Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐÍÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977 Útgefandi Framkvœmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni GarSar Kristinsson. Aðalstraeti 6. slmi 10100. Aðalstrœti 6, simi 22480 Sovézk ágengni á N-Atlantshafi Fyrir nokkrum dögum birtist í Morgunblaðinu við- tal við Björn Bjarnason iögfræðing, um nýútkomna bók, sem fjallar um ný hernaðarleg viðhorf á N-Atlantshafi. Bók þessi er byggð á ráðstefnu, sem haldin var hér haustið 1975. í henni koma fram athyglisverðar upplýsingar, sem ekki hafa legið á lausu áður um íhlutun Sovétmanna i landhelgisátök ís- lendinga og Breta. I bók þessari er kafli eftir bandarískan sérfræðing, þar sem hann endurtekur staðhæfingar, sem fram munu hafa komið i fyrirlestri hans á fyrrnefndri ráðstefnu um pólitiskt hlutverk sovézkra herskipa í landhelgisdeilu okkar og Breta i maí 1973. Um þetta segir hinn bandariski sérfræðingur: ,,í hverju felst hin raunverulega ásökun á hendur Sovétmönnum. I þrengsta skilningi er hún fólgin i því, að þeir hafi ætlað að notfæra sér ..þorskastriðið" í þágu eigin hagsmuna, víðtækara markmið þeirra var liklega að sýna getu sína til að veita íslandi stuðning og fæla Breta frá því að færast meira í fang í deilunni. Lokamarkmið þeirra var vafalaust að kljúfa ísland úr NATO og koma þannig í veg fyrir, að NATO gæti haft not af þeirri mikilvægu aðstöðu, sem þar er til að hafa eftirlit með umferð á hafinu. Hvað gerðu Sovétmenn raunverulega til þess að þeir eigi þessa ásökun skilið? Þeir sendu öflugan og sýnilegan flota (sagt er að í honum hafi verið 10 beitiskip, freigátur og aðstoðarskip og jafnmargir kafbátar) inn á átakasvæðið (íslenzkt yfirráðasvæði) á viðkvæm- um tíma deilunnar (strax eftir að hlutverk brezka flotans breyttist úr óbeinni í beina þátttöku, þegar freigátur hans fóru inn fyrir 50 míiurnar) og þegar mjög mikið var að gerast." Þessar staðhæfingar hljóta að vekja verulega athygli hér, ekki sízt í Ijósi þess, að hinn bandaríski sérfræðingur hefur haldið fast við þær þrátt fyrír efasemdir, sem íslenzkir aðilar hafa látið uppi um réttmæti þessara kenninga. í þessu sambandi minnir Björn Bjarnason þó á það i fyrrnefndu viðtali, að hinn 27. nóvember 1975, ..aðeins tveimur dögum eftir að brezki flotinn hóf íhlutun sína innan 200 milnanna sáu menn i gæzluflugvél landhelgis- gæzlunnar óþekktan kafbát 33 sjómílur norðvestur af Langanesi, sem stakk sér í djúpið, þegar hann varð flugvélarinnar var. Þann 2. desember 1975 hefur Morgunblaðið það eftir áreiðanlegum upplýsingum, að kafbáturinn hafi verið sovézkur." Utan þessarar kafbátaferðar hefur mönnum hér ekki verið kunnugt um slika návist sovézkrar flotadeildar á örlagaríkum augnablikum þorska- striðanna, en það er þó engin sönnun fyrir þvi að hinn bandariski sérfræðingur hafi haft rangt fyrir sér. Sannleikurinn er sá, að jafnan þegar um erað ræða hugsanlega návist sovézkra herskipa við ísland, hefur reynzt furðu erfitt að fá opinber íslenzk stjórnvöld til þess að staðfesta slíkar fregnir eða gefa frekari upplýsingar um þær og átti það ekki sízt við á valdatímum vinstri stjórnarinnar. En sé þetta rétt, og full ástæða sýnist til, að það verði kannað frekar, er auðvitað alveg Ijóst, að sovézk afskiptasemi á haf- svæðinu I nágrenni íslands væri komin á alveg nýtt og enn alvarlegra stig, þar sem þá hefði verið um óumbeðinn erindrekst- ur af hálfu Sovétríkjanna að ræða í landhelgisdeilu okkar við Breta í viðtali þessu vitnar Björn Bjarnason einnig til greinar eftir kanadískan sérfræðing, sem fjallar um framtíð kafbátanna og áhrif þeirra á flotaumsvif á N-Atlantshafi og heimskautssvæðinu og segir: „Hann minnir á, að hernaðarstefna Sovétríkjanna fyrir og eftir síðari heimsstyrjöldina hafi haft það markmið að mynda umhverfis Rússland eins konar varnarbelti til að halda hugsanleg- um innrásaraðilum i fjarlægð. Kröfurnar í garð Finna 1939 hafi verið settar fram í þvi skyni að vernda svæðin umhverfis Murmansk