Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDA6UR 15. MARZ 1977 ' • *^ y - Umsjón: 1 Björg Einarsdóttir á áratugnum ] ÞEGAR dálkarnir ?Á áratugnum" birtust í Morgunblað inu 1. mars s.l. fjölluSu þeir, eins og nú um skattamálin — en þau mál ber einna hæst I almennri umræSu um þessar mundir. Er vel um þaS hversu margir hafa látiS til sín heyra og umræSan orSið víSfeSm og margbreytileg. GuSrún Erlendsdóttir, lögfræðingur og kennari viS Háskóla íslands, hefur látiS þessa umræSu töluvert til sln taka. Hún varS góSfúslega viS þeirri beiSni aS fjalla um þennan málaflokk á siSum blaSsins. Fyrri hluti greinar hennar birtist 1. mars og gerir hún þar nokkuS skil sköttun einstaklinga og heimila á NorSurlöndum. Mörg- um lék hugur á aS fræSast um tilhögun þessa vandmeS- farna og viSkvæma samfélagsþáttar hjá frændum vorum og nágrönnum, enda er oft litiS til NorSurlandaþjóSa um viSmiSun fyrir okkur hér á landi. JafnréttisráS, en GuSrún er formaSur þess, hefur nýlega sent fjárhags- og viSskiptanefnd neðri deildar Alþingis allltarlega umsögn um frumvarp það til laga um tekjuskatt og eignarskatt, er nú liggur fyrir þinginu. Fyrstu umræðu um frumvarpið er lokið og er það til úrvinnslu hjá þingnefndinni þessar vikurnar. í umsögn Jafnréttisráðs er fyrst og fremst fjallað um þann þátt frumvarpsins, sem snertir jafnrétti kynjanna. Gudrún Erlendsdóttir /ektor: Sifjalöggjöf - skattalöggjöf Verkaskiptina inni á heimili einkamál Þá var starf maka (konu) á heimili ærið verkefni — heimilin voru stór og engar vélar til að létta heimilis- störfin. Þetta er gerbreytt í dag, eins og allir vita Að minu mati er það því vafamál hvort maki, sem heima er og annast eingöngu sig og hinn makann, full- nægi framfærsluskyldu sinni með því. Málið horfir allt öðru vísi við, ef börn eru á heimilinu, aldraðir, sjúkir eða aðrir þeir, sem umönnunar þurfa við Það hlýtur að verða að ætlast til þess, að hver fullvaxinn einstakling- ur geti séð um sig sjálfur, en að öðru leyti er það einkamál hjóna og annarra fullvaxinna fjölskyldumeð- lima, hvernig þeir skipta með sér störfum inni á heimilinu Mat á slfku á ekki að koma f löggjöf. Skattalöggjöf verði hlutlaus gagn- vart hjúskaparstöð Afar mikílvægt er, að reglur um ábyrgð hjóna á greiðslu skatta svo og framtalningu tekna séu i sam- ræmi við þau grundvallarsjónarmið um jafnrétti og sjálfstæSi hjóna, sem fyrir löngu eru viðurkennd I sifjalöggjöf Skattalöggjöf á að mínu mati að vera hlutlaus gagnvart jafnrétti kynj- anna. þ e. ekki letjandi fyrir ákveð- inn hóp i þjóðfulaginu s s giftar konur Skattkerfið á að vera þannig uppbyggt. að það taki tillit til fjár Guðrún Erlendsdóttir vi8 málflutning i Hæstarétti hagslegs sjálfstæðis hjóna, I því má ekki felast hvati að því, að annað hjóna verði því andvígt af skattaleg- um orsökum, að hitt hjóna afli tekna. Löggjafanum ber að vera hlutlaus hvað þetta snertir Tímabilsbundið aðlögunaratriði Sérsköttun af séraflafé myndi gera hjónum kleift að taka þátt í atvinnulífinu, án þess, aðtekjurann- ars hefðu áhrif á skatt hins. Sér- sköttun af séraflafé hlýtur þvf að vera markmiðið við gerð nýrrar skattalöggjafar. Miðað við núverandi þjóðfélags- aðstæður er þó ekki raunhæft að byggja á þeirri forsendu, að sérhver maður geti framfært sig af eigin aflafé Það er því óhjákvæmilegt að taka tillit til þess þjóðfélagshóps, sem byggt hefur efnahagsafkomu sína á vinnuframlagi á heimilunum en ekki launatekjum Sem millistig, frá samsköttun til algerrar sérsköttunar verður því fyrst um sinn, og þá eingöngu sem tíma- bilsbundið aðlögunaratriði, að