Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977 Óskar keppir í I Æstur múgurinn óð inn á Wembley-leikvanginn að leiknum loknum og eins og sjá má voru mörkin rifin niður og brotin. Innrás Skota á Wembley og sigur í brezku keppnmni ENSK KNATTSPYRNA varð fyrir enn einu áfallinu er enska landsliðið tapaði fyrir þvf skozka á Wembley-leikvanginum I Lundúnum á laugardaginn. Urslitin urðu 2:1 sigur Skota, sem með þessum sigri vörðu titil sinn örugglega I brezku landsliðakeppninni. Ekki nóg með að áfallið væri mikið knattspyrnulega fyrir Englendinga, heldur voru þeir einnig særðir djúpu sári er áhangendur skozka landsliðsins ruddust inn á leikvanginn þar sem Englendingar hafa unnið sfna sætustu sigra að leiknum loknum og unnu þar spjöll fyrir 5 milljónir króna, mörkin voru rifin niður, netin tætt I sundur og jafnvel höfðu Skotarnir með sér torfusnepla heim til Skotlands til minja um þennan sæta sigur. — Þetta er það alversta, sem ég hefi séð á ævi minni, sagði Ted Croker, framkvæmdastjóri Enska knattspyrnusambands- ins, og innan skamms munu verða reistar háar girðingar um leikvanginn til varnar slíkum skrflslátum. Úrslitin í brezku meistara- keppninni að þessu sinni urðu þau, að Skotar sigruðu með 5 stig — gerðu aðeins jafntefli við Wal- es, en unnu Englendinga og N- íra. Wales hlaut 4 stig i keppn- inni, en þeir gerðu jafntefli, 1:1, á laugardaginn gegn N-írum. Höfðu þeir gert sér vonir um sig- ur í þeim leik og þá einnig sigur í keppninni, en það hefði verið í fyrsta skipti síðan 1937. Englend- ingar hlutu 2 stig, unnu aðeins Norður-íra, sem ráku lestina með eitt stig. Leikur Skotlands og Englands á Wembley á laugardaginn gat ekki endað nema á einn veg, að þvi er segir í fréttaskeytum. Skotar höfðu öll tök á miðju valiarins og hlutu að sigra. Það var miðjutrió- ið Bruce Rioch, Don Masson og Asa Hartford, sem lögðu grunn- inn að sigrinum, en bezti maður skozka liðsins var þó sennilega Gordon McQueen, sem hafði yfir- burði gegn ensku sóknarmönnun- um og skoraði sjálfur fyrsta mark leiksins á 43. minútu með gullfall- egum skalla. Celtic-leikmennirnir McGrain og Daglish sýndu einnig snilldartaftta í þessum liek og það Gordon McQueen gnæfir yfir leikmenn Englands og skorar fyrsta mark leiksins. var Dalglish, sem gerði í raun út um leikinn með marki á 61. min- útu. Á 88. minútu felldi McQueen Trevor' Francis og úr vitaspyrn- unni, sem réttilega var dæmd, skoraði Mike Channon. Eftir leikinn æddu þúsundir öl- óðra Skota inn á völlinn og rifu þar allt og tættu, sem fyrir þeim varð. Miðborg Lundúna var síðan undirlögð á laugardagskvöldið og langt fram eftir sunnudeginum af Skotunum, sem þá loks héldu heim á leið i vímunni. Hátt í 200 voru handteknir, fjölmargir flutt- ir slasaðir og meiddir á sjúkrahús og einn skozku knattspyrnuunn- endanna lézt er hann stakk sér í gosbrunn i Trafalgar-garðinum, en vatnið í brunninum var aðeins tæplega eins metra djúpt. í Belfast léku N-írar gegn Wales og úrslitin urðu 1:1. Það var Peter Sayer, ieikmaður með PSV Eindhoven í Hollandi, sem skoraði fyrir Wales á 27. mínútu leiksins, eftir góðan undirbúning Leigton James. Jöfnunarmark heimaliðsins gerði Arsenal- leikmaðurinn Nelson eftir hnit- miðaða sendingu Sammy Mcllroy. öllum greinum SEM kunnugt er heyja íslending- ar og Danir landskeppni I kast- greinum frjálsiþrótta á Laugar- dalsvellinum á miðvikudag og fimmtudag. Hefst keppni kl. 20.15 á miðvikudaginn, en einnig verður keppt f fjölmörgum auka- greinum samhliða landskeppn- FRÍ hefur valið lið íslands i kastlandskeppninni og er það skipað eftirfarandi mönnum: Óskar Jakobsson ÍR kúluvarp, kringlukast, spjótkast og sleggju- kast, Erlendur Valdimarsson KR kringlukast og sleggjukast, Hreinn Halldórsson KR kúluvarp og Stefán Hallgrímsson KR spjót- kast. Jafnframt keppir unglingur í hverri grein, og fyrir íslands hönd hafa verið valdir eftirtaldir unglingar: Þráinn Hafsteinsson Óskar Jakobsson HSK kringlukast, Óskar Reykdal HSK kúluvarp, Einar Vilhjálms- son UMSB spjótkast og Ásgeir Þ. Eiriksson ÍR sleggjukast. Svo sem sjá má keppir Óskar Jakobsson ÍR í öllum greinum landskeppninnar. Einnig vekur athygli að í unglingaliðinu er son- ur hins kunna frjálsíþróttakappa Vilhjálms Einarssonar. Ingunn setti nýtt ísl. met INGUNN Einarsdóttir, ÍR, varð Reykjavfkurmeistari I fimmtarþraut. Hún hlaut 