Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
223. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Minnkandi
líkur á að
Schleyer
sé á lífi
Bonn 7. október AF.
MINNKANDI líkur eru nú taldar
á að v-þýzki kaupsýslumaðurinn
og iðjuhöldurinn Hanns Martin
Schleyer sé á lífi, en ekkert hefur
heyrzt frá ræningjum hans í 11
daga, eða síðan þeir hótuðu að
lífláta Schleyer ef v-þýzk stjórn-
völd fyrirskipuðu ekki þegar í
stað, að leit að þeim skyldi ha-tt
og að þau hættu að hlera símtöl
og reyna að rekja þau frá skrif-
stof.u svissneska lögfra-ðingsins
Denis Payots, sem er milligöngu-
maður ramingjanna og stjórn-
valda í V-Þýzkalandi. Schleyer
hefur nú verið á valdi hryðju-
verkamanna úr Rauðu herdeild
Baader-Meinhofsamtakanna frá
því 5. septemher. Höfðu ræningj-
arnir krafizt þess að 11 félögum
þeirra yröi sleppt úr haldi og 1.1
milljón marka greidd í lausnar-
fijald.
Helmut Schmidt hélt i dag ræðu
Framhald á bls. 23
Helmut Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, kemur til athafnar í Bonn,
þar sem hinn nýi efnahagsmálaráðherra landsins sór embættiseið
sinn. Lögreglumenn vopnaðir vélbyssum gæta kanslarans.
Deilan um aðild Pal-
estínumanna leyst?
Tel-Aviv og Washington.
7. október.
SIMCHA Ehrlich, fjár-
málaráðherra ísraels, sem
er í forsæti stjórnar lands-
ins, meðan Begin forsætis-
ráðherra hvílist í sjúkra-
húsi, sagði í kvöld að hann
teldi að Israelar myndu
samþykkja vinnuplagg
það, sem Carter Banda-
ríkjaforseti og Moshe
Dayan utanríkisráðherra
ísraels undirrituðu í New
York fyrr í vikunni. Lét
ráðherrann þá von í ljós,
að hægt yrði að koma á
nýrri friðarráðstefnu um
deiluna í Miðausturlönd-
um fyrir lok þessa árs.
Innihald vinnuplaggsins hefur
ekki verið gert opinbert, en fregn-
in um að Carter og Dayan hefðu
komizt að bráðabirgðasamkomu-
lagi hefur létt nokkrum áhyggj-
um af ísraelum yfir stefnu
Bandaríkjanna í Miðausturlönd-
um.
Diplómataheimildir í New York
hermdu í kvöld að i vinnuplagg-
inu væri kveðið á um að Palest-
ínumenn fengju að senda fulltrúa
til Genfarráðstefnunnar i alls-
herjarsendinefnd frá Arabarikj-
unum. Talsmenn Frelsisfyikingar
Framhald á bls. 23
Kuznetsov ekki
líklegur til valda-
baráttu í Kreml
iVIoskvu 7 októher AF — Routor
KJÖR sovézka diplómatans
Vasilys Kuznetsovs í embætti
varaforseta Sovétríkjanna i
morgun varpaði engu ljósi á
hugsanlegan arftaka Brezhnevs,
forsela og aðalritara sovézka
kommúnistaflokksins, eins og
stjórnmálamenn og stjórnmála-
fræðingar höfðu vonað.
Kuznetsov, sem er 76 ára að aldri
og einn revndasti diplómat og
samningamaður Sovétríkjanna
hefur nær enga reynslu í sovézk-
uni stjórnmálum og því óliklegt
að hann muni fara út í valdahar-
áttu, ef Brezhnev fellur frá á und-
an honum.
Talið er að starfssvið hins nýja
varaforsetaembættis, sem stofnað
var til með nýrri stjórnarskrá í
Sovétríkjunum og Æðsta ráðið
samþykkti einróma á fundi í
morgun, verði einkum að létta
ýmsum smáverkum af forsetan-
um, svo sem að taka á móti
erlendum diplómötum, vera við
opinberar athafnir o.s.frv.
Brezhnev sem nú er 71 árs að
aldri, er sagður heilsutæpur og
kemur æ sjaldnar fram opinber-
lega. Hann lét kjósa sig forseta
landsins nú i sumar eftir að hafa
ýtt Nikolai Podgorny heizta
keppinaut sinum, út í kuldann, en
Brezhnev hefur nú verið leiðtogi
sovézka kommúnistaflokksins um
10 ára skeið.
Það var Mikhail Suslov, helzti
hugmyndafræðingur sovézka
kommúnistaflokksins, sem bar
fram tillögu um kjör Kuznetsovs á
fundi þings Sovétríkjanna, rétt
eftir að Æðsta ráðið hafði sam-
þ.vkkt hina nýju stjórnarskrá
landsins. Kuznetsov hefur undan-
farið verið fyrsti aðstoðarutan-
rikisráðherra landsins, én mun
Indland:
Enn verdur
bid á ad
Concorde fái
að lenda
í New York
W'ashinRlon
7. októbcr. Reutor.
KNN VEHÐUH hid á því aö
fransk-brezka hljóðfráa
Concordefarþegaþotan fái að
lenda í New York, eftir að
Hæstiréttir Bandarikjanna
féllst á að fjalla um áfrýjum
samgönguniálayfirvalda í New
York. Var hæstiréttur beðinn
að urskurða í málinu eftir að
alríkisáfrýjunardómstóll í
New York hafði úrskurðað að
Concorde skyldi fá lendingar-
leyfi.