miða við hjúskaparstöðu, þegar skattar eru lagðir á hjón og millifæra ónýtt- an persónuafslátt Vitanlega á per- sónuafsláttur að vera hinn sami fyrir alla einstaklinga, án tillits til hjú- skaparstöðu. „ Helmingaskipta- regla" skattaf rumvarpsins Þegar verið er að setja ný skatta- lög, sem boða algera kerfisbreytingu þá verður að vanda mjög til þeirra og huga að hvaða félagsleg áhrif hún kann að hafa Það er viðurkennt að 50% frá- dráttarreglan af launum giftra kvenna i núgildandi skattalögum, hefur haft neikvæð félagsleg áhrif. bæði milli kvenna á atvinnustöðum og einnig á þann hátt, að sú regla hefur ýtt konunum út af heimilun- um. Það ber því að huga vel að því, að „helmingaskiptaregla" frumv. mun valda því i stórum stíl, að konur dragi sig f hlé af vinnumarkaðinum og tekjuöflun þvi hvila af meiri þunga en nú á körlum. Það hefði aftur á móti i för með sér, að feður hefðu enn minna samband við börn sín en nú er, og er það vissulega neikvætt félagslega séð. Umsagnir og ályktanir Umræða um skattamál hefur orð- ið mikil og er það til góðs Ég vil benda á umsögn Bandalags hánna, Félags einstæðra foreldra. Kvenrétt- indafélags íslands, Alþýðusam- bands islands. Bandalags kvenna i Reykjavik, Jafnréttisráðs. Rauð- sokka o.fl aðila. sem allar hnlga i þá átt, að ..helmingaskiptaregla'' frumv sé óviðunandi lausn við skattlagn- ingu hjóna Barnabætur til þeirra er börnin annast Ég hef lýst minni skoðun á því, að markmiðið sé sérsköttun á séraflafé með millifærslu á persónuafslætti til bráðabirgða Að því er varðar ein- stakar greinar frumv læt ég nægja að vísa til álits Jafnréttisráðs. Ég vil þó benda á, að rétt væri að hækka verulega barnabætur, sem féllu til þeirra, sem börnin annast. Slíkt myndi spara aukið valfrelsi. Að mínu mati er það ekki markmiðið að konur og karlar séu annað hvort að störfum á heimilinu eða utan þess, heldur að þau geti raunverulega val- ið miðað við eigin aðstæður, hvort heldur karlinn eða konan á í hlut. Mæli með því að. . . Ég hef hér að framan eingöngu rætt um skattlagningu út frá jafnrétt- issjónarmiðum, en get ekki látið hjá líða að lokum að mæla með því, að stefnt verði að afnámi tekjuskatts af launatekjum manna Frá jafnréttis- sjónarmiði. í umsögn Jafnréttisráðs um skattalagafrumvarpið kemur fram, að sú tilhögun á skattlagningu hjóna. sem boðuð er I frv. ..helm- ingaskiptareglan" svokallaða, sam- rýmist ekki grundvallarmarkmið- um um jafnrétti karla og kvenna. í reynd er hér lika um samsköttun að ræða, en með öðru sniði en i núgildandi lögum. Frá jafnréttissjón- armiði er það sjálfsögð forsenda skattlagningar, að hver fullvaxinn einstaklingur verði sjálfstæður skattþegn. Þeir. sem vilja raunverulegt jafn- rétti kynjanna, hljóta að viðurkenna að grundvallarskilyrði þess, að gift kona geti orðið fjárhagslega og fé- lagslega sjálfstæð, er að hún hafi í reynd sömu möguleika til launaðrar vínnu og kvæntur karlmaður, og að uppeldi og umönnun barna skiptist sem jafnast milli foreldra. Sérsköttun vegur ekki að fjárfélagi hjóna Ég er ekki á sama máli og þeir, sem halda því fram, að sérsköttun muni vega að fjárfélagi hjóna og þar með grundvelli fjölskyldunnar. Lög nr. 20/ 1923 um réttindi og skyldur hjóna voru mikil réttarbót. þegar þau voru sett Þau byggja á algeru jafnræSi hjóna I hjúskap. Megin- reglur þeirra laga fela i sér, að hvort hjóna um sig hafi ráðstöfunarrétt á sinum eignum og beri einungis ábyrgð á eigin skuldbindingum, en ekki skuldum hins makans Örfáar undantekningar frá þess- um meginreglum eru gerðar í lögun- um sjálfum og byggjast þær á