Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1977 100 millj. greiddar út í gær !VIIKIL ös var hjá Tr.VfíKÍnfía- stofnun ríkisins í gær, þegar þar var byrjaó art borga út líf- eyrinn til iífeyrisþega vegna yfirvofandi verkfalls. Að þvi er Sigurður Ingimundarson, for- stjóri Tryggingastofnunarinn- ar, sagói í samtaii við Mbl., voru f gær um 100 millj. króna horgaðar út hjá stofnuninni. Um 60% heildarlifeyris- greiðslnanna fara til lífeyris- þega um bankana en um 40% eru sóttar til stofnunarinnar. Aö sögn Sigurðar nemur fjár- hæðin, sem greidd var út í kringum síðustu mánaðamót i Reykjavík um 608 milljónum króna. Samtals eru það þvi um 240 milljónir króna sem sóttar eru beint i bækistöðvar Trygg- ingastofnunarinnar í Reykjavik og þar af var upp undir heim- ingurinn sóttur á fyrsta degi útborgunar, eins og áður er get- ið, en afgangurinn verður væntanlega sóttur á mánudag sem eru síðustu forvöð áður en verkfall BSRB skellur á. Kauptrygging röskar 150 þúsund kr. Sjómannasamning- ar á Vestfjörðum Bilbugurinn á Gligoric SAMNINGAR milli Al-- þýðusambands Vestfjarða og Útvegsmannafélags Vestfjarða um kaup og kjör vestfirzkra sjómanna voru undirritaðir á mánu- daginn. Að sögn Péturs Sigurðssonar, forseta Al- þýðusambands Vestfjarða, er kauptryggingin sam- kvæmt nýju samningunum röskar 150 þúsund krónur á mánuði. Pétur sagði, að kjör vest- firzkra sjómanna hefðu alltaf verið töluvert betri en sjómanna annars staðar á landinu, en undanfarin ár hefði bilið minnkað frá því sem var 1970. Með nýju samningunum hefði aftur fengizt sami mismunur og var 1970 og er kauptrygg- ingin sem fyrr segir rösk 150 þúsund á mánuði, en annars staðar var samið um tæplega 140 þúsund krónur. Yfirheyrslur hafnar hjá verðlagsdómi YFIRHEYRSLUR vegna stefnu verðlagsstjóra á hendur Sam- bandi málm- og skipasmiðja og Rafiðnaðarsambandi íslands vegna útseldrar vinnu eru nú hafnar hjá verðlagsdómi. Verðlagsdóminn skipa Sverrir Einarsson sakadómari og Gunnar Eydal lögfræðingur. í Reykjavik er sakadómari formaður verðlags- dóms og meðdómari er skipaður af dómsmálaráðherra að fengnum tillögum nefndar, sem ASl, BSRB og Stéttarsamband bænda til- nefna fulltrúa í. Frá verðlagsdómi mun málið svo ganga til saksóknara ríkissins, sem tekur ákvörðun um málshöfð- un. eykur líkurnar á ein- ingu um kjör Friðriks — segir Einar S. Einarsson, forseti SI „ÞESSI bilbugur, sem nú er kominn á Gligoric, hefur f för með sér auknar líkur á þvf, að eining verði um kjör Friðriks,“ sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands tslands, er Mbl. ræddi við hann I gær, en eins og Mbl. skýrði frá, sagði Gligoric í samtali við blaðið að hann fhugaði að draga til baka framboð sitt til forsetaembættis FIDE. „Það kemur fram í orðum Gligoric, að framboð hans er Marleinn Hunger F riðriksson. ákvörðun skáksambandsins i Júgóslavíu gegn vilja hans sjálfs og tekur það undir þær raddir, sem fram hafa komið um, að ekki væri hægt að líta á hann sem sjálfstæðan frambjóðanda og þá ekki sjálfstæðan forseta FIDE,“ sagði Einar ennfremur. „Sovét- menn hafa lýst þvi yfir, að þeir vilji.að höfuðstöðvar FIDE verði áfram í Evrópu, þannig að dragi Gligoric framboð