Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 1
124. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sprengjualda á Spáni Madrid, 6. júní. Reuter. MIKIL sprengjualda gekk yfir Baskahéruðin á N-Spáni yfir helgina og f dag og óttast ráðamenn á Spáni að spennan, sem þar rfkir geti haft alvarleg áhrif á þingkosningarnar f landinu 15. júnf nk. Þá skutu skæruliðar úr maoistasamtökum til bana tvo lögreglumenn f Barce- lona um helgina. Stjórnvöld héldu áfram að senda pólitiska fanga úr hópi Baska f útlegð til útlanda og f dag voru tveir fangar sendir flugleiðis til Noregs, en báðir höfðu verið sekir fundnir um morð á lögreglu- mönnum, en liflátsdómi yfir þeim Flugræningi yfirbugadur Kuwait, 6. júnf. Reuter. SÉRÞJÁLFAÐIR hermenn yf- irbuguðu f dag Ifbanskan flug- ræningja, sem hélt 105 farþeg- um og 11 manna áhöfn f gfsl- ingu um borð f Boeing 707 þotu í eigu Miðausturlanda- flugfélagsins á Kuwaitflug- velli. Maðurinn, sem krafðist 1,5 milljón dollara lausnar- gjalds, kom um borð f vélina f Bagdað í hjólastól og lézt vera lamaður. Skömmu eftir flug- tak dró hann upp byssu og handsprengju og skipaði flug- mönnum að snúa til Kuwait. Engan sakaði um borð f þot- unni. breytt í lífstfðarfangelsi. Hafa nú 8 pólitfskir fangar verið sendir til útlanda, sem allir voru félagar í skæruliðasamtökum Baska ETA. Er þetta gert til að reyna að minnka spennu f landinu fyrir kosningarnar. Sprengjur ollu miklu tjóni um helgina á veitingastað í San Se- bastina, sjónvarpsstöð í Santure og verzlunarmiðstöð í Bilbao. Þá Framhald á bls. 24. Tyrkland: Seychelleseyjar: Vinstrisinnuð stjórn tekiu* við völdum Viktorfu, Se.vchelleseyjum, 6. júní. AP—Reuter. ALBERT Rene fyrrum forsætis- ráðherra og hinn nýi forseti Seychelleeyja eftir bvltinguna í gær vfsaði algerlega á bug f yfir- lýsingu f dag fullyrðingum James Manchams fyrrum forseta um að Sovétstjórnin hefði staðið að baki byltingunni. Sagði hann að hin nýja stjórn yrði stjórn fólksins en ekki sérréttinda. Ekki hefur ver- ið gefið upp hverjir stóðu fyrir byltingunni í gær, en Rene sagð- ist hafa ákveðið að verða við veiðni byltingarmanna um að taka við forsetaembætti. Mancham, sem varð forseti eyj- Framhald á bls. 24. Bulent Ecevit fagnar sigri f gær f Istanbul. Sfmamynd AP. Ecevit myndar stjórn Ankara, 6. júní. AP. LJÓST var f kvöld, að tyrkneskir kjósendur höfðu veitt Bulent Ece vit leiðtoga Lýðveldisflokksins f Tyrklandi na‘gilegan stuðning til að mynda nýja stjórn í landinu. Flokkur Ecivits, sem hallast að jafnaðarmannastefnu hefur byggt kosningabaráttu sfna á Kúba og Bandaríkin skiptast á diplómötum Washington, 6. júnf. Reutcr. BANDARÍKIN og Kúba til- kynntu um helgina að stjórnir landanna hefðu ákveðið að skipt- ast á diplómötum f fyrsta skipti f 16 ár. Þá tilkynnti Kúbustjórn að hún myndi sleppa úr haldi 10 Bandarfkjamönnum, sem sitja f fangelsum þar í landi. Verða sam- skipti landanna á þann veg að Bandarfkjamenn niunu starfa f sérstakri deild f svissneska sendi- ráðinu á Kúbu, en Kúbumenn f sendiráði Tékkóslóvakfu f Washington. Bandarfkjamenn slitu stjórnmálasamstarfi við Kúbu 1961 eftir að eigur banda- rfskra fyrirtækja voru gerðar upptækar á eynni og Kúbumenn studdu skæruliðastarfsemi f S- Ameríku. vinstrisinnaðri stefnuskrá og með lög og rétt að kjörorði. Þegar 90% atkvæða höfðu verið talin hafði flokkur Ecevits fengið 41,5% at- kvæða, en helzti keppinautur hans, Réttarfarsflokkurinn undir forystu Suleymans Demirels for- sætisráðherra, 37,35%. Réttar- farsflokkurinn er íhaldsflokkur. Næstu flokkar voru Þjóðlegi björgunarflokkurinn, sem er erkifhaldsflokkur með 8.17% at- kvæða og Þjóðlegi aðgerða- flokkurinn, sem er róttækur hægri flokkur með 6,17%. Ekki virtust líkur á því að flokkurEcevitsfengi 226 þingsæti af 450 þannig aö hann hefði ein- faldan meirihluta á þingi, en stjórnmálafréttaritarar segja að i ljósi þess hve léttilega menn skiptu um flokka í Tyrklandi muni ekki verða erfitt fyrirEcevit að fá nægilega marga þingmenn annarra flokka til liðs við sig og tryggja sér þannig meirihluta. Út- varpið í Ankara spáði þvf að Lýð- vefdisflokkurinn fengi 212 þing- sæti, en Réttarfarsflokkurinn 187. Ecevit lýsti þvf