Morgunblaðið - 15.06.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
130. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. JUNl 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Belgrad-
ráðstefn-
an hafin
Belgrad, 14. júní. Reuter.
ÖRYGGISMÁLARÁÐSTEFNA
35 vesturlandaþjóða og komm-
únistarfkja hefst f Belgrad f
dag, miðvikudag, en undan-
farna daga hafa fulltrúar þjóð-
anna setið á fundi til að
reyna að samræma stefnumál
sfn. Talið er að mikill ágrein-
ingur kunni að koma upp á
ráðstefnunni um mannrétt-
indamál. Verkefni ráðstefn-
unnar er að skoða þann
árangur eða skort á árangri á
öllum sviðum „détente" frá
Helsinkiráðstefnunni 1975.
Heimildir meðal þátttökuþjóða
hermdu f dag að fulltrúar vildu
reyna að forðast beinar deilur,
sem gætu eyðilagt ráðstefnuna.
Margir hafa áhyggjur af yfir-
lýsingum Carters Bandarfkja-
forseta um mannréttindamál,
en hann lýsti því yfir f gær-
kvöldi að hann myndi halda
áfram baráttu sinni fyrir
mannréttindum f heiminum
öllum, þrátt fyrir viðvaranir
yfirvalda f Moskvu um að þessi
stefna gæti eyðilagt „détente“.
Framhald á bls. 18
Kosið á Spáni í dag
sjá grein bls. 17
□ —
□ —
Madrid, 14. jdnf. AP.
BtJIZT er við yfir 80% kjörsókn í
kosningunum á Spáni f dag, en
þær eru hinar fyrstu, sem fram
fara f landinu f 41 ár. Niðurstöður
Gallup-könnunar. sem birtar voru
um það leyti, sem kosningabarátt-
unni var að ljúka, benda til þess
að flokkur jafnaðarmanna
(PSOE) fái 3.3% meira fylgi en
flokkur Suarez forsætisráðherra,
en könnun Informaciones sem er
óháð blað, bendir hins vegar til að
flokkur hans fái 2% meira en
jafnaðarmenn.
Aðeins þrjú þeirra 50 fiskiskipa, sem sigldu upp eftir Tamesá til að mótmæla stefnu Efnahagsbanda-
lagsins f fiskveiðimálum, komust á ákvörðunarstað, sem var fyrir framan þinghúsið. Eftir stormasama
nótt var mikill öldugangur á fljótinu og vatnsborð hátt, þannig að margsinnis lá við að möstur
togaranna rækjust upp undir brýrnar. Urðu flestir þvf að snúa við á miðri leið, en þrfr komust á
leiðarenda. Myndin var tekin er Boston Blenheim frá Fleetwood og Suffolk Conquest frá Lowestoft
sigldu undir Tower Bridge. (AP-simamynd).
Indland:
Janata vinnur stórsigur
í fyHdsþingkosningunum
Nýju Delhi, 14. júní. Reuter.
JANATA-flokkurinn vann mik-
inn kosningasigur f fylkisþing-
kosningunum f norðurhluta
landsins, og þegar endanleg úrslit
lágu fyrir um 492 þingsæti af
2.298 hafði Janataflokkurinn og
stuðningsflokkar hans fengið 407
sæti, en Kongressflokkurinn að-
eins 63. Kosningatölur úr lang-
flestum fylkjum sýna ótvfrætt að
kjósendur hafa í annað skiptið á
þremur mánuðum hafnað
Kongressflokknum mjög eindreg-
ið og ftrekað þannig andúð sfna á
stjórnarháttum flokksins undir
forsæti Indiru Gandhi.
Þegar er ljóst, að Janata-
flokkurinn og stuðningsflokkar
hans hafa fengið hreinan meiri-
hluta i Rajastan og Punjab, en á
báðum stöðum hafði Kongress-
flokkurinn hreinan meirihluta
þegar þingrof fór fram fyrir
tveimur mánuðum.