sitt til baka, stendur Friðrik einn eftir sem frambjóðandi frá Evrópu, nema fleiri framboð eigi eftir að koma fram, en líkur á þvi minnka stöð- ugt eftir þvi sem á líður." A sunnudag fara þeir Einar og Gisli Arnason, gjaldkeri Sl, til Caracas, þar sem þeir sitja mið- stjórnarfund FIDE og fundi í laganefnd og réttarnefnd sam- bandsins. P’erðin verður notuð til Varðarráð- stefna um skóla- og menntamál f DAG kl. 2 efnir Landsmálafélagið VörSur, Samband félaga sjálfstæðis- manna i hverfum Reykjavíkur. til ráSstefnu um skóla- og menntamál. VerBur ráðstefnan haldin i Valhöll, Háaleitisbraut 1. kjallara. Á ráðstefnunní verður fjallað un ein- staka þætti skóla- og menntamála og verða fluttar fjórar framsöguræður en siðan fara fram frjálsar umræður og fyrirspurnir. Framsögumenn verða þau Davíð Oddson, borgarfulltrúi. Elin Ólafsdótt- ir, kennari, Hannes Gissurarson, há- skólanemi og Ragnar Júliusson, borg- arfulltrúi. formaður fræðsluráðs Reykjavikur Ráðstefnustjóri verður Edgar Guðmundsson, verkfræðingur Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um skóla- og menntamál Á ráðstefn- unni verða kaffíveitingar á boðstólum að athuga möguleikana á að heimsmeistaraeinvígið fari fram hér á landi og vinna að framboði Friðriks Ólafssonar, en S.í. hefur gefið út bækling til kynningar á framboðinu. Auk þess sem fram- boð Friðriks er þar kynnt, er skýrt frá sigri Jóns L. Arnasonar á heimsmeistaramóti unglinga undir 17 ára aldri og loks er skýrt frá gjöf þeirri, er Sl færði dr. Euwe, forseta FIDE, á 75 ára afmæli hans, en gjöfin var gabbrósteinn með minnispeningi þeim, er S.I. gaf út með mynd af Friðriki Ólafssyni. Þorkf-ll SÍKurhjörnssnn. Lofsöngur ’77 frum- fluttur í Háteigskirkju A TÓNLEIKUM í Háteigs- kirkju sunnudaginn 9. okt. kl. 5 verður frumflutt nýtt tónverk eftir Þorkel Sigur- björnsson. Heitir það Lof- söngur 1977 og er samið fyrir kór, einsöngvara og 1.500 félagar BHM f ara ekki í verkf all BANDALAG háskólamanna hefur sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem segir að flest bendi nú til þess að tll verkfalls opinberra starfsmanna innan BSRB muni koma næstkomandi þriðjudag. Rfkis- starfsmenn innan BHM hafi hins vegar ekki fengið verkfallsrétt og eru launamál þeirra nú til meðferðar hjá Kjaradómi. Þvf munu um 1.500 rfkisstarfsmenn innan BHM starfa áfram á meðan rfkisstarfs- menn og bæjarstarfsmenn innan BSRB verða í verkfalli. Í fréttatilkynningunni eru Ríkisstarfsmenn væntu þess, að siðan taldar upp ástæður þess, að þessi niðurstaða yrði til þess að BHM hafi ekki talið sér fært að þiggja sambærilegan verkfalls- rétt og BSRB. Ástæðurnar eru: 1. Verulega stærri hiuti há- skóiamanna hefðu ekki verkfalls- rétt skv. slikum lögum en hjá BSRB. Má þar nefna lækna, dómara, presta, dýralækna. 2. Langur samningstimi (2 ár) án endurskoðunar. Sbr. kröfur BSRB um endurskoðunarrétt, sem ekki er gert ráð fyrir i lögunum. 