsson keppti ekki á þessu móti, en var þess f stað þulur mótsins og leikstjóri. Innti Guðmundur það hlutverk mjög vel af hendi. Veitti hann að jafnaði greinagóðar upplýsingar um keppendur og met og árangur í þeirra flokki, einkenndist og öll framsetning hans af mikilli rögg- semi. Aðspurður um .ástæðuna fyrir að keppa ekki á mótinu, sagðist Guðmundur ekki vera nógu ánægður með keppnisform að þessu sinni, en hann er að byggja sig upp fyrir NM, en þar vonast hann til að gera vel. Þá sagðist Guðmundur hafa ákveðið að láta aðra um hituna að þessu sinni, það mundi efla þrótt þeirra til meiri afreka. í fáum orðum sagt, er óhætt að fullyrða að þetta islandsmeistara- mót í lyftingum hafi boðið upp á nokkuð skemmtilega keppni, en það jákvæðasta við það var að í ljós eru að koma nokkrir mjög efnilegir og upprennandi lyftingamenn sem gaman verður að fylgjast með. Ætti þessi skemmtiiega íþróttagrein ekki að þurfa að óttast framtíðina, verði rétt á málum haldið. Urslitin urðu annars: FLOKKUR 52 KG: Þorkell Þórisson A, Þorvaldur KR FLOKKUR 56 KG: 62,54-80=142,5 kg Rögnvaldsson, 37,5+60= 97,5 kg Helgi R. Auðunsson, KR 57,5 + 70=127,5 kg Viðar Eðvarðsson, ÍBA 55,0+70=125,0 kg FLOKKUR 67,5 KG: Kári EKasson, Á 95,0+120,0=215,0 kg Birgir Borgþórsson KR 67,5+ 97,5=165,0 kg Guðmundur Helgason, A70,0+ 92,5=162,5 kg Gfsli Ólafsson, tBA 62,5+ 82,5= 145,0 kg FLOKKUR 75 KG: Guðgeir Jónsson, Á 95,0+120,0=215,0 kg Freyr Aðalsteinsson, lBA 85,0+120,0=215,0 kg Þorsteinn Leifsson, KR 80,0+100,0= 180,0 kg FLOKKUR 82,5 KG: Kristján M. Falsson, iBA 107,5+132,5=240,0 kg FLOKKUR 90 KG: Hjörtur Gfsiason, IBA 117,5+155,0=272,5 kg Magnús Óskarsson, Á 120,0+150,0=270,0 kg Ágúst Kárason, Á 90,0+122,5=212,5 kg FLOKKUR 100 KG: Snorri Agnarsson, KR Björn Hrafnsson, KR 105,0+150,0=255 kg 100,0+130,0=230 kg — ágás 1. deild kvenna: Fram - Víkingur EINS og vnnta mátti vann Fram öruggan sigur yfir Vlkingi, þegar félögin maattust I 1. deild kvenna á sunnudaginn. Lokatölurnar urSu 16:9 eftir a8 staSan hafBi veriS 6:5 r hálfleik Fram I hag. Framstúlkurnar náSu snemma öruggri forystu, 4:1, en Vikings- stúlkumar ungu gáfust ekki upp og tókst þeim a8 minnka muninn niður I eitt mark i hálfleik, 6:5. En reynsla Framstúlknanna hafði mest að segja i seinni hálfleiknum þegar þær gerðu út um leikinn og sigruðu örugglega 16:9. Fram- stúlkurnar skoruðu þrjú fy tu mörkin i seinni hálfleiknum og einnig þrjú siðustu mörk leiksins. Framstúlkurnar hafa oft leikið betur en að þessu sinni en aug- Ijóst virðist að þær berjist um islandsmeistaratitilinn við Val eins og undanfarin ár. Þær Guðriður og Jenný áttu beztan leik að þessu sinni. Vikingsliðið er skipað ungum og efnilegum stúlk- um og ein þeirra. Ingunn Bemódusdóttir, virðist efni i mikla stórskyttu. Mörk Fram: Guðriður Guðjóns- dóttir 4. Oddný Sigsteinsdóttir 4 (1 v), Jóhanna Halldórsdóttir 3, Guðrún Sverrisdóttir 2, Jenný Magnúsdóttir 2 og Bergþóra Ás- mundsdóttir 1 mark. Mörk Vikings: Ingunn Bemódusdóttir 4, Guðrún Hauks- dóttir 2, Erika Ásgrímsdóttir, Heba Hallsdóttir og Ragnheiður Guðjónsdóttir eitt mark hver. Valur - KR VALSSTÚLKURNAR höfðu óvænta yfirburði gegn KR- stúlkunum i 1. deildinni á sunnu- daginn. Urslit leiksins urðu þau að Valur vann með 23 mörkum gegn 6, en I leikhléi var staðan 11:3. Virtust Valsstúlkurnar geta gert það sem þær lysti i þessum leik, en leikur KR-stúlknanna var mjög ráðleysislegur og einna helzt ein- hvers konar „ferð án fyrirheits". Óþarft er að hafa mörg orð um gang þessa leiks. þar sem úrslitin voru augljós frá upphafi og aldrei hin minnsta spenna i honum. I liði Vals áttu allar góðan leik að þessu sinni og yngri stúlkurnar ein og Oddný og Ágústa Dúa leika stöðugt stærri hlutverk i liðinu. Hjördts var sú eina sem eitthvað kvað að i KR-liðinu. en hún ein mátti sin Iftils. — áij UBK - Ármann BREIÐABLIK heldur enn i vonina um áframhaldandi sæti I 1. deild kvenna t handknattleik. Á sunnu- daginn náði liðið öðru stiginu i viðureign sinni við Ármann i Garðabæ. 9—9 urðu úrslit leiks- ins, eftir að jafnt hafði verið i hálfleik. 5—5. Var vel við hæfi að liðin skiptu með sér stigum. þar sem bæði voru það slök, að þau verðskulduðu ekki að ná tveimur stigum fyrir slikan leik. Ármannsstúlkurnar voru lengst af öllu betri aðilinn i leiknum, sérstaklega þó til að byrja með. er Breiðabliksstúlkurnar höfðu ekki nægjanlega vakandi auga með Guðrúnu Steinþórsdóttur, sem lyfti sér þá upp fyrir framan vörn þeirra og skoraði góð mörk með langskotum Voru þessi mörk Guðrúnar raunar það eina fallega sem sást i þessum leik. Þegar á leikinn leið gengu Breiðabliks- stúlkurnar hins vegar vel fram á móti Guðrúnu I vörninni. og tókst að stöðva hana. Þar með var lika allur broddur úr sóknarleik Ármannsliðsins. Annars verður ekki annað sagt en að Breiðabliksliðið hefur tekið nokkrum framförum að undan- förnu. og hefur liðið greinilega meiri trú á þvi en lengst af i vetur. að það eigi möguleika gegn and- Stæðingi sinum. Bezt i Breiða- bliksliðinu var Alda Helgadóttir. sem þó var tekin úr umferð megin- hluta leiksins, en bezta leik Ármannsstúlknanna átti sem fyrr segir Guðrún Steinþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.