Morgunblaðið - 07.09.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 Þjóðhagsstjóri um frystihúsamálið: Almennu atriðin að skýrast en töluvert enn í lokaskýrslu nokkuð langt í það að lokið verði athugun á hinum sérstöku og staðbundnu vandamálum frysti- húsanna hér á sunnan og vestan- verðu landinu einkanlega, enda töluvert erfitt viðfangsefni," sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar f samtali við Morgunblaðið í gær. Jón taidi því líklegt að töluverð- ur timi liði enn þar til unnt yrði að skila endanlegri skýrslu um þetta mál í heild til ríkisstjórnar- innar, en hins vegar kvaðst hann vænta þess að athugun stofnunar- innar á hinum almennu atriðum stöðu frystihúsanna lægi að mestu fyrir þegar komið væri fram í þessa viku og væri þá áformað að ræða um þann þátt athugunarinnar við fiskvinnslu- nefndarmenn. „ÞAÐ MÁ segja að athugun á hinum almennu atriðum varð- andi stöðu hraðfrystihúsanna miði vel áfram en hins vegar er Nafn manns- ins sem lézt MAÐURINN, sem beið bana í um- ferðarslysinu á Miklubraut í fyrradag, hét Guðmundur Ingólfs- son, til heimilis að Rauðalæk 13, Reykjavík. Guðmundur var 68 ára gamall, fæddur 15. janúar 1909. Hann var ókvæntur og barnlaus. Guðmundur var starfsmaður Grænmetisverzlunar landbúnað- arins. Listviðburður á Kjarvalsstöðum: LISTRAÐ Kjarvalsstaða gengst fyrir yfirlitssýningu á verkum bandaríska lista- og vfsinda- mannsins L. Alcopley dagana 10.—25. september. Alcopley hefur um langan tíma verið tengdur Islandi eða allt frá því að hann kvæntist Nínu hcitinni Tryggvadóttur árið 1949 og fram til þessa dags hefur hann haldið minningu konu sinnar og list á lofti. Aleopley er kunnur vísinda- maður á sviði lífeðlisfræði en hann hefur einnig fengizt við listsköpun allt frá 1940 og telst Yfirlitssýning á verkum Alcopleys meðal vatamanna hinnar nýju bandarisku listar 1940—50 og er hans nú alls staðar getið í bandariskri myndlistarsögu fyrir þennan þátt sinn. Hann hefur haldið einkasýningar viða um heim og verk hans eru í mörgum helztu listasöfnum beggja vegna Atlantshafsins. Mikið hefur verið ritað um Al- copley og list hans og auk þess hefur BBC gert heimildarmynd um listamanninn, sem vonazt er til að unnt verði að sýna á með- an sýning Alcopley stendur yfir á Kjarvalsstöðum en hún er stærsta yfirlitssýning sem hald- in hefur verið á verkum Al- copley og spannar tímabilið 1944—1977. Eru á henni rúm- lega 300 verk, málverk, teikn- ingar, vatnslitamyndir, stein- prent og allskonar bækur og sérútgáfur á verkum hans. Fagna skoð- anakönnuninni — segir Páll Pétursson, alþingismaður „ÉG ER sjálfur ákaflega ánægður yfir þvf að skoðanakönnun skuli fara fram. Það er alla vega heppi- legt fyrir frambjóðanda að vita, hvar hann standur", sagði Páll Pétursson, alþingismaður, f sam- tali við Mbl. f gær, en eins og skýrt var frá í Mbl. samþykkti kjördæmisþing Framsóknar- flokksins f Norðurlandskjördæmi vestra að verða við kröfum 290 A-IIúnvetninga um skoðanakönn- un um skipan framboðslista flokksins til næstu Alþingiskosn- inga. „Skoðanakönnun fylgja ýmsir kostir“, sagði Páll. ,Jln hún getur líka boðið upp á deilur og sárindi, sem ég vona þó að ekki komi til hjá okkur, þvf við erum svo frið- elskir menn Húnvetningar. En því er ekki að neita að skoðana- könnun er mjög eðlileg og lýð- ræðisleg leið til að kanna fylgi manna og því fagna ég þessari skoðanakönnun, sem nú er fram- undan hjá okkur framsóknar- mönnum i Norðurlandskjördæmi vestra.“ Þegar Mbl. spurði Pál, hvort hann teldi að á bak við kröfu A-Húnvetninganna um skoðana- könnun byggi einhver pólitískur ágreiningur eða óánægja, svaraði hann. „Það er ekki hægt að segja að hjá okkur hafi komið til neins stórrifrildis. Smákarp hefur stundum orðið, en menn eru sátt- fúsir, þó það þýði ekki endilega að menn séu alltaf hjartanlega sammála. Mér er það auðvitað ljóst, að menn eru misjafnlega ánægðir Framhald á bls 18. Sinfóníuhljómsveit lslands lagði í gær af stað í tónleikaferð um tsland, og hefur ferðin hlotið nafnið „Hringferð ‘77“. Stjórnandi í þessari ferð er Páll P. Pálsson, og einsöngvarar Sieglinde