3. Auk þess var jafnframt laga- setningunni fyrirhuguð veruleg skerðing á lifeyrissjóði opinberra starfsmanna. Fjármálaráðherra beitti sér fyrir þvf að gerð var könnun á kjörum á almennum vinnumark- aði annars vegar og ríkisstarfs- man'na hins vegar. Niðurstöður þessarar könnunar sýndu að veru- legur munur er á kjörum þessara hópa, á þetta ekki síst við um miðbik og efri hluta launastigans. þessi munur yrði leiðréttur i þeim samningum, sem nú standa yfir. Tilboð fjármálaráðherra til BSRB og BHM bera þess þó engin merki, að hið opinbera hyggist fara eftir niðurstöðum könnunar- innar, og er það megin ástæða fyrir því, að ekki hafa náðst samningar við BHM og BSRB. Mjög hefur borið á því að und- anförnu í fréttum, að saman- burður við frjálsum vinnumarkað sýni, að mest þurfi að hækka lægstu laun svo og miðbik launa- stiga opinberra starfsmanna sbr. könnun Hagstofu Islands. Í þessu sambandi má benda á, að jafnvel enn meiri munur er á launum margra háskólamanna á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera. Auðvelt er hins vegar að finna önnur rök fyrir því, að lægstu laun þurfi að hækka verulega. Þá segir loks f fréttatil- Framhald á bls. 23 hljómsveit. Stjórnandi er Marteinn Hunger Friðriks- son. Einnig verður flutt verk eftir Mendelssohn. Það er Kirkjukór Háteigskirkju sem heldur tónleikana. Verkið Lofsöngur er samið fyrir kór, 4 einsöngvara og 10 manna hljóm- sveit. Sigurður Björnsson óperu- söngvari fer með stærsta ein- söngshlutverkið, en auk hans syngja einsöng þau Guðfinna D. Ólafsdóttir, Rut Magnússon og Halldór Vilhelmson. Félagar úr sinfóníuhljómsveit Islands skipa hljómsveitina og stjórnandi er Marteinn Hunger Friöriksson. 1 tónverki sem flutt verður eftir Mendelssohn mun Elín Sigurvins- dóttir syngja einsöng með kórn- um. Hjúkrunarfræð- ingar mótmæla ákvörðun kjara- deilunefndar STJÓRN og trúnaðarráó Hjúkr- unarfélags íslands hefur i frétta- tilkynningu sem borizt hefur Morgunblaðinu bent á að með úr- skurði kjaradeilunefndar frá 3. október síöastliðnum sé brotin 26. grein laganna um kjarasamninga BSRB, en þar segi að „kjaradeilu- nefnd ákveður hvaða einstakir menn skuli vinna f verkfalli.“ Stjórn og trúnaðarráð Hjúkr- unarfélagsins mótmælir því harð- lega úrskurði kjaradeilunefndár, þar sem hjúkrunarfræðingum er meinuð þátttaka i verkfallsað- gerðum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, og hefur þar með virt að vettugi mjög ábyrga verk- fallsáætlun Hjúkrunarfélags ís- lands. Eldur í hlöðu Akureyri 7. október. Eldur kom upp i hlöðu á Jórunnarstöðum i Saurbæjar hreppi um sjöleytið i kvöld Slökkvi- liðsblll fór ásamt slökkviliðsmönnum trá Akureyri og mun þeim hafa tekizt að slökkva á stuttum tima Fregnir af heybruna þessum eru mjög ósljósar i kvöld. en talið er að eldurinn hafi verið minni en búizt var við fyrr i kvöld. —Sv.P. Sætún opnað að Steintúni HLUTI Sætúns, frá Kringlumýrarbraut að Steintúni, hefur nú verið maibikaður og opnaður fyrir umferð. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, starfsmanns borgarverkfræðings, verður kaflinn frá Steintúni að Skúlatorgi væntanlega malbikaður í næstu viku og verður lýsing sett upp við götuna fyrir veturinn. Þá verður aðeins síðasti spölurinn að Laugarnesvegi ómalbikaður, en Ólafur sagði ólíklegt að það yrði gert fyrr en á næsta ári, þar sem ekki væri búið að ganga frá samningum við eiganda Laugamýrarbletts.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.