Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977 23 Eysteinn Helga- son framkv.stjóri Samvinnuferða EYSTEINN Helgason viðskipta- fræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samvinnu- ferða í stað Böðvars Valgeirs- sonar, sem nú lætur af störfum að eigin ósk, en hann hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá því að það tók til starfa vorið 1976. Eysteinn hefur undanfarin tvö ár verið framkvæmdastjöri Sölu- stofnunar. lagmetis. Hann er 29 ára, lauk stúdentsprófj 1969 og útskrifaðist frá viðskiptadeild H.í. 1973. Eiginkona Eysteins er Kristin Rútsdóttir og eiga þau tvö börn. Eysteinn Helgason — Bíðum með uppsagnar- aðgerðir... Framhald á bls. 40 af okkar kjarabaráttu og samningagerð,“ sagði Björn Jónsson, er Mbl. spurði hann, hvort ASÍ hefði einhver af- skipti af kjarabaráttu BSRB. „Einu uppsagnarákvæði heildarsamkomulagsins kveða á um rétt til uppsagnar, ef verulegt gengissig verður, eða ef hróflað verður við verðlags- bótaákvæðum og við höfum ekkert í höndunum og ég kann- ast ekki við neitt fyrirheit frá rikisvaldinu um það, að ekki verði samið umfram það, sem við gerð'um i heildarsamkomu- laginu. I sambandi við heildarsam- komulagió eru viss skattaatriði og við myndum telja það mjög alvarlegan hlut, ef þeim skatta- breytingum yrði kippt til baka af hvaða ástæðu, sem það nú yrði gert. Hins vegar var það aldrei okkar meining að þær skattalækkanir, sem við fengj- um, yrðu á kostnað opinberra starfsmanna," sagði Björn Jónsson. Sýningu Kristjáns Hall að ljúka Málverkasýningu Kristjáns Hall á Laugavegi 25 lýkur mánudaginn 10. okt. n.k. Sýningin er opin daglega frá kl. 15—22. Flestar myndirnar á sýningunni eru oliumálverk, en einnig eru nokkrar pastelmyndir. Allar myndirnar eru landslagsmyndir. Kristján Hall hefur haldið nokkrar málverkasýningar áður í Reykjavík, Keflavík og á Akranesi. — 1500 fara ekki í verkfall Framhald af bls. 2 kynningu BHM, að eftirfarandi bréf hafi verið sent BSRB hinn 5. október síðastliðinn: Á fundi launamálaráós hinn 4. okt. s.l. var samþykkt svohljóð- andi yfirlýsing til birtingar i fjöl- miðlum: „Bandalag háskólamanna lýsir yfir stuðningi við baráttu BSRB fyrir leiðréttingu kjara ríkis- starfsmanna til samræmis við kjör launþega á hinum almenna vinnumarkaði. BHM hvetur félagsmenn sína til að gæta þess vel að ganga ekki inn á starfssvið félagsmanna í BSRB ef til verk- falls kernur." Jafnframt var kosin nefnd til að fjalla um hugsaleg vafaatriði varðandi störf félagsmanna BHM í verkfalli BSRB ef til þess kemur. Launamálaráð BHM óskar hér með eftir samstarfi við BSRB um umfjöltun vafaatriða og fer þess á leit að BSRB tilnefni tvo eða fleiri fulltrúa til að fjalla um slík vafa- atriði með ofangreindri nefnd. Ef BSRB telur hentugra að haga þessum málum á annan veg er launamálaráð BHM reiðubúið til viðræðna um það. BHM vill loks benda félags- mönnum sínum á að hafa sam- band við skrifstofu BHM ef upp koma vafaatriði varðandi störf þeirra i hugsanlegu verkfalli BSRB. Styrkur til háskólanáms í FRÉTT frá Háskóla islands seg- ir segir, að á næsta ári verði veitt- ur styrkur úr minningarsjóði Olavs Brunborg að upphæð fimm þúsund norskar krónur. Tilgang- ur sjóósins sé að styrkja islenzka stúdenta og kandidata til háskóla- náms i Noregi. Umsóknir um styrkinn eiga að sendast skrifstofu Háskóla ís- lands fyrir 31. október n.k. — Schleyer Framhald af bls. 1 i v-þýzka þinginu, þar sem hann skoraði á almenning að hefja ekki ofsóknarherferð á hendur menntamönnum i landinu og var- ast ,,and-hryðjuverkamóðursýki“, eins og hann orðaði það. Ymsir rithöfundar og menntamenn i landinu halda þvi fram, að hryðjuverkastarfsemin í landinu hafi komið af stað galdraofsókn- um á hendur menntamönnum, sem sé Jtennt um að hafa sáð andlegu fræi hryðjuverkastarf- semi. M.a. hélt rithöfundurinn Gtinter Grass þessu fram i viðtali fyrir skömmu. — Kuznetsov Framhald af bls. 1 bifreíðaverksmiðjurnar í Banda- ríkjunum 1931 í sambandi við skiptiáætlun verkafólks og lauk M.A.