Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1977 5 IIM HVU VAR SAMMD? MEGINATRIOI kjarasamninganna, sem undirritaðir voru I gærmorgun eða sólstöðusamninganna eins og Torfi Hjartarson sáttasemjari nefndi þá eru að á 18 mánaða tlmabili, sem þeir gilda, hækkar kaup samkvæmt upphafshækkun samninganna og áfangahækkunum, sem eru þrjár um 32 þúsund krónur samtals. Koma hækkanirnar með jafnri krónutölu á samningstímanum á öll mánaðarlaun og hlutfallslega á viku- og tímakaup. Vakta- og yfirvinnuálög haldast sem hlutfall af dagvinnukaupi. Sárkröfur einstakra aðildarfélaga ASÍ voru leystar innan 2.5% meðaltalshækkunar kauptaxta viðkomandi félags eða sambands. Kauphækkunin, sem um var sam- ið kemur til framkvæmda með eftir- farandi hætti: Við undirskrift: 18.000 — 1 desember 1 977: 5.000 — 1. júnl 1978: 5 000 - 1. september 1 978 4 000 — VerSbæturá laun Útgjöld, sem vegið hafa i visitölu- grundvelli og tákna hækkanir á áfengi og tóbaki, fara nú út úr grunni hinnar nýju verðbótavisitölu. Einnig kemur inn i samninginn sér- stakur verðbótaauki, sem er nýmæli og ætlað er að bæta þá kaupmáttar- rýrnun, sem verður vegna biðtimans milli útreiknings visitölunnar og þar til þær koma til greiðslu. Hinn 1. september verður fyrst greidd verð- lagsuppbót á laun og þá i krónutölu 880 krónur fyrir hvert stig, sem verðbótavisitalan hækkar um og hinn 1 desember verður aftur greidd krónutala, 930 krónur fyrir hvert stig visitölunnar á öll laun. Frá og með 1 marz 1 9 78 greiðast verð- lagsbætur á laun i sama hlutfalli og verðbótavísitalan hækkar, þ.e.a.s, prósenta á öll laun. Kaupmáttur Lægsta kaup, sem fyrir samning- ana var 70 þúsund krónur, hækkar við undirritun samningsins um 26%. Hærra kaup hækkar hlutfalls- lega minna vegna krónutölureglunn-, ar, 100 þúsund krónur hækka þannig um 18%, ef ekki er tekið tillit til sérkröfuprósentunnar, 2Vi%, en sé hún talin með er hækkunin 20'/z%. Reikna má með — segir í sér- stöku blaði, sem ASÍ hefur gefið út til félagsmanna sinna, að kaupmátt- ur meðalkaups verði að meðaltali á þessu ári 5 til 6% hærri en var á síðastliðnu ári, þ.e. 1976. Það sem eftir er af þessu ári verður kaupmátt- ur hins vegar væntanlega um 1 0% yfir meðaltali siðasta árs. Milli ár- anna 1977 og 1978 má búast við um 7% hækkun kaupáttar meðal- kaups. Krónutöluhækkanir vega eins og áður sagði þyngra á lægsta kaup og má þvi reikna með að kaupmáttur lægsta taxta verði á þessu ári að meðaltali 10 til 11% hærri en á árinu 1976 og hækki enn um 13% milli áranna 1977 og 1 978. í þessum tölum er ekki tekið tillit til áhrifa væntanlegra skatta- lækkana. Gildistími Samningurinn gildir frá undir- skriftadegi til 1. desember 1978. Þó eru í samningnum ákvæði um að honum megi segja upp með eins mánaðar fyrirvara ef stjórnvaldsað- gerðir skerða á einhvern hátt verð- tryggingarákvæði samningsins. Slíkt atriði hefur ekki áður verið í kjarasamningi ASÍ og vinnuveit- enda. Einnig er í samningnum hefð- bundið atriði um að samningurinn sé uppsegjanlegur, verði veruleg breyting á gengi íslenzku krónunn- ar. Lífeyrismál Samkomulag varð um að vinna áfram að þeirri endurskipulagningu lífeyrissjóðakerfisins, sem hafin var á síðastliðnu ári, og er stefnt að þvf að tillögur verði fullmótaðar fyrir mitt ár 1 978 og nýtt lífeyriskerfi taki gildi í ársbyrjun 1980. Greiðslur lífeyrissjóða til lífeyrisþega