hags- munalegri samstöðu fjölskyldunnar. Endurskoðun vegna breyttra þjóð- félagsaðstæðna Önnur löggjöf hefur ekki orðið jafnfljót til að viðurkenna fjárhags- legt sjálfstæði hjóna, og ber þar hæst skattalöggjöf Núgildandi skattalöggjöf byggir á þjóðfélagslegum forsendum, sem ekki eru við lýði nema að litlu leyti. Sifjalöggjöfin er í sffelldri endur- skoðun og er reynt að taka mið af þeim þjóðfélagslegu breytingum, sem orðið hafa á s.l. hálfri öld. Nýleg lög eru nú komin um stofnun og slit hjúskapar (nr. 60/ 1972), þar sem tekið er tillit til þeirra breyt- inga, sem orðið hafa f þjóðfélaginu og reglurnar um stofnun og slit hjúskapar gerðar miklu fjálslegri og einfaldari Lög nr. 20/ 1923 eru nú f endurskoðun, og þar verður vænt- anlega sama viðmiðun höfð. Fjölskylda og heimilið er kjölfestan Þrátt fyrir breytingar á sifjalöggjöf þá eru og verða fjölskyldan og heimiliS eftir sem áður kjölfestan I þjóðfélaginu. Hætta er á, að það dragi úr þýð- ingu fjölskyldunnar, ef reglur sem hana snerta ganga út frá fornum þjóðfélagsháttum Slíkar reglur verða að fylgja samtimanum og þjóðfélagsþróuninni. í dag er fjölskyldan neyslueining en ekki framleiðslueining — Fram- leiðslan fer fram á vinnumarkaðin- um Það hlýtur að vera einkamál fjölskyldunnar, hvort fleiri en einn aflar tekna til framfærslu hennar og hvernig fólk skiptir með sér störfum á eigin heimili. Helmingaskiptaregla sifjalöggjafarinnar Hin félagslega og hagsmunalega samstaða fjölskyldunnar kemur fram I reglum um gagnkvæma fram- færsluskyldu milli hjóna og lýsir sér I helmingaskiptareglu sifjalöggjafar- innar 18 gr I nr. 20/ 1923, en við slit hjúskapar á hvort hjóna um sig rétt á helmingi af hreinum hjú- skapareignum hins hjóna Með þessari helmingaskiptareglu er viðurkennt, að bæði hjónin vinna sameiginlega að framfærslu fjöl- skyldunnar, hvort sem þau afla beinna tekna eða ekki, og kemur það einnig skýrt fram i 2. gr. lag- anna. Rétt er þó að benda á, að þegar lögin voru sett, fyrir meira en 50 árum, þá tóku þau eðlilega mið af þjóðfélagsaðstæðum þeirra tíma Löðrungur Ákvörðun stjórnar Atvinnu- leysistryggingarsjóðs um að greiða konum innan A.S.Í. fæð- ingarorlof af ákveðnu tekju- marki tekju maka, gengur gegn stefnu Alþingis í þessu máli. Þetta er skref aftur á bak og þjóðarhneisa að spyrjist. Sið- borin ttilkun stjórnar sjóðsins á 16. gr. laga nr. 57/1973 og 56/1975 um atvinnuleysistrygg- ingar — ætti eðli málsins sam- kvæmt að setja sjóðsstjórnina í þær hastarlegu aðstæður að innheimta áður útborgað fæð- ingarorlof hjá þeim konum, sem fengu greitt á árinu 1976 — án tillits til þess að makar þeirc# hefðu sem svaraði tvö- földum dagvinnutaxta Dags- brúnar. Eða á að vera ára- munur á túlkun sömu lagagreina? Lögfræðingur, sem lengi hef- ur átt sæti á Alþingi, sagði við aðrar aðstæður: Ef lögin taka ekki af tvímæli um vilja þings- ins — verður að smiða betri lög. Brýnt er að alþingsmenn búi svo um hnútana nú, með laga- breytingu, að ótvírætt verði, hvernighaga skuli fæðingaror- lofi islenskra kvenna og hverj- ar skuli njóta þess. Fagna ber fyrirspurnum Guð- mundar H. Garðarssonar alþm. á þingi um greiðslur Atvinnu- leysistryggingarsjóðs. BJE. „OFVÖXTUR og of mikil sókn inn I þjón- ustugreinarnar — sem taka mið af fram- leiðslugreinunum og fjölda fólks f þeim — getur leitt til þess að konum verði, af beinni hagstjórn stuggað burt af vinnumarkaðin- um s.s. með áróðri fyrir afturhvarfi inn á heimilin eða með laga(skatta)ákvæðum.“ XJt reðu á Loftleiðum 21. júnl 1975. 99 ENN UM SKA TTAMÁL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.