Hæstiréttur tekur áfrý j-
un stjórnarinnar fyrir
N< ju Delhí 7. október.
Reuter — AP.
INDVERSKA stjórnin fékk
nokkra uppreisn æru í dag, er
hæstiréttur landsins féllst á að
fjalla um áfrýjun hennar á rétt-
mæti úrskurðar dómara í Nýju
Delhí, uni að Indíru Gandhí, fyrr-
um forsætisráðherra, sk.vldi
sleppt úr haldi skilyrðislaust, eft-
ir að hún var handtekin sl. mánu-
dag, sökuð um spillingu og valda-
misnotkun.
Úrskurðaði dómarinn að engin
haldföst rök hefðu verið fyrir
handtökunni og fyrirskipaði að
frú Gandhí skyldi látin laus án
tryggingar, eftir að hún hafði ver-
ið sólarhring í fangelsi i Bombay.
Heldur ríkisstjórnin því fram að
frú Gandhi hefði átt að fá að fara
frjáls ferða sinna gegn tryggingu
og að dómarinn hefði haft rangt
fyrir sér að engin rök væru fyrir
handtökuskipuninni. Stjórnmála-
fréttaritarar telja að nokkrir dag-
ar eða jafnvel vikur kunni að liða
áður en hæstiréttur kveður upp
sinn úrskurð.
Málsmeðferð indversku stjórn-
arinnar hefur verið harðlega
gagnrýnd þar í landi og orðið til
þess að útifundir og fjöldagöngur
til stuðnings frú Gandhí hafa ver-
ið haldin víða um landið. Gandhí
sagði á fundi i gær að stjórnvöld í
landinu vildu gera allt, sem í
þeirra valdi stæði til að koma í
veg fyrir að sér tækist að endur-
vekja traust fólksins til sin, en
sagði að hún myndi fara út á
meðal fólksins, sem elskaði hana,
jafnvel þótt hún ætti á hættu
fangelsi eða að verða hengd, hún
ætlaði sér að halda á loft baráttu-
málum fólksins og hefja aftur
virk afskipti af stjórnmálum.
Vasily Kuznetsov,
varaforseti Sovétríkjanna.
nú væntanlega láta af þvi starfi.
Hann var kjörinn, i stjórnmálaráð
flokksins sl. mánudag og þótti þá
einsýnt að honum væri ætlað nýtt
starf. Hann er málmtækni-
færðingur að mennt og starfaði
m.a. við Ford-
Framhald á bls. 23
Sirica dómari
lætur af störfum
WashiiiRton 7. októbor Routor.
BANDARÍSKI dómarinn John
Sirica, sem hlaut heimsfrægð fvr-
ir dómsforsæti sitt við YVatergate-
réttarhöldin, hefur sagt af sér
emba-tti og tók Carter forseti af-
sögn hans til greina í kvöld. John
Sirica, sem er 73 ára að aldri,
vann sitt síðasta embættisverk í
vikunni, er hann mildaði dóma
yfir siðustu sakborningum
VVatergate, sem enn eru í fang-
elsi, John Ehrlichman og Robert
Haldemann, helztu ráðgjöfum
Nixons fyrrum forseta og John
Mitchell f.vrrum dómsmálaráð-
herra landsins. Sirica bar viður-
nefnið „strangi John", því að
hann þótti mjög gjarn á að dæma
menn til þ.vngstu refsingar, sem
lagabókstafurinn le.vfði.
Sirica dómari á heimili sinu i
YVashington í fyrradag.
Sovét-herskip geta lagt
bandarískar borgir 1 eyði
segir flotaforinginn WUliam Read
WashinRton 7. október. AF.
BANDARÍSKI flotafor-
inginn YVilliam Read.
sagði i Washington í
dag, að sovézk herskip
undan austurstönd
Bandaríkjanna væru
nægilega nálægt til að
geta eyðilagt borgir í
Bandarikjunum, ef til
kjarnorkustyrjaldar
kæmi. Read, sem er yf-
irmaður Atlantshafs-
flota Bandaríkjanna,
sagði að hin stöðuga
aukning sovézkra kaf-
báta, tundurspilla og
heitiskipa í Mexíkóflóa
og undan austurströnd
Bandarikjanna væri
staðfesting á stóraukn-
um flotastyrk og fram-
sókn sovézka flotans.
Read sagði að í júli sl.
hefðu Sovétmenn siglt
flotadeild inn á Mexíkö-
flóa, sem hefði talið ým-
is skip vopnuð eldflaug-
um. Sagði hann að fyrir
nokkrum árum heft ver-
ið sjaldgæft að sjá sov-
ézk herskip á úthöfun-
um, en nú væri þau að
finna á öllum heimshöf-
um, mörg og velvopnuð.
Hann sagði að banda-
ríski flotinn teldi nú
470 herskip og auk þess
ættu Bandaríkjamenn
577 kaupskip. Sambæri-
legar tölur hjá Sovét-
mönnum væru 1919 her-
skip og 2420 kaupskip.
Sagði flotaforinginn, að
Bandaríkjamenn
myndu standa illa að
vigi i löngu striði við
Sovétrikin, því að yfir-
burðir Sovétmanna i
flutningagetu væru svo
miklir og að Sovétmenn
hefðu getu til að halda
þessum skipum á sigl-
ingu.