Ljóst er, að
Janata mun fá meirihluta í
Himachal Pradesh, Madhya
Pradesh, Orissa og Haryana, svo
og í Delhi, auk þess sem flokkur-
inn virðist ætla að halda fylgi
sínu í Vestur-Bengal, þar sem
kommúnistum hafði verið spáð
sigri.
Tamil Nadu er eina fylkið á
Suður-Indlandi, þar sem kosning-
ar fara fram að þessu sinni. Þar
hafði Anna-DMK flokurinn feng-
ið sex sæti af sjö, sem úrslit lágu
fyrir um í kvöld. í marzkosning-
unum hlaut Janata-flokkurinn lít-
ið fylgi, og virðist sú saga ætla að
endurtaka sig nú. Enn liggja
marktækar tölur ekki fyrir i hinu
fjölmenna ríki Bihar, en þegar
fyrstu tölur bárust hafði
Kongress-flokkurinn fengið tvö
þingsæti og Janata-flokkurinn
eitt. í kosningunum í marz vann
Janata yfirburðasigur í Bihar.
Niðurstöður skoðanakannana
benda flestar til þess ’að jafnaðar-
menn og kommúnistar hafi unnið
á siðustu daga, og er spáð að
samanlagt fylgi vinstri flokkann
verði um 44%.
Viðast hvar í landinu var allt
með kyrrum kjörum i dag eftir
harða kosningabaráttu undan-
farnar vikur. Búizt er við að kosn-
ingaúrslit liggi fyrir snemma á
fimmtudagsmorgun.
Króatar tóku gísla
en gáfust fljótt upp
New York, 14. júni. — Reuter.
ÞRÍR Króatar, sem ruddust vopn-
aðir inn f skrifstofu
júgóslavnesku sendinefndarinn-
ar hjá Sameinuðu þjóðunum f
New York f kvöld, gáfust upp
eftir að hafa haldið konu í gfsl-
ingu f tvær klukkustundir og sært
annan starfsmann skotsári.
Skilyrði Króatanna fyrir þvi að
gfslunum yrði sleppt var að Júgó-
slavar veiti Króötum sjálfstæði,
og birtu þeir þá kröfu sína á mið-
um, sem þeir dreifðu út um
glugga á skrifstofu sendinefndar-
innar.
Starfsmaðurinn, sem var varð
fyrir skotsárum, er bifreiðar-
stjóri og öryggisvörður júgóslav-
nesku sendinefndarinnar.
í september rændu króatískir
þjóðernissinnar bandariskri far-
þegaþotu og náðu þar 51 gisl á sitt
vald. Þotan hafði meðal annars
viðkomu i Keflavik, en flug-
ræningjarnir gáfust upp í París.
Áður en flugræningjarnir gáfust
upp sprakk sprengja, sem banda-
menn þeirra höfðu komið fyrir í
farangursgeymslu á járnbraut-
arstöð, og lét þá lögreglumaður
lífið.
Pakistan:
Nýjar kosning-
ar á árinu
Rawalpindi, 14. júní. Router.
STJÓRN Sulfikar Ali Bhuttos og
stjórnarandstaðan f Pakistan
hafa sætzt á að efnt verði til nýrra
þingkosninga f landinu fyrir árs-
lok. Þessi niðurstaða var tilkynnt
af hálfu beggja aðila í dag, en á
morgun mun Þjóðarbandalagið,
sem er kosningabandalag nfu
stjórnarandstöðuflokka, gefa svar
við tillögu stjórnarinnar um tfma-
setningu kosninganna. Talsmað-
ur stjórnarinnar sagði f kvöld, að
Ifklega yrðu kosningarnar haldn-
ar eftir Ramadhan-hátfð
Múhammeðstrúarmanna, sem
lýkur um miðjan september.
Samkomulagið felur ekki f sér, að
bráðabirgðastjórn taki við af
stjórn Bhuttos og sitji þar til
kosningar hafa farið fram, en
Þjóðarhandalagið hafði krafizt
þess f samningaviðræðunum, að
slfk stjórn yrði mvnduð með aðild
stjórnarandstöðunnar, ef kosn-
ingar færu ekki fram fyrr en eftir
miðjan ágúst.
