Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977 Jarðarför KARLS BJÖRNSSONAR. fyrrv. tollvarðar, fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 7 október kl 10 30 Rósa Þorleifsdóttir og dætur. + Útför eiginmanns mins og föður okkar, SÆMUNDAR AUÐUNSSONAR skipstjóra, Nesvegi 59. fer fram föstudaginn 7 okt frá Fossvogskirkju kl 3 s.d Arndis Thoroddsen, Auðunn Sæmundsson, Ingibjörg Sæmundsdóttir Sonur okkar og bróðir, SÆVAR PÁLMASON, Langagerði 22, Reykjavik. er lést hinn 30 september 1977, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju kl 10.30 föstudaginn 7 október 1977 Þeir sem vildu minnast hins látna eru beðnir um að láta líknarstofnanir njóta þess Þórey Haraldsdóttir, Pálmi Kárason og börn. + Sonur minn, bróðir okkar og frændi, LOUÍS EINARSSON, málari, frá Siglufirði. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag fimmtudaginn 6 október Borghild Einarsson, Alfreð Einarsson, Pollý Anna Einarsson, Karl Einarsson, Svanhvít Einarsson, Einar Einarsson, ívar H. Einarsson, Álfhildur Kristin Fungo. Faðir okkar, HANNES BENEDIKTSSON, Hafnarstræti 84, Akureyri. verður jarðsettur föstudaginn 7 október kl 2 e h að Reynistað í Skagafirði Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á líknarstofnamr Fyrir hönd systkinanna. Sigurður Hannesson. + Hjartkær maðurinn minn, sonur ok1<ar og faðir, BJÖRN INGI ÁSGEIRSSON, Ránargötu 1 3, andaðist á Landspítalanum 4 október Jóhanna Steinsdóttir, Dagbjörg Þórarinsdóttir, Ásgeir V Björnsson og börn. Minning: Vilhjálmur Guðjóns- son - hljómUstarmaður Fáir gera sér grein fyrir því hvernig lifið væri án tónlistar, þvi flestir taka tónlist og tónlistar- flutning sem jafn sjálfsagóan hlut og loftið, sem þeir anda að sér. Enn færri hugleiða hvernig það hefur orðið að þeim hefur verið gefið að fá að njóta þessa sjálf- sagða munaðar. Á árunum fyrir siðustu heims- styrjöld var mikill vakning meðal ungra manna að leggja fyrir sig hlóðfæraleik sem lífsstarf. Þeim var full ljóst, að afkomumöguleik- ar á þvi sviði voru rýrar, en engu að síður hlýddu þeir köilun sinni og lögðu ótrauðir á brattann. Flestir þeirra létu fljótlega deig- an siga og sneru sér aó arðbærari iðju, en örfáir létu ekki erfiðleik- ana á sig fá og héidu stefnunni. Þeir létu sér ekki nægja að stunda starf sitt af miklum sóm_a miðað við þær kröfur, sem þá voru gerðar, heldur leituðu þeir til annarra landa til frekari menntunar, svo þeir geti betur miðlaó öðrum af reynsiu sinni og þekkingu og búið þannig jarðveg- inn fyrir auknum framförum á sviði tónlistarflutnings. Starfi þessara manna hefur lítill sem enginn gaumur verið gefinn í formi opinberra viðurkenninga eða þakklætis, enda hafa hér ver- ið hógværir og lítillátir menn á ferð, sem unnu brautryðjenda- starf sitt einungis hugsjónarinnar vegna, en víst er um það að ís- lenska þjóðin á þeim að þakka að tónlistarflutningur hér á landi skuli vera koininn á það stig sem hann er í dag. Þessir frumherjar kveðja okkur nu hver af öðrum, nú síðast Vilhjáimur Guðjónsson klarinettleikari, sem lést 28. sept- ember, tæplega sextugur að aldri. Vilhjálmur fæddist 8. nóvem- ber 1917, foreldrar hans voru Sig- riður Bjarnadóttir og Guðjón Jónsson bryti, þekkt fólk hér i borg á sínum tíma. Eignuðust þau fjögur börn, Bjarna, Valborgu, Vilhjálm og Kjartan. Á heimili þeirra