Morgunblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977 Tíu tonn af frystum rauðmaga til Japans FISKIÐJUSAMLAG Húsavfkur er nú að ganga frá tilraunasend- ingu á frystum rauðmaga til Japans og er gert ráð fyrir að 10 tonn verði send þangað f byrjun. Á sfðasta ári voru sendar nokkrar öskjur af rauðmaga til Japans og þær virðast hafa Ifkað það vel, að nú var beðið um stóra tilrauna- sendingu. Fram til þessa hefur rauðmaginn við landið verið Iftið sem ekkert nýttur, og ef vel tekst til getur svo farið f framtfðinni að góður markaður opnist fyrir hann f Japan. Tryggvi Finnsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjusamlagsins á Húsavík, sagði f samtali við Morgunblaðið f gær, að rauð- MORGUNBLAÐINU barst f gær eftirfarandi yfirlýsing frá Sigur- laugu Bjarnadóttur alþingis- manni. Vegna áskorunar í fjölmiðlum frá Félagi framreiðslumanna þess efnis, að ég undirrituð geti heimilda fyrir ummælum mfnum í sjónvarpsþætti fyrir skömmu um launakjör barþjóna, vil ég taka fram eftirfarandi: Velheppnud félagsmála- námskeið í Reykjahverfi t FEBRUAR og marzmánuði var haldið félagsmálanámskeið á veg- um Ungmennafélagsins Reyk- hverfungs og Kvenfélags Reykja- hrepps f S-Þing., f félagsheimili Reykjahrepps. Þátttakendur voru 14 talsins. Kennslukvöld voru 7. Leiðbeinendur voru þeir: Arnaldur Bjarnason, Fosshóli, og Gunnlaugur Árnason, kennari, Hafralækjarskóla. Stuðst var við námsefni frá félagsmálaskóla U.M.F.l. og fólst kennsla einkum í fundarstjórn, ræðumennsku og félagsstörfum. Síðasta kvöldið var haldinn kvöld- vaka, sem tókst mjög vel. Þátttakendur voru mjög ánægð- ir með námskeið þetta og töldu, að það glæddi mjög áhuga á félagsstarfsemi, einnig hjálpaði það fólki, sem ætti t.d. í erfiðleik- um að tjá sig til þess að öðlast sjálfstraust. Vilja þeir hvetja önnur félags- samtök til að koma á slikum nám- skeiðum fyrir félagsmenn sína, þeim til ánægju og félagsþroska. Fréttatilkynning. Hugleið- ing í tónlist HELGISTUND verður í Háteigs- kirkju næst komandi sunnudag þar sem kór Háteigskirkju mun flytja föstutónlist undir stjórn organistans, Martins H. Friðriks- sonar. Lesnir verða einnig þættir úr píslarsögunni, flutt bæn og í stað prédikunar verður orgelleik- ur og kórsöngur. Leiðrétting ÞAÐ ER ekki rétt haft eftir Guð- mundi Guðfinnssyni í Klébergi 4, Þorlákshöfn, i blaðinu á miðviku- daginn né fréttaritara Mbl. á staðnum, að hús Guðmundar í Vestmannaeyjum hafi farið undir hraun. Þarna átti að standa, að þau hjón Ellen og Guðmundur hefðu flúið jarðeldana í Vest- mannaeyjum. Þau fluttu ekki aft- ur til Eyja og seldu hús sitt þar á venjulegan máta. Vil ég biðja við- komandi velvirðingar á þessu. Ragnheiður Ölafsdóttir, frétta- ritari Mbl. Þorlákshöfn. maginn væri seldur á Japans- markað fyrir milligöngu Sjávar- afurðadeildar Sambandsins, en aðilinn í Japan, sem fær þessa tilraunasendingu, er sá hinn sami og kaupir loðnuna af Samband- inu. Sagði Tryggvi, að áður en rauð- maginn væri frystur, væri hvelj- an tekin af honum og eins haus og sporður. Ef vel tækist til gæti komið upp góður markaður i Japan og um leið mikil vinna við vinnslu aflans, því skera verður haus, hvelju og sporð af í höndun- um. Vitað væri að nóg væri af rauðmaga i sjónum, en fram til þessa hefði hann litið sem ekkert verið nýttur, aðeins grásleppan. Það er rangt, að ég hafi stað- hæft, að „barþjónar hefðu hærri laun en ráðherrar“. Ég sagði orð- rétt: „Barþjónar, sem fá prósent- ur af vininu, sem þeir selja — ja, þeir eru líklega tekjuhærri en ráðherrar hér á íslandi". Hér er því, samkvæmt orðanna hljóðan, um tilgátu mína (en ekki staðhæfingu) að ræða, sem ég tel mig ekki þurfa að standa fram- reiðslumönnum