Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977 11 Kammerhljómsveit frá Stuttgart ÞAÐ þjónar svo sem engum tilgangi að rita gagnrýni um leik Stuttgarter Kammer- orkester nema þá til að stað- festa það, sem allir hljómleika- gestir á tónleikum þeirra s.l. miðvikudag voru sammála um, að þeir eru góðir, en þó ekki f sfnu bezta formi, vegna þreytu við lok erfiðrar hljómleikaferð- ar í Amerfku. Tónleikarnir hófust á Kanon eftir Johann Pachelbel (1653—1706) organistann frá Niirnberg, sem m.a. starfaði í Stuttgart og var einn af merk- ustu orgeltónskáldum fyrir daga Bachs. Verkið er sett sam- an úr nokkrum keðjum tón- hendinga og gefur verkið hljóð- Tónlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON færaleikurum tækifæri til að skapa fallegan hljóm. Það var meira áberandi en venja er um i samspili, í svipuðum kammer- sveitum sem þessari, að tölu- verður munur er á tónblæ hljóðfæraleikaranna. Ef til vill ekki lögð áherzla á að samræma blæinn, sem má vera að sé markmið og ekki óskemmtilegt. Annað verkið á efnisskránni var þriðji Brandenborgar- konsertinn eftir Bach. Um flutning hans er svo sem ekkert að segja, annað en að allt gekk eins og í sögu. Sama má segja um Konsert fyrir tvær fiðlur í d-moll, einnig eftir Bach. Fyrir smekk undirritaðs var t.d. hægi kaflinn þó einum of hraður og verkið í heild of stíft, ósveigjan- legt i tempói, en þó vel leikið. Sólþátturinn var nokkuð mislit- ur og dró sá, er lék aðra fiðlu, einum of að sér athygli fyrir fallegan tón. Síðasta verkið á efnisskránni var Serenaða eftir Dvorak. Þarna mátti heyra rómantískt verk leikið af skiln- ingi og skaphita. Hver setning var mótuð, staðldrað við í lok hennar og nýrri hugmynd gefið ráðrúm til að hljóma sjálfstætt. Undirritaður hefur sjaldan heyrt skýrari og mótaðri túlkun á tónverki, mótaðri af gerð tón- verksins, eins konar útlistun á formi þess. Það eina sem er slæmt við slíkar heimsóknir sem þessar, er að listamennirn- ir standa svo stutt við og koma svo sjaldan, að minningin um þá verður óraunveruleg og fátækt okkar sjálfra því meiri, sem lengur líður á milli heim- sóknanna. Þetta má greina í makalausri aðsókn að þessum fáu tónleikum stórlistamanna, sem um er að velja og þeirri deyfð sem ríkir þess á milli. Þetta vandamál er ekki að öllu leyti sérísl. fyrirbæri, en þó sennilega hvergi eins greinilegt og hérlendis. Jón Ásg. Tillaga kommúnista á Alþingi: Úrsögn úr Nato - upp- sögn varnarsamnings ELLEFU þingmenn „Alþýðu- bandalags" hafa lagt fram i Sam- einuðum þingi tillögu til þings- ályktunar um úrsögn íslands úr Atlantshafsbandalagi og uppsögn varnarsamnings milli íslands og Þorbjörn II til leigu BLAÐIÐ Brautin i Vestmanna- eyjum skýrir frá þvi i vikunni að Gunnlaugur Ólafsson skipstjóri þar í bæ hafi fest kaup á vélbátn- um Þorbirni II GK 541 frá Grindavik. Þorbjörn II er 130 tonna eikarbátur með 700 hest- afla Gummingsvél. Báturinn er þegar byrjaður veiðar með þorskanet. Bandarfkjanna. — Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að segja upp aðild íslands að Norður- Atlantshafssamningnum, er gekk í gildi 24. ágúst 1949. — Enn fremur ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni að æskja nú þegar endurskoðunar á varnarsamningi milli íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951, í samræmi við ákvæði samningsins, svo og að leggja fyrir Alþingi frumvarp til uppsagnar samnings þessa, þegar er endurskoðunarfrestur sá, sem i samningnum er ákveðinn, heimil- ar uppsögn hans.“ Tillögunni fylgir löng greinar- gerð. Afmælis- tónleikar TIL AÐ samgleðjast Þorsteini Hannessyni og votta honum virðingu sfna á sextiu ára af- mæli hans, efndu nokkrir af okkar beztu söngvurum til sam- söngs i Austurbæjarbfói s.l. laugardag. Hver söngvari söng eitt lag og voru tónleikarnir i heild hinir ánægjulegustu. Það er varla ástæða til að fjalla sérstaklega um söng hvers og eins, því bæði eru þetta reyndir og vandaðir tönlistarmenn og af flutningi eins lags verður lítið sagt um getu hvers söngvara. Sigurður Björnsson opnaði tónleikana með mjög léttu og skemmtilegu lagi Ob blond, ob braun, eftir Stolz. Hann köm sá og sigraði og er ánægjulegt að Sigurður skuli vera kominn heim og er vonandi að hann fái notið sín sem söngvari og ekki sízt að söngvaraefni okkar fái notið leiðsagnar hans, ísl. söngmennt til blessunar. Vegna forfalla eins kvensöngvarans hljóp i skarðið Sieglinde Kahman, kona Sigurðar Björnssonar og sungu þau hjónin dúett úr Fuglasalanum, eftir Zeller. Að öðrum söngvurum ólöstuðum var söngur þeirra eitt af eftir- tektarverðustu atriðunum og sannarlega fengur i slíkum listamanni sem Sieglinde Kah- man. Tónleikunum lauk með þvi að afmælisbarnið söng þrjú isl. lög, sem hafa með ýmsum hætti verið tengd söngferli Þor- steins. Fyrsta lagið Fuglinn i fjörunni eftir Jón Þórarinsson frumflutti hann í upphafi söng- ferils sins árið 1943. Annað lag- ið, Rósin, eftir Árna Thor- Tónllst eftir JÖN ÁSGEIRSSON steinsson, hefur verið í sér- stöku uppáhaldi hjá isl. söngv- urum, enda er lagið mjög góð tónsmið: Það var eftirtektar- vert við söng Þorsteins hve beiting raddarinnar var yfir- veguð og í góðu jafnvægi, en umfram allt var túlkun hans frábær. Bæði í Rósinni og Sverri konungi, eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, sem hann söng sem aukalag og telur sig hafa sungið oftar en nokk- urt annað ísl. lag, var söngur Þorsteins annað og meira en söngur. Flutningur laganna var ofinn þeim galdri, sem gerir söng annað og meira en flutn- ing laglínu. Um starf Þorsteins mæiti rita langt mál, heila bók og væri slik saga ekki ófróðleg þeim er áhuga hafa á söng, eða hyggja að feta í fótspor hans, því þó margir hefðu viljað, hef- ur hann einn íslendinga sungið á sviði Covent Garden óperunn- ar London. LAUGAVEGUR 21599

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.