var mikill menningarbrag- ur, svo ekki var að undra að hug- ur barnanna skuli snemina hneigjast til æðri lista. Tveir sona þeirra sneru sér að tónlistinni, þeir Bjarni og Vilhjálmur, en sá yngsti Kjartan, lagði fyrir sig málaralistina. Tvítugur að aldri fór Vilhjálmur til Danmerkur og þótti þá þegar það góður hljóð- færaleikari, þótt sjálfmenntaður væri, að hann átti ekki í neinum erfióleikum með að fá starf þar. 1 Danmörku dvaldist hann um hríð og notaði tímann jafnframt til að kynnast tónlistarlífi stórborgar- innar en leitaði heim aftur, því hér var ærið verk að vinna. Eftir að hafa verið hér í nokkur ár og lagt sitt af mörkum við uppbygg- ingu hljómsveitarstarfs fór hann til Bandaríkjanna til náms. Þegar hann kom til baka, árið 1945 réðst hann sem kennari við Tónlistar- skólann í Reykjavík og hélt því starfi til dauðadags, auk þess sem hann stundaði kennslu í Kópavogi og Keflavík og víðar. Vilhjálmur var ráðinn kiarinettleikari við út- varpshljómsveitina árið 1945 og við stofnun Sinfóníuhljómsveitar Islands fimm árum síðar varð hann fastráðinn þar. Þeirri stöðu hélt hann sömuleiðis óslitið til dauðadags, svo segja má að hann hafi gefið tónlistinni krafta sina óskipta. Ótalin eru störf hans i þágu félagslegrar uppbyggingar, en hann gegndi fjölda ábyrgðar- starfa í Félagi ísl. hljómlistar- manna í gegn um áratugina, — enn eitt framlag hans til að búa komandi kynslóðum í haginn. Persónulega á ég Vilhjálmi mikið að þakka. Sem unglingur leitaði ég til hans og bað hann um tilsögn á hljóðfæri það, sem gagn- tekið hafði hug minn, m.a vegna kynni minna af klarinetti í hönd- um hans sjálfs. Reyndist hann mér frábærlega vel sem kennari, vakandi yfir framför minni og hvetjandi i alia staði. Var það upphafið að vináttu, sem haldist hefur æ síðan. Ég hef átt því láni að fagna að sitja svo til daglega við hlið Vilhjálms í Sinfónuhljóm- sveitinni i áratugi og starfa tölu- vert með honum að félagsmálum. Hann var ætið hinn trausti klett- ur, sem hægt var að reiða sig á, + Eigmmaður minn MAGNÚS HÖSKULDSSON. skipstjóri, Nökkvavogi 50. andaðist í Borgarspítalanum þann 4. október s.l Jarðarförin auglýst siðar Jóhanna Jónatansdóttir og fjölskylda + Bróðir minn og móðurbróðir BJÖRGVIN ÓLAFSSON, Lynghaga 13, andaðist 4. október s I Guðrún Glsladóttir, Þóra Guðjohnsen. + Eiginkona min og móðir okkar. ODDNÝ FR. ÁRNADÓTTIR lést að heimili sinu, Ingimarsstöðum. Þórshöfn. 29 sept s I Utförin fer fram frá Sauðaneskirkju laugardaginn 8 okt kl 2 s d Ingimar Baldvinsson og börn. Konan min VALGERÐUR SIGTRYGGSDÓTTIR, Brávallagötu 10, lést aðfararnótt 5 október Númi Þorbergsson og börn hinnar látnu + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Efstasundi 100. Kristján R. Þorvarðarson, Sigríður H. Guðjónsdóttir, Katrin Þorvarðardóttir, Guðlaugur Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GUNNARSVAGNSSONAR, Sigriður Bjarnadóttir, Bjarni Gunnarsson, Margrét Gunnarsdóttir, Kristin Gunnarsdóttir. Ólafur Jóhannsson. GunnarV Gunnarsson, Berglind Hallgrimsdóttir og barnabörn. hvað sem á gekk og hversu erfitt sem viðfangsefnið var. í þessa áratugi bar aldrei minnsta skuggi á vináttu okkar. Enginn maður getur óskað sér betra hlutskipti i starfi en að fá að njóta samfylgd- ar góðra samstarfsmanna og á það sennilega hvað mest við um tón- listarstarfið. Vilhjálmur