MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1977 í 9. kap. Jóhannesarguð- spjalls segir frá manni, sem blindur var frá fæðingu og á vegi Jesú verður. Blindur frá fæðingu, — hvílík örlög, hvílík raun! Un- að vorsins, blómfegurð sum- ars, litadýrð haustsins, dá- semd sólarupprásar og sólar- falls, frá öllu þessu og mörgu öðru hafði blindfædda mann- inum verið sagt, en hann hafði aldrei séð það sjálfur. Yfir blindfæddu barni hafði móðirin vakað og vonað, en vonirnar höfðu hver af ann- arri dáið. Þá hafði hún tekið að segja drengnum sínum frá ýrhsu því, sem hún vissi að hann myndi aldrei sjá. Tár hennar hafði hann aldrei séð en undrast stundum, að vangi hennar var votur þegar hún vafði hann að sér. Hann vissi það þá ekki enn, að hann var tárasonurinn henn- ar, en þegar hann tók að skilja það, komu erfiðari ár. Nú var hann orðinn fulltiða maður, sat við veginn og rétti fram ölmususkálina, þegar hann heyrði mannamál. Síðla dags mundi móðir hans koma og sækja hann. En nú gerist undrið óvænta. Eftirveginum kemur ungur maður og hann gefur blindfædda manninum sjón. Aðrar sögur herma, að Jesú hafi gefið blindum sýn, en blindfæddum aðeins upphátt eða með sjálfum sér í hljóði. ,,Hvað hef ég drýgt, að ég skuli þurfa að verða fyrir þessu?" Jesús vísar þeirri hugmynd algerlega á bug, að böl blind- fædda mannsins sé afleiðing synda hans, — nema þá ef trúað er á endurholdgun og hann sé að gjalda fyrir syndir í fyrra, jarðlífi, þótt sú trú sé veikum rökum, veikum en ekki engum, studd I N. testa- menti. Hugsaðu um slysin, dauðaslysin, sem óhugnan- lega mörg hafa orðið hér á landi á þessu ári. Eru þau refsing Guðs fyrir syndir þeirra, sem fyrir þeim hafa orðið? Ekki trúi ég því, hvað sem gamlar, frumstæðar kenningar segja. Hitt er mér Ijóst, að vegna þess að innan vissra marka hefur Guð gefið manninum viljafrelsi hlýtur margt að gerast, sem hann leyfir, þótt hann vilji það ekki. Hvernig ættu menn að þroskast ef þeir hefði ekki innan einhverra marka frelsi til að velja sinn veg, góðan eða illan, viturlegan eða heimskulegan? En valfrelsi ófullkomins manns hlýturað fæða af sér margföld efni harms og tára. Eldfornar trúarhugmyndir telja að mislyndar vættir og goðmögn valdi náttúruham- förum. Yfirþá heimsku hófu Blindfœddur bölhans? þessum eina. Og merkilegust er þessi saga fyrir það að i sambandi við þessa lækn- ingu leiðir Jesús orð beint að hinni miklu ráðgát um bölið, þjáninguna. „Hvor hefur syndgað þessi maður eða foreldrar hans, að hann skyldi fæðast blindur?" spyrja lærisveinarnir og trúa því, sem ótrúlega lífseigt hef urorðið innan kristninnar, að allt böl, öll þjáning sé refsing frá Guði fyrir drýgðar syndir. „Hvað hefurþessi maður drýgt, að þetta skuli á hann lagt?" spyrja menn, spyrja sig margir í heiðnum sið. Alkuiin er sagan frá kristni- tökunni á Alþingi árið 1000. Meðan menn deildu á Al- þingi um trúskiptin kom maðurá Þingvöll með þá fregn, að upp væri kominn jarðeldur hjá Hjalla í Ölfusi, bæ Þórodds goða, sem mjög var orðinn hallur að kristinni trú. Það töldu heiðnir menn auðsæja refsingu guðanna, en Snorri goði sagði: „Um hvað reiddust goðin þá, er hér brann hraunit, er vér nú stöndum á?". Mönnum varð svarafátt, Þingvallahraun hafði brunnið fyrr en nokkur maður var á íslandi til að reiðast og refsa með eldgosi. Enn úir og grúir í kristnum guðrækniritum, sálmum mörgum.og þá einnig í bless- uðum Passíusálmunum, af þeirri hugmynd um böl og refsingu hins reiða Guðs, sem Kristur andmælir í sög- unni af blindfædda mannin- um. Á dögum Jesú urðu 1 8 menn fyrir dauðaslysi þegar turn við Silóamlaugina hrundi á þá. Þegar hann heyrði skýringu manna á því slysi, sagði hann: „Haldið þéi að þessir menn hafi verið syndugri en aðrir þeir, sem búa í Jerúsalem?" Svo frá- leitt þótti honum að þar hafi refsing Guðs fyrir syndir þessara manna verið að verki. Blindfæddi maðurinn hlaui bót á sinu böli, en sú líkn er ekki öllum lögð. Ævilangt böl verða margir bótalaust að bera. Við þá gátu er hið vitra skáld, E. Ben. að glíma í Ijóðinu um gáfaða óláns- manninn Starkað, sem segir frá í Gautrekssögu. Lausnina fann hann þessa: „En mundu, þótt veröld sé hjartahörð, þótt hrokinn sigri og rétturinn víki, að bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð, var auðlegð á vöxtum í guðanna ríki". Að bölið geti „lagt gull i lófa framtíðar", að sorgin geti verið „auðlegð á vöxtum" í heiminum handan við hel og fár, kemur greinilega fram í sögu af Lasarusi, manninum sem hlaut blessun í ríki himn- anna af böli, sem hann hafði enga bót fengið á á jörðu. „Hvorki syndgaði hann né foreldrar hans" sagði Jesús við lærisveinana, þegar þeir spurðu hann um orsök þess, að maðurinn hafði fæðzt blindur. Mér fer enn svo, að um þessa gátu bið ég um sam- fylgd þeirra, sem þessar greinar lesa, á næsta sunnu- degi, og verður þó fátt eitt sagt um mál, sem mörgum er mikil en áleitin ráðgáta. PATONS GARN ný sending London, dömudeild, Austurstræti Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir i hvert skírteini Svipmyndirsf. I Hverfisgötu18'•Gegnt Þjóðleikhúsinu Tjarnarbúð tilkynnir Eftirleiðis verða salir okkar leigðir alla daga vikunnar fyrir: EINKASAMKVÆMI OG FUNDARHOLD VEIZLUR OG MANNFAGNAÐI. Þeir, sem hafa i huga að fá leigða sali fyrir árshátiðir, jólatré og bingó, eru beðnir að panta tímanlega. Útbúum og sendum út heitan og kaldan mat í heimahús og til fyrirtækja Allar upplýsingar á venjulegum skrif- stof utima sim 1 9100 |£} Inarnarímð STENDUR I NOKKRA DAGA