Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTOBER 1977 35 • Sérstök stilling fyrir straufrl efni — auöveldari notkun. • BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott. • Ryöfritt stál i tromlu og vatnsbelg — lengri endingartlmi. • 3falt öryggi á hurö — örugg fyrir börn. • 3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni. • Lósigti aö framan — auövelt aöhreinsa — útilokar bilanir. • Vinduhraöi 520 snún/min — auöveld eftirmeöferö þvottar. • Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur. • 60cm breiö, 55 cm djúp, 85cm há. • tslenskur leiöarvisir fylgir hverri vél. Vörumarkaöurínn hf. | Ármúla 1 ,a. Sími 8611 7. Electrolux þvottavélin er til á lager á þessum útsölustööum: AKRANES: Þóröur Hjálmarsson, BORGARNES: Kf. Borgfiröinga, PATREKSFJÖRÐUR: Baldvin Kristjánsson tSAFJÖRÐUR: Straumur hf., BOLUNGARVtK: Jón Fr. Einarsson, BLONDUOS: Kf. Húnvetninga, SIGLUFJORÐUR: Gestur Fanndal, ÖLAFSFJÖRÐUR: Raftækjavinnustofan sf AKUREYRI: Akurvík hf., HOSAVIK: Grimur og Arni, VOPNAFJÖRÐUR: Kf. Vopnfiröinga, EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa, ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfiröinga HOFN: KASK, ÞYKKVIBÆR: Friörik Friöriksson, VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf., KEFLAVtK: Stapafell hf. ORYGGI í VETRARAKSTRI á (mOOD/YEAR Breiöur sóli — Betri spyrna Ýmsar stærðir snjóhjólbarða fyrirliggjandi — Hagstæð verð — Felgum Affelgum Neglum Hjólbarðaþjónustan _____Laugavegi 172 — Sími 21245._ HEKLAhf Laugavegi 170—1 72 — Sími 21240 striðið braust út, voru sannfærðir um að hljómsveitin á hótei Borg væri besta danshljómsveit Is- lands, — og við erum margir enn á sörfiu skoðun. Strákar á ferm- ingaraldri litu mjög upp til Villa Guðjóns og ætluðu að feta i fót- spor hans, Vilhjálmur hafði nefnilega byrjað að spila opinber- lega um fermingu. Við Vilhjálmur Guðjónsson spiluðum fyrst saman í Lúðra- sveit Reykjavíkur 1943, þegar verið var að æfa fyrir Lýðveldis- hátiðina. Hún heppnaðist vel, og síðan lágu ieiðir okkar saman í Utvarpshljómsveit Þórarins Guð- mundssonar, Sinfóníuhljómsveit íslands, öllum lúðrasveitum í Reykjavik, þvi miður aldrei á Hótel Borg, en ég fékk uppbót á þvi i Vetrargarðinum meðan hann var og hét. Fyrir 10 árum var mér falið að stofna Skólahljómsveit Kópavogs. Mér ofbauð hlutverkið i fyrstu, en þegar mér tókst að fá vinina Vil- hjálm og Jóhannes Eggertsson til að kenna krökkunum með mér, vissi ég að þetta mundi verða allt í lagi. Menn mega hafa ýmsar skoð- anir á svona fyrirtækjum, en hitt er víst, að ánægjulegra verk hef ég aldrei unnið, og er það ekki síst samstarfinu við Vilhjálm Guðjónsson að þakka. Aldrei brást hans góða skap og ljúf- mennska í þessari samvinnu, en allir geta ímyndað sér að ungl- ingakennsla á horn verður stund- um brösótt. Smekkvísi hans var óbrigðul og án alls yfirlætis, leikni hans á klarinettu og saxo- fón hafin yfir gagnrýni, og þurr húmor hans alveg óborganlegur. Hann brást aldrei, ekki einu sinni núna síðustu dagana i rosalegri sjúkdómslegu, — maður hefði mátt halda að ekki væri nokkur skapaður hlutur að manninum, — hann tæki bara þá og þegar við kennslustörfum í Kópavogi á ný, 'og færi svo að spila í Sinfóníu- hljómsveit Islands. Það er erfitt að skiljast við vini sina, en huggun má þó vera að mega minnast ótal ánægjustunda með manni eins og Vilhjálmi Guð- jónssyni. Eiginkonu hans og dætr- um votta ég mína dýpstu samúð. Björn Guðjónsson. 