Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 19
19 Konráð varfyrstur íslenzkra manna til að koma auga á möguleika gufuknúinna skipa, og festi hann kaup á 50 tonna gufubáti, Reyki, í Noregi árið 1897. Fljótlega fannst Konráði þessi bátur of lítill og seldi hann þá. Bryggjuhús Konráðs í Neskaupsstað, við bryggju er einn af bátunum, Hálfdán. Konráð t.v. ásamt, Sævaldi syni sínum og Friðriki Hallgrimssyni kaupmanni á Eksifirði á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn skömmu eftir 1 920. nokkrum fleirum, gugnaði þegar hann heyrði hve mikils salts þyrfti með. Með þessu var allt á bak brotið, og fór svo áðurnefnd- ur tsak til Akureyrar, til að reyna fyrir sér undirtektir þar, sem ekki voru betri. Gat ekki sofið Ég gat sem sé ekki sofið nótt né dag, út-af því að geta ekki komið þessu í framkvæmd, þar til ég tek stóran pakkkassa útbý hann sem frosthús eftir tilsögn ísaks, hengdi upp í hann síld, kjöt og fisk, legg siðan í kassann ísblönd- una og fæ eftir hæfilegan tíma 11 gráðu frost á cellcíus og sá ég þá strax, að útreikningar mannsins um saltbrúkunina, náði engri átt. Eftir þetta skrifaði ég ísaki að koma strax, því nú sé ég ákveðinn að byggja frosthús i fullkomnum stíl, sem ég svo framkvæmdi með nokkurra góðra manna hjálp. Þetta hús mitt og Reykjavíkur frosthúsið, urðu hér um bil sam- hliða tilbúin, nema hvað mitt hús varð ca. 2 mánuðum fyrri til notk- unar; bæði húsin reyndust vel. Svo liðu 2 til 3 ár þar til almennt var farið að byggja frosthús hér á Austfjörðum, en gáfu strax góðan hagnað.“ Fyrsta gufuskip íslendinga Hagur Konraðs blómgaðist fljótt eftir að frosthúsið var kom- ið i notkun, því nú var hægt að geyma sildina svo dögum, já og mánuðum skipti án þess að hún skemmdist. Hann jók því fljótlega útgerð sína og árið 1896 verður hann fyrstur Islendinga til að eignast gufubát. Gufubáturinn var byggður í Bergen og 50 smá- lestir að stærð og fékk nafnið Reykir. Var Reykir á þorskveið- um úti fyrir Austfjörðum í 3 ár, en þá kom að Konráði þótti bátur- inn ekki nógu stór, og seldi hann. Lét hann nú byggja nýtt gufuskip í Hardanger í Noregi, 125 smá- lesta tréskip, og var skipið á þorsk- og síldveiðþum í nokkur ár. Var það hið fræga skip Súlan, sem ekki var öll fyrr en eftir 1960, var skipið fyrst doriuskip. Á þessum árum fóru fyrstu vél- bátarnir að koma til landsins og varð-Konráð samstundis hrifinn af þeim möguleikum sem þeir hófðu upp á að bjóða. Eins og fyrri daginn lét hann hendur standa fram úr ermum og tók til óspilltra mála og árið 1904 keypti hann sinn fyrsta vélbát i Dan- mörku, reyndist hann svo vel, að tveim árum síðar kaupir hann 11 mótorbáta 7—9 smálesta. Segir Konráð að hinir og aðrir hafi fengið 6 þeirra, en 5 hafi hann gert út sjálfur. Þeir sem keyptu bátana af honum lögðu að sjálf- sögðu upp hjá Konráði. Á þessum árum fór kauptúnið við Nes í Norðfirði að stækka og Konráð var fljótur að grípa tæki- færið og koma upp útibúi þar, og svo fór að hann flutti alfarið frá Mjóafirði til Norðfjarðar 1912. Jukust þá umsvif hans mjög á skömmum tíma. Keypti hann fisk af Englendingum, Færeyingum Framhald á bls. 32 Verzlunarhús Konráðsá Mjóafirði HLOS SKIPHOLTI 35 Verilun REYKJAVÍK sííhlTfa Takið ekki oþarfa áhættu, skiptið um síu reglulega. CAV hraohusian kostar aðeins kr. 495. Mig langar í smurða brauðið frá Brauðbœ ...það er svo ofsa gott! GLEÐILEGA PÁSKA við Óðinstorg, simi 20490. Pöntungarsímar: 25090 — 20490.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.