Morgunblaðið - 02.10.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.10.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÖBER 1977 kerjunum og leiða það i rörum út úr verksmiðjuhúsinu. Þessir þættir tveir draga stórlega úr mengun innanhúss en þriðji þátturinn, uppsetning hreinsi- stöðva milli skálanna tveggja í Straumsvík, miðar að því að draga úr mengun í náttúrunni. Hreinsistöðvarnar taka við loft- inu, sem sogað hefur verið frá kerjunum og skilja úr því flúor- sambönd og önnur efni, sem kunna að vera hættuleg gróðri, áður en loftinu er skilað út í andrúmsloftið. Að sögn Pálma er ráðgert að byggja yfir og ganga frá hreinsiútbúnaði við öll 120 ker- in í skála 2 í Straumsvík næstu tvö árin, en sá skáli liggur næst Reykjanesbrautinni. Árið 1980 er svo áætlað að byggja yfir öll ker í skála 1, en þau eru 160 að tölu. Hreinsistöðvar verða fjór- ar og verður sú fyrsta ekki tek- in í gagnið fyrr en 40 ker hafa verið yfirbyggð i árslok 1978. Jafnframt því, sem hreinsiút- — Yfirvega Framhald af bls. 2 valdir hafa verið i sáttanefnd í samráði við báða deiluaðila. Fjármálaráðherra og félagar BSRB hljóta að yfirvega af- stöðu sína vandlega áður en þeir hafna sáttatillögu, sem þannig er tilkomin. Öyfirveguð afstaða ynni gegn þeim tilgangi laganna að finna friðsamlega og frjálslega leið til málalykta. Falli tillagan er erfitt að sjá farsæl málalok. Ég trúi þvi ekki, að menn vilji átök átak- anna vegna. Eg vona einlæglega, að félag- ar BSRB vilji nálgast málið með sama hugarfari með al- mannaheill fyrir augum, auk sinna eigin hagsmuna, sem vel eru viðurkenndir i þessari lausn. Nú er mál til komið að deilunni Ijúki og það sannist, að lagabreytingin, sem gerð var á þinginu i vor, sé vænlegur farvegur fyrir kjaramál opin- berra starfsmanna. — Algjör Framhald af bls. 17 fornu hetja sem segir frá í Is- lendingasögunum. Þar var allt nýtt og fágað, alls ekkert af þvi gamla góða eftir. En þessi vonbrigði okkar hurfu fljótt, þegar við fórum að fara um landið og sáum þá mjög margt , sem okkur hafði ekki órað fyrir að fyndist hér. Náttúra íslands er hreint frá- bær. Flest okkur urðu þó mest snortin, þegar við komum til Vestmannaeyja. Umhverfið mjög sérkennilegt og það er hreint aðdáunarvert hversu uppbygging hefur gengið vel og fljótt fyrir sig þar. En ef við snúum okkur aftur að islendingasögunum, trúið þið því sem þar stendur? — Auðvitað trúum við ekki öllu, sem þar stendur, en þó eru söguþræðirnir örugglega sann- ir, siðan er skáldað i kringum þá til að gera sögurnar líflegri. I norskum menntaskólum þurfa allir að lesa eitthvað af islendingasögunum, og það hafa flestir mjög gaman af þessum sögum. búnaði er komið fyrir verður vinnufyrirkomulagi við kerin breytt. Fram til þessa hefur þeim verið hliðarþjónað sem kallað er, þ.e. starfsmenn hafa komið með tæki upp að hlíð kerjanna og brotið þannig ker- skurn, komið fyrir súráli, og tekið ál. Hin nýju ker eru aftur á móti miðjuþjónuð og er notað- ur til þess sjálfvirkur útbún- aður og í framtíðinni er ráðgert að þessi útbúnaður verði tölvu- stýrður. Ein deild, ný byggingatækni- deild, vinnur að þessu verkefni en þar vinna 5 menn. Auk þess vinna 5 járniðnaðarmenn að verkefninu ásamt verkfræðing- um hér og erlendis. Sinfóníuhljómsveit íslands Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 6. október kl. 20.30. Stjórnandi: Páll P. PálsSOn Einleikarar: Guðný Guðmundsdóttir Hafliði Hallgrímsson Philip Jenkins Efnisskrá: Beethoven — Coriolan forleikur, Beethoven — þrikonsert f. fiðlu, celló, píanó og hljómsv., Beethoven — Sinfónia nr. 4 Aðgöngumiðar seldir í bókabúðum Lárusar Blöndal og Sigfúsar Eymundssonar. Askriftarskirteini seld á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar Laugavegi 120. Sigurvegarinn PHILIPS litsjónvarp með eðlilegum litum Umboðsmenn um land allt: Akranes Borgarnes Bolungarvík ísafjörður Hvammstangi Blönduós Sauðárkrókur Siglufjörður Verslunin Valfell Kaupfélag Borgnesinga Virkinn hf Póllinn hf K/F V Húnvetninga K/F Húnvetninga K/F Skagfirðinga Aðalbúðin Ólafsfjörður Verslunin Valberg I Fáskrúðsfjörðu Guðmundur Hallgrímsson Akureyri Akurvik hf I Hornafjörður KASK Akureyri KEA I Hella Mosfell Húsavík Þ. Stefánsson I Vestmannaeyjar Kjarni Vopnafjörður K / F Vopnfirðinga I Vestmannaeyjar Stafnes Seyðisfjörður Stál hf I Selfoss Radio og sjónvarpsstofan Neskaupstaður Kristján Lundberg I Keflavík Stapafell hf Eskifjörður Elís Guðnason I Hafnarfjörður Ljós og raftæki heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3. SÍMI 20455 — SÆTÚNI 8. SÍMI 15655 Gömlu kerin 1 álverinu. Nýju kerin er mun hreinlegri eins og sést ef myndin er borin saman við baksíðumyndina. Hreinsibúnaður Framhald af bls. 32. áramótin 1978 og ’79. Sam- kvæmt áætluninni verða full- komnar mengunarv arnir komn- ar á f árslok 1980. Þetta verk er geysilega dýrt og nýjustu kostnaðaráætianir'hljóða upp á 84—86 milljónir svissneskra franka eða sem næst 7500 miiljónir íslenzkra króna. Kostnaðaráætiunin er unnin af verkfræðistofu í Sviss og er í henni gert ráð fyrir dýrtíðar- hækkunum. Morgunblaðsmenn heimsóttu Álverið s.l. föstudagsmorgun og skoðuðu framkvæmdir við hreinsiútbúnaðinn. Samkvæmt upplýsingum Pálma Stefánssonar nýbyggingastjóra hjá tsal er hreinsibúnaðurinn þríþættur. í fyrsta er það lokun kerjanna, sem er erfiðasti þátt- urinn. Álhlerar eru lagðir yfir kerin til þess að varna þvi að flúorsambönd og fíngert ryk gufi upp og valdi mengun í sjálfum vinnusalnum. Hafa verið gerðar tilraunir með mis- munandi hlera, til þess að fá þá sem þéttasta og hefur orðið góð- ur árangur af þeim tilraunum. Annar þátturinn er frágangur á búnaði til að soga loftið frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.