nein reiknings- skil á. Hinsvegar gæti þessi krafa þeirra orðið mér sérstakt tilefni til að kanna nánar, hver eru launakuör barþjóna á íslandi. Sigurlaug Bjarnadóttlr alþm. Flutt með- vitundarlaus á slysadeild UNG stúlka var flutt meðvit- undarlaus á slysadeild Borgar- spftalans í gærkvöldi eftir að hún hafði fengið kastáhald í höfuðið á kastsvæðinu í Laugardai. Þegar Mbl. hafði samband við lögregl- una seint í gærkvöldi, var stúlkan í rannsókn og ekki fullljóst hver meiðsli hennar urðu. Onákvæmt orðalag VEGNA fréttar i Morgunblaðinu miðvikudaginn 14. þ.m er rétt að leiðrétta ónákvæmt orðalag. Sagt var að tæki frá Jóni Þórðarsyni á Reykjalundi hreinsaði aðeins lít- inn hluta þess reyks, sem stafar frá loðnubræðslu Lýsi og Mjöls í Hafnarfirði. Var hér átt við að í gegnum tækin færi aðeins lítið magn af þeim reyk, sem frá verk- smiðjunni kemur. Hins vegar mun nokkuð góður árangur vera af notkun þessa reynslutækis, en niðurstöður af mælingum liggja ekki fyrir. — Þjófnaður Framhald af bls. 32 ir hve miklu hann hefur stolið, en það mun vera talsvert mik- ið. Maðurinn sat í gæzluvarð- haldi í 20 daga vegna rann- sóknar málsins, en honum var sleppt í fyradag. Grunur mun hafa beinzt að manninum vegna vörurýrnunar í skemm- unni og við húsleit hjá mann- inum fannst mikið magn af þýfi. Var það mestmegnis skó- fatnaður, sem fannst heima hjá manninum. Maðurinn mun hafa gefið hluta af þýfinu, en grunur leikur á að sumt hafi hann seit. — 600 bátar Framhald af bls. 32 frá Langanesi að Hvitingum og þaðan hafa 48 sótt um leyfi til þessara veiða. Samkvæmt reglugerð, sem sjávarútvegsráðneytið gaf út fyrr í vetur má einungis veita bátum, sem eru 12 brúttólestir eða minni, Ieyfi til grásleppuveiða, en þó er heimilt að veita bátum stærri en 12 brl. veiðileyfi ef þeir hafa stundað veiðarnar áóur og sent skýrslu um þær. — Kína Framhald af bls. 1. ferð til að fá Teng Hsiao-ping, fyrrum aðstoðarforsætisráðherra, endurreistan. Hér er um að ræða Hsu Shih-yi, yfirmann hersins í Kanton, og Wei Kuo-ching, flokksritara i Kwangtunghéraði. Hafa þeir skorað á miðstjórn flokksins að endurreisa Teng strax i anda byltingarinnar. Stjórnmálafréttaritarar eru nú taldir þeirrar skoðunar að mjög skammt sé þess að bíða að Teng taki hugsanlega aftur við embætti forsætisráðherra, sem Hua Kuo feng gegnir nú ásamt formanns- embættinu. Teng var settur af i april á s.l. ári eftir miklar óeirðir i Peking skömmu eftir lát Chou En-lais forsætisráðherra. — Spánn Framhald af bls. 1. og marka stefnuna fyrir héraðs- stjórnirnar. Sem kunnugt er hafa aðskilnaðarhreyfingar Baska á þessum svæðum verið með miklar aðgerðir til að leggja áherzlu á kröfur um sjálfsstjórn fyrir hér- uðin. Samkvæmt nýjustu tilkynning- um ríkisstjórnarinnar verða nú allir fangar náðaðir, er ekki hafa tekið beinan þátt í ofbeldisverk- um og þeim sleppt innan skamms. Aðrir fangar munu fá mál sín tekin upp að nýju. Lögfræðingur I Madrid, sem hefur farið með mál margra Baska, sagði í dag, að þessar nýju tilslakanir mundu tæpast gera þá aðskilnaðarsinna ánægða, sem krefðust aigerrar og skilyrðislausrar náðunar. Leiðrétting RANGHERMT var i frétt Mbl. á fimmtudag, að fundurinn um skólamál á Dalvík yrði haldinn í dag. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 25. marz. — Indland Framhald af bls. 1. ins, Lok Sabha. Kjörstaðir voru lokaðir i dag, en síðan verður kosningu haldið áfram á morgun föstudag, laugardag og sunnudag. Gert er ráð fyrir að fyrstu tölur verði birtar á sunnudagskvöld. Stjórnmálafréttaritarar í Ind- landi segja að óvenjumikil kosningaþátttaka hafi verið í gær og neyttu allt að 70% kjósenda atkvæðaréttar síns i stærstu borg- um iandsins og þéttbýlustu héruð- unum úti á landsbyggðinni. Til samanburðar má geta þess að 1971 var kosningaþátttaka í heild aðeins um 55% en þá fékk Kongressflokkurinn 2/3 hluta þingmanna. Talsmenn Janata- flokks segja að hin mikla þátttaka nú muni að mestu koma stjórnar- andstöðuflokkunum til góða. — Herör gegn hraðakstri Framhald af bls. 32 um ekki aó þessum mælingum til þess að hafa upp úr þvi pen- inga, heldur til þess að veita ökumönnum aðhald, sagði Sturla. Þrátt fyrir þá viðleitni lög- reglumanna að halda ökuhraða innan löglegra takmarka, hafa sem fyrr segir verið teknir 642 ökuenn fyrir of hraðan akstur á þeim tveimur og hálfum mán- uði, sem liðnir eru frá áramót- um. Sturla sagði að mjög marg- ir væru á bilinu 66—80 km á klukkustund en allt of margir væru teknir á 76—80 km hraða eða við efri mörk og þar yfir. — Mótherjar Framhald af bls. 31 I milliriðlunum leika saman tvö efstu löndin í A og B riðli annars vegar og tvö efstu löndin í C og D riðli hins vegar. Sigurvegarar í þeim riðlum leika svo til úrslita um heimsmeistaratitilinn, en þau sem verða i öðru sæti i riðlinum leika um bronsverðlaunin í keppninni. Má nefna sem dæmi, að ef Sovétmenn og Islendingar komast áfram úr C-riðli verða mótherjar þeirra í undanúrslita- keppninni væntanlega Pólland og Svíþjóð. — Geirfinns- málið Framhald af bls. 22 september og á dómþingi sakadóms 30. marz. d) Á Valdimar Olsen fyrir rannsóknarlögreglu 3 febrúar og 1 september Þykja ákærðu með framangreindum sakargiftum. svo sem rakið hefur verið í þessum kafla ákærunnar, öll hafa gerzt brotleg við 1 mgr 148 gr almennra hegningarlaga III. Dómkröfur Þess er krafizt, að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar Dæma skal um fjár- kröfur. sem uppi kunna að vera hafðar I málinu, og um kröfur til birtingar dóms samkvæmt 2 mgr. 148 gr. hegningarlaganna. krifstofu rlkissaksóknara. Reykjavlk, 1 6 marz 1977. Þórður Bjórnsson. — Geysifjöl- menn útför Framhald af bls. 2 maður en prófasturinn, sr. Sigurður Guðmundsson, flutti lík- ræðuna og jarðsöng. Þrjú ljóð voru flutt við þessa kveðjuathöfn af bræðrum Hermóðs, þeim Heið- reki og Valtý. Kirkjukór Skútu- staða annaðist söng undir stjórn Kristinar Jónasdóttur. Einsöng söng Hildur Tryggvadóttir við undirleik Friðriks Jónssonar. Bændasamtök Þingeyinga heiðruðu minningu fallins for- ingja með því að kosta útförina. Að athöfninni lokinni sátu að erfidrykkju í Hafralækjarskóla á fimmta hundrað manns. Margir blómsveigar bárust frá félaga- samtökum og einstaklingum og kveðjur viðs vegar að af landinu er sýndu að hér var kvaddur þekktur og vinsæll forystumaður. — Fréttaritari. — Hæstiréttur finnur að . . . Framhald af bls. 2 1974, sem eínnig ber að beita við skýrslur fyrir rannsóknarlögreglu. sbr. 39 gr sömu laga Það -athugast, að eigi er aðfarar- ákvæði i héraðsdómi." í dómi Hæstaréttar segir ennfrem- ur um manndrápsmálið i Ólafsvik: „Mál þetta dæma hæstaréttar- dómararnir Magnús Þ. Torfason, Ár- mann Snævarr, Benedikt Sigurjóns- son, Björn Sveinbjörnsson og Logi Einarsson Fyrir Hæstarétt hefur verið lögð skýrsla yfirlæknis skurðlækninga- deildar Borgarspitalans 15. mars 1977 um sjúkravist ákærða þar 14 maí til 2 júni 1975 Ákæruefni og sakargögnum er lýst í héraðsdómi Svo sem greinir þar, er ákærði einn til frásagnar um aðdraganda og atvik að viðureign þeirra Rafns Svavarssonar, er leiddi til dauða hans. Verður samkvæmt þvi að rekja upphafið að átökum þeirra til þess, að Rafn hrifsaði til sin bankabók ákærða, en í henni var talsverð innstæða, og stakk henni á sig Kveður ákærði, að Rafn hafi sagt, að ákærði „fengi hana ekki aftur" Ákærða tókst að ná bókinni af Rafni, en Rafn hafi þá „orðið