Morgunblaðið - 30.03.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 72. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. KLM-þotan hóf flugtak án samþykkis flugtumsins Uppdráttur af slysstaðnum á flugvellinum á Tenerife. Mörg atriði rannsókn- arinnar enn óútskýrð Santa Cruz — 29. marz — Reuter FORSTÖÐUMAÐUR hollenzku rannsóknarnefndarinnar, F.A. van Reysen, sem kannar orsakir flugslyssins mikla á flugvellinum á Tenerife á sunnudaginn var, þar sem 570 manns létu lffið, lýsti Stöðugar morð- hótanir 1 garð Sakharov- fjölskyldunnar New York 29. marz — Reuter. BANDARtSKA stórblaðið The New York Times birtir f dag opið bréf frá Andrei Sakharov. 1 bréfinu segir Sakharov, að f jölskylda hans búi við stöðug- ar morðhótanir og glæpsam- legar ofsóknir. Kveðst Sakharov hafa sótt um að fá fjögurra herbergja íbúð í skiptum fyrir þær tvær tveggja herbergja íbúðir sem hann og kona hans búa í annars vegar og dóttir hans og tengdasonur hins vegar. Laga- lega sé yfirvöldum skylt að taka slíkar umsóknir til greina, en þau hafi hafnað þessari málaleitan. Ástæðuna fyrir því að fjölskyldan vilji fremur búa f einni íbúð en tveimur segir Sakharov vera þá, að hún treysti sér ekki til annars vegna stöðugra morð- hótana í garð allra fjölskyldu- meðlimanna, sem séu sjö að tölu, þar af tvö smábörn, „Þrátt fyrir þessar hræði- legu kringumstæður, sem eru óendanlega miklu ömurlegri en sú persónulega ábyrgð sem ég ber á minum eigin gerðum, lít ég á það sem skyldu mína að halda áfram opinberum af- skiptum af mannréttinda- Framhald á bls. 18 þvf yfir f kvöld, að KLM-þotan hefði hafið flugtak án þess að flugstjórinn hefði fengið endan- leg boð frá flugturninum um að þotan mætti hefja sig til flugs. Sagði van Reysen ennfremur að upptaka á fjarskiptum flugturns- ins hefði leitt í ljós, að þota Pan American hefði farið fram hjá hliðarbraut, sem hún átti að bíða á, þar til hollenzka þotan væri komin á loft, og þvf hefði hún verið fyrir á aðalflugbrautinni þegar KLM-þotan kom á móti henni á ofsahraða með þeim afleiðingum að þoturnar skullu saman. Juan Linares, flugvallarstjóri á Los Rhodeos-flugvellinum, stað- festi þessi ummæli van Reydens f Framhald á bls. 18 Fjárlagafrumvarp brezku stjórnarinnan Tekjuskattslækkun sem jafn- gildir 4.5% launahækkun LUndúnum 29. marz Reuter. I fjárlagafrumvarpinu, sem Denis Healey, fjármálaráðherra Breta, lagði fyrir brezka þingið f dag, er gert ráð fyrir 2.25 millj- arða sterlingspunda tekjuskatts- lækkun, sem háð er þvf skilyrði að verkalýðssamtökin f landinu gæti hófs f kauphækkunarkröfum þriðja árið f röð. t fjárlagaræðu Healeys kom fram, að skatta- lækkunin mundi jafngilda 4.5% launahækkun miðað við meðal- vikulaun heimilisföður, sem væru nú 80 sterlingspund, eða sem nemur um 26 þús. fslenzkra króna. Samkvæmt^rumvarpinu er 1.29 milljarða tekjuskattslækkun óháð (AP-símainynd). Denis Healey með hina gamalkunnu skjalatösku er hann hélt með fjárlagafrumvarpið f brezka þingið f gær. kaupkröfum, en 960 milljóna punda lækkun til viðbótar er undir því komin hvort verkalýðs- hreyfingin fellst á að stilla kaup- kröfum i hóf. í ræðu sinni skil- greindi ráðherrann ekki hvað átt væri við með því orðalagi. Til að vega upp á móti tekju- skattslækkuninni gerir frum- varpið ráð fyrir hækkuðum skött- um á ýmsum neyzluvörum, svo sem tóbaki og oliu, en þrátt fyrir þessi gjöld nemur tekjurýrnun rikisins vegna skattalækkananna um 1.5 milljörðum sterlings- punda, verði frumvarpið sam- þykkt. Framhald á bls. 18 (AP-símamvnd). Cyrus Vance f hópi Sovét-lefðtoga f Kreml. Annar frá hægri er ^obrynin, sendiherra Sovétrfkjanna f Bandarfkjunum, þá Vance, ®rezhnev og Gromyko utanrfkisráðherra. V ance og Gromy ko ræða alþjóðamál Moskvu — 29. marz — Reuter. Á FIMM klukkustunda viðræðu- fundi i Moskvu f dag ræddu utan- rfkisráðherra Bandarfkjanna og Sovétrfkjanna, Cyrus Vance og Andrei Gromyko, þau mál, sem ber hæst á alþjóðavettvangi um þessar mundir. Varð að sam- komulagi, að stjórnir beggja rfkj- anna skipuðu embæt'tismanna- nefndir, sem eiga að bera saman bækur sfnar á næstunni. Ekki var i dag minnzt á það mál, sem af hálfu Bandarikjanna er helzti tilgangur ferðar Vance til Moskvu, þ.e. að komið verði á nýjum Salt-viðræðum. Vance kvaðst i dag ekki hafa búizt við að Salt-tillögurnar, sem hann lagði fram i gær, yrðu til umræðu á fundinum í dag. Hann kvaðst þeirrar skoðunar, að tillögurnar væru nú til athugunar hjá sovézk- um ráðamönnum. Vance sagði á fundi með frétta- mönnum að viðræður sínar við sovézka utanríkisráðherrann hefðu verið „gagnlegar og fróð- legar", en þær snerust meðal ann- ars um eftirlit með kjarnorku- vopnatilraunum, horfur á að Ind- landshaf yrði herlaust svæði, bann við notkun gjöreyðingar- vopna, málefni Afríku sunnan- verðrar og landanna fyrir botni Miðjarðarhafs, auk gagnkvæmrar fækkunar í herafla í Mið-Evrópu. Gert er ráð fyrir að viðræðun- um í Moskvu ljúki á morgun en Vance hefur tjáð sovézkum ráða- mönnum að hann sé fús til að halda þeim áfrarn, en hefur ekki fengið svar við því tilboði enn sem komið er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.