eru hækkaðar og verða nú hækkaðar og endurskoðaðar 4 sinnum á ári í stað tvisvar áður. Með það fyrir augum, að hækkun lífeyrisgreiðslna lífeyrissjóðanna valdi yfirleitt ekki lækkun tekjutrygg- ingargreiðslna frá almannatrygging- um, verður tekjumark tekjutrygging- ar hækkað Ýmsar breytingar aðrar verða gerðar í kjölfar viðræðna við ríkisstjórnina, sem aðilar samnings- ins áttu Meðal annars verður tekin upp sérstök uppbót, 10 þúsund krónur á mánuði, á lífeyri allra tekju- tryggingarþega, sem búa einig á eigin vegum. Bótafjárhæðir al- mannatrygginga verða frá 1 júlf hækkaðar jaannig, að lágmarkstekjur lífeyrisþega hækki í sama hlutfalli og laun verkamanna hækka I kjara- samningunum. Vinnuverndarmál í samninginn kom inn ákvæði um rétt starfsfólks til þess að neita að vinna án þess að laun skerðist, sé öryggisútbúnaður á vinnustað ófull- nægjandi. Jafnframt hét ríkisstjórn- in því að samin yrði ný löggjóf í samráði við aðila vinnumarkaðarins um aðbúnað, hollustuhætti og ör- yggi á vinnustöðum og f skipum. Lög um þetta efni eiga að taka gildi eigi sfðar en fársbyrjun 1979. Þá mun á næstu mánuðum fara fram sérstök athugun á aðbúnaði, holl- ustuháttum og öryggi á vinnustöð- um f því skyni að koma á úrbótum í þessum málum og skal hafa niður- stöður hennar til hliðsjónar við setn- ingu laganna og gerð Slysatryggingar Samkomulag varð um verulega hækkun á slysa-og örorkubótum og verða dagpeningar nú greiddir f slysatilvikum í allt að 52 vikur Orlof í kjarasamninginn kom nú inn ákvæði um það að þeir, sem sam- kvæmt ósk vinnuveitenda fá ekki 21 dags sumarleyfi á tfmabilinu frá 2 maf til 30 september skulu fá 2 5% lengingu á þeim hluta orlofsins. sem veittur er utan ofangreinds tíma Ef um er t.d. að ræða 4 daga verða þeir 5 f slíkum tilfellum TrúnaSarmenn Samkomulag varð milli aðila um að starfsaðstaða trúnaðarmanna yrði bætt og þeim tryggður ótvfræður réttur til að sinna trúnaðarmanns- störfum sínum f vinnutíma og gefin heimild til þess að halda tvisvar á ári fundi með starfsfólki, þannig að ein klukkustund falli f vinnutíma án launamissis. Þá skulu trúnaðarmenn halda dagvinnutekjum í allt að eina viku á ári til þess að sækja nám- skeið. Skattamál Breyting fékkst á skattstiga ein- staklinga við álagningu skatta 1 977 og hefur rfkisstjórnin þegar gefið út bráðabirgðalög. sem tryggja fram- kvæmd þessa nýja skattstiga 20% þrepið I skattstiganum verður lengt nokkuð og tekið upp nýtt skattþrep með 30% skatti Hjá hjónum greið- ist þannig 40% skattur fyrst af tekj- um umfram 2 milljónir króna sam- anborið við tæplega 1.400 þúsund krónum samkvæmt fjárlögum Einn- ig munu niðurgreiðslur á búvörum verða auknar eða gerðar aðrar ráð- stafanir er leiði til allt að 1.5% lækkunar á vfsitölu framfærslu- kostnaðar Húsnæðismál Rikisstjórnin hét samningsaðilum að skipuð yrði sérstök nefnd til að endurskoða þau ákvæði laga um Húsnæðismálastofnun rikisins. sem fjalla um byggingu ibúða á félags- legum grundvelli. ASÍ. mun eiga helnting fulltrúa í nefndinni Nefnd- in skal taka sérstaklega til meðferðar greinargerð og tillögur ASÍ. þar sem áherzla er lögð á byggingu verka- mannabústaða og leiguhúsnæðis fyrir fólk með ákveðnar félagslegar forsendur, félagslegar íbúðarbygg- ingar verði ekki minni en þriðjungur heildarfbúðarþarfar, verkalýðsfélög- in hafi aðild að úthlutun ibúðanna og