Með samkomulaginu er lokið
þriggja mánaða stjórnmála-
kreppu, sem hófst þegar stjórnar-
andstaðan lýsti þvi yfir að loknum
þingkosningum, að kosningatölur
hefðu verið falsaðar i kjölfarið
fylgdu viðtækar óeirðir um gjör-
vallt landið, og kostuðu þær að
minnsta kosti hálft fjórða hundr-
að manna lífið. Áætlað er að efna-
hagslegt tap vegna ófremdar-
ástandsins hafi numið um hálfum
milljarði Bandaríkjadala.
Eftir að samningaviðræður hóf-
ust fyrir hálfum mánuði lét
stjórnin lausa um 13 þúsund póli-
tiska fanga, aflétti herlögum, sem
sett höfðu verið i helztu borgum
og hætti ritskoðun.
Fluglestin” yfir Atlantshaf:
63% lækkun á fargjaldi
Washington. — 14 júnl
Reuter — Ap
CARTER Bandarlkjaforseti mælti
með þvl F dag, að Laker flugfélagið
brezka hæfi ferðir milli New York
og Lundúna, en fargjöld félagsins
verða hin lægstu sem um getur á
þessari flugleið. Forsetinn mælti
með þvl um leið að sama tilhögun
yrði tekin upp é flugleiðum innan
Bandarikjanna og skýrði fri þvl að
hann hefði Itrekað stuðning sinn
viðfrumvarp um loftferðaþjónustu
af þvl tagi, sem hér um ræðir. en
það liggur nú fyrir Bandarlkja-
þingi.
Tvö bandarlsk flugfélög, Pan
American og Trans World Airwyas,
hafa þear lýst þvl yfir, að þau muni
fara að dæmi Laker-félagsins og
bjóða fargjöld á sama verði
I slðustu viku mælti flugráð
Bandarikjanna með þvi að Laker-
félagið fengi að hefja ferðir milli
Lundúna og New York og yrði leyfi
fyrst veitt til reynslu I eitt ár. Hin
nýju fargjöld á þessari flugleið fram
og til baka nema 236 Bandarikja-
dölum Allur kostnaður við ónauð-
synlega þjónustu verður afnuminn
þar sem slik þjónusta verður ekki I
boði, og farþegar geta ekki fest kaup
á farmiðum eða látið taka frá sæti
fyrr en sex klukkustundum áður en
lagt er af stað Laker-félagið verður
með breiðþotur af gerðinni DC-1 0 til
flugsins Um áætlunarferðir verður
að ræða, en bandarlska flugráðið
mun að einhverju leyti setja reglur
um hversu margar þær verði. svo og
um farþegafjölda
Laker-flugfélagið getur hafið
ferðirnar með ..fluglestinni ', eins og
þessi ferðalög eru nefnd, sextiu
dögum eftir að það sækir formlega
um leyfi til flugráðsins vestra.
Lægstu fargjöld. sem nú er völ á á
umræddri flugleið nema 380
dölum. en þá er um að ræða hóp-
ferðir þar sem farmiðar eru keyptir
með tveggja mánaða fyrirvara og
gert er ráð fyrir 10 daga lágmarks-
dvöl. Venjulegur farmiði báðar leiðtr
með 14—21 dags dvöl kostar 631
dal, og sé miðað við það verð nemur
lækkunin 63%.
i yfirlýsingu Carters forseta um
flugferðír þessar kemur meðal
annars fram. að hann telur þær til
mikilla hagsbóta fyrir almenning
if Óvissa rikjandi,
segja Flugleiðir
„Það er nánast ómögulegt að
segja til um það á þessu stigi hversu
fiiikil áhrif þetta nýja fyrirkomulag á
áætlunarflugi muni hafa á hið venju-
lega áætlunarflug yfir Atlantshafið
og fyrir Flugleiðir," sagði Örn Ó
Johnsson, forstjóri Flugleiða, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, þegar
borin var undir hann sú frétt að
Carter Bandaríkjaforseti hefði ákveð
ið að mæla með ..fluglestar"
fyrirætlunum Lakerflugfélgsins
Framhald á bls. 18