kvæntist Ástu Al- bertsdóttur árið 1952 og eignuð- ust þau tvær dætur, Ingunni, gift Helga Sigurðssyni, en þau hjónin eru bæði við læknanám og Sigríði, sem fetar í fótspor föður sins og hefur valið sér tónlistina sem lífs- starf. Er hún nú við nám í óbóleik erlendis. Fyrir hönd allra félaga Vil- hjálms í Sinfóniuhljómsveitinni færi ég Ástu, dætrunum og öðrum ættingjum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Gunnar Egilson. Vilhjálmur Guðjónsson er dáinn. Hversu erfitt er ekki að átta sig á þvi, en við vitum að svo sjúkur var hann orðinn að von- laust var um bata og því má þakka Guði fyrir að hann er búinn að fá hvíld frá þjáningunum. En það er erfitt að sætta sig við að eiga ekki oftar eftir að gleðjast með svo glöóum og elskulegum manni, sem Villi var, en svo var hann kallaður í hópi vina sinna. Endurminningarnar hrannast upp. Þegar gengið var eftir Öðins- götunni í gamla daga fór ekki hjá því að tekið væri eftir húsinu númer 10. Það var mjög virðulegt að sjá og það var eins og það hvíslaði að manni að innan veggja þess væri lifað mjög skemmtilegu ménningarlifi, og svo var það líka í raun og veru. Húsbændurnir þar, frú Sigríður og Guðjón Jóns- son bryti, voru ekki aðeins svo glæsileg í sjón að eftir þeim væri tekið, heldui' það sem meira var, óvanalega skemmtilegar mann- eskjur. Á heimili þeirra safnaðist mikið af tónlistarfólki og þar átti það sínar ógleymanlegu unaðsstundir. Meðal þeirra var maðurinn minn, Árni Björnsson tónskáld. Þegar hann kom hingað til Reykjavíkur ungur maður norðan úr Þing- eyjarsýslu, ákveðinn í að leggja út á tónlistarbrautina, sem ekki þótti skynsamlegt af eignalausum manni, var hann svo heppinn að kynnast þessari fjölskyldu. Hún tók honum opnum örmum, og bauð honum m.a. að æfa sig á píanóið þeirra, sem var forsenda þess að Árni gæti stundað nám í hinum nýstofnaða Tóniistarskóla. Kynnin eru þvi orðin löng og góð. Þeir Villi og Árni voru lengi sam- starfsmenn, meðal annars spiluðu þeir dansmúsík á Hótel Borg, og munu margir eiga skemmtilegar minningar frá þeim tima. En hærra var stefnt, og nú var takmarkið að koma á fót Sinfóníu- hljómsveit. Það fórnfúsa starf sem þeir menn unnu sem að því stóðu, mætti vera mörgum til fyrirmyndar. Þeir áttu hugsjónir sem þeir börðust ótrauðir fyrir, gáfust aldrei upp þótt á móti blési, og þess vegna eigum vió i dag sinfóníuhljómsveit og fjöl- breytt tónlistarlíf, sem við ógjarn- an vildum vera án. Vilii var svo lánsamur að hafa átt sinn þátt í að byggja grundvöll þess að lands- menn geta nú notið verka tón- meistaranna í lifandi flutningi. Þá ósk á ég nú að leiðarlokum, þegar ég kveð okkar góða vin, að þeir kröfuhópar í okkar þjóðfél- agi, sem virðast helst ekki sjá annað en peninga og aldrei fá nóg, tækju sér tíma til að setjast niður og gefa menningunni meiri gaum, taka lífsstarf Villa sér til fyrirmyndar, sem var fyrst og fremst að gleðja og þroska sam- borgara sina, eins og æskuheimili hans gerði forðum. Þá yrðum við betri íslendingar. Samstarf og samheldni ykkar tónlistarmannanna er öllu gulli betri. Guð gefi Ástu konu hans óg dætrum styrk. Með hjartans þökk fyrir góð kynni. Helga Þorsteinsdóttir Strákapottormar sem voru að byrja að læra á blásturshljóðfæri hér í Reykjavík um það leyti sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.