-prófi frá tækniháskóla í Pittsburgh í Pennsylvaníufylki. Hin nýja stjórnarskrá Sovét- ríkjanna leysir af hólmi stjörnar- skránna, sem Stalin lét semja 1936. Að sögn stjörnmálafrétta- ritara er ekki að finna verulegar grundvallarbreytingar í nýju stjórnarskránni, en Brezhnev lýsti samþykkt hennar, sem ein- hverjum mesta vióburði í sögu sovézku þjóðarinnar. Sagði hann að stjórnarskráin yrði voldugt afl i þróun sösíalistisks lýðræðis i Sovétríkjunum. — Aðild Palestínumanna Framhald af bls. 1 Palestínumanna, PLO, létu i dag að þvi liggja að fulltrúar Palest- ínumanna kynnu að verða borgar- stjórar borga á vesturbakka Jórdanár, sem ekki væru kenndir við PLO, en grundvallarskilyrði Israela fyrir þátttöku Palestinu- manna, er að fulltrúar þeirra verði ekki úr PLO-samtökunum sjálfum, sem hafa það í stofnskrá sinni að eyða Israelsriki. Jafn- framt þessu yrðu sérstakar vinnu- nefndir til að fjalla um friðarskil- mála og landamæri Israels og Egyptalands, Jórdaníu, Sýrlands og Líbanons. Þetta fyrirkomulag er málamiðlun til að reyna að leysa spurninguna um aðild Palestínumanna. Viðbrögð Arabaleiðtoga við vinnuplagginu eru mjög mismun- andi. Ibrahim, utanrikisráðherra Jórdaniu, sagði i New York aó loknum fundi með Cyrus Vanee, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, að hann teldi að menn væru nú nær Genfarráðstefnu en nokkru sinni áður. Hins vegar sagði Assad Sýrlandsforseti í Damaskus i dag að stórt krafta- verk þyrfti að gerast til að koma I veg fyrir annað stríð milli Araba og Israela. Assad sagðist þó ekki vilja útiloka friðarmöguleika og að Genfarráðstefna yrði haldin, en mikió kraftaverk þyrfti til að koma í veg fyrir að Israelar og Arabar berðust í framtiðinni. — Andleg píning Framhald af bls. 40 gerzt.“ Þannig mælti Sævar Marínó Ciesielski í lok mál- flutningsins í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum fyrir saka- dómi Reykjavíkur í gærkvöldi, en hann var eini sakborningur málsins, sem notfærði sér rétt sinn til þess að flytja varnar- ræðu. „Þetta er mjög slungió og furðulegt mál allt saman og ákærurnar i minn garð eru þungar," sagði Sævar. „Akæruvaldiö krefst ævilangs fangelsis yfir. mér. Það getur krafizt þess sem því sýnist. Ég lýsti því yfir í upphafi að ég væri saklaus og ég stend við þann framburð." Sævar sagði í varnarræðu sinni að dvölin í fangelsinu væri ekkert sældarbrauð. „Ég hef hýrzt í 700 daga innilokað- ur í klefa, sem er aöeins 2x2,5 metri. Við, sem erum ákæró í málinu, höfum orðið fyrir likamlegu ofbeldi. Lögregla hefur ráðizt að okkur af engu tilefni, þetta hef ég oft horft upp á i gegnum árin, og nú eru þessir menn að yfirheyra okk- ur. Það sem upp úr okkur hef- ur komið eru játningaþulur, ekkert annað. Þetta er heila- þvottur, þetta er andleg pin- ing.“ Sævar sagði að Bragi Steinarsson saksóknari hefði haft eftir einhverjum að martröó væri lyft af þjóðinni vegna þess að málið væri upp- lýst. Þetta væri kannski rétt ef þeir gætu fundið réttu menn- ina, þá sem væru sekir. „Virðulegu dómarar, það er ykkar að dæma, verið skyn- samir," voru lokaorð Sævars. — Miklar kol- munnatorfur Framhald af bls. 40 þessum fiski, en hvort það er hag- kvæmt fer efgir því í hvað hægt er að nota þetta hráefni og hvað fæst fyrir það. Ðað er dýrt að sækja svona langt, en við höfum verið fljótir að fá afla i flottrollið þegar á miðin er komið." FRAMS0GUMENN: Landsmálafélagið Vörður: Ráðstefna um skóla- og menntamál 0 Landsmálafélagið Vörður, samband félaga Sjálfstæðismanna í hverfum Reykjavíkur efnir til ráðstefnu um skóla- og menntamál laugardaginn 8. október kl. 14iValhcll, Háaleitisbraut 1. Q Á ráðstefnunni verður fjallað um einstaka þætti skóla- og menntamála og verða fluttar fjórar framscguræður en síðan fara fram frjálsar umræður og fyrirspurnir. £ Ráðstefnustjóri: Edgar Guðmundsson, verkfræðingur. 0 Allt áhugafólk um skóla- og menntamál er sérstaklega boðið velkomið. £ Kaffiveitingar verða á boðstólum. Davið Oddsson, borgarfulltrúi Elin Ólafsdóttn kennari Ragnar Júliusson, form fræðsluráðs Reykjavíkur Hannes Gissurarson. háskólanemi \>v Q SS^ Stjórn Varðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.