óður af bræði og slegið sig i vinstri siðu". svo að hann hafi vart náð andanum Leggja verður til grundvallar, að til verulegra átaka hafi komið milli þeirra Þá verður við það að miða, að ákærði „hafi verið gripinn ofsa- hræðslu i viðureign sinni við Rafn Svavarsson og að verknaðurinn hafi verið framinn undir snöggum kviða og ótta við sjálfsmeiðingu auk reiði",' sbr svör réttarmáladeildar Læknaráðs I álitsgerð, staðfestri 20 mai 1976. við spurningum héraðs- dómara. Samkvæmt játningu ákærða. sem fær stoð i öðrum sakargögnum, er ótvirætt. að ákærði svipti Rafn Svavarsson lifi með hnlfsstungum, en talið er I krufningarskýrslu 15 mai 1975, að honum hafi blætt út frá áverkum, sem hann hlaut af völdum eggvopns Sakargögn veita eigi stoð þeirri tilgátu i héraðsdómi. að ákærði hafi veitt Rafni sár eftir að hjartslætti lauk Ber að staðfesta þá úrlausn héraðsdóms, að brot ákærða varði við 211 gr almennra hegningarlaga nr 19/1940. Þegar virt eru atvik að broti ákærða og aðstæður allar, verður eigi talið að hann hafi framið brot sitt i neyðarvörn, sbr. 2. mgr. 12. gr. almennra hengingarlaga, og hvorki þykja ákvæði 2. málsgr 13. gr. né 1 töluliðs 1 málsgr 74 gr sömu laga eiga við um það Samkvæmt gögnum máls er ákærði sakhæfur. Telja verður, að hinn látni hafi átt upptökin að viðureign þeirra ákærða með atferli þvi, er að framan greinir, en sakargögn benda til þess, að hann hafi þá verið alldrukkinn Þykja ákvæði 4. töluliðs 1 málsgr 74. gr almennra hengingarlaga eiga við um háttsemi ákærða Ber að lita til þessa viðákvörðun refsingar. svo og til þess, að ákærði var mjög ungur. aðeins 18 ára, þegar hann framdi brot sitt. er hann gekkst hreinskilnis- lega við, sbr. 4. tölulið 1. málsgr. 70. gr. og 9. töluiið 1. málsgr. 74 gr almennra hegningarlaga Hins vegar beitti hann hættulegu vopni við framkvæmd brotsins. Þykir refs- ing hans hæfilega ákveðin fangelsi 5 ár og 6 mánuðir Gæzluvarðhalds- vist ákærða, sem staðið hefur óslitið slðan 14 mal 1 975 komi með fullri dagatölu refsingu til frádráttar, sbr. 76. gr almennra hegningarlaga " — ísland ekki byggilegt Framhald af bls. 20 lika til þeirra. Kynnu menn þá að komast að þeirri niðurstöðu, að heppilegast væri að beina niður- greiðslunum að frumstigi fram- leiðslunnar eða að greiða niður rekstrarvörur, svo að framleiðslu- verð lækkaði. Allt þarf þetta rækilega skoðun og vafalaust nauðsynlegt að gera flókna útreikninga. En menn mega undir engum kringumstæð- um skjóta sér undan þeim vanda. Að glæða mikil- væga starfsgrein nýjum þrótti Mér er alveg ljóst, að land- búnaðarmálin i heild eru vand- meðfarin, en þeim mun meiri ástæða er til að ræða þau itarlega og öfgalaust. Þvi kann svo að fara að ekki finnist lausn á þessu þingi, en þá væri æskilegt að milliþinganefnd fjallaði um mál- in, svo að þau yrðu tekin upp á þingi, strax og það kemur saman næsta haust. Ég geri það að tillögu minni, að þessu máli verði visað til háttv. atvinnumálanefndar, en hún hef- ur einmitt til meðferðar aðrar til- lögur um lánamál landbúnaðar- ins, og væntanlega verður i nefndinni fjallað sameiginlega um þessar tillögur. Bændur hafa að undanförnu sýnt, að þeir ætla að verja hags- muni landbúnaðarins og þar með hagsmuni landsins. Allar þær miklu umræður, sem orðið hafa siðustu mánuði um landbúnaðar- málin, um sláturmálin, iðnaðar- framleiðslu úr hráefni land- búnðarins, afurðasölumál og lána- mál bænda glæða þessa mikil- vægu starfsgrein nýjum þrótti — og margt verður skoðað i nýju Ijósi. Trú min er a.m.k. sú, að svo muni fara. Og til þess voru lika refirnir skornir og hrútarnir skotnir. Yfirlýsing frá Sig- urlaugu Bjarnadóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.