yfir á blaða- mannafundi í dag að fiokkur sinn væri tilbúinn og viljugur til að taka að sér stjórnarmyndum. Á fundinum strengdi hann þess heit að bæta samskiptin við Bandarík- in, en Bandarikjamenn yrðu einn- ig að koma til móts við Tyrki. Sambúð þessara landa hefur ver- ið stirð undanfarið vegna vopna- sölubanns Bandarikjastjórnar að lokun 25 bandarískra fjarskipta- og njósnastöðva í Tyrklandi. Sigur Lýðveldisflokksins i kosn- ingunum er hinn mesti frá þvi lýðveldi var stofnað i landinu eft- ir strið, en Ecevit höfðaði í kosn- ingabaráttu sinni mjög til ungs fólks í bæjum og borgum og með heiftarlegum árásum á stjórn Demirels, sem hann kallaði þjófa- stjórn sem ekki hafi getað stöðvað ofbeldisöldu öfgahreyfinga i land- inu sl. 2 ár. Sagði Ecevit að auð- velt yrði að koma á lögum og reglu í landinu á ný því Tyrkir væri róleg og friðsöm þjóð eins og greinilega hefði komið i ljós á kosningadaginn sem væri hinn friðsamasti í sögu þjóðarinnar. Framhald á bls. 24. Pakistan: 2000 pólitískum föngum sleppt Rawalpindi, 6. júnf. Reuter. RÍKISSTJÓRN Pakistans til- kynnti f dag, að hún hefði látið lausa úr haldi 2000 pólitfska fanga á sl. 2 dögum og nú væri verið að fjalla um mál 1000 ann- Holland: Hreyfingarleysi og leiðindi hrjá gíslana Assen, 6. júní. Reuter. ANDREAS van Agt dómsmála- ráðherra Hollands varaði menn f dag við of mikilli bjartsýni á samkomulagi við Mólúkkana, sem nú halda 53 mönnum f gfslingu f lest og skóla nálægt Assen. Mólúkkarnir slepptu sem kunnugt er tveimur van- færum konum úr prfsundinni f gær og er þær nú f sjúkrahúsi, en sagðar við góða heilsu. Hvorug hefur viljað ræða við fréttamenn, en þær lásu upp stutta yfirlýsingu í sjúkrahús- inu í Groningen, þar sem þær sögðu að Mólúkkarnir hefðu farið „rétt“ með gfsla sína og að heilsa þeirra væri viðunandi, en gíslarnir væru undir gifur- legu andlegu álagi. Þá sögðu þær að hreyfingarleysi og leið- indi væru að verða alvarlegt vandamál hjá mörgum. Að öðru leyti sögðust konurnar ekki geta sagt meira frá pri- sund sinni fyrr en umsátrinu væri lokið af tillitsemi við þá sem enn væru i gíslingu og fjöl- skyldur þeirra. Ekkert hefur enn frétzt um hvenær næsti samningafundur verður haldinn milli Mólúkk- anna og tveggja mólúkksra milligöngumanna, sem sam- komulag varð um fyrir helgi. Áttu þeir 6 klst. fund um borð í lestinni á laugardag. Segja fréttamenn, að svo virðist sem hollenzka stjórnin sé að reyna að tefja tímann og bíða átekta eftir nýjum tillögum frá Mól- Vanfæru konurnar tvær, sem Mólukkarnir slepptu á sunnudag brosa á stuttum blaðamannafundi í gær. sfmamyndAP. úkkunum eða milligöngumönn- unum. Þá hefur stjórnin einnig höfðað til leiðtoga þeirra 40 þús. Mólúkka, sem búa i Hol- landi, um að láta málið til sfn taka. Túlka fréttamenn þetta sem áskorun á Mólúkka um að þeir láti í ljós vanþóknun á aðgerðum hinna ungu skæru- liða, sem gíslunum halda. arra, sem enn sitja f haldi. Að- gerðir þessar eru f framhaldi af viðræðum, sem hófust í gær við stjórnarandstöðuflokkanna 9 um leiðir til að binda endi á þriggja mánaða andóf gegn Bhutto for- sætisráðherra eftir þingkosning- arnar f landinu f marzbyrjun sl. Þetta var tilkynnt f sameiginlegri yfirlýsingu viðræðuaðila, en hins vegar féllst stjórnarandstöðusam- steypan, PNA, ekki á tölu stjórn- arinnar að aðeins 1000 manns séu enn f fangelsi. Hefur PNA þó ekki getað gefið ákveðna tölu, en leiðtogar hennar hafa margoft haldið fram að 50000 manns hafi verið handteknir á sl. 3 mánuð- um. í tilkynningunni var einnig sagt að viðræðurnar snerust um tvær tillögur stjórnarinnar um lausn á deilunni, en fulltrúar beggja deiluaðila færðust undan að svara spurningum fréttamanna um f hverju þessar tillögur væri fólgn- ar. Heimildir i Rawalpindi hermdu að báðar byggðust á þvi að nýjar kosningar yrðu haldnar. í tilkynningunni sagði að Bhutto forsætisráðherra væri staðráðinn í að komast að skjótu samkomu- lagi við PNA. PNA hefur haldið því fram að Bhutto hafi staðið fyrir stórfelldum kosningasvikum í kosningunum 7. marz og krafist þess að hann segði af sér og boð- aði til nýrra kosninga. Viðræðum verður haldið áfram á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.