Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977 10 íslandsmeistaramótid í sandspyrnu: Útbúnaðurinn annar en al- mennt geríst ÞAÐ er óhætt að senja að pinn- inn hafi verið pískaður á fyrsta Íslandsmeistaramótinu í sand- spyrnu sem fram fór í landi Hrauns í Ölfusi um helgina. Þef>ar hlaðamann or Ijósmynd- ara IVIbl. bar að garði á sandeyr- unum þar eystra voru menn að lokaprófa farkostina í nágrenni keppnisbrautarinnar. Kváðu þaðan miklar drunur og sand- strókarnir stóðu langt og lengi aftur úr jeppunum, fólksbflun- um og mótorhjólunum sem þar voru. 1 öllum hamaganginum hafa margir bezfnlítrarnir áreiðanlega brunnið. Mót þetta var haldið af Kvart- miluklúbbnum. Hefur sá félagsskapur reyndar haldið sams konar mót tvisvar áður á þessum stað, en nú var haldið íslandsmeistaramót í fyrsta sinn. Kvartmíluklúbbnum hef- ur nýlega áskotnazt fullkominn rafeinda- og fótóselluútbúnað- ur sem notaður er við svipaðar keppnir á erlendri grund, og sögðu framámenn ktúbbsins að tvimælingar væru nú miklu ná- kvæmari en áður, og reyndar eins nákvæmar og þær nokkru sinni gætu orðið. Að erlendri fyrirmynd var brautin höfð 91.44 metrar, þ.e. 100 enskir yardar. Áður hefur hún verið 100 metrar og teljast þeir tímar sem nú náðust því vera íslands- rhet. Talsverður mannfjöldi horfði á keppnina, eða hátt á annað þúsund manns. Keppt var í þremur flokkum í sandspyrnunni, jeppaflokki, fólksbílaflokki og i mótorhjóla- flokki. Sex jeppar, sex fólksbíl- ar og níu mótorhjól tóku þátt í keppninni. Fyrst fengu menn að fara eina æfingaferð í braut- inni til að kynnast hinum nýja útbúnaði en notað var svonefnt ,,jólatré“ til að ræsa bílana, en það er sérstök ijósaröð á láréttu statifi. Síðan tók alvaran við, og fóru menn brautina tvisvar í undankeppninni. Fram var haidið þar til þeir leiddu saman hesta sína, sem tveimur beztu tímunum höfðu náð í undan- rásunum. I öllum átökunum Dæmigerð mynd af upphafi keppni á sandspyrnumóti Kvartmfluklúbbsins. Sandurinn var tættur upp Og honum spyrnt f loft upp Ljósm. Krislinn Ólafsson. arútbúnaður hennar er mörg- um framandi. Úrslitin í keppninni urðu þau að Hafsteinn Hafsteinsson sigr- aði í jeppaflokki á 6.38 sek- úndum. Ók hann Jeep árgerð ’73, en sú bifreið er með 401 rúmsentimetra AMC vél. Ann- ar varð Helgi Ágústsson á 6.91 sek. Jeepster, árgerð ’67 og með 350 rúmsentimetra Chevrolet vél. í fólksbílaflokknum sigraði Hjörleifur Hilmarsson á Chevy Nova bifreið á 7.43 sekúndum. Vél þess farkosts er 350 rúm- sentimetrar. Annar varð Kristinn Kristinsson á Triumph á 7.70 sekúndum, en véKn í þeirri bifreið er 289 rúmsenti- metrar. í mótorhjólaflokknum varð Pétur Þorgrimsson skarp- astur á 6.35 sekúndum. Ók hann á Montesa Cappra hjóli. Annar varð Jón Ö. Valsson á Suzuki 370 á tímanum 6.39 sekúndum. —ágás. Mótorhjólakeppnin var tilkomumikil og jafnvel meira spennandi en keppnin f öðrum flokki. Ræsirinn fylgist með að settum reglum sé framfylgt sem keppninni fylgdi var tætt- ur upp mikill sandur og kraft- mestu farartækin jusu honum yfir áhorfendur sem stóðu um 20 metra fyrir aftan rásmarkið. Þátttakendur í sandspyrnu- keppninni lögðu greinilega mikið í fararskjóta sína svo að þeir næðu sem beztum árangri í keppninni. Voru tryllitækin því nokkuð öðruvisi útlits en hinn almenni vegfarandi á að venj- ast. Á jeppunum og fólksbílun- um voru t.d. mjög breið dekk, felgan var í mörgum tilfellum helmingi breiðari en gerist á þjóðvegunum. Þá höfðu sumir, sérstaklega jeppaeigendurnir, brallað ýmislegt í vélum sínum og þannig aukið kraft og snerpu fararskjótanna veru- lega. I fólksbílaflokknum fór einna mest fyrir bifreið af Triumph-gerð, en hjóla- og vél- Hafsteinn Helgason (jeppi nær) á leið til sigurs f jeppaflokki. Fjær er Ólafur Ólafsson ... spyrnan tekin ... Beðið á rásmarki... ... og nú er þrusað af stað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.