3036 stig og setti Islandsmet, þótt hún lyki aðeins við f jórar greinar af fimm. Ástæðan er sú, að nú var f fyrsta skipti keppt I 800 metra hlaupi f stað 200 metra hlaups áður, og er árangur Ingunnar þvf sjálfkrafa nýtt met. Það var einmitt í 800 metra hlaupinu, sem Ingunn sprengdi sig og varð að hætta. í langstökki stökk hún 5,61 metra, kastaði kúlu 9,66 metra, hljóp 100 metra grindahlaup á 14,9 sekúndum og stökk 1,55 metra f hástökki. Elías hjó nærri meti Stefáns ELÍAS Sveinsson, KR, náði mjög góðum árangri I tugþraut á Reykja- víkurmeistaramótinu, sem fram fór á Laugardalsvelli á fimmtudag og föstudag. Hlaut Elias 7440 stig og hjó mjög nærri íslandsmeti Stefáns Rússar unnu Svía NÚ SEM stendur fer fram geysi- sterkt mót landsliSa I Júgóslavlu og hafa okkur borizt úrslit úr þremur leikjum. Júgóslavla sigraði Ungverjaland 21:18 og Pólland 22:21 og Sovétríkin sigruSu SvlþjóS 24:14. Sovétmenn eru sem kunnugt er mótherjar okkar I HM og eins og sést é úrslitunum virSast þeir mjög sterkir um þessar mundir. A8 vinna gullliSiS frá B-keppninni f Austurrfki me8 10 marka mun bendir sannar- lega til þess. Paisley valinn BOB Paisley hjá Liverpool hefur verið valinn framkvæmdastjóri ársins í Englandi. Kemur það engum á óvart eftir velgengni félagsins I vetur. Paisley hlaut sömu nafnbót f fyrra. krever lillestrBm-tnneren intervjuet av KolfNereng og fotografert av Odd Anthonsen Þa8 er engu Ifkara en aSeins einn knattspymuþjálfari starfi f Noregi um þessar mundir, Josep Hoöley fyrrum þjálfari Keflvfkinga og kunningi fslenzkra knattspymumanna. BlöS f Noregi eru full af fréttum. greinum og viBtölum vi8 Hooley, sem eins og áSur hefur ýmislegt tíl málanna a8 leggja. Hooley þjálfari Lilleström, sem f raun er rekiS sem félag atvinnuknattspyrnumanna. Hefur Ii8i8 örugga forystu f norsku 1. deildinni, hefur aSeins tapaS tveimur stigum. Um helgina lék Lilleström gegn Molde á útivelli og þó svo a8 Hooley vantaSi 2 af sfnum sterkustu leikmönnum. Tom Lund og Toi Egil Johannsson. náSi Ii8i8 jafntefli 0.0. Var þessa leiks beSiS me8 mikilli eftirvæntingu. þar sem Hooley þjálfaSi fyrir tveimur árum f Molde. en var þá rekinn. Var litiS á þennan leik sem viSureign Hooleys og Molde og jafntefli var8 niSurstaSan. í úrklippunni hér a8 ofan er Hooley kallaSur hinn har8rá8i og ekki dugir mínna en heil sF8a og margar myndir fyrir kappann. Hallgrímssonar. KR, sem er 7589 stig. Jón Sævar ÞórSarson, ÍR, náSi einnig mjög góSum árangri 6358 stigum, sem er 13. bezti árangur íslendings frá upphafi. Bæði Ellas og Jón settu persónulegt met f nokkr- um greinum. Einnig var keppt f 10 þúsund metra hlaupi á föstudaginn og varð Rúnar Gunnarsson út- sendingastjóri hjá sjónvarpinu Reykjavfkurmeistari, hljópá 39.15,6 mfnútum, sem er ágætur tfmi þegar haft er f huga að hann hljóp keppnis- laust, þvf allir aðrir skráðír kepp- endurdrógu sig úrhlaupinu. Arangurinn í tugþrautinni varð þessi: 1 Elias Sveinsson, KR. 7440 stig (11,1 sek í 100 metra hlaupi, 6,7 1 m í langstökki, 14,55 m í kúluvarpi, 1,95 m I hástökki. 52,6 sek. i 400 metra hlaupi, 15,8 sek. í 110 m grindahlaupi. 48,70 m ( kringlukasti. 4,15 m í stangarstökki. 59,20 m i spjótkasti og 4,58,0 mín. i 1500 m hlaupi) 2. Jón S. Þórðarson, ÍR, 6358 stig (1 1,2 6,44 1 1,47. 1,86, 51.7, 15.8, 29.74, 3.35, 43.26 og 4.51, 2) 3. Þráinn Hafsteinsson, HSK, 5997 stig 4 Björn Blöndal. KR, 5876 stig 5. Óskar Thorarensen, ÍR, 5580 stig Þeir Elias, Jón, Björn og Óskar bæta sig allir verulega, Elias um 216 stig og Óskar um 630 stig Veður var fremur óhagstætt til keppni, sérstaklega seinni daginn. og er árangur kappanna ennþá athyglisverðari fyrir þá sök Hálfdán og Agústefstir ÞOTUKEPPNIN í golfi fór fram á Hvaleyrarholti um helgina í óhagstæðu veðri. Urslit urðu þau, að I keppni án forgjafar urðu Hálfdán Karlsson og Ágúst Svavarsson, GK, efstir og jafnir á 157 höggum. Sigurður Pétursson, GK, varð þriðji á 158 höggum, Magnús Halldórsson og Sveinn Sigurbergsson, GK. voru á 160 höggum, Islandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson, GK, á 161 höggi og Ragnar Ólafsson, GR, Óskar Sæmundsson, GR, og Loftur Ólafsson, NK, voru á 162 höggum. Veitt voru stig til landsliðs og hlutu sigurvegararnir 36 stig hvor. t keppni með forgjöf sigraði Björn Karlsson, GK, á 144 höggum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.