og Leningrad, vetrarstríðið milli Finna og Rússa hafi einmitt leitt til þess að það markmið náðist. Við Kyrrahafið hafi Rússar slegið eign sinni á eyjar nálægt Japan, Austur-Pólland hafi verið tekið 1939, Eistland, Lettland, Litháen, Bessarabía og N-Búkóvína 1940. Raunar megi líta á aðíldarlönd Varsjárbanda- lagsins sem slikt belti milli Rússlands og NATO-ríkjanna. Þannig sé það í fullu samræmi víð fyrri stefnu að ætla, að sovézkir herfræðingar vilji koma á svipuðu belti á hafinu og færa yfirráð sín þar út hvenær sem tækifæri gefst. Þeir mundu þá byrja næst ströndunum við Múrmansk og þá koma helzt til álita N-Noregur, Svalbarði, Jan Mayen, Grænland, ísland og Færeyjar." Til frekari staðfestingar þessum áformum og vaxandi umsvifum Sovétríkjanna. á N-Atlantshafi og þrýstingi þeirra á þessu svæði er fróðlegt að lesa grein, sem birtist t Morgunblaðinu í gær og upphaflega var birt fyrir rúmri viku í bandaríska fréttatímaritinu Time, þar sem rakið er hvernig Danir og Norðmenn finna nú áþreifanlega fyrir auknum hernaðarumsvifum Rússa. Augljóst er að umsvif og þrýstingur Sovétríkjanna á norðurvæng Atlantshafs- bandalagsins eykst stöðugt. Nauðsyn okkar (slendinga og frænd- þjóða okkar á traustu varnarsamstarfi við önnur Natoríki verður stöðugt ríkarj. yið megum aldrei sofna á þessum verðí. Önnu Jónsdóttur eiginkonu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar var færður blómvöndur aS loknum Gyl flutningi verks Atla Heimis, sem var samiS viS IjóS eftir Ólaf Jóhann SigurSsson, sem sjálfur fyri gat ekki veriS viSstaddur sökum veikinda. MeS henni á myndinni er sonur þeirra. Dagur Norður- landaráðs íNorræna húsinu Norræna félagið gekkst fyrir hátíðarkvöldi í Norræna húsinu i fyrrakvöld á degi Norður- landa. Húsfyllir var, en á meðal gesta var forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn. Samkoman hófst með ávarpi Hjálmars Ólafssonar, formanns Norræna Félagsins. Því næstu flutti Trygve Bratteli, fyrrum forsætisráðherra Noregs, ræðu, en hann var heiðursgestur samkomunnar og hafði verið boðíð sérstaklega til íslands i tilefni dags Norðurlanda. Að lokinni ræðu hans fluttu þau Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari og Halldór Haraldsson píanóleikari sónötu eftir Edward Grieg Voru þeim færð- ir blómvendir að loknum flutn- ingi. Að loknu hléi flutti Jón Skaptason formaður íslands- deildar Norðurlandaráðs ávarp. NORÐUR- LANDARÁÐ 25ára Loks var frumflutt nýtt tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson við Ijóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðs- son, en þeir voru báðir verð- launahafar Norðurlandaráðs ár- ið 1976 Atli Heimir stjórnaði sjálfur flutningi verksins, sem flutt var af söngflokknum Hljómeyki en hann skipa: Guðmundur Guð- brandsson, Rut Magnússon, Kristín Ólafsdóttir, Halldór Vil- helmsson, Rúnar Einarsson, Elín Sigurvinsdóttir, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Sigurður Bragason og Áslaug Ólafsdótt- ir. Hljóðfæraleikarar voru: Jón- as Ingimundarson á píanó, Monika Abendrot spilaði á hörpu, Reynir Sigurðsson spil- aði á víbrafón og stjórnandi Atli Heimir á selesta. Atla Heimi og hinum lista- mönnunum var mjög vel fagn- að að loknum flutningi verks- ins. Var tónskáldinu færður blómvöndur, svo og eiginkonu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Önnu Jónsdóttur, en skáldið sjálft gat ekki verið viðstatt sökum veikinda. í anddyri Norræna Hússins hafði verið komið fyrir sýn- ingarspjöldum um ísland og Norðurlandaráð, en þau voru hönnuð af Ferdínand Alfreðs- syni arkitekt. Þá hafi einnig verið komið fyrir í anddyri hússins sýningunni „Kvinden í Norden", sem Norðurlandaráð lét gera í tilefni kvennaársins. í bókasafni Norræna Hússins var komið fyrir lítilli bókasýn- ingu. Verða sýningar þessar opnar næstu daga. A8 loknum frumflutningi tónverk og hljóSfæraleikurum. Samkoman hófst meS ávarpi Hjí mð einnig sjá forseta íslands, dr. Kri og fleiri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.