Kahmann og Kristinn Hallsson. Ennfremur munu þau Guðný Guðmundsdótt- ir fiðluleikari og Lárus Sveinsson trompetleikari leika einleik á nokkrum stöðum. Staðirnir sem hljómsveitin mun heimsækja eru þessir: Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Húsavfk, Skjól- brekka, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Eskifjörður, Neskaupstaður, Hornafjörður og Kirkjubæjarklaustur. Sérstakir barnatónleikar verða haldnir á Akureyri og Eskifirði, og á kvöldtónleikunum á Akureyri munu einnig koma fram Karla- kór Akureyrar og Karlakórinn Geysir. Tónleikaferð þessi er hin lengsta sem hljómsveitin hefur farið, og efnisskrá er mjög fjölbreytt. Að þessu sinni verða engar sinfóní- ur fluttar, heldur eingöngu létt klassísk tónlist. Sinfóníu- hljómsveitin: Hring- ferð 77 er hafin BSRB-verkfall myndi hafa víðtæk og lamandi áhrif AFLEIÐINGAR og áhrif verk- falls opinberra starfsmanna voru talsvert til umræðu á blaða- mannafundi, sem BSRB boðaði til f gær, er það kynnti stöðu samn- inganna við rfkisvaldið. Eins og skýrt hefur verið frá samþykkti stjórn og samninganefnd banda- lagsins að boða til verkfalls fyrir alla rfkisstarfsmenn hinn 26. september næstkomandi og kem- ur verkfallið til framkvæmda, ef sáttascmjari notar heimild í lög- um til frestunar verkfallsaðgerða um 15 daga, hinn 11. október. Sáttatillaga, sem greiða þarf at- kvæði um í allsherjaratkvæða- greiðslu, sem standa á f 2 daga um land allt, þarf að hafa verið lögð fyrir eigi sfðar en 21. septem- ber. P'ulltrúar BSRB á blaðamanna- fundinum í gær sögðust í raun ekki geta skýrt frá því í smáatrið- um, hvað myndi stöðvast og hver áhrif verkfail opinberra starfs- manna myndi hafa á þjóðlífið ein- faldlega vegna þess að engin reynsla hefði fengizt á slíkt. Krist- ján Thorlacius, formaður BSRB, sagði þó að hann hefði trú á að verkfallið myndi vera mjög sterkt og grípa mjög vfða inn í þjóðfélag- ið. Haraldur Steinþórsson fram- kvæmdastjóri kvaðst einlæglega vona að ekki kæmi til verkfalls og að verkfallsrétturinn færði opin- berum starfsmönnum svo gott til- boð, að unnt yrði að fallast á það. Þó kváðu þeir félagar að miðað við núverandi stöðu samningavið- ræðnanna væri útlit fyrir verk- fall, en þeir bentu á að enn ætti eftir að ræðast við áður en til aðgerða kæmi og næðist ekki við- unandi samningur á þeim tíma, væri þó alltaf til vara sáttatillaga, sem orðið gæti viðunandi. Samn- inganefnd BSRB mun taka af- stöðu til slikrar sáttatillögu og mæla með eða á móti henni við atkvæðagreiðslu eftir efni hann- ar. A fundinum kom fram, að kæmi til verkfalls mættu forstjórar og varamenn þeirra vinna áfram, ráðuneytisstjórar og deildarstjór- ar. Jafnframt mætti launadeild fjármálaráðuneytisins vinna, þar sem hún þyrfti að reikna út ýmis- legt i sambandi við launakjör. Þá hafa félágsmenn Bandalags há- skólamanna ekki verkfallsrétt og Framhaid á hls 18. örin vísar á bæjarstæði Herjólfsbæjar en niðurstöður rannsókna vísindamanna benda til að þar hafi staðið bær í a.m.k. nokkra áratugi áður en hefðbundið landnám tslands hófst 874. Ljósmynd Mbl. sigurgeir Herjólfsbær í Vestmannaeyjum: „Mannvistarlagið áratugum eldra en hefðbundið landnám” segir Margrét Hermannsdóttir fornleifafræðingur 1 SAMTALI við Margréti Her- mannsdóttur fornleifafræðing og Guðrúnu Larsen jarðfræð- ing í gær kom fram að mann- vistarlagið, sem hefur fundizt undir landnámslaginu í bæjar- stæði Herjólfsbæjar í Ves- mannaeyjum, er að öllum lík- indum að minnsta kosti nokkr- um áratugum eldra en hefð- hundið landnám sem miðast við árið 874. Mannvistarlagið sem er 3 til 20 sm. á þykkt rökstyður þessa niðurstöðu þar sem það er undir landnámslag- inu sem miðast við hefðbundna kcnningu um upphaf Islands- byggðar. Hingað til hafa engar forn- minjar fundizt á Islandi, sem virzt hafa eldri en landnám ts- lands, sem miðast við 874. Hér fara á eftir viðtöl við Margréti, Gurúnu og dr. Sigurð Þórarins- son. „Sú staðreynd að landnáms- lagið var ofan á mannvistarlag- inu í bænum í Herjólfsdal er gleggsta vitni þess að þarna Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.