greiðslubyrði kaupenda verði ákveðið hlutfall tekna Hér er í höfuðdráttum um að ræða fram- kvæmd yfirlýsinga. sem gefnar hafa verið við fyrri samningsgerðir, allt frá árinu 1 974, en nú er ákveðið, að frumvarp skuli lagt fyrir næsta þing til afgreiðslu. Dagvistunarmál Rikisstjórnin heitir þvi að beita sér fyrir hækkun fjárveitingar til dagvist- unarheimila og eflingu fósturskól- ans. A dagvistunarheimilum sem ríkið á hlut að sem vinnuveitandi munu stjórnvöld beita sér fyrir þvi að allar starfsstéttir fái jafna að- stöðu Verðlagsmál Rfkisstjórnin hefur heitið þvi að verðhækkanir opinberrar þjónustu komi ekki til framkvæmda nema siðustu 10 daga fyrir útreikning verðbótavisitölu, þannig að launa- fólk þarf ekki að bera hækkanirnar lengi bótalaust Rfkisstjórnin tekur undir það sjónarmið verkalýðssam- takanna að leggja beri aukna áherzlu á öflun gagna um verðlag erlendis og miðlun upplýsinga um verðlag hérlendis og lýsir sig fúsa til þess að treysta aðstöðu Verðlagsskrifstof- unnar til þess að sinna .þessum þáttum Þá er verkalýðssamtökun- um gefið fyrirheit um aukna aðild að verðgæzlu og áherzla lögð á aðhald i afgreiðslu verðhækkana A. Paul Weber sýnir að Kjarvalsstöðum í DAG fimmtudaginn 23. júnl kl. 20.00 verður opnuð sýning að Kjarvalsstöðum á verkum hins þekkta þýska grafíklistamanns A. Paul Weber. Sýningin er haldin á vegum þýska bókasafnsins f Reykjavfk og félagsins íslensk graffk. Sýningin stendur til 12. júlf næstkomandi. Á blaðamanna- fundi með listamanninum kom fram að þetta er stærsta sýning á verkum hans til þessa og lista- maðurinn mun dvelja hér á landi út sýningartfmann. Andreas Paul Weber er fæddur árið 1893 í Arnstadt í Þýskalandi. Eftir að hann hætti í skóla fór hann að iðka grafík og er hann sjálfmenntaður á þvf sviði. Frá 1919 hefur hann starfað mikið við myndskreytingar bóka, þar á meðal hefur hann myndskreytt söguna um Róbinson Krúsó, sögur Munehausen, ritverk Kafka og fleiri þekkt bókmenntaverk. Árið 1928 hóf hann þátttöku í samtök- um, sem börðust gegn- Hitler. Hann barðist í báðum heims- styrjöldunum og hefur hryllingur þeirra átaka oft orðið honum efni- viður i myndir sinar. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og var m.a. útnefndur prófessor árið 1971. 30 kr. fyrir hvert kíló af hörpudiski YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað á fundi sinum í gær lágmarksverð á hörpudiski frá 1. júní til 30. september n.k. Fyrir hörpudisk 7 cm og yfir verða greiddar kr. 30 á hvert kíló og fyrir hörpudisk 6 cm og að 7 cm kr. 23 á hvert kíló. Verð þetta var ákveðið af oddamanni og fulltrúum seljenda gegn atkvæði annars fulltrúa kaupenda, Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar, en hinn fulltrúi kaupenda Árni Benediktsson greiddi ekki atkvæði. Aðrir í nefndinni voru Gamaliel Sveinsson, sem var oddamaður nefndarinn- ar, og Guðmundur Jörundsson og Jón Sigurðsson af hálfu seljenda. MARQIR I1ÁLDÁ ÁÐ MÁTALARAR SEIJ AÐEINS FYRIR ATVINNUMENN • •• en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara, notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér. Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess. AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um - VELJIÐ AR HÁTALARA. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ■ SENDUM BÆKLINGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.