1 dag kveðjum við nemendur Skólahljómsveitar Kópavogs okk- ar ágæta kennara, félaga og vin, Vilhjálm Guðjónsson, A tíu ára starfsferli sveitarinnar hefur hann verið einn af máttarstólpum hennar, og fráfall hans skilur eft- ir skarð sem ekki verður bætt. Vilhjálmur var okkar stoð og stytta, og hjálpsemi hans og fórn- fýsi fáum við aldrei fullþakkað. Hann sinnti ekki einungis sinni kennslu, heldur tók hann þátt i starfi okkar af lífi og sál. A ferða- lögum, tónleikum og öllum „auka- æfingum“ var Villi ætið til staðar, hvatti okkur og örvaði á alla lund. Hann átti sinn þátt í að gera okk- ur þátttökuna í hljómsveitinni i senn ánægjulega, lærdómsríka og eftirminnilega. Nemendahópur Vilhjálms var ærið misjafn. Ekki einungis hvað varðaði stundvísi og eljusemi við æfingarnar, held- ur og í öllum umgengnisvenjum. An efa hefur oft reynt á þolrifin í Vilhjálmi þessi tiu ár, en aldrei sáum við hann skipta skapi. Öll- um ambögum tók hann með slíkri ljúfmennsku og rósemi, að for- hertir gelgjuskeiðsunglingar stóðu frammi fyrir honum gjör- samlega vopnlausir. „Greyin min, reynið þið nú að spýta almenni- lega i hljóðfærin, til þess eru þau,“ var viðkvæðið þegar mikið var í húfi. Og með þessum orðum kvaddi hann okkur á tíu ára af- mælistónleikum sveitarinnar i vor. Hafi hann þökk fyrir allt. Ástu, Ingunni og Sirrý, öllum ætt- ingjum og vinum, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Skólahljómsveit Kópavogs. j«- • ELECTROIA JX WH SS ER JHEST SELRA _ ___r- r r . r |fhrWirW1 f1,r¥?¥ WXJ t WlW W^WWkWk Wmw fWW MiMw MJjMjMLw W ^ i sem mér fannst svo rikir i fari hennar, hógværð, ljúfmennska og trygglyndi, sem aldrei brást. Það eru ótal fagrar minningar, sem leita fram í hugann þegar ég minnist vináttu hennar og móður minnar, sem aldrei bar skugga á meðan báðar lifðu. Og að hafa átt slíka vinkonu sem Sigriði verður seint fullþakkað. Það voro margar samverustundirnar, sem aldrei gleymast sem okkar fjölskyldur áttu saman, allt frá því að börn Sigríðar og við vorum litil börn. Orð segja að visu fátt, en hjart- að er fullt af þakklæti. Og Sigríður sem svo vel kunni að meta það góða, sem lifið gaf henni, manninn hennar Þorvarð Magnússon, sem lézt fyrir 7 árum og börnin Kristján og Katrinu, sem nú sakna góðrar móður. Þegar vegir skiljast þakka ég samveruna, hún var í senn dýr- mæt og lærdómsrík, því að Sigríð- Sigríður Kristjáns- dóttir—Minning Electrolux 1 árs ábyrgð Electrolux þjónusta. Hagstæð greiðslu- kjör. Aldin heiðurskona hefur kvatt þetta iíf og er horfin til æðra lífs. Þegar ég nú með þessum fátæk- legu orðum minnist hennar lang- ar mig til að draga fram þá kosti, ur var svo auðug að þeim verð- mætum, sem eru gulli betri, góð- vild og kærleika. Og minningin um mannkostina verður geymd í hugskoti mínu og allra, sem þekktu hana. Ég votta börnum Sigríðar, tengdabörnum, barna- börnum og systkinum mína inni- legustu samúð. Eg bið Guð að blessa hana og þakka fyrir allt og allt. Rósa Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.